Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Blaðsíða 22
22 | Fólk 11. maí 2011 Miðvikudagur T ilfinningin er bara ekki til, við erum grenjandi hérna,“ sagði Hreimur Örn Heimisson í samtali við DV andartökum eftir að úrslitin í Düsseldorf lágu fyrir á þriðjudagskvöld. Fögnuður íslenska hópsins var ósvikinn og heyra mátti hlátur, grát, hamingjuóskir og kossa í græna herberginu í Düsseldorf Arena. Vinir Sjonna munu standa á sviðinu á laugardagskvöld þegar úrslitakeppni Eurovision fer fram. Íslenska þjóðin sat límd við sjónvarpskjái sína þegar úrslitin voru kynnt á fyrra undanúr- slitakvöldi keppninnar á þriðjudag. Spennan var áþreifanleg. Aðeins tíu af þeim nítján þjóðum sem tóku þátt á þriðjudagskvöldið komust áfram og voru því margir orðnir svartsýnir þeg- ar búið var að lesa upp níu þjóðir og Íslendingar voru ekki þeirra á meðal. Í pottinum voru enn nokkrar þjóð- ir sem vanalega hafa átt farseðilinn bókaðan í úrslitin. Lukkutalan er tíu Það brutust því út óvænt og ósvikin fagnaðarlæti þegar enn eina ferðina, þriðja árið í röð í þessari keppni, ís- lenski fáninn kom síðastur upp úr úr- slitahattinum. Tíu er nýja happatala Íslendinga í Eurovision og draumur- inn í Düsseldorf lifir. „Það er búið að senda okkur hérna út til að klára þetta verkefni og við erum ekki að trúa þessu, þetta er bara ekki hægt,“ sagði Hreimur á tilfinn- ingaríkri sigurstund íslenska hópsins sem staddur er þarna úti til að heiðra minningu vinar síns Sigurjóns Brink sem samdi lagið Coming Home. Vorum farin heim að hátta „Við bjuggumst ekkert við þessu. Við vorum bara farin heim að hátta, það er ekkert öðruvísi,“ bætir Hreimur við aðspurður um tilfinninguna sem fylgdi því þegar ljóst var að Ísland yrði á meðal þátttakenda á úrslitakvöld- inu. „Við vorum með rauðvín í glösum þarna og það fór bara allt út um allt sko. Við erum að tala um að þetta er óraunverulegt,“ sagði Hreimur áður en hann þurfti að þjóta til að fagna með félögum sínum. Hann sendi ís- lensku þjóðinni bestu kveðjur frá Vin- um Sjonna. Ísland var fjórtánda þjóðin á svið í Eurovision-höllinni í Düsseldorf á þriðjudagskvöldið. Vinir Sjonna voru huggulega klæddir í grá vesti, hvítar skyrtur og gallabuxur. Huggulegheit- in svifu yfir vötnum í höllinni þegar þeir fluttu hinn hugljúfa slagara Com- ing Home sem vinur þeirra Sigurjón Brink samdi. Flutningurinn var fum- laus þó að eflaust hafi taugar allra ver- ið þandar til hins ítrasta. Sigur í skugga andláts Sigurjón Brink var sem kunnugt er aðeins 36 ára þegar hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu þann 17. janú- ar síðastliðinn. Fyrir andlátið hafði Sjonni, eins og hann var kallaður, ákveðið að taka þátt í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins. Þór- unn Erna Clausen, eiginkona Sjonna, tók þá ákvörðun að minning hans yrði best heiðruð með því að draga framlag þeirra til keppninnar ekki til baka. Fram stigu syrgjandi vinir hans, Matthías Matthíasson, Hreimur Örn Heimisson, Pálmi Sigurhjartar- son, Benedikt Brynleifsson, Gunnar Ólason og Vignir Snær Vigfússon, og mynduðu sveitina Vinir Sjonna. Það var ekki mikið mál að stofna sveit- ina enda var Sjonni vinmargur, hvers manns hugljúfi og elskaður af öllum þeim sem hann þekktu. Lagið Aftur heim komst örugglega áfram og sigr- aði að lokum í undankeppninni. Ljóst var að lag þessa ástsæla tónlistar- manns væri á leiðinni til Düsseldorf í flutningi vina hans þar sem minningu Sjonna Brink yrði haldið á lofti. mikael@dv.is n Ísland komst áfram í Eurovision með laginu Coming Home n „Við bjuggumst ekkert við þessu“ n Íslenski hópurinn grét af gleði í græna herberginu n Þriðja árið í röð kom Ísland síðast upp úr hattinum í Düsseldorf „Við erum grenjandi hérna. „Það kom skemmtilega á óvart að Ísland skyldi detta þarna inn,“ segir Eurovision-fræðingurinn Dr. Gunni um söngkeppnina á þriðjudags- kvöldið. „Maður var alveg búinn að afskrifa þetta því Tyrkland var eft- ir og Noregur líka sem komst ekki einu sinni upp úr þessum riðli. Það er það lag sem bæði Páll Óskar og Guðrún Gunnars spáðu sigri í þátt- unum Alla leið. Maður var viss um að það myndi slefast inn því það var eitt af skemmtilegri lögum kvölds- ins,“ segir hann. Aðspurður um frammistöðu Vina Sjonna, segir Dr. Gunni: „Hún var ágæt. Það var agaleg flugelda- sýning hjá mörgum og alls konar „sjóv“ í gangi; eitthvert liðamóta- laust fólk í búri og galdrakarlar að skipta um lit á kjólum. Alveg gríð- arleg sýning. Strákarnir voru hins vegar eins og þeir væru að spila á Gauknum. Maður hélt að það væri kannski ekki alveg að tala til áhorf- enda en það er greinlegt að látleysið slær í gegn.“ Dr. Gunni spáði rétt fyrir um 7 af þeim 10 löndum sem komust upp úr undanriðlinum, sem er sami fjöldi og eiginkona hans hafði spáð. Hann er ánægður með árangurinn. „Það er frábært að þetta skyldi hafa gerst og frábært að geta haldið ann- að Eurovision-partí á laugardaginn. Á fimmtudagskvöldið eru líka miklu fleiri skemmtileg lög, að mér finnst. Þannig að það er bara áframhald- andi Eurovision-hámenning,“ segir Dr. Gunni. Dr. Gunni hélt að Norðmenn kæmust frekar áfram: „Alveg búinn að afskrifa þetta“ 2010 Hera Björk – Je ne sais quoi – 19. sæti 2009 Jóhanna Guðrún – Is It True? – 2. sæti 2008 Eurobandið – This Is My Life – 14. sæti 2007 Eiríkur Hauksson – Ég les í lófa þínum – komst ekki í úrslit 2006 Silvía Nótt – Til hamingju Ísland – komst ekki í úrslit 2005 Selma Björns. – If I Had Your Love – komst ekki í úrslit 2004 Jónsi – Heaven – 19. sæti 2003 Birgitta Haukdal – Open Your Heart 8. sæti 2001 Two tricky – Angel – 22. sæti 2000 Einar Ágúst og Telma – Tell Me! – 12. sæti 1999 Selma – All Out Of Luck – 2. sæti 1997 Páll Óskar – Minn hinsti dans – 20. sæti n 1996: Anna Mjöll – Sjúbídú – 13. sæti n 1995: Björgvin Halldórsson – Núna – 15. sæti n 1994: Sigga Beinteins – Nætur – 12. sæti n 1993: Ingibjörg Stefánsdóttir – Þá veistu svarið – 13. sæti n 1992: Heart 2 Heart – Nei eða já – 7. sæti n 1991: Stefán og Eyfi – Draumur um Nínu – 15. sæti n 1990: Stjórnin – Eitt lag enn – 4. sæti n 1989: Daníel Ágúst – Það sem enginn sér – 22. sæti n 1988: Beathoven – Þú og þeir (Sókrates) – 16. sæti n 1987: Halla Margrét – Hægt og hljótt – 16. sæti n 1986: Icy-hópurinn – Gleðibankinn – 16. sæti Árangur Íslands í Eurovision Draumaúrslit „Við bjuggumst ekkert við þessu. Við vorum bara farin heim að hátta. Vel heppnað Vignir, Matthías og Gunnar syngja og spila af innlifun. MynD REuTERS Dr. Gunni „Það er frábært að þetta skyldi gerast og frábært að geta haldið annað Eurovision-partí á laugardaginn.“ MynD HöRðuR SVEinSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.