Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2011, Blaðsíða 26
26 | Fólk 11. maí 2011 Miðvikudagur
Grínistinn Jon Lajoie með tvær sýningar á fimmtudaginn:
„Það eru allir svo
myndarlegir hérna“
„Ég man ekki einu sinni hvað þetta
heitir, ég er svo slæmur skemmtikraft-
ur,“ segir grínistinn Jon Lajoie kíminn
um sýningarnar tvær sem hann verð-
ur með í Háskólabíói á fimmtudags-
kvöldið. Jon Lajoie er einn allra vin-
sælasti grínisti Bandaríkjanna um
þessar mundir en á sviði er hann
bæði með venjulegt uppistand og svo
á hann í safni mörg gríðarlega fyndin
tónlistaratriði.
„Þetta verður bara rugluð
skemmtun. Ég mun tala aðeins meira
en venjulega á fimmtudaginn en það
verður nóg af tónlist og búninga-
skiptum,“ segir Lajoie sem öðlaðist
heimsfrægð í gegnum Youtube með
myndböndum á borð við Nauðgara-
gleraugun. Þar hófst þó ekki ferill
hans.
„Ég lærði leiklist og fékk hlutverk
í þætti í Kanada en þar er ég fædd-
ur og uppalinn. En svo æxlaðist það
þannig að ég varð frægari á netinu
og þurfti að hætta í sjónvarpinu. Svo-
leiðis hefði náttúrlega aldrei gerst
nema núna á síðustu fimm árum. Ég
var nokkuð heppinn því ég byrjaði að
gera þessi myndbönd á réttum tíma,“
segir hann.
Jon mætti til landsins á þriðjudag-
inn og verður hér fram á mánudag.
Hann ætlar að nýta þann tíma og taka
góðan túristapakka. Stefnir hann á að
kíkja í Bláa lónið, fara í hvalaskoðun,
fjallgöngur og fleira. En eins og svo
margir aðrir sem hingað koma hlakk-
ar hann til að kynnast næturlífinu.
„Ég hef heyrt góða hluti um nætur-
lífið,“ segir hann og hlær við. „Ég hef
heldur ekki séð eina ljóta manneskju
hérna, hvorki mann né konu. Ég er
svolítið óöruggari með sjálfan mig en
vanalega því það eru allir svo mynd-
arlegir hérna,“ segir hann.
Lajoie er einn af aðalleikurunum
í gamanþáttunum The League sem
notið hafa vaxandi vinsælda í Banda-
ríkjunum. Í þáttunum leikur hann
ólikindatólið Taco sem gerir fæst rétt
í lífinu nema það snúi að kvennamál-
um. Heilt yfir er hann þó sérstakur
karakter. „Á mínum verstu dögum og
stundum mínum bestu er ég svolítið
eins og Taco,“ segir hann.
Framleiðendur þáttanna hika
heldur aldrei við að láta Taco vera
nakinn í þáttunum. „Já, vá. Þetta held-
ur áfram. Ég var einmitt með leik-
stjóranum í New York á mánudaginn
og var að lesa handritið að fyrsta þætti
þriðju seríu. Þar er ég auðvitað látinn
vera allsber. Þetta er helvíti vont því
ég nenni ekki alltaf að vera í ræktinni,“
segir grínistinn Jon Lajoie en hægt er
að nálgast miða á sýninguna í Skór.is í
Kringlunni. tomas@dv.is
„Ég er allur að braggast og vonast
til að losna um helgina,“ sagði sjón-
varpsmaðurinn Helgi Seljan sem
gekkst undir hjartaþræðingu á dög-
unum, í samtali við DV á mánudag-
inn. Hann sagðist vera búinn að
dvelja á hjartadeildinni í viku en sjá
nú fyrir endann á dvöl sinni þar.
Helgi hafði fundið fyrir verkjum
fyrir brjósti og var jafnvel talið að
um kransæðastíflu væri að ræða.
Svo var þó ekki, heldur reyndist
sársaukinn stafa af bólgum í hjarta-
vöðvanum.
Hjartaþræðing oft nauðsynleg
Gísli Jónsson, hjartalæknir í Domus
Medica, segir að þegar bólg-
ur myndist í hjartavöðva breytist
hjarta rafritið gjarnan. „Þegar um
slíkar breytingar er að ræða getur
það villt um fyrir læknum. Þetta er
ein aðalmismunagreingin við bráða
kransæðastíflu þannig að þetta fólk
þarf stundum að fara í kransæða-
þræðingu til að hafa vaðið fyrir neð-
an sig,“ segir Gísli aðspurður hvort
algengt sé að þeir sem fái bólgur í
hjartavöðva þurfi á hjartaþræðingu
að halda.
Ekki lífsstílstengdur
sjúkdómur
Gísli segir ungt fólk fá slíkar bólgur
alveg til jafns við hið eldra, en þess
má geta að Helgi er aðeins 32 ára.
Hann segir fólk allt niður á unglings-
aldur hafa þurft að fara í hjartaþræð-
ingu vegna bólgna í hjartavöðva.
„Það er ekkert öruggt í þessum heimi
svo ef það eru minnstu líkur á krans-
æðastíflu þá þarf stundum að gera
það.“ Samkvæmt Gísla geta bólgur í
hjartavöðva, einar og sér, einnig ver-
ið lífshættulegar séu þær ekki með-
höndlaðar. Hann segist nokkrum
sinnum hafa séð ónýta hjartavöðva
eftir svæsin tilfelli, en flestir sleppi
sem betur fer vel. Honum finnst fólk
þó stundum gera of lítið úr hjarta-
verkjum. „Verkirnir geta verið mjög
svæsnir og mér finnst fólk oft koma
seint inn ef það kemur yfirhöfuð.“
Hann tekur fram að bólgur í
hjartavöðva séu ekki lífsstílstengdur
sjúkdómur heldur sé þetta svipað og
að fá inflúensu. „Maður getur ekkert
í því gert.“ Hins vegar sé kransæða-
stífla vissulega lífsstílstengdur sjúk-
dómur sem hægt sé að draga úr lík-
um á með heilbrigðum lífsstíl.
Þörf á meiri fræðslu
„Við verðum að vera dugleg að fylgj-
ast með og fræða. Ég vil fá þetta í
barnaskólana eða byrja strax í leik-
skólum á fræðslu varðandi fæðu-
val og hreyfingu. Svo þarf að kenna
betur hver einkenni sjúkdóma
eru,“ segir Gísli. Hann vill meina að
Skandínavar séu mun meðvitaðri
um einkenni sjúkdóma og jafnframt
meðvitaðri um heilsuna. Hann seg-
ir Íslendinga til að mynda áberandi
feitlagnari en Norðmenn. „Við mun-
um fá þetta í hausinn eftir nokk-
ur ár.“ Honum finnst fyrirbyggjandi
starfsemi ábótavant á Íslandi, en
tekur fram að það skorti ekki viljann,
heldur skorti peninga.
Sigmar sendir Helga þrjú hjörtu
Margir þjóðþekktir einstaklingar
og félagar hafa sent batakveðjur til
Helga á Facebook-síðu hans. Valtýr
Björn Valtýsson íþróttafréttamaður
er sannfærður um að austfirsk-
ar rætur Helga muni koma honum
til góða. „Innilegar batakveðjur til
þín Helgi minn. Ég veit að austfirð-
ingablóðið færir þér styrk og orku
til að verða samur á ný,“ skrifar Val-
týr. Veikindi Helga virðast ekki hafa
komið fréttakonunni Láru Ómars-
dóttur á óvart. „Gat skeð! kremju-
knús :),“ skrifar hún. Guðfinnur
Sigurvinsson sendir honum góðar
kveðjur og óskir um skjótan bata.
Hann segist jafnframt hlakka til að
sjá hann í vinnunni á nýjan leik.
Sigmar Guðmundsson, félagi Helga
úr Kastljósinu, gerði þrjú hjörtu á
vegginn hans í síðustu viku og ætla
má að það sé merki mikla vænt-
umþykju Sigmars í garð félaga síns.
Hjörtun eru líklega hans leið til að
óska honum góðs bata. Sjálfur þakk-
ar Helgi fyrir góðar kveðjur á síð-
unni og spáir því að hann komist á
fullt ról von bráðar. „Þökk sé starfs-
fólkinu hér á hjartadeildinni og fjöl-
skyldu minni,“ skrifar hann.
„Verkirnir geta verið
mjög svæsnir og
mér finnst fólk oft koma
seint inn ef það kemur
yfirhöfuð.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
„Ekkert öruggt
í þessum heimi“
n Helgi Seljan gekkst undir hjartaþræðingu á dögunum n Reyndist vera með bólg
ur
í hjartavöðva n Nauðsynlegt að þekkja einkenni hjartasjúkdóma, segir hjartalæk
nir
Á batavegi Myndasmiðurinn
las það á þremur netmiðlum að
Helgi Seljan væri á batavegi.
Honum fannst því við hæfi að
færa honum þetta skemmti-
lega skilti sem lýsir stöðunni.
MyNd HaLLdóR HöguRðuR
Heimsfrægur á youtube Margir
tugir milljóna hafa séð myndbandið
„Nauðgaragleraugun“.
Hlakkar til verunnar Lajoie
ætlar að nýta dvölina á Íslandi
og taka alvöru túristapakka.
MyNd RóbERt REyNiSSoN
Óskar Hrafn
slær í gegn
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn óskar
Hrafn Þorvaldsson hefur heldur betur
slegið í gegn í fyrstu tveimur þáttum Ís-
lenska boltans, markaþætti Sjónvarpsins.
Óskar er á sínu fyrsta ári sem sérfræðingur
um Pepsi-deildina en sjálfur spilaði hann
lengi og varð síðar íþróttafréttamaður. Mikl-
ar umræður sköpuðust á samfélagsvefnum
Twitter á mánudagskvöldið þar sem hersing
knattspyrnumanna og annarra sérfræðinga
um boltann heldur sig. Var það mál manna
að Óskar væri hreint magnaður í umfjöllun
sinni um íslenska boltann og væri hvergi
banginn við að segja mönnum til syndanna.
Jóhann birnir guðmundsson, leikmaður
Keflavíkur, var mjög ánægður með Óskar.
„Fótboltakvöld á RÚV vinnur þessa umferð.
Staðan er 2–0 fyrir RÚV,“ skrifaði hann og
vill meina að Sjónvarpið hafi yfirhöndina
gegn Stöð 2 Sport.
„Ég hef alltaf haft tröllatrú á netinu og
ég er sannfærður um að öll fjölmiðlun
mun leitað þangað fyrr eða síðar. Það
er hugur í mér,“ sagði blaðamaðurinn
Eiríkur Jónsson þegar tilkynnt var um
að hann hefði gengið til liðs við Pressu
björns inga Hrafnssonar. Eiríkur,
sem síðast ritstýrði Séð og heyrt hefur
bloggað á vefsvæði Eyjunnar frá því
í lok febrúar, en Björn Ingi keypti sem
kunnugt er Eyjuna á
dögunum. Eiríkur
þykir naskur að
finna mann-
lega vinkla á
málum og er
góður liðsstyrkur
fyrir Pressuna sem
hefur dalað í lestri
undanfarið en er
fjórði mest lesni
fjölmiðill
landsins
á netinu.
Eyjan er
aftur á
móti í
frjálsu
falli.
Eiríkur
styrkir
PrEssuna