Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Side 13
Fréttir | 13Miðvikudagur 11. maí 2011
„Það að mamma reyndi að þvinga
mig í einhverja kúra og fara með
mig til næringarfræðings gerði mig
andsnúinn þessum hugmyndum.
Mig langaði ekki að gera þetta og
fannst ósanngjarnt að ég fengi ekki
að segja nei, að það væri ekki virt.
Ég skildi ekki heldur af hverju
hún þyrfti ekki að taka sig á. Seinna
fór hún svo í einn kúrinn og dró mig
með sér. Það gekk vel til að byrja
með. Við léttumst bæði en gáfumst
svo upp. Hún tók það mjög nærri
sér og þá fyrst áttaði ég mig á því að
hún var ekki sátt við sjálfa sig. En ég
vissi ekki hversu mikil áhrif þetta
hafði á andlega líðan hennar.“
„Mamma var aldrei til staðar“
Fljótlega eftir að þau fluttu aftur
heim til Íslands versnaði ástandið
til muna. Þau höfðu haft það gott úti
en hér heima voru þau ekki eins vel
stæð fjárhagslega þannig að móð-
ir hans vann meira. „Mamma var
aldrei til staðar. Það eina sem hún
vildi gera með mér var að læra.
Þetta íslenska myrkur hafði
líka slæm áhrif á hana og hún fékk
skammdegisþunglyndi. Það var
ekki fyrr en seinna að við áttuðum
okkur á því að þunglyndið tengdist
mataræðinu.“
Skyndibiti með félögunum
Maturinn heima var samt aldrei
óhollur. „Það var bara ég sem var
að borða hamborgara og drasl.
Mamma eldaði hollan og góðan
mat en við borðuðum bara of mikið
af honum. Síðan fór ég út í sjoppu
með félögunum í skólanum og
keypti skyndibita í hádeginu eða
löngu frímínútunum því ekki vildi
ég hanga einn í skólanum. Þannig
að þetta skyndibitafæði tengdist
yfirleitt félagsskapnum. Allavega til
að byrja með.
Mamma segir að ég hafi síðan
flúið í mat en ég segi að ég hafi feng-
ið mér skyndibita af því að það var
aldrei til neitt að borða heima. Þeg-
ar mamma var að reyna að taka sig
á keypti hún kannski fjölkorna heil-
hveitibrauð sem ég held að fæstum
krökkum þyki gott. Mig langaði ekki
að borða það og borðaði því sjaldn-
ar heima. Mér fannst einfaldara að
kaupa mér hamborgara og sam-
loku. En það getur vel verið að þetta
hafi verið flótti.“
Barði frá sér
Tölvufíknin var allavega án nokk-
urs vafa flótti. Flótti frá afskipta-
leysinu heima og eineltinu í skólan-
um. „Ég fór í tölvuna til að komast
frá öllu öðru. Tölvuleikurinn er ann-
ar heimur sem er ekki tengdur raun-
veruleikanum og þar leið mér betur.
Þetta var minn flótti.
Mér var strítt af því að ég var feitur
en verra var þegar það var hlegið að
mér að ástæðulausu. Eineltið hætti
ekki fyrr en ég var orðinn ofbeldis-
fullur og búinn að skaða alla sem
sköðuðu mig. Ég barði gerendurna.
Þá var ég sagður klikkaður og það
særði mig. Einu sinni reyndi dreng-
ur að troða mat upp í mig. Ég ýtti
honum frá mér og reyndi að verjast.
Hann gafst ekki upp og á endanum
braut hann bein í bringunni á mér.
Ég fann ekki fyrir sársaukanum því
ég trompaðist og lúskraði á honum.
Á meðan gekk kennarinn inn í stof-
una og ég var tekinn fyrir.“
Útilokaði alla
Í lok níunda bekkjar skipt hann um
bekk og eignaðist vini. Sem bet-
ur fer, því hann átti eftir að þurfa á
þeim að halda.
„Smám saman lokaði ég mig al-
veg af og útilokaði alla frá lífi mínu.
Ég sá enga ástæðu til að tala við
mömmu. Ég vildi ekki taka þátt í
hennar lífi eða gera nokkuð fyrir
hana þegar hún vildi ekki taka þátt
í mínu lífi. Henni sárnaði og á end-
anum var ástandið heiftugt á heim-
ilinu. Við vorum stöðugt reið út í
hvort annað.
Ég upplifði djúpstæða reiði.
Kannski var ég sorgmæddur innst
við hjartað en það kom út í reiði sem
beindist að sjálfum mér og öllum,
sérstaklega mömmu.“
Einmana og yfirgefinn
Í árangurslausri tilraun til að ná bata
fór móðir hans á Reykjalund. Dreng-
urinn var sendur til vinkonu hennar
á meðan. „Enginn sagði mér hvað
var að gerast þannig að mér fannst
ég yfirgefinn. Mér leið eins og mér
hefði verið kastað til þessarar konu
og látinn dúsa þar. Ég missti alla von
til þess að mamma myndi nokkurn
tímann sýna mér umhyggju. Þannig
að ég brynjaði mig gagnvart öllum
og lokaði á tilfinningarnar. Það var
engin von.“
Leið betur í fóstri
Eftir þetta versnaði ástandið á heim-
ilinu til muna. Mæðginin voru ekki
heiðarleg við hvort annað og hann
gerði bara það sem honum sýndist.
„Mér fannst erfitt að tala við hana og
gerði það helst ekki. Mér fannst til
dæmis auðveldara að taka peninga
frá henni en segja henni hvað mig
langaði í.“
Nokkrum erfiðum vikum seinna
var hann sendur í fóstur. „Hún henti
mér út. Það var skelfilegt, eins mikil
höfnun og hægt er að upplifa.
En sem betur fer var heimilið gott
og fólkið líka. Það spjallaði við mig
og spurði hvernig ég hefði það.
Á sama tíma gerði ég mér líka
grein fyrir því hvað ég átti góða vini
því þegar þeir áttuðu sig á því hvern-
ig var í pottinn búið buðu þeir mér
reglulega heim til sín. Það skipti
miklu máli. Í fyrsta sinn í langan
tíma leið mér vel á ný.“
Fyrirgaf henni ekki
Næstu mánuði spurði móðir hans
hann reglulega að því hvort hann
vildi koma aftur heim. Svarið var
nei. „Ég sá enga ástæðu til þess þeg-
ar mér leið loksins betur. Ég vildi
ekki fara aftur inn í sama vítahring-
inn þegar ég var loksins kominn út
úr honum.
Ég hef fyrirgefið móður minni
flest nema það að hún hafi hent
mér út. En þótt ég hafi aldrei fyrir-
gefið henni það var það engu að
síður mun betra fyrir mig. Ég segi
kannski ekki að mér hafi fundist ég
öruggur en mér leið samt svo miklu
betur.“
Leitaði lausnar við fíkninni
Svo hátt var flugið að hann reyndi
meira að segja að takast á við auka-
kílóin. Hann hafði heyrt af Miðstöð
matarfíkla og fór á kynningarnám-
skeið þar. „Mig langaði að létta mig
og ákvað að gefa þessu séns. Ég sá
það hins vegar að ég var ekki til-
búinn fyrir svona mikla skuldbind-
ingu.
Ég mætti alveg gera eitthvað
í þessu en ég þarf að gera það á
mínum forsendum. Í dag finnst
mér þetta of mikil skuldbinding
svo ég treysti mér ekki til þess. Ég
vil bara takast á við eitt vandamál
í einu. Það er alveg nóg. Auðvitað
væri skemmtilegra að vera laus við
aukakílóin en ég er það hamingju-
samur í dag að ég sé enga ástæðu til
að drífa í þessu.“
Betra líf
Eftir smátíma urðu mannabreyting-
ar á fósturheimilinu og heimilinu
hrakaði. Í kjölfarið fór drengurinn
aftur heim til móður sinnar. Sam-
búðin gengur betur núna. „Mamma
hefur breyst mikið. Þetta er ekki
sama manneskjan. Henni er annt
um mig og ég finn það núna þótt
hún hafi ekki kunnað að sýna það
á sínum tíma. Okkar samskipti eru
fín í dag.“
Þegar uppi er staðið segir hann
að vanmáttur móður hans hafi
þrátt fyrir allt gert hann að sterkari
manni. „Það sem hjálpaði mér mest
var að fá að vera einn. Að neyðast til
að horfast í augu við sjálfan mig og
takast á við vandamálin án þess að
fá hjálp. Það gekk ekki vel í byrjun
en síðan lærði ég það. Ef ég lendi
í einhverju í dag þá er það aldrei
neitt vandamál. Af því að ég þurfti
að treysta á sjálfan mig þegar ég gat
ekki treyst á neinn annan fann ég
minn styrk.“
Lífið hefur breyst til hins betra.
„Það gerðist um leið og mamma
tók sig á en ég er líka að sinna sjálf-
um mér og mínum vinum. Það hef-
ur mikið að segja. Ég er lífsglaður í
dag. Það er bara gaman að lifa.“
Gaf soninn frá sér
veGna matarfíkn r
Mælt er með að borða daglega
grænmeti, ávexti, gróf kolvetni og
prótein úr mögru kjöti, eggjum, baunum,
fiskmeti eða úr mögrum mjólkurvörum.
Sérstaklega ætti að huga að neyslu
grænmetis og ávaxta, en rífleg neysla
úr þessum fæðuflokkum getur verið
sterkur leikur í baráttunni við offitu, auk
þess sem grænmeti og ávextir virðist
minnka líkur á mörgum langvinnum
sjúkdómum.
Ráðlagt er að borða fimm skammta,
eða minnst 500 grömm af grænmeti
og ávöxtum á dag, þar af í það minnsta
200 grömm af ávöxtum og 200 grömm
af grænmeti og getur glas af hreinum
ávaxtasafa komið í staðinn fyrir einn
ávöxt daglega. Miða má við heldur minni
skammt fyrir börn yngri en tíu ára. Vatn
er besti drykkurinn með mat.
VariSt! Salatbarir eru dæmi um
hollan skyndibita. En gætið þess að
sesar-salat sem allajafna er talið hollt
inniheldur til dæmis fleiri hitaeiningar
en McDonald‘s-borgari þegar búið er að
hella öllum sósum á salatið. Sósur geta
nefnilega verið mjög feitar.
n Á nammidögum er gott að hafa í huga
að hlaup er bara sykur í gelformi og
hraður sykur er ávanabindandi. Súkkul-
aði er skárri kostur þar sem það er meiri
fita í súkkulaðinu.
n Eins gefa hraður sykur og fita minni
mettunartilfinningu en önnur fæða.
Þú verður því ekki saddur af frönskum
kartöflum.
n Ávaxtasafar og mikið sykurbættar
mjólkurvörur eru stundum markaðssett
fyrir börn en eiga lítið erindi til þeirra.
Sumt er án viðbætts sykurs og þá átta sig
ekki allir á ávaxta- og mjólkursykrinum.
Heppileg fæða
Sátu föst í vonlausum aðstæðum Mæðginin einangruðu sig bæði vegna vanlíðunar.
Saman sátu þau svo föst í þessum vítahring og borðuðu til að hugga sig. Myndin er úr
myndabanka og á ekki beint við efni greinarinnar.
Hin fullkomna þrenning Lífsgleði konunnar fólst í því að gæða sér á rauðvíni, camen-
bert og baguette. Án þess var lífið varla þess virði að lifa því.
„Ég missti alla von
til þess að mamma
myndi nokkurn tímann
sýna mér umhyggju.