Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 11. maí 2011 Miðvikudagur
Kvótafrumvarp afgreitt
úr ríkisstjórn:
„Þjóðin
mun tapa“
„Miðað við þær fregnir sem fyrir
liggja í þessu frumvarpi þá fer það
augljóslega gegn efnahagslegri hag-
kvæmni,“ segir
Ragnar Árnason,
hagfræðiprófess-
or við Háskóla Ís-
lands, um kvóta-
frumvarpið sem
var afgreitt úr rík-
isstjórn á þriðju-
dag. Ragnar segir
að það skipti
höfuðmáli að styrkja undirstöðuat-
vinnuvegi þjóðarinnar, en ekki rýra
rekstrarskilyrði þeirra eins og gert sé
með frumvarpinu. Ragnar telur að
frumvarpið rýri samkeppnisstöðu ís-
lensks sjávarútvegs.
„Þjóðin í heild mun tapa. Auð-
vitað bitnar þetta mest á sjávarút-
veginum sjálfum en jafnvel hinir
munu tapa á þessum breytingum.
Hið hækkaða veiðigjald mun renna í
ríkissjóð og verða notað á þann hátt
sem ríkinu er tamt. Það, ásamt hin-
um breytingunum, mun veikja sjáv-
arútveginn þannig að tekjuskattur
bæði sjávarútvegsfyrirtækjanna og
þeirra sem vinna við sjávarútveginn
mun verða minni í framtíðinni,“ seg-
ir Ragnar aðspurður um efnahagsleg
áhrif frumvarpsins og bætir við að
heildarskatttekjur ríkissjóðs muni að
öllum líkindum minnka með frum-
varpinu.
„Það að stytta eignarhald á afla-
heimildum veikir eignarréttarstöðu
sjávarútvegsins verulega og dregur
úr hvata sem sjávarútvegurinn hefur
haft til að hugsa til langrar framtíðar
varðandi fjárfestingar í fiskiskipum,
fiskistofnum, mannauði og mark-
aðsstarfi,“ segir Ragnar sem telur að
afnám á frjálsu framsali aflaheimilda
dragi úr líkunum á því að hagkvæm-
ustu fyrirtækin hverju sinni stundi
veiðarnar.
Betra loft
betri líðan
Airfree lofthreinsitækið
• Eyðir frjókornum og svifryki
• Vinnur gegn myglusveppi og ólykt
• Eyðir bakteríum og gæludýraflösu
• Er hljóðlaust og sjálfhreinsandi
Hæð aðeins 27 cm
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18
Þrjú eignarhaldsfélög í eigu starfs-
manna fjárfestingarbankans Saga
Capital voru úrskurðuð gjaldþrota
í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 13.
apríl síðastliðinn. Þetta kemur fram í
Lögbirtingablaðinu. Félögin þrjú heita
Maríutása ehf., Hersir Sigurgeirsson
ehf. og Folafótur ehf. Að minnsta kosti
eitt þeirra, Maríutása, var notað til að
fjárfesta í hlutabréfum í Sögu Capital
– sem í dag heitir Saga Fjárfestingar-
banki. Skiptastjóri félaganna þriggja
er Guðrún Björg Birgisdóttir.
Maríutása var í eigu Þorvaldar Lúð-
víks Sigurjónssonar, fyrrverandi for-
stjóra Sögu, sem sagði starfi sínu lausu
um miðjan febrúar síðastliðinn. Hers-
ir Sigurgeirsson ehf. var í eigu Hersis
Sigurgeirssonar, eftirmanns Þorvald-
ar Lúðvíks á forstjórastóli Sögu, en
Hersir hafði verið framkvæmdastjóri
áhættustýringar Sögu fram að því.
Folafótur var í eigu Rúnars Friðriks-
sonar, framkvæmdastjóra eigin við-
skipta Sögu Capital.
Skuldugasti banka-
stjóri landsins
DV greindi frá því í janúar síðastliðn-
um að Þorvaldur Lúðvík skuldaði vel
á annan milljarð króna og væri þar
með, að öllum líkindum, skuldugasti
bankastjóri landsins. Hluti af þessum
skuldum Þorvaldar var skuldir eignar-
haldsfélags hans sem nú hefur verið
sett í þrot.
Maríutása skuldaði Sparisjóða-
bankanum, Icebank, rúman millj-
arð króna í árslok 2009 samkvæmt
ársreikningi þess árs. Skuld eignar-
haldsfélags Þorvaldar Lúðvíks var
upphaflega tilkomin vegna þess
að eignarhaldsfélagið keypti hluta-
bréf í Sögu Capital árið 2007 fyrir 370
milljónir króna og tók til þess lán frá
Icebank. Lánið frá Icebank, sem var
í japönskum jenum og svissneskum
frönkum, hækkaði síðan umtalsvert
vegna gengisfalls íslensku krónunnar.
Þegar Saga Capital var stofnaður, árið
2007, var Þorvaldur Lúðvík stærsti
hluthafi bankans með 12 prósenta
eignarhlut.
Í svari sínu við fyrirspurn DV um
skuldastöðu Þorvaldar Lúðvíks sagði
forstjórinn þáverandi að fjármál hans
væru „í viðráðanlegum farvegi“. Orð-
rétt sagði Þorvaldur Lúðvík: „Hrun-
ið hafði vitanlega áhrif á mig eins og
aðra landsmenn. Þetta eru mín pers-
ónulegu mál og ég kýs að tjá mig ekki
um þau, að öðru leyti en því að þau
eru í viðráðanlegum farvegi.“
Síðan Þorvaldur Lúðvík sagði þetta
hefur hann látið af störfum hjá Sögu
Capital auk þess sem Maríutása hefur
verið sett í þrot.
Hersir ehf. skuldaði rúmlega
238 milljónir
Félag Hersis Sigurgeirssonar skuldaði
rúmlega 238 milljónir króna sam-
kvæmt ársreikningi þess 2008. Tap
þess árs var nærri 131 milljón króna
og var eiginfjárstaðan neikvæð um 93
milljónir króna. Endurskoðandi Hers-
is Sigurgeirssonar ehf. vakti athygli
á þessu í ársreikningnum: „Við telj-
um rétt að vekja athygli á því að sam-
kvæmt efnahagsreikningi er eiginfjár-
staða félagsins neikvæð um rúmar 93
milljónir króna í lok ársins.“
Félagið var því orðið tæknilega
gjaldþrota strax í árslok 2008. Lán
félagsins voru í erlendum myntum og
átti það að greiða 216 milljónir af þeim
árið 2010.
Á móti þessum skuldum voru
óskráð hlutabréf, líklega í Sögu Capi-
tal, að verðmæti 145 milljónir króna.
Þessi hlutabréf voru keypt árið 2007
en fjárfestingarbankinn var einmitt
stofnaður á því ári.
Í ársreikningi Folafótar, félags
Rúnars, fyrir árið 2009 gerir endur-
skoðandi félagsins einnig fyrirvara
um rekstrarhæfi þess. „Eiginfjárstaða
félagsins er neikvæð um ríflega 214
mkr. í lok ársins og eru engar eign-
ir í félaginu.“ Skuldir félagsins námu
sömu upphæð – 214 milljónum. Fé-
lagið hafði átt eignir sem metnar voru
á 140 milljónir króna árið 2008 en var
búið að færa eignastöðuna niður í núll
árið 2009. Hugsanlegt er að um hafi
verið að ræða hlutabréf í Sögu Capi-
tal, líkt og í tilfelli Hersis. Félagið hefði
átt að greiða rúmlega 208 milljónir af
skuldum sínum í fyrra.
n Félög þriggja starfsmanna Sögu
Capital sett í þrot n Félag Þorvaldar
Lúðvíks Sigurjónssonar skuldaði
Icebank milljarð n Keyptu líklega öll
hlutabréf í Sögu Capital árið 2007
Félög Forstjóra
sögu sett í þrot
„… þau eru í viðráð-
anlegum farvegi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Tók við af Þorvaldi Eignarhaldsfélag
eftirmanns Þorvaldar Lúðvíks á forstjórastóli
Sögu, Hersis Sigurgeirssonar, hefur einnig
verið sett í þrot. Félagið skuldaði rúmar 200
milljónir sem hefðu átt að greiðast í fyrra.
Maríutása
Þorvaldar í
þrot Þorvaldur
Lúðvík sagði við
DV fyrr á árinu
að fjármál hans
væru í viðráðan-
legum farvegi.
Nú hefur eignar-
haldsfélag hans
verið sett í þrot.
12. janúar 2011
Verktakar orðnir þreyttir á endurteknum þjófnaði á olíu:
„Þetta eru bara atvinnumenn“
„Það vita það svo sem allir að þar sem
olía er aðgengileg þar er henni stol-
ið,“ segir Ingileifur Jónsson, eigandi
verktakafyrirtækis sem unnið hefur
að vegavinnu á Sandskeiði á Hellis-
heiði að undanförnu. Í byrjun mán-
aðarins var talsverðu af olíu stolið
af vinnuvélum og tækjum á svæð-
inu. Ingileifur segir þetta ekkert eins-
dæmi. Aðrir verktakar hafi einnig
orðið varir við olíu stuld og að um við-
varandi vandamál sé að ræða. „Þar
sem menn sjá vinnuvélar eða tæki
án eftirlits, og telja að þeir geti napp-
að olíunni án þess að vera gómaðir,
munu þeir reyna það,“ segir Ingileifur
og bætir við að um sé að ræða verð-
mæti sem auðvelt sé að koma í verð.
Þá segir hann að þjófnaður á olíu hafi
færst í vöxt samfara hækkandi olíu-
verði.
Ingileifur segir að lítið sé hægt að
gera til þess að sporna við olíustuldi
nema það að hafa menn í vinnu við
það að vakta vélarnar. Þó að læsing sé
að jafnaði á eldsneytistönkum vinnu-
véla og annarra tækja komist menn
fram hjá þeim. „Menn geta opnað
lása, eða spennt þá upp,“ segir Ingi-
leifur. Eina svarið við olíustuldi sé að
hafa vaktmann á staðnum en jafn-
vel þá geti þjófar komist undan með
olíu. Ingileifur segir þetta vera þreyt-
andi til lengdar enda ekki ókeypis að
fylla tanka stórra vinnuvéla miðað
við eldsneytisverð í dag. „Ég verð fyr-
ir töluverðu tjóni þegar svona gerist,“
segir hann en benda má á að olía á
400 lítra eldsneytistank í vörubíl kost-
ar tæplega 100 þúsund krónur miðað
við olíuverð í dag.
DV náði tali af öðrum verktaka
sem hafði sömu sögu að segja. „Við
lentum tvisvar í því að fjögur þúsund
lítrum var stolið af okkur,“ segir verk-
takinn sem vill ekki láta nafns síns
getið. „Þetta eru bara atvinnumenn –
menn í vinnunni.“
simon@dv.is
Mikið tjón Það kostar um hundrað þúsund að fylla 400 lítra
tank á vörubíl miðað við olíuverð dagsins í dag.