Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Síða 14
14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 11. maí 2011 Miðvikudagur
Ekki henda
ostafgangi
Flestir kannast við síðasta stykkið af
ostinum sem vonlaust er að skera
með ostaskeranum. Á gottimatinn.
is segir að frysta megi flesta osta og
tilvalið sé að rífa ostafganga áður
en þeir eru frystir. Þetta á sér í lagi
við þennan síðasta bita af oststykk
inu en gott er að rífa hann, setja í
plastpoka og frysta. Þegar næsta ost
stykki er að klárast má bæta því við
í pokann og fyrr en varir ertu komin
með nóg til að nota til dæmis ofan á
pítsu eða í gratínið. Sumum ostum
hættir við að molna þegar þeir þiðna
og því er best að nota ost sem hefur
verið frystur í matargerð en ekki
ofan á brauð.
Fjör í fjörunni Það er ýmislegt sem hægt er að gera sér og fjöl-
skyldunni til skemmtunar sem kostar engin peningaútlát. Fjaran getur
til dæmis verið reglulega skemmtilegur staður til að verja deginum með
fjölskyldunni. Á nattura.is segir að gaman sé að taka með fötu til að tína
það sem finnst í fjörunni svo sem skeljar, þara og viðarbúta sem rekið hafa
á land og fallega steina. Einnig megi taka með bækur um fjöruna, skeljar,
fiska eða steina og skoða hvað það var sem þið funduð. Einnig geti verið
gaman að setja saman lítið listaverk og á góðviðrisdögum sé svo tilvalið að
busla á tánum í sjónum. Munið þið bara að ganga vel um fjöruna.
E
ld
sn
ey
ti Verð á lítra 239,5 kr. Verð á lítra 235,6 kr.
Bensín Dísilolía
Verð á lítra 239,2 kr. Verð á lítra 235,4 kr.
Verð á lítra 239,9 kr. Verð á lítra 235,9 kr.
Verð á lítra 239,1 kr. Verð á lítra 235,3 kr.
Verð á lítra 239,2 kr. Verð á lítra 235,4 kr.
Verð á lítra 239,5 kr. Verð á lítra 235,6 kr.
Algengt verð
Algengt verð
Algengt verð
Höfuðborgin
Melabraut
Algengt verð
Fékk leiðbeining-
ar sendar
n Lofið að þessu sinni fær IKEA.
„Ég keypti notaðar kojur á bland.
is en það vantaði leiðbeiningar um
hvernig ætti að setja þær saman. Þar
sem þær höfðu verið keyptar í IKEA
brá ég á það ráð að hringja og
athuga hvort það væri mögu
leiki að fá leiðbeiningar frá
þeim. Starfsmaðurinn sem
ég talaði við sagði að
það væri ekkert mál
og sendi þær um hæl
með töluvpósti. Ég var
mjög ánægð með þessa
þjónustu.“
Rangt álegg á
brenndri pítsu
n Lastið fær Wilsons pizza en við
skiptavinur fékk senda til sín pítsu
sem var eins og kolamoli á botn
inum. „Ekki nóg með það heldur
fékk ég líka rangt álegg. Ég var ekki
beðin afsökunar en var lofað að eiga
inni litla pítsu með einu
áleggi. Undarlegt þar
sem ég hafði pantað
stóra með tveimur
áleggstegundum. Ég
hringdi svo seinna og
ætlaði að fá pítsuna sem ég
átti inni en þá könnuðust
þeir ekkert við það.“
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Landsmenn virðast ekki hafa látið
kreppuna hafa áhrif á grillmenn
ingu sína og eru Íslendingar enn jafn
sólgnir í grillmat og áður. Sala á grill
um ber þess greinileg merki en hún
hefur ekki dregist saman síðustu
árin, að sögn Einars Long, eiganda
Grillbúðarinnar. Þar sem sá tími
gengur nú í garð þegar bærinn fyllist
af grilllykt er vert að skoða hvað hafa
skuli í huga þegar ný grill eru keypt
eða þau gömlu tekin út úr geymsl
unni eftir vetursetu þar.
Margt í boði
Það eru til grill af ýmsum stærðum
og gerðum á markaðinum og er því
úr mörgu að velja. Verð á gasgrill
um er frá um það bil 20.000 krón
um upp í tæpa hálfa milljón, eftir
því sem DV kemst næst. Þau ódýr
ustu eru mjög einföld grill sem
margir geta sætt sig við en þeir
sem eru lengra komnir í grillár
áttunni ættu jafnvel að skoða þau
dýrari. Svo má alltaf sætta sig við
gömlu, góðu kolagrillin en þau eru
töluvert ódýrari en gasgrillin. Þó
má finna kolagrill sem kosta allt að
90.000 krónur.
Góðærisgrillið
Í Grillbúðinni er hægt að kaupa eitt
dýrasta grill landsins og kostar það
450.000 krónur. Á þessu ofurgrilli
er meðal annars granítborðplata
og vaskur. Aðspurður hvort það sé
nauðsynlegt fyrir ofurgrillara lands
ins, að fá sér eitt slíkt, segir Einar
það alls ekki vera. Hann segir að það
sem aðgreini þetta grill frá öðrum sé
í rauninni bara útlitið auk nokkurra
lúxusaukahluta. „Þetta er allt spurn
ing um útlit og hvort það líti vel út á
pallinum. Grillið sjálft er nákvæm
lega það sama og steikin verður al
veg eins,“ segir Einar og bætir við að
hann sjálfur eigi grill sem kostaði um
200.000 krónur sem hafi sömu grill
eiginleika og það dýrara. Hann seg
ist vera með töluvert af grillum með
sömu eiginleika sem kosta vel innan
við 100.000 krónur.
Grillið þarf að halda hita vel
Einar segir að það sem skipti máli
þegar fólk hugar að kaupum á nýju
grilli sé veðráttan hér á landi. „Það
er oft þetta blessaða rok hérna hjá
okkur og fólk grillar ef það er búið
að ákveða að grilla. Þá skiptir máli
hvernig grillin eru útbúin upp á að
hitinn haldist í grillinu,“ segir hann.
Það sem einkenni gott grill sé að
það sé úr steyptu járni því sá málm
ur henti best til að halda hitanum.
Steypta járnið sé það sama og er í
kamínum og gömlum miðstöðvar
ofnum, mjög þungur málmur sem
einangri vel hitann. „Það myndi lík
lega skipta minna máli ef það væri
alltaf logn hjá okkur en með því að
kaupa grill úr steyptu járni getur þú
grillað í hvaða veðri sem er,“ segir
hann.
Grill sem ryðga ekki
Annað atriði sem hann telur vera
mikilvægt er að grillið sé úr efni sem
ryðgar ekki svo grillið endist betur
og segir hann mörg grill á markað
inum vera þannig útbúin. Þá sé best
að kaupa grill með emaleringu. Að
lokum mælir hann með að kaupa af
söluaðila sem veiti þjónustu á grill
unum og þar sem hægt sé að fá vara
hluti. „Segjum sem svo að grillið fjúki
um koll í brjáluðu veðri og takkar
brotni af eða eitthvert stykki fari, þá
er mikilvægt að hægt sé að laga það
með varahlutum. Það væri svekkj
andi að þurfa að henda heilu grilli
því þú færð ekki varahluti.“
Förum vel með grillið
Aðspurður hvað þurfi að gera til að
lengja endingartíma grillsins mæl
ir hann með að bera á það matarol
íu. „Til að auka endinguna á brenn
urunum og öðrum hlutum sem eru
úr steyptu járni er gott að hita grill
ið upp og bera svo matarolíu á. Þá
endast þessir hlutir margfalt leng
ur.“ Hann segir að grill eigi að þola
að standa úti allan ársins hring. Séu
þau höfð úti er þó mikilvægt að vera
með góða ábreiðu sem loftar vel. „Að
sjálfsögðu er betra að hafa þau inni
en aðalatriðið er að fara vel með þau.
Ég á sjálfur eitt sem er níu ára sem
hefur staðið úti öll árin og er í fínu
lagi,“ segir Einar.
Lítið steikt Meðalsteikt Vel steikt
LAMbAkjöT
Læri, heilt 75 mínútur 90 mínútur 1 klukkustund og 45 mínútur
Læri, úrbeinað og flatt 25 mínútur 30 mínútur
Lærissneiðar og kótilettur,
2,5 til 3 cm þykkar 4–5 mínútur 6–8 mínútur 10–12 mínútur
Fillet 6–8 mínútur 8–10 mínútur 10–12 mínútur
Framhryggjarsneiðar 6–8 mínútur 8–10 mínútur 10–12 mínútur
NAUTAkjöT
Nautalund, heil 30–35 mínútur 40–50 mínútur
Lund eða fillet í 4 cm sneiðum 4 mínútur 5–7 mínútur
T-bein steik, entrecote
eða porterhouse í 4 cm sneiðum 6–8 mínútur 10–12 mínútur 12–14 mínútur
SVíNAkjöT
Svínalund, heil 20–25 mínútur 25–30 mínútur
Fillet í 2,5 cm sneiðum 8–10 mínútur 10–12 mínútur
Rif 1,5–2 klukkustundir
kjúkLINGUR
Kjúklingur, stór, heill 80–90 mínútur
Kjúklingur, stór, heill útflattur 50–60 mínútur
Kjúklingaleggir 30 mínútur
Kjúklingabringur 20 mínútur
Kjöt hefur mismunandi eldunartíma á grillinu og meðfylgjandi upplýsingar um grilltíma fengust af síðunni gottimatinn.is:
Eldunartími kjöts á grillinu
Góðærisgrill eða gömlu góðu kolin?
n Flest grill eru nú komin út í garð eða út á svalir tilbúin
til að elda á þær kræsingar sem eigendurnir vilja n Mikið
úrval er af grillum á landinu n DV skoðaði hvað er í boði
og fékk góð ráð um kaup og viðhald grilla
Það flottasta
Þeir sem vilja fara alla leið í grill-
mennskunni geta fengið sér eitt svona,
sem reyndar ætti frekar að kalla eldhús
en útigrill. Á því eru lok og takkaborð
úr burstuðu stáli, emaleruð efri grind
og fjórir brennarar úr stáli. Einn inn-
rauður brennari fyrir snöggsteikingu
og bakbrennari fyrir grilltein. Á því er
hliðarhella, ljós í loki og kælibox inn-
byggt í hægri skáp. Elektrónísk kveiking
fyrir alla brennara og hliðarhellu. Grill-
botn og allur skápurinn eru emaleruð
að innan sem utan auk hitadreifaranna.
Grillið er á fjórum gúmmíhjólum en tvö
þeirra eru með bremsum. Auk þess fylgir
hitamælir og yfirbreiðsla. Grillflötur
þess er 44,5 x 91,5. Stærðin er 152,5 x 66
x 119,5 cm og þyngdin 155 kg. Orka 26,3
Kw/h = 90.000
BTU.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
Gamla, góða Mörgum þykir meiri stemning að grilla yfir kolum.MYND PHOTOS.cOM
Grillmatur Hægt
er að matreiða
hollan grillmat en
það getur verið
hættulegt að borða
brenndan mat.
MYND HEIÐA HELGADóTTIR