Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Page 15
Erlent 15Miðvikudagur 14. mars 2012
n Þáttur tekinn af dagskrá eftir heimildamynd BBC
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Asaki VERKFÆRI
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18
Akureyri Furuvöllum 15. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-14
Húsavík Garðarsbraut 50. Opið virka daga kl. 8-18
Vestmannaeyjar Flötum 29. Opið virka daga kl. 8-18
AR636 18V Skrúfvél
Ni-Cd 2,0Ah 158Nm
18.890,-
AB693 150W Pússvél
93x185mm
5.890,-
AV224 620W höggborvél
SDS & herðslupatróna
13.900,-
AV245 900W Brothamar
45mm 5,3Kg
21.900,-
AN848 1000w slípirokkur 125mm
7.990,-
AN891 2200W 230mm slípirokkur
14.890,-
ALM14DF 14,4V Li-Ion
herðsluskrúfvél
2,8Ah 135Nm
36.890,-
ALM18DB 18V Li-Ion
borvél 2,8Ah / 38Nm
39.990,-
ALM18DD 18V höggborvél
Li-Ion 2,8Ah 38Nm 2 hraðar
41.890,-
AS103 370W 10mm borvél
4.990,-
ALB10DAS 10,8V Li-Ion
Bor/skrúfvél 1,4Ah 30Nm
14.890,-
***** 5 stjörnu verkfæri
ATH: Tvær rafhlöður, taska og hraðvirkt
hleðslutæki fylgir hverri hleðsluvél!
Manhattan-maddaman
ákærð vegna vændis
n Sögð hafa velt fimmtán milljónum dollara á tíu árum í vændisrekstri n Segist ekki eiga fyrir málsvörn
Var fyrirsæta Anna sem er skosk vann
eitt sinn fyrir sér sem fyrirsæta. Hún segir að
vinkonur sínar úr bransanum fái íbúðina lánaða.
Vændisherbergi? Anna segir svefnherbergið fjarri því að vera fullt af lúxus, hvað þá íbúðina. Þarna fái vinir hennar stundum að gista.
T
il átaka kom á milli sendifull-
trúa Suður- og Norður-Kóreu
hjá Sameinuðu þjóðunum á
fundi í Sviss á mánudag. Átök-
in brutust út eftir að So Se-pyong,
fulltrúi Norður-Kóreu, sagði skýrslu
Sameinuðu þjóðanna um mann-
réttindabrot í heimalandi sínu vera
uppspuna frá rótum og skrifaða af
óvinum landsins. Í skýrslunni kemur
meðal annars fram að á tímabilinu
september 2011 til janúar 2012 hafi
staða mannréttindamála haldið
áfram að versna í Norður-Kóreu.
Viðbrögð suðurkóresku fulltrúanna
við ummælum Se-pyong voru að
hrópa „ekki kúga flóttamenn“. Svo
virðist vera sem fulltrúa Norður-Kór-
eu hafi verið nóg boðið við það og
gerði hann tilraun til að yfirgefa sal-
inn ásamt sendinefnd sinni. Það var
þá sem fulltrúum nágrannaríkjanna
tveggja lenti saman og þurftu örygg-
isverðir að skerast í leikinn en fulltrú-
arnir höfðu þá þegar komið nokkr-
um höggum hver á annan.
adalsteinn@dv.is
n Kom til handalögmála á fundi hjá SÞ
Nágrannar slást
Góðir grannar?
Yfirvöld Suður- og Norður-Kóreu hafa lengi
átt í stríði.
E
inræðisherra Líbíu, Muamm-
ar Gaddafi, lagði Nicolas Sar-
kozy, forseta Frakklands, til
jafnvirði um 8,3 milljarða
króna í kosningabaráttu þess
síðarnefnda fyrir forsetakosningarn-
ar í Frakklandi árið 2007. Þetta kem-
ur fram í minnisblaði sem franska
fréttasíðan Mediapart hefur undir
höndum. Minnisblaðinu hefur verið
komið til dómara.
Breska dagblaðið Telegraph seg-
ir í frétt sinni um málið að minnis-
blaðið sýni að Gaddafi og Sarkozy
hafi fundað árið 2005 í Líbíu, þegar
Sarkozy gegndi embætti innanríkis-
ráðherra, þar sem ákveðið hafi ver-
ið að Gaddafi myndi sjá alfarið um
fjármögnun á forsetaframboði hans.
Framlag Gaddafis í kosningasjóð
Sarkozy er langt umfram það hámark
sem kveðið er á um í frönskum lög-
um um styrki til stjórnmálamanna
en hámarkið er aðeins 7.500 evrur,
jafnvirði um 1,3 milljóna króna.
Samkvæmt Mediapart voru
fjármunirnir lagðir inn á reikn-
inga systur Jean-Francois Copé,
leiðtoga UMP, flokks Sarkozy, í
Sviss og Panama. Í minnisblaðinu
kemur fram að „ZT“ hafi haft
milligöngu um millifærsluna en
talið er að þar sé vísað til Ziad Ta-
kieddine, þekkts vopnasala, sem
hefur tengsl við aðstoðarmenn
Sarkozy.
Minnisblaðið þykir renna stoðum
undir fullyrðingar Saif-al Islam Gad-
dafis, sonar einræðisherrans, frá því í
fyrra en þá hélt hann því opinberlega
fram að Líbía hafi borgað fyrir kosn-
ingabaráttu Sarkozy.
Óvíst er hvaða áhrif þessar upp-
lýsingar hafa á stuðning frönsku
þjóðarinnar við Sarkozy í komandi
forsetakosningum en hann mældist
í fyrsta sinn með meiri stuðning en
Francois Hollande, forsetasambjóð-
andi franskra sósíalista, í skoðana-
könnun sem birt var á þriðjudag.
adalsteinn@dv.is
n Minnisblað sýnir fram á tengsl Gaddafis og Sarkozy
Borgaði fyrir Sarkozy
Tengsl við einræðisherra
Minnisblað varpar ljósi á fjár-
stuðning Gaddafis. Mynd ReuTeRS