Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Síða 12
12 Fréttir 2. maí 2012 Miðvikudagur Guðmundur Jónsson, einn af fyrrverandi eigendum Sjólaskipa á Kanaríeyjum, vildi ekki tjá sig um starfsemi útgerðarfélagsins áður en þeir seldu starfsemina til Samherja. Umfangsmiklar veiðar Veiðarnar fara þannig fram að togar- arnir eru lengi úti á sjó í einu, allt að tvö ár, og aflinn og sjómennirnir eru fluttir til og frá borði með minni skip- um sem leggja að þeim í hafi til að landa úr þeim. Togararnir þurfa því ekki að sigla að landi með aflann eða áhafnirnar og sparast því umtalsverð- ar tími sem annars færi í siglingar til og frá miðunum. Starfsmenn þessara togara Samherja eru að mestu leyti erlendir og koma frá Austur-Evrópu, margir frá Eystrasaltsríkjunum, en einnig frá meginlandi Afríku. Af þeim um 1.400 starfsmönnum sem vinna hjá Kötlu Seafood í heildina eru um 80 Íslendingar. „Þetta eru hálauna- menn í sínum löndum. Það er lúxus fyrir þá að komast á þessa togara. Svo öllu sé til skila haldið,“ segir heimild- armaður blaðsins. Helstu tegundirnar sem þessir togarar veiða eru makríll, hestamak- ríll, sardína og sardínella. Fiskurinn er annaðhvort sjófrystur heill eða af- hausaður í 20 til 30 kílóa einingum. Aflanum er svo landað í ýmsum Afr- íkuríkjum sem eru nálægt miðun- um úti fyrir strönd Marokkó og Má- ritaníu. „Við lönduðum í fraktskip sem fóru með aflann til Gana, Síerra Leóne, Nígeríu. Obbinn af þessu fer þangað.“ Ótakmarkaður afli Heimildarmaður DV segir að afla- heimildir útgerðarinnar á Kanaríeyj- um séu keyptar af umboðsmönnum yfirvalda, meðal annars í Marokkó og Máritaníu. Hann segir að greitt sé ákveðið veiðigjald fyrir hvert skip. Veiðigjaldið er ekki tengt við það hversu mikið útgerðirnar fiska held- ur er um að ræða fast veiðigjald sem ekki er magn- eða afkomutengt þó vissulega sé það tengt ákveðnum tegundum – togararnir geta ekki veitt hvaða tegundir sem er. „Menn eru ekki þarna í óþökk yfirvalda; annars væru menn ekki þarna […] Það er umboðsaðili sem miðlar veiðileyf- unum og við erum í sambandi við hann. Þarna eru keypt veiðileyfi af yf- irvöldum og menn bara borga þess- um yfirvöldum fyrir leyfin. Hver svo fær þetta á endanum, það er útilokað að segja neitt um það,“ segir heim- ildarmaður DV. Hann segir að eftir að þetta veiðigjald hafi verið greitt geti áhöfn togaranna veitt eins mik- ið af fiski og hún vill. Fiskurinn er svo seldur til landa í Vestur-Afríku, Eg- yptalands og Rússlands. Í ársreikningi Samherja fyrir árið 2010 er umfjöllunin um veiðiheim- ildirnar í Afríku á þá leið að um sé að ræða leigu á veiðiheimildum við strendur álfunnar: „Auk þessa leigja dótturfélög veiðiheimildir við strendur Norður-Afríku.“ Í yfirliti yfir kvótaeign erlendra dótturfélaga Samherja eru gefnar upp töluleg- ar upplýsingar um magn þess kvóta sem félagið ræður yfir. Engar slíkar tölulegar upplýsingar eru hins vegar um kvótann í Afríku í ársreikningum Samherja enda á útgerðin ekki nein- ar veiðiheimildir í álfunni. Ef marka má heimildarmann DV ræðst þetta af því að veiðiheimildir Samherja í Afríku eru í reynd ótakmarkaðar. Veltan ekki í ársreikningi Kötlu DV hefur undir höndum ársreikning um starfsemi Kötlu Seafood á Kanar- íeyjum þar sem fram koma fjárhags- legar upplýsingar um rekstur félags- ins. Í þeim ársreikningi kemur fram að hagnaður Kötlu hafi einungis numið tæplega 490 þúsund evrum árið 2010, að velta fyrirtækisins hafi numið rúmlega 5,6 milljónum evra og að eignir þess hafi numið tæplega 11 milljónum evra. Miðað við þessar hagnaðartölur græddi Katla aðeins tæplega 75 milljónir króna árið 2010 og var veltan einungis tæplega 860 milljónir. Í ársreikningnum kemur fram að starfsmenn Kötlu Seafood hafi verið 19 talsins árið 2010 og að eini hlut- hafi og stjórnandi félagsins hafi ver- ið Kýpurfélagið Fidelity Bond Invest- ments. Enginn af stjórnendum eða hluthöfum Samherja er persónulega skráður fyrir prókúru félagsins eða stjórn þess. Eignarhaldið á félaginu er því ekki mjög gagnsætt miðað við ársreikninginn en ekkert í honum tengir Samherja beint við félagið. Þetta er talsverð breyting frá því sem var þegar Sjólaskip áttu útgerðina en í ársreikningnum koma fram nöfn helstu hluthafa Sjólaskipa og eru þeir nefndir sem fyrrverandi stjórnendur félagsins, meðal annars bræðurnir Guðmundur Steinar Jónsson og Har- aldur Reynir Jónsson. Í Viðskiptablaðinu  í september í fyrra kom hins vegar fram að á milli 30 og 40 prósent af tekjum fyrirtæk- isins megi rekja til veiðanna við Afr- íkustrendur. Þetta þýðir að meira en 20 milljarðar króna af tekjum Sam- herja megi rekja til Afríkuveiðanna. Sé miðað við 35 prósent af heild- artekjum voru tekjurnar vegna veiða við Norður-Afríku um 24,2 milljarðar króna, eða 147 milljónir evra. Tekjurn- ar í ársreikningi Kötlu á Kanaríeyjum voru aftur á móti, líkt og áður segir, aðeins 5,6 milljónir evra, eða rösklega 850 milljónir króna. Reksturinn í sérstökum félögum Heimildarmaður DV segir að ástæðan fyrir þessum mun á þekktri veltu Samherja í Afríku og veltunni sem fram kemur í árs- reikningi Kötlu Seafood sé sú að sérstök félög séu um rekstur hvers skips hjá útgerðinni. „Svo eru sér- stök fyrirtæki um hvert skip. Skipin eru skráð í Belís.“ Eignarhaldið á skipunum er í ein- hverjum tilfellum í gegnum Mið- Ameríkuríkið Belís, líkt og heim- ildarmaður DV nefnir. Togararnir M/V Beta 1 og M/V Heinaste eru til að mynda skráð í Belís. Þetta kem- ur fram á heimasíðum á internetinu þar sem hægt er að sjá eignarhald og skráningar á skipum í heiminum. Heimahafnir þessara skipa eru borg- in Belís í samnefndu landi. Í báðum tilfellum er Katla Sea- food Ltd. skráð sem félagið sem notar skipin en í báðum tilfellum eru önnur félög skráð sem eigendur þeirra. Í tilfelli Beta er eignarhald á skipinu á höndum íslenska eignar- haldsfélagsins Snæfells hf. á meðan Heinaste er í eigu eignarhaldsfélags sem heitir Seadove Fishing Comp- any Limited. Í ársreikningi Kötlu Seafood á Kanaríeyjum kemur fram að félagið Seadove Fishing Company Limited tengist því félagi. Skip Kötlu Seafood eru því skráð í eigu ýmissa eignarhaldsfélaga sem tengjast Sam- herja með einum eða öðrum hætti. Eignarhaldið á skipunum virðist hins vegar á endanum vera í gegnum íslenska eignarhaldsfélagið Polaris Seafood sem DV greindi frá í frétt um Samherja í síðasta mánuði. Samherji sendi frá sér tilkynningu í tengslum við þann fréttaflutning þar sem fram kom að eignir tveggja eignarhalds- félaga útgerðarfyrirtækisins á Kýpur væru fyrst og fremst skipin sem not- uð eru við útgerðina í Afríku. „Eignir þeirra félaga sem tengjast Samherja á Kýpur  eru fyrst og fremst fiski- og þjónustuskip sem stunda fiskveiðar og vinnslu við strendur Afríku.“ Ekki er óhugsandi að Kýpurfélögin sjálf haldi með einum eða öðrum hætti utan um rekstur skipanna sem notuð eru við veiðarnar í Afríku og að þetta útskýri af hverju upphæðirnar í árs- reikningi Kötlu Seafood eru eins lág- ar og raun ber vitni. Evrópusambandið endurnýjaði ekki samninginn Í lok síðasta árs ákvað Evrópusam- bandið að endurnýja ekki fiskveiði- samninginn við ríkisstjórn Mar- okkó sökum þess að samningurinn tæki ekki með í reikninginn hags- muni íbúa Vestur-Sahara og væri þar af leiðandi brot á alþjóðalögum. Í frétt um málið á erlendum vefmiðli segir að þeir þingmenn Evrópu- sambandsins sem hafi verið mót- fallnir samningnum hafi bent á að veiðarnar væru rányrkja sem kæmi niður á fiskistofnum – bent var á að á níu af þeim ellefu fisktegundum sem veiddar væru úti fyrir strönd Marokkó væri um ofveiði að ræða. Samningur Evrópusambandsins við Marokkó hefur því leitt af sér ofveiði á ákveðnum fisktegundum og arður- inn af veiðunum hefur ekki skilað sér í réttum mæli til þeirra landa Afríku þar sem veiðarnar fara fram. Þegar ákvörðunin um að endur- nýja ekki samninginn við Marokkó lá fyrir þann 15. desember síðast- liðinn sagði skoskur þingmaður, Ian Hudghton sem starfar innan Evrópusambandsins, að Marokkó hefði ekki rétt á að selja náttúru- auðlindir Vestur-Sahara. „Marokkó hefur ekki rétt á því, samkvæmt alþjóðalögum, að selja náttúru- auðlindir Vestur-Sahara. Af þessu leiðir að Evrópusambandið á ekki að greiða ríkisstjórn Marokkó fyr- ir fiskveiðiréttindi úti fyrir strönd Vestur-Sahara.“ Í kjölfarið á niðurstöðunni gaf Evrópusambandið það út að ef sam- bandið ætti að undirrita nýjan samn- ing þyrftu hagsmunir íbúa Vestur-Sa- hara að vera tryggðir auk þess sem veiðarnar þyrftu að vera sjálfbærar og mættu ekki leiða til ofveiði á ein- stökum fisktegundum. Ríkisstjórn Marokkó gaf það út í kjölfarið að evrópsk fiskveiðiskip þyrftu að hverfa úr lögsögu lands- ins innan tiltekins frests og gætu ekki lengur stundað veiðar við strendur landsins. Segir ákvarðanir Evrópusam- bandsins hafa áhrif Þorsteinn Már segir að samning- ar þeir sem Evrópusambandið hefur gert við ríkisstjórn Marokkó um fiskveiðar evrópskra skipa við strendur landsins hafi auðvitað áhrif á starfsemi Samherja í Afríku. „Samherji á hlut í fyrirtæki sem hef- ur veitt innan Evrópusambands- Eitt af skipum Kötlu M/V Heinaste er einn af togurum Samherja sem veiðir við strendur Afríku. Síðasta skráða koma skipsins í höfn í Afríku var þann 26. apríl í hafnarborginni Walvis Bay í Namibíu en skipið fór þaðan aftur þann 29. apríl. Líklegt er að skipið hafi landað í Namibíu í lok mánaðarins. Skipið er skráð í Mið-Ameríkuríkinu Belís. „Auðvitað hafa þessir fiskveiði- samningar Evrópusam- bandsins áhrif á þessi dótturfélög Samherja. Endurnýjaði ekki samninginn Maria Damanaki, sem er yfirmaður sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu, var fylgjandi því að samningurinn við Marokkó yrði endurnýjaður. Þetta var hins vegar ekki gert vegna ofveiði á 9 af 11 fisktegundum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.