Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Síða 36
Gæsahúð í boði Potts og Högna
Líf í Tjarnarbíói Starfsemin í Tjarnarbíó hefur vakið verðskuldaða
athygli en alls hafa um 6.000 manns sótt viðburði þar síðan það opnaði 1. október
á þessu ári eftir miklar og gagngerar endurbætur fyrir fyrir tilstilli Reykjavíkur-
borgar. Boðið hefur verið upp á fjölbreytta listviðburði og ljóst að rýmið hefur
upp á margt að bjóða. Fram undan er spennandi dagskrá í desember, til stendur
að setja Ævintýrið um Augastein aftur á svið í Tjarnarbíói. Snuðra og Tuðra mæta
með Jólarósirnar sínar og sýningum á nýju leikriti eftir Jón Atla verður haldið
áfram út desember. Ólafur Arnalds heldur tónleika 16. desember, Seabears 19.
desember og Sudden Weather Change verður svo með tónleika 27. desember.
ÁsTarsTjarna í bíói Dísu Mynd byggð á ævi ljóðskáldsins
Johns Keats verður sýnd í Bíói Paradís á miðvikudags -og fimmtudagskvöld. Hún
ber heitið Ástarstjarna (Bright Star) og gerist árið 1818 í Lundúnum. Segir myndin
frá ljóðskáldinu John Keats (Ben Whishaw) og sambandi hans við stúlkuna úr
næsta húsi, hina fögru Fanny Brawne (Abby Cornish). Þeir sem þekkja ævi Johns
Keats vita hver örlög þessara elskenda urðu. Skáldið dó langt fyrir aldur fram og er
af mörgum talinn hafa verið haldinn mikilli snilligáfu, jafnvel meiri en Shakespeare.
Heiti myndarinnar er vísun í eina af sonnettum Keats sem hann skrifaði þegar
hann var með Fanny Brawne: „Bright star, would I were steadfast as thou art“.
36 fókus 8. desember 2010 miðvikudagur
Adda lærir að synda
Er þriðja bókin í hinum sígilda bóka-
flokki eftir verðlaunahöfundana
Jennu og Hreiðar. Öddu-bækurnar
eru á meðal vinsælustu banabóka
sem hafa komið út á Íslandi. Bókin
um Öddu sem lærir að synda kom
fyrst út árið 1948. Þar segir frá við-
burðaríku sumarfríi en Adda lærir
ekki aðeins að synda heldur lærir
hún einnig að það borgar sig ekki að
segja ósatt.
Í grænni lautu
Skemmtilegir söngvaleikir sem börn
á öllum aldri hafa um árabil leikið
jafnt úti sem inni. Sumir leikirnir
hafa gengið kynslóð fram af kynslóð
en aðrir eru nýrri. Bókin er falleg og
á heima á heimili allra barna. Ragn-
heiður Gestsdóttir valdi leikina og
myndskreytti.
Helgi skoðar heiminn
Er saga um virðingu fyrir lífi og nátt-
úru, að vinir rekast alls staðar á líf
sem vill eiga sinn stað í friði. Í bók-
inni er litlum íslenskum sveitadreng
fylgt eftir í hringferð um veröld hans
en með honum í för eru hryssan
Fluga og hundurinn Kátur. Bókin
kom fyrst út árið 1976 og naut strax
mikillar hylli. Höfundar eru Hall-
dór Pétursson teiknari og Njörður P.
Njarðvík.
Óðhalahringla
Er stórskemmtileg kvæðabók þar
sem veröldinni er snúið á hvolf. Hún
er fyrsta ritið af þremur samhangandi
kvæðaverum sem mynda skemmti-
lega furðuskepnu, Óðhalahringlu,
Heimskringlu og Halastjörnu. Óð-
halahringla kom fyrst út árið 1991 og
kvæðin eru eftir Þórarinn Eldjárn en
myndirnar eftir Sigrúnu Eldjárn.
30 Ára
sTarfsafmæLi
Jóhann Sigurðarson, leikari og
söngvari, fagnar 30 ára starfs-
afmæli sínu með því að gefa út
plötuna Lögin úr leikhúsinu sem
er fyrsta sólóplata hans en hann
hefur leikið og sungið mörg veiga-
mikil hlutverk í söngleikjum á
síðustu árum. Mörgum er til að
mynda minnisstæður söngur hans
í Fiðlaranum á þakinu, Vesaling-
unum og My Fair Lady. Lög plöt-
unnar eru öll vel þekkt, til dæmis
Ef ég væri ríkur, Sól rís, sól sest
úr Fiðlaranum á þakinu og Guð í
hæð úr Vesalingunum. Platan er
gefin út af 12 tónum og einvalalið
hljóðfæraleikara leikur á plötunni,
Pálmi Sigurhjartarson leikur á
píanó og orgel, Róbert Þórhallsson
á bassa, Þórður Árnason á gítara
auk blásara. Kvenraddir syngja
Kristjana Stefánsdóttir og Valgerð-
ur Guðnadóttir. Jóhann segir plöt-
una endurspegla margar góðar
minningar úr leikhúsinu þar sem
söngur hefur leikið stórt hlutverk.
bækur fyrir
börnin
Þetta er í fyrsta skipti sem undirrit-
aður skrifar gagnrýni um tónleika
sem hafa bæði handrit og leikstjórn
sem er kannski til marks um hversu
umfangsmiklir þessir árlegu jólatón-
leikar Björgvins Halldórssonar eru
orðnir.
Björgvin er fyrir löngu kominn
með svarta beltið í jólalögum og er
þetta í fjórða skipti sem hann held-
ur tónleika í Laugardalshöll og fær
til sín góða gesti. Tónleikarnir hafa
aldrei verið glæsilegri en að þessu
sinni voru erlendu stórstjörnurn-
ar Paul Potts, Alexander Rybak og
Summer Watson á meðal söngvara.
Að mínu mati stóð Paul Potts upp
úr. Ég er algjör „sökker“ fyrir sögu
þessa manns og hafði mjög gaman af
því að sjá hann þarna. Ég hélt á tíma-
bili að mér væri að vaxa hár aftur
þegar hann söng af mesta kraftinum
í uppáhaldsjólalaginu mínu, O Holy
Night. Þess utan var Potts vinalegur
og fyndinn í þokkabót. Svo hafði ég
hrikalega gaman af því hvernig hann
stóð á sviðinu. Frekar gleitt eins og
rokkstjarna sem var um það bil að
stökkva út í sal.
Það sem annars stóð upp úr
var þegar Högni Egilsson, söngvari
Hjaltalín, flutti Hallelujah eftir Leon-
ard Cohen. Lagið sem Jeff Buckley
gerði ódauðlegt. Þvílík frammistaða
hjá Högna, hljómsveitinni, kór unum
og öllum sem að þessu komu. Þá
var sem fyrr ótrúlegt að hlýða á Jó-
hönnu Guðrúnu Jónsdóttur. Önnur
eins rödd er vandfundin. Annars er
erfitt að taka einhverja út þegar allir
standa sig frábærlega. Helgi Björns
var fáránlega sexí í Ef ég nenni og
flutningur í öllum lögum var til fyrir-
myndar, þó að Alexander Rybak hafi
ekki gert mikið fyrir mig persónu-
lega.
Hvað gestgjafann sjálfan varðar
þá eru fáir flottari en Bó. Alveg gler-
fínn í tauinu sveif gullbarkinn um
sviðið. Mér fannst hann þó spara sig
fullmikið þangað til í næstsíðasta lagi
og fannst hann oft eiga inni.
Mér fannst lagavalið hafa mátt
vera betra en maður verður líka að
taka tillit til þess að þetta er í fjórða
skipti sem þessir tónleikar eru
haldnir og er eflaust verið að reyna
að forðast of margar endurtekningar.
Þá er sviðið í Laugardalshöll löngu
sprungið enda vel yfir 100 manns
á sviðinu og eflaust nær 200 þegar
mest var. Ásgeir Jónsson
Jólagestir
BJörgvins
Hljómsveitarstjóri: Þórir Baldursson
Kynnir: Örn Árnason
Leikstjórn: Gunnar Helgason
Handrit: Björn G.Björnsson
tónleikar
Paul Potts Stóð á sviðinu eins og
rokkstjarna.
Við höfum allir spilað tölvu-leiki mikið og vitum því hversu einfalt það er að ein-angrast í þeim,“ segir Svav-
ar Melberg Pálsson, einn af höfund-
um nýja íslenska borðspilsins Flakks.
Svavar og æskuvinir hans þrír, þeir
Ásgeir Viðar Árnason, Ragnar Már
Ómarsson og Pétur Atli Antonsson
Crivello, hafa unnið að gerð spilsins
undanfarin þrjú ár og nú er afrakst-
urinn loksins kominn í búðir.
„Okkar markmið var auðvit-
að að gera í fyrsta lagi áhugavert og
skemmtilegt spil en einnig að ná fólki
frá tölvunni,“ segir Svavar og bætir
við að reynsla þeirra félaga af tölvu-
leikjum hafi einnig nýst þeim vel við
gerð spilsins. „Það má segja að þeir
sem hafi spilað tölvuleiki nái spilinu
alveg um leið en að foreldrarnir þurfi
örlítið lengri tíma.“ Spilið er ætlað
krökkum frá tíu ára aldri og upp úr
en Svavar segir aldursmörkin koma
til vegna þess að leikmenn þurfi að
notast við samlagningu og frádrátt.
Hann tekur þó skýrt fram að Flakk sé
ekki eiginlegt krakkaspil. „Við erum
allir 26 ára og gerðum spilið með það
í huga að skemmta okkur. En það
endaði svo með að henta mjög breið-
um hópi fólks.“
En hvernig spil er Flakk? „Þetta
er í grunninn hefðbundið borðspil
þar sem þú átt að komast frá byrjun-
arreit og á endareit. Spilið er þannig
uppbyggt að leikmenn flakka um
þrjár eyjur og leysa á þeim
þrautir.“ Svavar segir þá fé-
laga hafa tekið besta eig-
inleikann, að þeirra
mati, úr Hættuspilinu
og nýtt hann í Flakk.
„Við notum sem sagt
þennan eiginleika að
leikmenn geti eyði-
lagt fyrir hver öðr-
um en bættum
um leið við þeim
eiginleika að
þeir geti einnig
hjálpað til.“
Hættuspilið er frægt fyrir að geta
hreinlega slitið vinaböndin og Svav-
ar segir að það sé ekki laust við
að hitnað geti í kolunum þegar
Flakk sé spilað. „Það er mik-
ið um að vera við spilaborð-
ið sem er bara af hinu góða.
Þetta jafnast líka aðeins út
fyrst búið er að bæta við
eiginleikanum að geta
einnig hjálpað til. Ég
var til dæmis að spila með mömmu,
pabba og litla bróður mínum um
daginn og mamma vorkenndi alltaf
þeim sem gekk illa að
hún var allt-
af að hjálpa
til. En svo varð
pabbi nokk-
uð fúll þegar
hún rétti honum
ekki hjálparhönd
þegar hann þurfti
á því að halda.
Henni tókst samt
á einhvern hátt að
vinna sem ég skil nú
ekki alveg,“ segir Svavar
léttur.
Í Flakk geta tveir
til sex spilað í senn
en hver persóna
er með sína eig-
in hæfileika sem
geta nýst henni á ögurstundu. „Hver
persóna kemur bæði í karl- og kven-
kyni svo fólk geti valið. Það er eitt-
hvað sem mjög sjaldan er hugsað um
í svona spilum en við vildum gæta
fyllsta jafnræðis.“
Spilið er einstaklega fallegt í út-
liti og smekklega frágengið. „Það er
óþolandi að opna spil og það er allt
út um allt. Við vildum koma í veg fyr-
ir það.“ Pétur Atli, einn af fjórmenn-
ingunum, sá um að myndskreyta
spilið en hann er einn af efnilegustu
og hreinlega bestu teiknurum lands-
ins. Hann gerði meðal annars teikn-
ingarnar við nýjustu Kisa-bók Hug-
leiks Dagssonar; Eineygði kötturinn
Kisi og leyndardómar Eyjafjallajök-
uls.
Flakk er fáanlegt í verslunum
Haugkaups, Spilavinum, Pennanum
og Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar. asgeir@dv.is
Spilið Flakk er alíslenskt borðspil sem kom út fyrir skemmstu. Það er hannað og búið
til af fjórum vinum sem hafa unnið að gerð þess undanfarin þrjú ár.
nær fóLki frÁ
T L unni Þetta er í grunninn hefðbundið borðspil.
Svavar og Ragnar Á
myndina vantar Ásgeir, sem
er á ferð um landið að kynna
spilið, og Pétur, sem er í námi
erlendis. Mynd RÓbeRt ReyniSSon
Flakk Íslenskt spil sem er
hannað af fjórum vinum.
Mynd SigtRygguR ARi