Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Page 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 11. maí 2011 Heimsmet Íslendinga í góðærinu Einkaþotur Einkaþotur voru ein helsta birtingarmynd íslenska góðærisins en einungis þeir allra efnuðustu höfðu efni á slíkum farartækjum. Einkaþotueign íslenskra auðmanna færðist mjög í aukana frá árinu 2005. Samkvæmt skýrslu rannsóknar- nefndar Alþingis var Björgólfur Thor Björgólfsson fyrsti íslenski auðmaðurinn til að kaupa sér einkaþotu - hún kostaði á annan milljarð króna. Einnig var stofnað sérstakt leiguflugfélag sem íslenskir auðmenn leigðu þotur af ef svo bar undir. Einkaþotur lentu um 400 sinnum á Reykjavíkurflugvelli sumarið 2006 og árið eftir stóðu 11 einkaþotur á flugvellinum. Mjög færðist í aukana að bankar og stórfyrirtæki notuðu einkaþotur, sem þau annaðhvort áttu eða leigðu, til að fljúga til útlanda. Nánast má fullyrða að engin þjóð hafi státað af fleiri einkaþotum miðað við höfðatölu en Íslendingar á þessum tíma. Range Rover-bílar Á fyrstu tíu mánuðum ársins 2007 voru 64 Range Ro- ver-jeppar fluttir inn og seldir á Íslandi, samkvæmt frétt Eyjunnar frá því í nóvember 2007. Bílarnir kostuðu á bilinu 10 til 16 milljónir króna. Þetta voru jafnmargir Range Rover-jeppar og höfðu verið seldir samanlagt í Svíþjóð og Danmörku á þessu sama tímabili. Einn Range Rover-jeppi var því á hverja tæplega 5.000 íbúa á Íslandi á meðan einungis einn slíkur jeppi var á hverja 230 þúsund íbúa í hinum löndunum. Þessi Range Rover-eign miðað við höfðatölu á Íslandi var því að öllum líkindum heimsmet á þessum tíma. Bang & Olufsen Frá árinu 2005 jóks sala á Bang & Olufsen-raftækjum umtalsvert hér á landi. Á árunum 2005 til 2008 voru það ein- ungis Rússar sem keyptu meira af slíkum tækjum. Íslendingar voru því í öðru sæti á heimslistanum yfir kaupendur á þessum vel hönnuðu og smekklegu, en jafnframt dýru, raftækjum. Miðað við höfðatölu voru Íslendingar hins vegar langefstir á heimslistanum yfir kaup á Bang & Olufsen-raftækjum. Svo virðist því vera sem ansi margir Íslendingar, og alls ekki aðeins þeir allra efnuðustu, hafi fjárfest í raftækjum frá Bang & Olufsen á þessum árum. lánaði fyrir kaupunum á Aldamótum ehf. Viðskiptavildin færð niður Þessi viðskiptavild rýrnaði um 150 milljónir á næstu tveimur árum og stóð í rúmum 100 milljónum króna í árslok 2009, samkvæmt ársreikn- ingi. Auk þess sem eignarhluturinn í Aldamótum ehf. var bókfærður á 0 krónur. Skuldir félagsins voru þá komnar upp í nærri 326 milljónir króna. Af ársreikningum félaganna að dæma er því ekki annað að sjá en að stjórnendur félaganna tveggja hafi fjármagnað kaup Næstu aldamóta ehf. með því að reikna með mikilli viðskiptavild sem tekin voru lán út á til að kaupa rekstrarfélag Bang & Olufsen á allt of háu verði – nærri þreföldu bókfærðu verði. Þessi við- skiptavild var síðan afskrifuð smám saman næstu árin þar á eftir. Eftir stendur að fjármálafyrirtækið sem lánaði fyrir kaupunum – ekki er vit- að hvaða félag það er – þarf væntan- lega að afskrifa meirihluta þessara skulda í kjölfarið á gjaldþroti félags- ins. Guðmundur Pétursson, skipta- stjóri Næstu aldamóta ehf., segir að ekkert liggi fyrir um hvort eða hve- nær Bang & Olufsen-verslunin verði opnuð aftur. „Nei, það liggur ekkert fyrir um það,“ segir Guðmundur og bætir því að verslunin sé ein af þeim eignum sem séu inni í þrotabúinu. Guðmundur segir að hann sé til- tölulega nýbúinn að fá búið í hend- ur og lítið sé að frétta af uppgjöri á þessu stigi málsins. Fimmtudagur 12. maí. Sauðárkrókur kl. 12 á Mælifelli, Aðalgötu 7. Akureyri kl. 18 á Strikinu, Skipagötu 14. Föstudagur 13. maí. Akranes kl. 12 á Gamla kaupfélaginu. Mánudagur 16. maí. Reykjavík kl. 12 á Grand hótel, Sigtúni 38. Reyðarfjörður kl. 18 í fundarsal AFLs Búðareyri 1. Þriðjudagur 17. maí. Selfoss kl. 12 á Hótel Selfoss. Miðvikudagur 18. maí. Suðurnes kl. 12 á Flughóteli. RAFIÐANAÐARSAMBAND ÍSLANDS Stórhöfða 31 | 110 Reykjavík | sími: 580 5200 | Fax: 580 5220 | rsi@rafis.is KYNNINGAFUNDIR VEGNA KJARASAMNINGS RSÍ OG SA/SART Á ALMENNA MARKAÐNUM Hæstiréttur Íslands hafnaði á þriðju- dag kröfu lögreglustjórans á höfuð- borgarsvæðinu um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni sem ját- aði að hafa framið gróft kynferð- isbrot gegn stúlku á Austurvelli aðfaranótt 3. maí síðastliðins. Hér- aðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að sömu niðurstöðu. Mað- urinn játaði að hafa komið aftan að konunni og rekið fingur inn í enda- þarm hennar þar sem hún kraup niður til að pissa. Í greinargerð lög- reglunnar kemur fram að maður- inn hafi „ákveðið að káfa aðeins á henni“, eins og hann orðaði það sjálf- ur. Fórnarlambið kvartaði undan eymslum í endaþarmi eftir árásina. Konan hafi „hrokkið“ undan mann- inum en hann hafi hlegið og haft sig á brott. Tvö vitni sáu manninn hlaupa af vettvangi og upp í biðfreið sína. Hann var handtekinn í iðnað- arhúsnæði síðar um nóttina. Hann var fáklæddur þegar lögreglu bar að garði en blautir skór og fatnaður fannst á staðnum. Fram kemur í úr- skurðinum að maðurinn starfar sem leigubílstjóri í afleysingum en þar sem hann er bifvélavirki hefur hann aðgang að iðnaðarhúsnæðinu. Maðurinn var samvinnufús við lögreglu og sagðist hafa viðurstyggð á athæfi sínu og að um „fíflaskap“ hefði verið að ræða og „eitthvað langt út fyrir það“. Hann tók fram að hann hefði ekki verið undir áhrifum áfeng- is eða vímuefna þegar brotið átti sér stað. „Með hliðsjón af játningu kærða, sem fær stuðning af rannsóknar- gögnum, er fullnægt því skilyrði að fyrir liggi sterkur grunur um að hann hafi brotið gegn 1. málsgrein 194. gr. almennra hegningarlaga en brot gegn ákvæðinu varðar allt að 16 ára fangelsi. Þegar litið er til málsatvika er hins vegar ekki fullnægt því skil- yrði ákvæðisins að brotið sé þess eðlis að nauðsynlegt sé með tilliti til almannahagsmuna að kærði sæti gæsluvarðhaldi. Er því kröfu lögreglu um að kærði sæti gæsluvarðhaldi hafnað,“ segir í úrskurði Hæstaréttar. valgeir@dv.is Stakk fingri í endaþarm konu á Austurvelli: Kynferðisbrotið var „fíflaskapur“ Frá Austurvelli Maðurinn sagðist hafa viðurstyggð á athæfi sínu. Mynd úR sAFni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.