Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 19
Umræða | 19Miðvikudagur 11. maí 2011
„Snýst
mikið um
heppni“
Uppnefni Þráins 1 Aratúnsfeðgar dæmdir: Verslunarmaður tekinn hálstaki og skallaður Feðgarnir voru dæmdir
fyrir líkamsárás á starfsmann Fjarðar-
kaupa.
2 Birta mynd af Díönu prinsessu skömmu eftir dauðaslysið Áður
óbirt mynd veldur usla í Bretlandi.
3 Íslenskt skyr til umfjöllunar í bandarísku sjónvarpi Fjallað var
um skyr í morgunþætti bandarísku
sjónvarpsstöðvarinnar CBS.
4 Fyrirlestur í Arion: Heiðar Már vill losna við krónuna Heiðar Már
vildi að Björgólfur Thor tæki skortstöðu
gegn krónunni.
5 Steinunn Ólína ruglaðist á afmælisdegi sonar síns „Mín
mistök,“ segir Steinunn um ruglinginn.
6 Mun hefja afplánun 2024 Hátt-settur meðlimur í stjórnmálaflokki
Vladimírs Pútín hefur afplánun
fangelsisvistar eftir 13 ár.
7 Hagfræðiprófessor um kvóta-frumvarp: „Þjóðin í heild mun
tapa“ Ragnar Árnason telur kvóta-
frumvarpið fara gegn efnahagslegri
hagkvæmni.
Markvörðurinn Jóhann Ólafur
Sigurðsson var hetja Selfyssinga
þegar þeir slógu út ÍA í 64-liða úrslitum
Valitors-bikarkeppni karla í knatt-
spyrnu á mánudag. Staðan að loknum
venjulegum leiktíma var 2-2. Jóhann
varði fjórar vítaspyrnur af átta, þar af
þrjár fyrstu spyrnurnar.
Hver er maðurinn? „Jóhann Ólafur
Sigurðsson.“
Hvar ólst þú upp? „Á Selfossi. Ég er
Selfyssingur í húð og hár.“
Með hverjum heldur þú í enska? „Ég held
að sjálfsögðu með Manchester United.“
Hvenær byrjaðir þú að æfa fótbolta?
„Ætli það hafi ekki verið þegar ég var
fjögurra eða fimm ára. Ég byrjaði í 7. flokki
sem útispilari en Ingólfur Þórarinsson
plataði mig svo til að vera í marki. Ég hef
ekki komist þaðan síðan.“
Hver er fyrirmynd þín í boltanum? „Peter
Schmeichel var alltaf mín fyrirmynd.“
Hvernig var tilfinningin að verja vítin?
„Það var alveg frábært. Maður er í þessu til
að verja bolta. Í vítaspyrnum snýst þetta
samt mikið um heppni, að hitta á hvar menn
skjóta.“
Var þetta þá heppni eða ertu almennt
góður í að verja víti? „Ég hef ekki varið
mörg víti hingað til, aldrei í þessum mæli.
Þannig að kannski var þetta smáheppni.“
Hvernig er að vera hetja? „Manni var
vel fagnað í leikslok en það er stutt á milli
þess að vera hetja og skúrkur þegar maður
stendur í markinu.“
Hver eru markmið Selfoss í sumar?
„Markmiðið er að vera í toppbaráttunni.
Það eru fjögur til sex lið í fyrstu deildinni
sem geta blandað sér í toppbaráttuna. Á
föstudaginn mætum við í fyrsta leik Fjölni
sem er klárlega eitt þessara liða. Þeir eru
mjög sterkir.“
Hver eru þín markmið? „Eina markmiðið
mitt er að komast í efstu deild. Svo sér
maður bara til.“
„Ég held að Þjóðverjar vinni aftur.“
Jón Ásgeirsson
35 ára nemi
„Ég held að Danmörk vinni.“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir
21 árs nemi
„Ekki Ísland.“
Stefanía Bjarney Ólafsdóttir
24 ára nemi
„Aserbaídsjan.“
Ásgeir Berg Matthíasson
25 ára bókavörður
„Noregur.“
Þórunn Lilja Hilmarsdóttir
23 ára naglafræðingur
Mest lesið á dv.is Maður dagsins
Hvaða þjóð sigrar í Eurovision í ár?
Gamlir tímar Félagar úr Slysavarnaskóla sjómanna sigldu þessum gamla björgunarbáti úr Víkartindi um
höfnina í Reykjavík á þriðjudaginn. Virtist einn skipverja vera ánægður með siglinguna þar sem hann stakk
höfði út um glugga og brosti til ljósmyndara. Mynd: Róbert Reynisson
Myndin
Dómstóll götunnar
Ý
msir forystumenn Sjálfstæð-
isflokksins ofmeta þessa dag-
ana tækifæri flokksins til þess
að komast að landsstjór-
ninni. Nánast er óhugsandi að Sjálf-
stæðisflokkurinn nái vopnum sínum
á ný og geti sóst eftir stjórnarþátttöku
nema að undangengnum alþingis-
kosningum.
Alþingiskosningar eru ekki að
óbreyttu á döfinni. Nærri tveir þriðju
hlutar alþingismanna lýstu andstöðu
við þingkosningar þegar greidd voru
atkvæði um vantrauststillögu Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálfstæð-
isflokksins, á ríkisstjórnina 13. apríl
síðastliðinn.
Hvorugur stjórnarflokkanna hef-
ur hinn minnsta áhuga á að fá Sjálf-
stæðisflokkinn til liðs við sig. Upp-
gjörinu vegna bankahrunsins er
ekki lokið og öfl innan flokksins eiga
mesta sök á því að belgja tókst út
stuðning við fjarstæðukennda um-
sáturskenningu sem leiddi til þess að
Icesave-samningurinn var felldur í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hinn armurinn, Bjarni Benedikts-
son og stuðningsmenn hans í þing-
flokknum, heyktust á því að fylgja
eftir afstöðu sinni um að samþykkja
bæri Icesave-samninginn.
Forystuvandi og sundrung
Öfl innan Sjálfstæðisflokksins vilja
kalla saman landsfund í haust. Slíkar
kröfur eru settar fram til þess að kné-
setja Bjarna. En jafnvel þótt fundur-
inn verði haldinn mun það varla tak-
ast. Kristján Þór Júlíusson mun bjóða
sig fram gegn honum en tapa með
mestum líkum líkt og síðast.
Hinn möguleikinn er að Bjarni
víki til hliðar og við taki til dæmis
Hanna Birna Kristjánsdóttir. Sá kost-
ur er ólíklegur.
Fjarlægur kostur er að Hádegis-
móaöflin bjóði Davíð Oddsson til
öndvegis í Sjálfstæðisflokknum á
ný. Jafnvel þótt það tækist myndu
viðbrögð allra annarra flokka vera á
einn veg: Undir endurnýjaðri forystu
Davíðs yrði Sjálfstæðisflokkurinn
aldrei leiddur til valda. Óþarft er því
að líta á þetta sem raunhæfan mögu-
leika þótt einhverjir flokksmenn með
fortíðarþrá láti sig dreyma.
Hærri þröskuldar að fara yfir
Ef þingkosningar sjást ekki í kortun-
um hafa að sama skapi aukist líkur á
því að ríkisstjórnin sitji út kjörtíma-
bilið. Sem stendur eru engin mál
sem knýja hana til að þétta eigin rað-
ir og leita meirihlutastuðnings við
einhver mál. Umdeild sjávarútvegs-
mál hafa verið afgreidd sem frum-
varpsdrög úr ríkisstjórn og engum
að óvörum mun kór útgerðarmanna
gráta í allt sumar. Það eru meðmæli
með frumvarpinu sem fær endan-
lega afgreiðslu síðar á árinu.
Framsóknarþingmenn hnýttu í
Sjálfstæðisflokkinn er Bjarni flutti
vantrauststillögu gegn ríkisstjórninni
eins og menn muna. Eygló Harðar-
dóttir nánast úthúðaði flokknum og
sagði: „Kosningar strax þýddu einn-
ig að Sjálfstæðisflokkurinn næði því
markmiði sínu sem hann náði ekki
með hatrammri baráttu í þinginu,
kærumálum og hæstaréttardómi,
það er að koma í veg fyrir endur-
skoðun stjórnarskrárinnar. Kosning-
ar á næstu vikum gengju því þvert á
vilja þjóðarinnar um nýtt upphaf og
nýtt Ísland. Ef fram færi sem horfir
samkvæmt skoðanakönnunum yrði
svo þjóðin að bíða þess að Sjálfstæð-
isflokknum þóknaðist að breyta hér
einhverju og við þekkjum öll hversu
viljugur hann er til þess.“
Færri vinir en áður
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fékk
rússneska kosningu á flokksþingi
Framsóknarflokksins. Hann er ekki
líklegur til að halla sér næstu miss-
erin að Sjálfstæðisflokknum. Hann og
sá kjarni, sem í kringum hann er, þarf
þvert á móti að leggja vinnu í að þvo
hendur sínar af fortíð flokksins með
Sjálfstæðisflokknum.
Kannski aukin reynsla og raunsæi
leiði formanninn inn á nýjar brautir
þegar hann hefur yfirstigið Icesave-
þráhyggjuna og tekur að framfylgja
stefnu flokksins um að leyfa þjóðinni
að kjósa um þá kosti sem lagðir verða
á borð hans að loknum samningavið-
ræðunum um aðild að ESB.
Hér er við að bæta að hvorki Hreyf-
ingin né flóttamenn úr þingflokki VG
eru líklegir til að stilla sér upp með
Sjálfstæðisflokknum meðan flokkur-
inn gerir enga yfirbót og ræktar for-
tíðarþrá sína.
Haldi ríkisstjórnin velli út kjör-
tímabilið er varla við því að búast að
Bjarni fái annað tækifæri til að leiða
flokkinn í gegnum kosningar. Þar
kemur bæði til veik staða hans sem
flokksformanns og eins það kusk sem
sífellt sest á hvítflibba hans í tengslum
við bankahrunið og viðskiptalífið.
Tækifærin til að baða sig í jákvæðu
ljósi eru því fá næstu misserin. Við
Sjálfstæðisflokknum blasir því eymd-
arleg eyðimerkurganga enn um sinn.
Eymdarleg eyðimerkurganga
Kjallari
Jóhann
Hauksson„Haldi ríkisstjórnin
velli út kjörtímabil-
ið er varla við því að búast
að Bjarni fái annað tæki-
færi til að leiða flokkinn í
gegnum kosningar.