Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.2012, Blaðsíða 17
Dómstóll götunnar
Algjörlega yfir
strikið
Ég er allur að
koma til
Ragnheiður Elín Árnadóttir um ræðu Björns Vals á þriðjudag. – mbl.isKalli Bjarni ætlar að læra leiklist. – DV
S
tjórnlagaráð hélt fjögurra daga
fund á dögunum að ósk Alþing-
is og skilaði að honum loknum
svari sínu við spurningum og
ábendingum stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar Alþingis. Bréf þingnefnd-
arinnar dró saman fáein álitamál, sem
viðmælendur nefndarinnar í sjö mán-
uði höfðu reifað á fundum nefndar-
innar, og var þeim auðsvarað. Stjórn-
lagaráð stendur við frumvarpið, sem
ráðið samþykkti einum rómi og skilaði
Alþingi í lok júlí 2011, en ráðið ljær
einnig fyrir sitt leyti máls á öðrum út-
færslum tiltekinna ákvæða frumvarps-
ins án þess að raska meginefni þess
eða innbyrðis samhengi. Nú stendur
það upp á Alþingi að halda um mitt
sumar þjóðaratkvæðagreiðslu um
frumvarpið í samræmi við þingsálykt-
un, sem samþykkt var á Alþingi í lok
febrúar sl. með 31 atkvæði gegn 15.
Valhöll
Af þessu ánægjulega tilefni blésu sjálf-
stæðismenn til mánudagsfundar nú
í vikunni í húsi sínu Valhöll, þar sem
Birgir Ármannsson alþingismaður
hafði framsögu um stjórnarskrármál-
ið. Birgir situr við annan mann fyrir
hönd síns flokks í stjórnskipunar- og
eftirlitsnefnd Alþingis. Birgir er íhalds-
maður að eigin sögn, heflaður íhalds-
maður og kurteis öndvert óhefluðum
íhaldsmönnum.
Á fundinum líkti Ómar Ragnarsson
stjórnarskránni frá 1944 við gamlan
bíl, sem fullnægir ekki lengur kröfum
nútímans um öryggi og annan búnað,
svo að eigandinn fær sér þá nýjan bíl
frekar en að gera endalaust við gömlu
drusluna. Birgir vildi heldur líkja
stjórnarskránni við hús, sem hægt er
að endurbæta og ekki þarf að rífa. Í
mínum huga er Gamla Grána torfbær.
Forfeður okkar og mæður endur-
byggðu ekki torfbæina, heldur reistu
ný steinhús, sem munu standa lengi.
Í þeim anda ákvað stjórnlagaráð að
semja nýja stjórnarskrá frá grunni og
halda ýmsum innanstokksmunum
frekar en að bjóða upp á bætta flík.
Birgir lýsti áhyggjum af ákvæð-
inu um auðlindir í þjóðareigu. Hann
virðist líta svo á, að slíkt ákvæði eigi að
vera í stjórnarskránni upp á punt og
eigi engu að breyta. Ég er á öðru máli.
Auðlindaákvæðinu í frumvarpi stjórn-
lagaráðs er ætlað að skipta máli. Þar
segir: „Stjórnvöld geta á grundvelli
laga veitt leyfi til afnota eða hagnýt-
ingar auðlinda eða annarra takmark-
aðra almannagæða, gegn fullu gjaldi
og til tiltekins hóflegs tíma í senn.
Slík leyfi skal veita á jafnræðisgrund-
velli og þau leiða aldrei til eignar-
réttar eða óafturkallanlegs forræðis
yfir auðlindunum.“ Takið eftir, að í
textanum stendur „gegn fullu gjaldi“.
Væri „gegn fullu gjaldi“ breytt í t.d.
„gegn sanngjörnu gjaldi“, gæti breyt-
ingin skilizt sem tillaga um stjórnar-
skrárvarinn afslátt handa þeim, sem
nýta auðlindirnar. Í slíkri breytingu
á auðlindaákvæðinu fælist innbyrðis
ósamræmi, þar eð eignarrétti væri þá
gert mishátt undir höfði eftir því hver
í hlut á, og myndi slík mismunun
ganga gegn jafnræðisákvæði frum-
varpsins. Eignarréttarákvæðið kveður
á um, að „fullt verð“ komi fyrir eign-
arnám. Því hlýtur réttur eigandi auð-
linda í þjóðareigu, ríkið fyrir hönd
þjóðarinnar, að gera skv. auðlinda-
ákvæði frumvarpsins sama tilkall til
að „leyfi til afnota eða hagnýtingar
auðlinda eða annarra takmarkaðra
almannagæða [séu veitt] gegn fullu
gjaldi“.
Ákvæði frumvarpsins um jafnt
vægi atkvæða var einnig rætt í Val-
höll. Fundarstjórinn nefndi til sög-
unnar fátækan bónda í Þistilfirði,
sem hefði svo lítinn aðgang að Al-
þingi (og Seðlabankanum! – fundar-
stjórinn var formaður bankaráðsins
í hruninu), að hann þyrfti að hafa
margfaldan atkvæðisrétt á við okkur
hin, sem búum í Reykjavík og ná-
grenni. Ég fann til með Þistilfjarð-
arbóndanum, því að fundarstjór-
inn og félagar hans hafa notfært sér
margfaldan atkvæðisrétt bóndans
til að mylja undir sjálfa sig margföld
sjálftekin eftirlaun, og skora ég nú
á Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins,
opinberan sjóð, að birta allar líf-
eyrisgreiðslur til alþingismanna og
embættismanna, svo sem sjóðnum
verður skylt að gera, ef frumvarp
stjórnlagaráðs nær fram að ganga.
Leyndinni þarf að linna.
Landsdómur
Að loknum fundi í Valhöll eyddi
ég mánudagseftirmiðdeginum á
áhorfendabekkjunum í landsdómi.
Ég ætlaði bara að líta inn í gamla
lestrarsal Landsbókasafnsins í stutta
stund, en sat áfram til loka dags.
Stemningin minnti mig á einvígi
Fishers og Spasskís í Laugardals-
höllinni fyrir 40 árum: lítið gerðist,
en spenna lá í loftinu. Vitnin gengu
í salinn, heilsuðu upp á sakborn-
inginn, tóku sér sæti og svöruðu
spurningum saksóknara, verjanda
og dómenda. Síðasta vitni dagsins
var Björgólfur Guðmundsson. Hann
gekk beint að sæti sínu án þess að
heilsa upp á sakborninginn, reynd-
ur maður í réttarsal.
Mánudagur í Reykjavík
„Í mínum
huga er
Gamla Grána
torfbær
„Já, ég hef fylgst með. Það er nú
ekki mikið nýtt í þessu.“
Jóhann Sigurgeirsson
77 ára skipstjóri
„Nei, því miður.“
Mikael Gunnlaugsson
17 ára nemi í MR
„Já, það er samt eiginlega alveg
komið nóg af þessu.“
Signý Magnúsdóttir
19 ára nemi
„Lítið.“
Sævar Sigurgeirsson
42 ára texta- og hugmyndasmiður á
auglýsingastofu
„Aðeins, þetta er svipað og
maður bjóst við.“
Dóra Matthíasdóttir
37 ára starfar á auglýsingastofu
Hefur þú fylgst
með fréttum úr
landsdómi?
Á lokadegi Vitnaleiðslum lauk í Þjóðmenningarhúsinu á þriðjudag þar sem Árni M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, var spurður um aðdraganda efnahagshrunsins
og aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að sporna við hruninu. Nokkuð fjölmennt hefur verið í salnum alla daga sem vitnaleiðslur hafa farið fram. Mynd Sigtryggur AriMyndin
Umræða 17Miðvikudagur 14. mars 2012
Kjallari
Þorvaldur
Gylfason
1 Egill veikur Egill Helgason var veikur heima og lýsti
því á bloggsíðu sinni hversu skelfilega
sér liði.
2 Léttist um 44 kíló eftir að kærastan hélt framhjá
Jonny Laidler var 130 kíló og fór í megrun
eftir ástarsorg. Hann starfar nú sem
fyrirsæta.
3 Fórnarlamb sýruárásar tekst á við kvalara sinn í réttarsal
Patricia Lefranc segist ætla að horfa
beint í augu kvalara síns í dómsal.
4 „Að sjálfsögðu kom ég að þessu“
Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi banka-
stjóri Landsbankans, segir að hann
hafi komið að að því að kaupa trygg-
ingaumboðið Swiss Life af Guðlaugi Þór
Þórðarsyni, þingmanni Sjálfstæðis-
flokksins, í júní árið 2003.
5 Reiður ruslakarl tryllist út í ruslið
Starfsmaður í sorphirðu fór öfugum
megin fram úr einn morguninn og trylltist.
6 Hátt í 100 manns í glæpahópum
Lega Íslands er meðal þess sem laðar
glæpahópa að glæpsamlegri starfsemi
hér á landi.
Mest lesið á DV.is
Ég er meira en til í að
bæta mig í íslenskunni
Yesmine Olsson um sjónvarpsþáttinn sinn. – DV