Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Qupperneq 20
20 | Fókus 11. maí 2011 Miðvikudagur Haldur Sigurjónsson vann Stuttmyndadaga 2010 og er farinn til Cannes: Draumur verður að veruleika „Ég vann Stuttmyndadaga í Reykja- vík 2010, sem fóru fram í júní í fyrra, og við það komst ég inn á Short Film Corner á Cannes-hátíðinni. Mynd- in mín heitir Áttu vatn? og er gam- anmynd. Myndin er 17 mínútur að lengd og var gerð í Kvikmyndaskóla Íslands, þaðan sem ég útskrifaðist í desember 2010. Áttu vatn? er önnur myndin mín þaðan af fimm. Mynd- in var gerð í desember 2009 en ekki frumsýnd fyrr en á Stuttmyndadög- um í júní. Nýjustu tvær myndirn- ar mínar verða frumsýndar síðar á þessu ári. Þær heita Engill og NUNO. Engill verður frumsýnd strax í sumar en NUNO ekki fyrr en undir lok árs- ins. Áttu vatn? var unnin upp úr spuna þar sem ég var með tilbúinn söguþráð, en vann samtölin og kar- akterana með leikurunum þremur, þeim Haraldi Ara Karlssyni, Ásgrími Guðnasyni og Arne K. Arnesyni. Ég framleiddi, leikstýrði, skrifaði, tók myndina upp, klippti og hljóðvann sjálfur. Myndin er mjög mínímalísk og lágstemmd. Til dæmis er engin tónlist í myndinni. Ég hef aldrei áður farið á Cannes og verður þetta því mjög spennandi og í raun draumur að verða að veruleika.“ Aldrei áður farið á Cannes Haraldur segir draum sinn rætast. Plakat myndarinnar Úthlutað úr Kraumi Í dag, miðvikudag, klukkan 16.00 verður opinberað hverjir hljóta styrk úr Kraumi tónlistarsjóði. Athöfnin fer fram á skemmtistaðnum Faktorý við Smiðjustíg. Kraumur tónlistar- sjóður hefur úthlutað styrkjum til hljómsveita frá árinu 2008 en mark- mið hans er að kynna og styðja við íslenska plötuútgáfu, þá sérstaklega verk ungra listamanna og hljóm- sveita. Af þeim hljómsveitum sem hafa fengið styrk frá Kraumi undan- farin ár má nefna Hjaltalín, Bróður Svartúlfs, Diktu, Morðingjana, Ki- mono og Bloodgroup. Stuttmyndir á bókasafninu Borgarbókasafnið ætlar að brydda upp á nýjung á næstunni og sýna fjölda þýskra stuttmynda sem gefa innsýn í margbreytileika þýskrar teikni- og hreyfimynda- gerðar síðustu ára. Myndirnar verða sýndar dagana 13.–24. maí í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Sýningar hefj- ast kl. 13 alla daga. Fjörið hefst á föstudaginn en þá verður sýnd stuttmyndin Traum und Alp- traum eða Draumar og djöflar. Einnig verða sýndar myndirnar Hier und dort, Diesseits und Jen- seits og Er und sie. Eldfjall í Cannes Eldfjall, fyrsta kvikmynd leikstjórans Rúnars Rúnarssonar í fullri lengd, verður sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes á föstudaginn. Hún keppir í flokknum Directors Fortnight og jafnframt um hin virtu Camera d´Or verðlaun. Sölufyrirtækið Trust Nor- disk hefur tryggt sér alþjóðlegt sölu- umboð á myndinni en það er sama fyrirtæki og er með söluumboð fyrir nýjustu mynd Lars von Trier sem keppir um Gullpálmann. Á heims- vísu hafa fáir leikstjórar hlotið jafn mörg verðlaun á alþjóðlegum kvik- myndahátíðum í flokki stuttmynda og Rúnar Rúnarsson og ríkir því mikil eftirvænting vegna frumsýn- ingarinnar á Eldfjalli. S kopmynd af sænsku konungs- hjónunum birtist í Politiken þann 9. maí þar sem gert er grín að afstöðu þeirra til bóka Stiegs Larsson heitins. Sænsku kon- ungshjónin hafa opinberlega gagn- rýnt bækur Larssons og finnst þær skaðlegar ímynd Svíþjóðar – „Of mik- ið ofbeldi,“ segja þau bæði. „Ekki sú Svíþjóð sem við viljum kannast við,“ sagði Silvía Svíadrottning. Bækur Stiegs Larsson raka inn milljónum, hagnaðurinn nemur nú 15 milljónum sænskra króna. „Ég er mjög hissa á að bækurnar eru svona rosalega vinsælar. Kannski er það vegna þess að Svíþjóð hefur aldrei áður verið tengd undirheimum á sama hátt og Larsson gerir í bókum sínum. Ég er ekki ánægður með það,“ sagði Karl Gústaf Svíakonungur við fjölmiðla í Póllandi nýverið þar sem konungshjónin eru í opinberri heim- sókn. „Þetta eru heillandi bækur en ég er hneyksluð yfir því hversu mikil illska er í þeim. Larsson gefur ranga mynd af Svíþjóð,“ segir Silvía og konungurinn tekur í sama streng. Ummæli þeirra vöktu hörð viðbrögð og hafa konungshjónin legið undir ámæli fyrir þau. Sérstaklega vegna þess að kvensemi Karls Gúst- afs hefur verið alræmd og margumtöluð í Sví- þjóð. Reyndar svo umtöl- uð að skopmyndateikn- ari Politiken sá sér leik á borði í kjölfar gagnrýni Svíakonungs og teiknaði af honum mynd þar sem eiginkonan Silvía les bók eftir Stieg Larsson með- an kóngur gerist kven- samur. Úr skopinu má lesa að ímynd Svíþjóðar bíði líkast til frekar hnekki vegna kvensemi konungs en bóka- skrifa Larssons. Kvensemi konungs Í bók um Karl Gústaf, Den Modvilliga Monark, er fjallað um kvensemi hans á opinskáan máta. Kvensemi hans er Svíakonungur spottaður fyrir ritrýni n Sænsku konungshjónin gagnrýna bækur Stiegs Larsson og finnst þær skaðlegar ímynd Svíþjóðar n Of mikið ofbeldi, segja bæði tvö n Ekki sú Svíþjóð sem við viljum kannast við, sagði Silvía Svíadrottning alræmd en hingað til hefur hún lítið verið rædd á opinberum vettvangi. Í bókinni er fullyrt að Svíakonungur hafi stundað nektarstaði og ítrekað haldið fram hjá drottningu sinni. Á ferðalögum sínum á hann ítrekað að hafa sleppt fram af sér beislinu svo um munar. Hann á að hafa eytt fúlg- um fjár í heimsóknir á nektardans- staði og haft í kringum sig fylgdarlið sem kunni vel að uppfylla taumlausar þarfir hans. Á Ólympíuleikunum í Atlanta þar sem hann dvald- ist sem heiðursgestur á hann að hafa heimsótt nektardansstað og pantað sér langan einkadans sem ekki fer fleiri sögum af. Eva komin til landsins „Það verður forvitnilegt að vita hvað Eva Gabrielsson segir um þetta,“ segir Ilmur Dögg Gísladóttir hjá Norræna húsinu. En Eva Gabrielsson, sam- býliskona sænska metsöluhöfundar- ins sáluga Stiegs Larsson, er komin til landsins til að vera viðstödd á höf- undakvöldi á vegum Norræna húss- ins í samstarfi við bókaforlagið Bjart. Bók Gabrielsson, Millennium, Stieg og ég, hefur verið gefin út í Sví- þjóð og Noregi en Bjartur, sem hefur gefið út bækur Stiegs Larsson, ákvað að gefa hana ekki út hér á landi. Í henni fjallar hún um 32 ára sam- band sitt og Larssons og hinn vinsæla Millennium-þríleik. Einnig ræðir hún um stirð samskipti sín við fjölskyldu Larssons. kristjana@dv.is Spottuð Teikning úr Politiken eftir Philip Ytournel. Mynd POLitiKEn Kvensamur kóngur Karl Gústaf er talinn alræmdur kvennabósi og er gert óspart grín að honum í Politiken.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.