Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Qupperneq 38
38 ÚTTEKT 8. desember 2010 MIÐVIKUDAGUR
MINNA OFBELDI – FLEIRI INNBROT
Ofbeldisbrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað á milli ára en auðgunarbrotum fjölgað samkvæmt ný-
útkominni skýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Í henni er rakin dreifing tilkynntra brota eftir
svæðum og reynsla íbúa af lögreglu, öryggi og afbrotum. Segja má að samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar
sé hættulegast að búa í miðborg Reykjavíkur, en Hlíðarnar koma þar fast á eftir.
TEXTI: GUNNHILDUR STEINARSDÓTTIR gunnhildur@dv.is
Hlíðar
Íbúafjöldi: 11.041
Meðaltekjur:
3.630.000
Félagslegar íbúðir:
273 á hverja 10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 258 einstaklingar eða
fjölskyldur (ívið hærra en meðaltal)
Afbrot í heild: 2.445
Afbrot á hverja 100 íbúa: 22
Auðgunarbrotum fjölgaði mest í Hlíðunum
en fjöldi kynferðisbrota og nytjastulda hélst
svipaður. Ofbeldisbrotum fækkaði um tæp
42 prósent og fíkniefnabrotum fækkaði
umtalsvert.
Hafnarfjörður
Íbúafjöldi: 25.913
Meðaltekjur:
3.579.000
Félagslegar íbúðir: 92
á hverja 10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 428
einstaklingar eða fjölskyldur (aukning um
31%)
Afbrot í heild: 1.380
Afbrot á hverja 100 íbúa: 5
Brotum fjölgaði um rúm 30 prósent. Auðgun-
arbrotum fjölgaði sem og nytjastuldum og
kynferðisbrotum lítillega. Fíkniefnabrotum
fjölgaði en ofbeldisbrotum fækkaði.
Garðabær
Íbúafjöldi:10.643
Meðaltekjur:
4.322.000
Félagslegar
íbúðir: 25 á hverja
10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 73 einstaklingar eða
fjölskyldur (hækkaði um 15%, samt sem
áður lægst)
Afbrot í heild: 462
Afbrot á hverja 100 íbúa: 4
Brotum fjölgaði um tæplega 23 prósent.
Auðgunarbrotum fjölgaði ásamt
eignaspjöllum og fíkniefnabrotum.
Ofbeldisbrot, nytjastuldum og kynferðis-
brotum fækkaði.
Álftanes
Íbúafjöldi: 2.523
Meðalatvinnu-
tekjur: 4.000.000
Félagslegar
íbúðir: 0
Fjárhagsaðstoð:
27 einstaklingar eða fjölskyldur
Afbrot í heild: 42
Afbrot á hverja 100 íbúa: 1,6
Brotum hefur fækkað í öllum flokkum.
Kópavogur
Íbúafjöldi: 30.357
Meðaltekjur 3.788.000
á ári (yfir meðallagi)
Félagslegar íbúðir: 122
á hverja 10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 495 einstaklingar eða
fjölskyldur
Afbrot í heild: 1.971
Afbrot á hverja 100 íbúa: 6,5
Auðgunarbrotum fjölgar mest en einnig er
fjölgun á fíkniefnabrotum, ofbeldisbrotum og
eignaspjöllum. Kynferðisbrotum fækkaði eftir
mikla fjölgun ári áður og nytjastuldi fækkaði
sömuleiðis.
Miðborgin
Íbúafjöldi: 8.439
Meðaltekjur: 3.478.000
Félagslegar íbúðir: 262
á hverja 10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð:
372 einstaklingar eða
fjölskyldur (hæsta hlutfall veittrar aðstoðar)
Afbrot í heild: 2.241
Afbrot á hverja 100 íbúa: 27
Örlítil fjölgun brota á milli ára og fjölgaði
um ríflega 16 prósent miðað við meðaltal
2006–2008. Mest aukning í auðgunarbrotum
en nytjastuldum, kynferðisbrotum og eigna-
spjöllum fjölgaði einnig. Fíkniefnabrotum
fækkaði um tæp 60 prósent og ofbeldisbrot-
um um rúm 14 prósent.
Vesturbær
Íbúafjöldi:
16.327
Meðaltekjur:
3.786.000
Félagslegar
íbúðir: 80 á hverja 10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 401 einstaklingur eða
fjölskylda
Afbrot í heild: 865
Afbrot á hverja 100 íbúa: 5
Brotum fjölgaði annað árið í röð eða um
rúman þriðjung miðað við meðalfjölda
á árunum 2006–2008. Fjölgunin mest
í auðgunarbrotum en einnig eigna-
spjöllum og nytjastuldi. Öðrum brotum
fækkaði annað árið í röð.
Seltjarnarnes
Íbúafjöldi: 4.395
Meðaltekjur:
4.334.000
Félagslegar
íbúðir: 32 á hverja
10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 49 einstaklingar eða
fjölskyldur (hlutfall lágt þrátt fyrir 33%
hækkun)
Afbrot í heild: 94
Afbrot á hverja 100 íbúa: 2
Ríflega fjórðungs fækkun varð á brotum
frá meðaltali áranna 2006–2008. Brotum
fækkaði því mest á þessu svæði en auðg-
unarbrotum fækkaði annað árið í röð.
Laugardalur
Íbúafjöldi: 13.279
Meðaltekjur:
3.626.000
Félagslegar íbúðir:
202 á hverja 10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 437 einstaklingar eða
fjölskyldur (30% aukning)
Afbrot í heild: 1.351
Afbrot á hverja 100 íbúa: 10
Brotum fækkaði lítillega í Laugardalshverfi
á milli ára. Auðgunarbrot, nytjastuldum og
kynferðisbrotum fjölgaði miðað við undan-
farin ár. Ofbeldisbrotum og fíkniefnabrotum
hefur fækkað. Fjöldi eignarspjalla er svipaður.
Háaleiti
Íbúafjöldi: 13.811
Meðaltekjur: 3.924.000
Félagslegar íbúðir: 120 á hverja 10.000 íbúa
Fjárhagsaðstoð: 234 einstaklingar eða
fjölskyldur
Afbrot í heild: 1.040
Afbrot á hverja 100 íbúa: 7,5
Brotum fækkaði almennt um fimmtung.
Fjölgun á auðgunarbrotum var um 70
prósent en fjöldi ofbeldisbrota hélst nokkuð
stöðugur. Fíkniefnabrotum, kynferðisbrotum
og eignaspjöllum fækkaði.
Breiðholt
Íbúafjöldi: 20.704
Meðaltekjur:
3.482.000
Félagslegar
íbúðir: 264 á hverja 10.000 íbúa (næsthæsta
hlutfallið)
Fjárhagsaðstoð: 725 einstaklingar eða
fjölskyldur (hækkar um 14%)
Afbrot í heild: 1.108
Afbrot á hverja 100 íbúa: 5
Brotum fjölgaði lítillega frá fyrra ári. Auðg-
unarbrotum og kynferðisbrotum fjölgaði en
öðrum brotaflokkum var fækkun.