Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Side 25
Sport | 25Miðvikudagur 11. maí 2011
Ekkert kampavín
n Sebastian Vettel gerði sér lítið fyrir
og rúllaði upp Tyrklandskappakstrin-
um í Formúlu 1 síðastliðinn sunnu-
dag. Hann mátti
þó ekki bragða á
kampavíninu sem
í boði var fyrir
sigurinn þar sem
nýlega er búið að
hækka áfengis-
neyslualdurinn
í Tyrklandi upp í
24 ár. Vettel er 23
ára. Þjóðverjinn ungi stalst þó til að
fá sér nokkra sopa af flöskunni stóru.
Vegna nýju laganna þurftu sum lið
að taka áfengisauglýsingar af bílum
sínum, til dæmis Sauber sem er með
tekíla-fyrirtæki sem styrktaraðila.
Benzema á Emirates
n Arsenal íhugar nú að gera tilboð í
fanska framherjann Karim Benzema
hjá Real Madrid. Benzema á ekki
upp á pallborðið hjá Jose Mour-
inho en eftir að
Gonzalo Higuain
kom aftur úr
meiðslum hefur
hann vermt tré-
verkið nánast
í hverjum ein-
asta leik. Vill
Wenger fá kröft-
ugan framherja
til að leysa Danann Nicklas Bendtner
af hólmi en hann hefur vægast sagt
ekki staðið undir væntingum. Talið
er að Arsenal sé tilbúið að greiða 20
milljónir punda fyrir Benzema.
Þarf nýjan markvörð
n Fyrrverandi Tottenham-goð-
sögnin Glenn Hoddle hefur bent sínu
gamla félagi á að það verði að kaupa
sér nýjan markvörð ætli liðið sér
stóra hluti. Brassinn Heurelho Gomes
gerði enn ein mistökin um daginn
þegar hann missti langskot Frank
Lampard í netið. „Það vita allir að
Manchester United og Arsenal verða
að leita sér að nýjum markvörðum í
sumar. Það sama verður Harry Redk-
napp að gera hjá Tottenham ef ekki á
illa að fara,“ segir Hoddle.
Íhugar að hætta
n Sjöfaldi heimsmeistarinn í For-
múlu 1, Michael Schumacher, hefur
ekki átt sjö dagana sæla síðan hann
snéri aftur í íþróttina. Um helgina
endaði hann í
tólfta sæti í Tyrk-
landskappakstr-
inum og er hann
í fyrsta skipti frá
endurkomunni
farinn að ýja að
því að hætta aftur.
„Gleðin sem ég
eitt sinn hafði er
farin núna,“ sagði Schumacher sár-
svekktur eftir keppnina í Tyrklandi.
Í fyrra endaði hann í tíunda sæti í
keppni ökumanna og var aldrei í bar-
áttu um sæti á verðlaunapalli.
Molar
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
n Knattspyrnufélagið Valur 100 ára n 102 titlar í hús á 100 árum n Tveir titlar nú þegar
komnir í hús á árinu 2011 n Á lið í efstu deild karla og kvenna í öllum boltaíþróttum
Valur í 10 ár
Knattspyrnufélagið Valur er 100 ára í
dag, miðvikudaginn 11. maí. Hund-
rað og þrjú ár eru síðan unglinga-
deild var stofnuð innan KFUM sem
séra Friðrik Friðriksson sá um. Þrem-
ur árum síðar, eða fyrir 100 árum upp
á dag, var ákveðið að stofna Fótbolta-
félag KFUM en því nafni var breytt í
Val sama ár og varð þar til gríðarlega
sigursælt íþróttafélag. Fyrsti titill Vals
kom í hús árið 1930 þegar liðið varð
í fyrsta skiptið Íslandsmeistari í fót-
bolta. Nítján Íslandsmeistaratitlar
áttu eftir að bætast í safnið í fótbolt-
anum, sá síðasti datt í hús árið 2007.
Valur hefur unnið næstflesta Íslands-
meistaratitla karla í fótbolta en lang-
flesta í karlahandboltanum. Þá státar
félagið af því að hafa unnið Íslands-
meistara- eða bikarmeistaratitil í
öllum stærstu boltagreinum karla
og kvenna nema körfubolta kvenna.
Hundraðasti titill Vals vannst í sept-
ember síðastliðnum þegar kvenna-
liðið hampaði Íslandsmeistaratitlin-
um. Tveir til viðbótar hafa svo bæst
við á afmælisárinu. Karlalið félags-
ins varð bikarmeistari í handbolta og
konurnar Íslandsmeistarar.
Eyjamenn mæta í veisluna
Valsmenn slá upp mikilli veislu í dag
til að marka þennan mikla áfanga
í sögu sinni. Hefst hún strax klukk-
an 8.30 með fánahyllingu og lúðra-
blæstri en eftir hana verður góðum
félögum veitt gull- og silfurmerki. Á
hádegi verður svo hátíðarstund við
styttu sér Friðriks Friðrikssonar þar
sem blómsveigur verður lagður að
styttu hans. Um kvöldið mæta svo
Eyjamenn til leiks en Valsmenn sem
eru efstir í Pepsi-deildinni eiga leik á
afmælisdaginn gegn ÍBV.
Hefst gleðin við Vodafone-höllina
klukkan 16.00. Verða þar flutt ávörp,
tónlistaratriði og viðurkenningar
veittar. Leikurinn sjálfur hefst svo
klukkan 20.00 en Valsmenn hafa nú
þegar unnið tvo minni bikara á árinu
í karlaboltanum. Liðið varð bæði
Reykjavíkur- og Lengjubikarmeist-
ari. Þá eru Valsmenn búnir að vinna
tvo fyrstu leiki sína í Pepsi-deildinni.
n Fótbolti karla
Íslandsmeistarar: 20 (1930, 1933, 1935, 1936, 1937, 1938, 1940, 1942, 1943, 1944, 1945,
1956, 1966, 1967, 1976, 1978, 1980, 1985, 1987, 2007.)
Bikarmeistarar: 9 (1965, 1974, 1976, 1977, 1988, 1990, 1991, 1992, 2005.)
n Fótbolti kvenna
Íslandsmeistarar: 10 (1978, 1986, 1988, 1989, 2004, 2006, 2007, 2008, 2009, 2010.)
Bikarmeistarar: 12 (1984, 1985, 1986, 1987, 1988, 1990, 1995, 2001, 2003, 2006, 2009, 2010.)
n Handbolti karla
Íslandsmeistarar: 21 (1940, 1941, 1942, 1944, 1947, 1948, 1951, 1955, 1973, 1977, 1978,
1979, 1988, 1989, 1991, 1993, 1994, 1995, 1996, 1998, 2007. )
Bikarmeistarar: 8 (1974, 1988, 1990, 1993, 1998, 2008, 2009, 2011.)
n Handbolti kvenna
Íslandsmeistarar: 14 (1962, 1964, 1965, 1966, 1967, 1968, 1969, 1971, 1972, 1973, 1974,
1983, 2010, 2011.)
Bikarmeistarar: 3 (1988, 1993, 2000.)
n Körfubolti karla
Íslandsmeistarar: 2 (1980, 1983.)
Bikarmeistarar: 3 (1980, 1981, 1983.)
Valur – 102 titlar á 100 árumTómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Sigursælir Þessi veggur prýðir andyri Vodafone-hallar-
innar, heimavallar Valsmanna. Þarna eru titlarnir 102 sem
liðið hefur unnið á síðustu 100 árum listaðir. MyND SiGTRyGGuR aRi