Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 15
Verð aðeins
890 kr.
Neytendur | 15Miðvikudagur 11. maí 2011
Gæludýrin þurfa líka vítamín Gæludýr
þurfa fjölbreytt og næringarríkt fóður og tilbúið gæludýrafóður
er ekki endilega nóg. Lestu þér til um hvað annað þú mátt gefa
gæludýrinu þínu og breyttu til ef ástæða þykir til. Fóðrið sem selt
er hér á landi er laust við öll eiturefni en þó er alltaf ráðlagt að lesa
innihaldslýsingu. Matvælastofnun hefur eftirlit með innfluttu og
innlendu gæludýrafóðri. Mikilvægt er að gæta þess að gæludýrin
fái nóg af vítamínum en einnig er hægt er að kaupa vítamínbæti til
að setja í fóður. Huga þarf að heilbrigði dýranna eins og okkar.
Kjúklingasúpa innkölluð Matvælastofnun hafa borist upp-
lýsingar um vanmerkta ofnæmis- og óþolsvalda í kjúklingasúpu frá Ektafiski og
hefur hún verið innkölluð af markaði. Þetta kemur fram á heimasíðu stofnunar-
innar en þar segir einnig að varan heiti „Matarmikil kjúklingasúpa með núðlum
og grænmeti“ en í henni er hveiti sem ekki er tekið fram á umbúðum. Hveiti getur
verið ofnæmisvaldandi en samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og
óþolsvaldar að vera skýrt merktir á umbúðum matvæla. Innköllunin nær til
vörunnar sem er merkt með dagsetningunni 25.10.2011 og 06.09.2011 og hefur
súpan verið til sölu í verslunum Hagkaupa og í Kosti, Dalvegi.
Verð aðeins
890 kr.
Góðærisgrill eða gömlu góðu kolin?
„Það er oft þetta blessaða rok
hérna hjá okkur og fólk grillar
ef það er búið að ákveða að grilla. Þá
skiptir máli hvernig grillin eru útbúin
upp á að hitinn haldist í grillinu.
Gunnar Hansson hefur staðið við
grillið í sjónvarpsauglýsinum að
undanförnu þar sem hann gefur
góð grillráð. „Til að byrja með vil ég
taka fram að fólk heldur bara að ég
sé góður að grilla og það sýnir að
ég hef staðið mig sem leikari í þess-
ari auglýsingu. Ég segi oft að ég sé
svipað góður kokkur og læknarnir í
ER,“ segir hann og hlær.
Hann segist þó grilla reglulega
og eiga sér uppáhaldsrétt. Það mun
vera rif sem Gunnar eldar á annan
hátt en flestir eru vanir. „Galdur-
inn er að sjóða rifin fyrst og helst í
blöndu af vatni og pilsner. Best er
að sjóða þau í klukkutíma þannig
að þau séu nánast fullelduð þeg-
ar þau eru sett á grillið. Þá grillar
maður til að fá þessa stökku áferð
og setur grillsósu á þau. Þá detta
þau ljúflega í sundur og bráðna
uppi í manni,“ segir hann en bæt-
ir þó við að hann geti ekki eignað
sér heiðurinn af þessari grillaðferð.
Hann hafi lært þetta af vini sínum
Gunnari Kvaran. „Það var eins og
ég hefði lært að búa til gull þegar ég
lærði þessa aðferð. Hann Gunnar
er gullgerðarmaður í mínum bók-
um.“ Með rifunum notar Gunnar
grillsósu en viðurkennir að hann
búi hana ekki til sjálfur. „Ég er sá
auli að kaupa tilbúna grillsósu en
ég hef prófað mig áfram með ýms-
ar þeirra. Gunnar Kvaran býr þær
til sjálfur frá grunni en ég er aðeins
latari en hann. Ég læt búðarsós-
urnar duga þótt ég viti að ég gæti
búið til hollari sósu sjálfur.“
Leikarinn segist grilla allan árs-
ins hring á kolagrillinu sínu. Hann
sé hrifnastur af kolagrillum þó svo
hann viti að þau geti verið hættu-
leg. „Mér finnst bara eitthvað
meira sjarmerandi við kolagrill-
in. Það geta örugglega einhverj-
ir krabbameinssérfræðingar sann-
fært mig um að kolin séu óholl en
fram að því held ég mig við þau.
Ég reyni bara að brenna ekki kjöt-
ið, nema þegar ég er með rif. Þau
verða að vera orðin örlítið stökk og
brennd. Ég tek áhættuna með það.“
Gunnar hefur þurft að gera smá
hlé á grillleikni sinni þar sem grill-
ið laskaðist í veðurham fyrir stuttu.
„Það rústaðist um daginn og grind-
in er ryðguð eftir veturinn. Ef ég fæ
ekki nýja grind þá þarf ég líklega
að fjárfesta í nýju grilli. „Auðvitað
er voða þægilegt að nota gasgrill
en mér finnst þau alltaf svolitlir
hlunkar. Já, ég er hrifnari af kolag-
rillunum,“ segir hann að lokum.
gunnhildur@dv.is
Meiri sjarmi yfir kolunum, segir Gunnar Hansson:
Galdurinn við rifin
Gunnar Hansson Kann
vel við kolagrillið.