Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Page 24
24 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 11. maí 2011 Miðvikudagur Fyrsti heimaleikur Þórsara í efstu deild í níu ár: Fjarveran fyrirgefin mæti menn núna „Það er mikil tilhlökkun komin í menn fyrir að fá að spila á heimavelli, sér- staklega þar sem við byrjuðum jú á tveimur útileikjum,“ segir Páll Viðar Gíslason, þjálfari nýliða Þórs í Pepsi- deildinni. Þórsarar hafa ekki spilað heimaleik í efstu deild í heil níu ár en í dag, miðvikudag, mæta þeir Stjörn- unni úr Garðabæ. „Það var náttúru- lega eins og við værum á heimavelli í báðum útileikjunum þar sem stuðn- ingur Mjölnismanna er einstakur. En hann verður bara að vera enn betri heima,“ segir Páll Viðar. Þórsurum hefur verið spáð tólfta og síðasta sæti í deildinni af nánast hverj- um þeim sem þorað hefur að spá. Lið- ið hóf mótið með tapi gegn hinum ný- liðum deildarinnar, Víkingi, en vann síðan baráttusigur gegn Fram á Laug- ardalsvellinum í annarri umferð. „Það hjálpar til að við náðum að stela þarna óvænt sigri. Það ætti að kveikja í fólkinu og sýna að þetta er hægt. Menn voru sárir eftir Víkings- leikinn þar sem okkur fannst við eiga meira skilið þar. Okkur hefur samt vantað smá bit fram á við en baráttu- andann og viljann vantar ekki,“ segir Páll Viðar en baráttugleði Þórsara er nær ótæmandi. „Þetta er alveg einstakt. Vissulega eru ný andlit inni á milli í liðinu en heilt yfir hefur kjarninn úr hópnum verið saman frá því strákarnir voru með bleyju. Þeir eru því tilbúnir að gera ýmislegt hver fyrir annan til að vinna. Svo hafa þeir verið svo óheppn- ir að hafa sama þjálfarann alla sína tíð. Þeir eru bara vonandi ekki hættir að taka mark á kallinum,“ segir Páll Við- ar kíminn en hann hefur þjálfað þessa magnaða ‘90 og ‘91 áranga Þórs frá því þeir voru pollar en það er uppistaðan í liðinu. Þórsarar hafa ekki veri nægilega duglegir að mæta á völlinn undan- farin ár, margir gefist upp á dapurlegri frammistöðu liðsins í 1. deildinni. Páll Viðar vonast þó til að sjá sem flesta á Þórsvellinum glæsilega í kvöld. „Það er vonandi að einhverjir sem hafa hvílt sig á því að fara á leiki undanfarin ár láti sjá sig. Þeim verður allavega fyrir- gefin fjarveran fari þeir að mæta núna. Mér alveg sama hvort fólk hefur verið duglegt að mæta eða ekki, bara svo lengi sem það kemur að styðja strák- ana í sumar,“ segir Páll Viðar Gíslaon. tomas@dv.is Skoða meistara- deildina n Nýkrýndur Íslandsmeistari í handbolta, FH, íhugarnú alvarlega að taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næsta keppnis- tímabili en þetta kom fram í Morgunblaðinu í gær. Ekki hefur íslenskt félagslið tekið þátt í þeirri keppni í þrjú ár en kostnaður við hana er gífurleg- ur. Líklegast er að FH-ingar þyrftu að fara í gegnum forkeppni en þeir þurfa að gefa evrópska handknatt- leikssambandinu svar fyrir 23. maí. Síðasta liðið sem tók þátt í Meist- aradeildinni var Haukar. Merkisleikur hjá Viktori n Í kvöld, miðvikudag, mætast ný- liðar Víkings og KR í Pepsi-deild karla í knattspyrnu. Leikurinn verður um margt áhugaverður fyrir Viktor Bjarka Arn- arsson, miðju- mann KR. Viktor er uppalinn Vík- ingur og hefur aldrei mætt sínu gamla liði á Ís- landsmóti. Hann mætti sínum gömlu félögum í fyrsta skiptið síðasta vor þegar liðin mættust í úrslitum Reykjavík- urmótsins. Einnig mun Grétar Sig- finnur Sigurðarson mæta Víkingum í fyrsta skiptið í efstu deild en hann lék lengi með félaginu við góðan orðstír. Stórleikur í Keflavík n Heil umferð fer annars fram í Pepsi-deildinni. Af öðrum leikjum ber hæst að nefna 100 ára afmælis- leik Valsmanna er þeir taka á móti ÍBV á Vodafone- vellinum. Annar stórleikur er í Keflavík þar sem heimamenn mæta FH en FH- ingar hafa átt erfitt uppdráttar í Keflavík undan- farin ár. Þá taka stigalausir Íslandsmeistarar á móti Grindavík á Kópavogsvelli og hitt stigalausa liðið, Fram, fer í heim- sókn í Árbæinn og mætir þar Fylkis- mönnum. Willum sleppur n Ummælum Willum Þórs Þórssonar, þjálfara Keflvíkinga, í garð dómar- ans Gunnars Jarls Jónssonar verður ekki skotið fyrir aga- og úrskurðar- nefnd en fram- kvæmdastjóri KSÍ, Þórir Há- konarson, greindi frá því í gær en hann er sá eini sem hefur vald til þess. Willum varð brjálaður eftir að Gunnar Jarl sama og hirti sigur Keflvíkinga af KR í Frostaskjólinu með röngum dómi á lokamínútunum. Sagði Will- um Gunnar Jarl vera ofmetinn og ekki í standi til þess að dæma. Guus eða Andre til Chelsea n Hollendingurinn Guus Hiddink og Andre Villas Boas eru taldir lík- legastir til þess að taka við Chelsea í sumar. Hiddink stýrði liðinu til bikarmeistaratitils árið 2009 en hann stýrir í dag tyrkneska lands- liðinu. Villas Boas er af flestum talinn efnilegasti knattspyrnustjór- inn í heiminum í dag en hann er fyrir löngu búinn að gera Porto að meisturum í heimalandinu en liðið hefur ekki tapað leik. Villas Boas var lengi í læri hjá Jose Mourinho og er jafnan kallaður hinn nýi Mour- inho. Molar Harkan sex Þórsarar eru baráttuglaðir með eindæmum. Mynd GunnlAuGur JúlíuSSon „Við höfum allavega mannskap í það,“ segir Reynir Leósson, miðvörð- ur ÍA, aðspurður hvort liðið ætli sér ekki upp um deild í sumar og spila aftur á meðal þeirra bestu. ÍA leikur sitt þriðja tímabil í röð í 1. deildinni í sumar eftir fallið 2008. Reynir gekk í raðir uppeldisfélags síns í vetur en hann kom frá Val. „Það er mikill hug- ur í hópnum og það hlakka allir til að byrja mótið. Það er vonandi að menn hafi lært af síðustu tveimur árum og vonandi getum við reynsluboltarn- ir eitthvað aðeins hjálpað til,“ seg- ir Reynir. ÍA hefur leik í 1. deildinni á föstudagskvöldið þegar liðið mæt- ir HK á Kópavogsvelli. Undanfarin tvö ár hefur ÍA farið afleitlega af stað í deildinni sem hefur á endanum orðið til þess að liðið átti nær engan möguleika á því að fara upp. „Það er erfitt að festa fingur á það sem hef- ur verið að gerast. Liðið hefur verið lengi að koma sér í gang undanfarin tvö ár. Þetta eru samt 22 leikir þannig það er enginn heimsendir fari fyrstu leikirnir ekki eins og maður vilji,“ segir Reynir. Hættuleg uppskrift á undirbún- ingstímabilinu Eins og tvö síðustu undirbúnings- tímabil hefur ÍA farið hreinlega á kostum. Liðið hefur þó ekki tekið það með sér inn í mótið en nú virðist liðið mun betur tilbúið með sterkari hóp og væntingarnar eru eftir því. „Það eru miklar væntingar í bæjarfélag- inu enda hafa bæjarbúar staðið þétt við liðið þó ekki hafi gengið vel und- anfarin tímabil. Menn eru bjartsýnir en það hafa þeir svo sem verið eftir síðustu undirbúningstímabil,“ segir Reynir en hvað þarf til að ÍA fari bet- ur af stað í mótinu? „Ég held að menn þurfi bara að mæta nokkuð slakir inn í þetta og halda spennustiginu réttu. Þetta er langt mót og þó liðið hafi farið illa af stað eins og í fyrra komu kaflar þar sem ÍA átti möguleika á að blanda sér í toppbaráttuna,“ segir hann en ásamt Reyni var annar reynslubolti, Stefán Þór Þórðarson, fenginn til að draga fram skóna og eins verður Hjörtur Júlíus Hjartarson áfram með liðinu í sumar. „Tvímælalaust munu þessir menn hjálpa liðinu. Ég held að það hafi nú verið markmiðið hjá þeim sem standa að liðinu að bæta smá meiri reynslu í hópinn og vonandi er það góð uppskrift. Við erum einnig með Dean Martin sem spilandi aðstoðar- þjálfara, það kemur mikið með hon- um,“ segir Reynir. Skýr markmið hjá Gary Ein helsta ástæða þess að ÍA er spáð svo góðu gengi er framherj- inn enski Gary Martin. Hann hef- ur komið eins og stormsveipur inn í íslenska boltann en hann mætti til ÍA um mitt síðasta sumar og skor- aði tíu mörk í níu leikjum. Það líður ekki sá leikur sem hann skorar ekki eitt til tvö mörk. „Gary er fyrst og fremst góður í fótbolta,“ segir Reyn- ir um Bretann. „Hann er með mikið af eiginlegum sem prýða góðan sen- ter. Það er bara vonandi að hann nái að fylgja eftir góðu undirbúnings- tímabili inn í deildina. Þetta er topp strákur og ekki fyrir að fara stjörnu- stælunum. Hann er með skýr mark- mið fyrir sjálfan sig og liðið. Hann leggur mikið á sig, æfir aukalega og ætlar sér langt. Það er vissulega sérstakt skref fyrir hann að mæta til Íslands frá Englandi en stundum þurfa menn að taka skref aftur á bak til að fara tvö áfram,“ segir Reynir en hvaða lið verða í baráttunni með ÍA í sumar? „Selfossliðið klárlega. Það er hrikalega vel mannað og skýtur svo- lítið skökku við að núna hefur það verið að styrkja sig mikið en ekki í Pepsi-deildinni í fyrra. Fjölnisliðið er einnig sterkt, Leiknir og svo held ég að Haukarnir verði fínir. Heilt yfir er deildin mjög sterk, liðin sem komu upp núna eru til dæmis tölu- vert betri en þau sem féllu. Það er bara aðalatriðið að við mætum klár- ir í hvern einasta leik,“ segir Reynir Leósson. Kominn heim Reynir Leósson leikur með sínu uppeldisliði, ÍA, í sumar. Mynd FóTBolTi.neT n Skagamenn lang líkegastir til að vinna 1. deildina n reynir leósson kominn aftur heim og stendur í vörninni í sumar n Markamaskínan Gary Martin með skýr markmið fyrir sig og liðið n Verðum að mæta klárir í leikina, segir reynir Slæm byrjun er ekki heimsendir Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.