Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 12
12 | Fréttir 11. maí 2011 Miðvikudagur Anna Sigríður Jónsdóttir glímdi við matarfíkn frá unga aldri og horfði svo á eftir ellefu ára dóttur sinni feta sömu braut. Hún steig fram í mánu- dagsblaði DV og sagði sögu sína. En hún er ekki ein í þessari baráttu. Kona sem hefur glímt við matarfíkn frá sex ára aldri stígur nú fram. Fíkn- in hertók huga hennar og að lokum bugaði þunglyndið hana. Hún lagðist inn á geðdeild og gaf son sinn frá sér um tíma. Á meðan reyndi hann að takast á við eigin matarfíkn en gafst upp áður en hann náði tökum á fíkn- inni, sem varð þess valdandi að hann eyddi fermingarpeningunum í ham- borgara en ekki utanlandsferð. Eftir rúmt ár í fráhaldi finnur kon- an ekki fyrir þunglyndinu lengur og segir nú sögu þeirra mæðgina. Hún vill ekki láta nafns síns getið vegna sonarins. Mál þeirra eru enn óupp- gerð þar sem hann er ekki tilbúinn til að taka ábyrgð á gjörðum sínum og hún vill gefa honum þann tíma sem hann þarf. Við köllum hana því Júlíu og gefum syni hennar nafnið Hjálm- ar. Borðaði vegna offitunnar Svo ótrúlegt sem það virðist höfðu foreldrar Júlíu alltaf áhyggjur af henni í æsku. Það var vegna þess að hún var ósköp ræfilsleg, lítil písl sem borðaði lítið sem ekkert. Vegna stöð- ugra veikinda hafði hún nefnilega enga matarlyst. Það breyttist svo þeg- ar hálskirtlarnir voru teknir úr henni þegar hún var sex ára. Eftir það fékk hún matarlystina og þá var loksins gaman gefa henni að borða. Foreldr- um sínum til mikillar gleði tók hún endalaust við og þeir töldu að nú yrði hún heilbrigð lítil stúlka. Gleðin ent- ist ekki lengi því tveimur árum síðar var Júlía orðin spikfeit. „Frá unga aldri var ég feitari en jafnaldrar mínir. Á myndum frá því í sjö ára bekk er ég búttuð en í átta ára bekk er ég orðin virkilega feit. Ég hef glímt við þetta allar götur síðan. Matarlystin hefur verið óhófleg og ég borðaði meira en eðlilegt getur talist. Vegna þess fitnaði ég og viðhélt síðan þyngdinni með því að nota mat sem huggun. Ég sé það núna að þetta var vítahringur. Mér leið illa með sjálfa mig og deyfði mig með mat. Ég kunni engin önnur ráð til þess að takast á við vanlíðanina. Ég borðaði yfir allar tilfinningar og þá skipti engu hvort þær væru góðar eða slæmar. Auðvi- tað var þetta ekki eðlilegt ástand og mér var strítt út af vaxtarlaginu og ég var kölluð fitubolla.“ Sonurinn smitaðist Foreldrar hennar voru ráðalausir en sendu hana til sérfræðings í efna- skiptasjúkdómum þegar hún var tíu ára. Hann sagði þeim að hún ætti bara að borða minna en það var eins og berjast við vindmyllur. Ekk- ert gekk. „Ég fékk mér það sem mig langaði í og það var engin leið til að halda mér frá þessu. Enda var enda- laus afneitun í gangi. Það datt engum í hug að þetta gæti verið fíknisjúk- dómur. Það sorglega við það er að sag- an endurtók sig svo með son minn. Hann var átta ára þegar hann fór að fitna svakalega og ég gerði það sama og foreldrar mínir, fór með hann til næringarfræðings. Þar var sett upp plan sem hann átti að fylgja en ekkert gekk. Hann borðaði það sem honum sýndist og borðaði þar að auki mjög mikið í hverri máltíð, nánast eins og fullorðinn maður.“ Fíknin birtist meðal annars í óseðjandi löngun í mat og gríðarlegri matarlyst. „Ég eldaði alltaf eins og ég væri að elda fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Mínar matarvenjur höfðu áhrif á hann. Hann hafði mig að fyrir- mynd og sá hvernig ég borðaði. Oft- ast hollan, góðan og næringarrík- an mat en ofsalega mikið af honum. Eins var ég alltaf að hugsa um mat og tala um mat. Ég bauð fólki mjög oft heim í mat og eldaði þá mjög stóra skammta svo ég ætti örugglega nóg af afgöngum sem ég gæti gætt mér á daginn eftir. Hann horfði upp á þetta allt saman og smitaðist af þessu. Ég var alveg blind á það sem var að gerast. Mér fannst þetta bara voða huggulegt og gladdist yfir því að fá félagsskap í neyslunni. Það hvarflaði ekki að mér að stoppa hann af fyrr en málin voru komin í óefni. Þetta er svo lúmskt.“ Á staðnum en ekki til staðar Þau voru tvö á heimilinu og afar náin. „Ég sýndi honum ástríki en á mín- um forsendum. Ég var ekki að rækta sjálfa mig, fór lítið út og var aldrei í samböndum þannig að mitt líf sner- ist að öllu leyti um hann og vinnuna. Það var það eina sem ég átti.“ Vinnan var krefjandi og tók sinn toll. Hún tók þó þá ákvörðun að drengurinn yrði ekki skilinn einn eftir heima löngum stundum. Þess í stað tók hún vinnuna með sér heim. „Ég var á staðnum en ekki til staðar. Hann var í tölvunni og ég í vinnunni og einu samskiptin sem ég átti við hann var þegar ég spurði hvort hann væri búinn að læra eða eitthvað þannig.“ Missti sig í matar- og tölvufíkn Eftir fjögurra ára búsetu erlendis fluttu þau aftur heim til Íslands þegar drengurinn var tólf ára. Á fyrsta ári í gagnfræðaskóla datt hann út úr öll- um tómstundum. „Matarfíknin og tölvufíkn voru að ná tökum á honum og hann missti tengslin við félagana. Þegar hann var búinn snemma í skólanum fór hann í sjoppuna og birgði sig upp af sælgæti og skyndi- bita og settist svo fyrir framan tölv- una þar sem hann sat þar til ég kom heim. Hann einangraði sig og borð- aði til að hugga sig.“ Sonurinn stal peningum fyrir skyndibita Eftir nokkurra mánaða törn komst Júlía að því að Hjálmar var hættur að borða í mötuneyti skólans og nánast alfarið farinn að lifa á skyndibita. „Þá var hann að stela peningum frá mér fyrir þessu skyndibitafæði auk þess sem hann tók fermingarpeningana út af bankareikningnum. Fermingar- peningarnir áttu að fara í utanlands- ferð en hann keypti sér hamborgara, franskar og sælgæti fyrir þá.“ Það var líka hluti af stærra vanda- máli. Hjálmari leið illa í skólanum þar sem hann var lagður í einelti. „Vafalaust út af þyngdinni. Ég var sjálf að berjast við mína fíkn og aðra erfið- leika auk þess sem ég var í krefjandi starfi þannig að ég veitti þessu ekki eftirtekt. Aðallega vegna þess að ég var orðin alvarlega þunglynd.“ „Hann var ógnandi“ Þunglyndið gerði það að verkum að Júlía einangraði sig líka og saman sátu þau mæðgin föst í þessum að- stæðum, bæði í bullandi vanmætti og vanlíðan. Ástandið var hræðilegt. Hjálmar hlýddi henni í engu, þver- braut allar reglur á heimilinu og fór á bak við móður sína. Verst var að Hjálmar var farinn að sýna ofbeldisfulla hegðun í skólan- um og braut bæði húsgögn og rúður. „Honum leið skelfilega. Ég var ekki beinlínis hrædd við hann en hann var ógnandi og notaði ljót orð. Ég notaði líka ljót orð á hann. Eins og ég sagði honum þá áfellist ég hann ekki. Ég var fullorðna manneskjan í þessu sambandi og átti að vita hvað ég væri að gera. Þetta var á mína ábyrgð. Ég leitaði mér hjálpar en hún dugði ekki til og ég var komin í þrot. Ég gafst upp og gerði það skásta sem ég gat gert í stöðunni með því að kalla á hjálp. Mér fannst mér hafa misheppnast í uppeldinu og finnst enn að ég hafi brugðist honum.“ Á geðdeild og sonurinn í fóstur Júlía brotnaði alveg niður, lagðist inn á geðdeild og bað barnavernd að taka drenginn. Hann var þá færður í fóstur hjá fjölskyldu sem bjó í sama hverfi. „Fyrir hann var það mikið áfall þegar hann var rekinn að heiman. Mamma hans brást honum algjörlega og hann upplifði það þannig. Ég sé það aftur á móti þannig að ég gafst upp.“ Mæðginin voru aðskilin í tæp tvö ár. Á þessum tíma fengu þau bæði að- stoð, saman og hvort í sínu lagi. Unn- ið var að því að þau gætu búið saman og lifað eðlilegu lífi. Með aðstoð sál- fræðinga, annars fagfólks og með- ferðarinnar sem Júlía sækir vegna matarfíknarinnar hafa þau borið gæfu til þess að búa saman í eitt og hálft ár. „ Sumir gáfust upp á okkur og sögðu að það væri ekki hægt að hjálpa okkur. En það gengur betur hjá okkur núna. Sérstaklega eftir að ég fór í fráhald. Þá breytti ég afstöðu minni gagnvart honum. Ég skil hann bet- ur og hef því meira umburðarlyndi gagnvart brestunum hans. Ég get tek- ið öllu af meira æðruleysi en ég gat fyrir rúmu ári. Mér líður líka betur og er öll jákvæðari.“ Lengi í afneitun Sonur hennar reyndi einnig að fara þessa leið og leitaði til Miðstöðvar matarfíkla á meðan hann var enn í fóstri, þá fimmtán ára. „Hann fór þangað því honum leið illa á sál og líkama og taldi þyngdina eiga stóran þátt í sinni vanlíðan. Þetta var eilífð- arbarátta. En hann var ekki tilbúinn og gafst því upp eftir smátíma. Hann verður að finna sinn botn.“ Júlía skilur það vel. Enda var hún ekki tilbúin til að fylgja honum fyrir fjórum árum. „Ekki frekar en þegar ég fór með hann til næringarfræð- ings þegar hann var tíu ára og hann sagði að ég þyrfti kannski að gera eitt- hvað í mínum málum líka. Þá kom á mig fát og ég hugsaði með mér hvað hann væri að skipta sér af mér, ég væri þarna vegna barnsins. Jú, ég sá að ég var of feit, það sáu það allir, en ég gerði mér enga grein fyrir því að ég hefði ekki stjórn. Ég var svo blind á eigin líðan og hegðun.“ Fann hamingju og frelsi Hennar fíkn fólst fyrst og fremst í því að verða pakksödd. „Þegar ég byrjaði í fráhaldi fannst mér skelfileg tilhugs- un að hætta að borða ákveðnar fæðu- tegundir. Rauðvín, camenbert og baguette voru hin fullkomna þrenn- ing og lífsgleði mín var að miklu leyti fólgin í slíkum munaði. Mér fannst lífið varla þess virði að lifa því ef ég gæti ekki borðað. Aftur á mót var ég alveg á botninum í andlegri líðan og nógu örvæntingarfull til þess að gefa þessu séns. Hömluleysið var algjört. En það var ekki fyrr ég hafði verið í fráhaldi í smátíma sem ég áttaði mig á því að andleg líðan mín tengdist mataræðinu. Ég var búin að vera hjá geðlæknum vegna þunglyndis frá því að sonur minn fæddist og náði mér aldrei fyrr en ég fór í fráhald. Þremur mánuðum eftir að ég byrjaði í fráhaldi fyrir rúmu ári gerði ég mér allt í einu grein fyrir því að ég var ekki þunglynd lengur. Og ég hef verið laus úr viðjum þess síðan. Þannig að ég ætla að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að halda mér á þessari braut. Ég vil aldrei lenda í þessum þunglyndisspí- ral aftur,“ segir hún glöð og hamingju- söm að lokum. Sonurinn segir frá Í æsku upplifði hann það mjög sterkt að rödd hans fengi ekki hljóm- grunn og því vildi sonur konunnar líka fá að segja sína hlið á málum nú. Hann upplifði höfnun og af- skiptaleysi þegar móðir hans var í sínu versta þunglyndi vegna mat- arfíknarinnar og því ófær um að sinna honum. Í ofanálag var hann lagður í einelti vegna vaxtarlagsins og flúði ástandið með tölvuleikjum og skyndibita. Verst var samt þeg- ar hann var sendur í fóstur og það reynist erfitt að fyrirgefa. Heima snerist allt um mat „Á meðan ég var enn lítill strákur var mjög fínt að alast upp hjá móð- ur minni. Það var gaman hjá okkur og við höfðum það gott saman,“ segir drengurinn. Þau mæðgin fluttu síðan til út- landa þegar hann var átta ára þar sem hann lærði að borða. „Áður en ég fór út borðaði ég varla neitt. En maturinn þarna var svo góður að ég fór að borða meira. Við borðuðum bæði alltaf mjög mikið. Og heima snerist allt um mat. Fyrir mér var það eðlilegt. Eins hámuðum við alltaf í okkur og þá gátum við borðað meira áður en við fundum fyrir því að vera orðin södd. Með tímanum hef ég aft- ur á móti lært að borða hægt.“ Ósáttur við afskiptin Hann var nú ekkert að spá í þetta á þessum tíma. „Mamma hafði áhyggjur af þessu og sendi mig til næringarfræðings. Mér fannst það böggandi og var ekki alveg sáttur við það. Ég var mótfallinn þessu pró- grammi og fannst að ef ég ætlaði að gera eitthvað í þessu þá yrði ég að gera það á mínum forsendum en ekki af því að mamma vildi það.“ Andsnúinn megrun Eftir á að hyggja unnu þessar til- raunir frekar á móti honum en með. Gaf soninn frá sér veGna matarfíknar n Glímdi við matarfíkn frá sex ára aldri n Lagðist á geðdeild og sendi soninn í fóstur n Hann smitaðist af fíkninni n Stal og eyddi fermingarpeningunum í skyndibita n Hefur ekki fyrirgefið mömmu n Fann frelsi og hamingju í fráhaldi„Mér fannst mér hafa misheppnast í uppeldinu og finnst enn að ég hafi brugðist honum. Ég gat ekki tekið á þessu og hafði ekki krafta til þess að halda áfram. Þetta var bara hræðilegur tími. Börn þurfa að... n ...borða fimm sinnum á dag og hafa reglulega matmálstíma. n ...borða morgunmat. n ...borða ávexti og grænmeti, minnst fimm skammta á dag n ...borða fisk að minnsta kosti tvisvar í viku n ...borða fituminni mjólkurvörur í stað fituríkra n ...borða trefjaríkan mat, baunir, fræ og hnetur n ...forðast óþarfa sykur og fitu n ...borða lítið af sælgæti n ...drekka mikið vatn n ...drekka lítið af gosdrykkjum. Hófsemi er lykilatriði! Út að leika Ráðlagt er að börn og unglingar hreyfi sig í að minnsta kosti 60 mínútur á dag. Hreyfingin ætti að vera miðlungserfið og má skipta heildartím- anum í nokkur styttri tímabil yfir daginn. Góður nætursvefn Mikilvægt er að börn og unglingar fái fullnægjandi svefn og hvíld til að takast á við dagleg störf. Ófullnægjandi svefn er áhættuþáttur fyrir offitu. Hafðu þetta í huga Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.