Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Page 45
miðvikudagur 8. desember 2010 sviðsljós 45
Wesley Snipes verður ekki heima yfir hátíðirnar eftir að dómari hafnaði beiðni um að fresta því að hann hæfi afplánun á fangelsisdómi um mán-
uð. Snipes á að hefja afplánun á morgun, fimmtu-
dag, en hann hafði óskað eftir því að afplánun yrði
frestað til 6. janúar. Rökin sem Snipes gaf fyrir frest-
uninni voru þau að hann ætti fjögur ung börn og
vildi ekki vera settur bak við lás og slá á þessum
viðkvæma tíma árs.
Dómarinn í Flórída, þar sem málið var tekið fyr-
ir, tók rök Snipes hins vegar ekki gild þar sem hann
hefði upphaflega hlotið dóminn fyrir tveimur og
hálfu ári. Hann hefði því haft allan þann tíma til
að koma sínum málum á hreint og undirbúa sig.
Dómarinn benti Snipes einnig á að því fyrr sem
hann myndi hefja afplánun, því fyrr myndi henni
ljúka.
Snipes var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyr-
ir skattsvik í apríl 2008 en hann hefur barist gegn
þeim dómi allt til dagsins í dag en án árangurs.
Hann reyndi meðal annars að fá málið flutt frá
Flórída á þeim grundvelli að dómur þar hefði sýnt
fordóma í hans garð.
Engin jól
með börnunum
Wesley Snipes á leið í fanglesi:
Wesley Snipes Getur ekki barið sér leið út úr þessu.
Orlando Bloom í jóga:
Undarleg
samsetning
Þetta er senni-lega í eina skiptið sem þú munt sjá karl-
mann í leðurjakka og
stuttbuxum með hjálm
og jógadýnu á mótor-
hjóli. Það er Hollywood-
stjarnan Orlando Bloom
sem á heiðurinn af þess-
ari undarlegu samsetn-
ingu en það er sjaldgæft
að sjá mann á mótor-
hjóli með jógadýnu undir hendinni. Þessar myndir
voru teknar af leikaranum þegar hann var að koma
úr jógatíma í Brentwood í Los Angeles.
Það er nóg um að vera hjá Bloom þessa dagana
en hann á von á sínu fyrsta barni með eiginkonu
sinni, fyrirsætunni Miröndu Kerr.
Orlando
Bloom
Mótorhjóla-
töffari með
jógadýnu.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
komdu í áskrift!
512 70 80
dv.is/askrift
frjálst, óháð dagblað