Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Síða 17
Erlent | 17Miðvikudagur 11. maí 2011 Eiturlyfjastríðið tekur sinn toll: Gengið gegn ofbeldi Rúmlega 90 þúsund manns tóku þátt í mótmælagöngu í Mexíkó- borg um helgina til að mótmæla því gegndarlausa ofbeldi sem hef- ur verið fylgifiskur eiturlyfjastríðs- ins í Mexíkó. Á undanförnum fimm árum hafa um 35 þúsund fallið í eit- urlyfjastríðinu þar sem miskunn- arlausir eiturlyfjasalar fara mikinn. Það var mexíkóska skáldið Javier Si- cilia sem fór fyrir göngunni, en hann missti 24 ára son sinn á dögunum. Sonur hans var skotinn að því er virtist að tilefnislausu, þar sem hann var í samkvæmi. Slík fórnarlömb skipta þúsundum og eru stjórn- völd ráðþrota gagnvart vandanum. Í göngunni hélt fólk á borðum þar sem búið var að rita skilaboð sem var beint til stjórnvalda. Stóð með- al annars „Ekki meira blóð“ og „Við höfum fengið nóg“. n Bandaríski málvísindamaðurinn og þjóðfélagsrýnirinn Noam Chomsky fordæmir pólitíska aftöku Osama bin Laden n Segir engar sannanir hafa verið um sekt hans n George W. Bush er meiri glæpamaður, segir Chomsky Chomsky fordæmir morðið á bin Laden „Það verður ljósara með degi hverjum að þessi hernaðaraðgerð var skipulögð aftaka. „Það verður ljósara með degi hverj- um að þessi hernaðaraðgerð var skipulögð aftaka, þar sem viðtekn- ar venjur alþjóðalaga voru brotnar í hvívetna,“ segir bandaríski málvís- indamaðurinn og þjóðfélagsrýnirinn Noam Chomsky um morðið á Osama bin Laden, leiðtoga hryðjuverkasam- takanna al-Kaída. Chomsky skrifaði stutta en kjarnyrta grein í veftíma- ritið Guernica, sem bar titilinn „Við- brögð mín við dauða Osama bin La- den.“ Chomsky, sem hefur verið einn ötulasti gagnrýnandi utanríkisstefnu Bandaríkjanna á síðustu áratugum var þar ekkert að skafa af hlutunum. Engar sannanir Chomsky benti á í grein sinni að eng- ar sannanir væru enn fyrir hendi, þess efnis að Osama bin Laden hefði í raun borið ábyrgð á árásunum á Tví- buraturnana í New York og á Penta- gon-bygginguna þann 11. septem- ber árið 2001. „Í aprílmánuði árið 2002, eftir umfangsmestu rannsókn í mannkynssögunni, gat yfirmaður FBI, Robert Mueller, aðeins sagt við blaða- og fréttamenn að FBI „teldi“ að hugmyndin að árásinni hefði fæðst í Afganistan, en hún hefði síðan ver- ið skipulögð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og í Þýskalandi.“ Segir Chomsky að bandarísk stjórn- völd hafi hvorki þá, né nú, áreiðan- legar sannanir fyrir sekt bin Ladens: „Ekkert nýtt hefur komið fram síðan. Mikið er rætt um „játningu“ bin La- dens en hún var svipuð og ef ég segði sjálfur að ég hefði sigrað í Boston- maraþonhlaupinu. Hann gortaði sig einungis af einhverju sem hann taldi vera mikið afrek.“ George W. Bush meiri glæpamaður Chomsky spyr Bandaríkjamenn hvernig þeir myndu bregðast við ef sérsveitarmenn frá Írak myndu ráð- ast inn á búgarð George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, taka hann af lífi og henda því næst líki hans í Atlantshafið. „Glæpir hans eru óumdeilanlega umfangsmeiri en glæpir bin Ladens, og óumdeilan- lega var hann ekki aðeins „grunaður“ [eins og bin Laden], heldur gerand- inn, þegar hann gaf skipanir um að framkvæma hrottalega stríðsglæpi, sem er einungis hægt að aðskilja frá öðrum stríðsglæpum því þeir fólu í sér uppsafnaða illsku heildarinnar.“ Þess má geta að síðustu setninguna tók Chomsky orðrétt úr handriti Nürnberg-réttarhaldanna, þegar nasistar voru dæmdir fyrir stríðs- glæpi, oftar en ekki til dauða, eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Heimsveldishroki Það fer sérstaklega fyrir brjóstið á Chomsky að hernaðaraðgerðin, af- takan á Osama bin Laden, fékk heit- ið „Geronimo“, eftir uppreisnarhetju Apache-ættbálksins í Bandaríkjun- um – en hann var myrtur af banda- rískum yfirvöldum árið 1909. Tals- menn Apache-ættbálksins hafa þegar farið fram á afsökunarbeiðni frá bandarískum yfirvöldum, þar eð þeir hafa engan áhuga á að tengja nafn sinnar helstu hetju við hernað- araðgerð og pólitíska aftöku. Chomsky bendir á að heimsveld- ishroki Bandaríkjanna hafi komið þarna berlega í ljós. „Þetta er eins og að nefna morðvopnin sem við beitum eftir fórnarlömbum þeirra: Apache, Tomahawk ... Það er rétt eins og ef Luftwaffe [flugher nasista] hefði nefnt flugvélar sínar „Júði“ eða „Sígauni“. Björn Teitsson blaðamaður skrifar bjorn@dv.is Noam Chomsky Þykir einn virtasti menntamaður í heiminum undan- farna áratugi og hefur löngum fordæmt utanríkisstefnu Bandaríkjanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.