Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Síða 13
Fréttir 13Miðvikudagur 2. maí 2012
M
eirihluti stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar vill sjá
frumvarp forsætisráðherra
að breyttri skipan ráðu-
neyta samþykkt á þinginu. Gangi
tillagan eftir mun ráðuneytum hafa
fækkað úr tólf í upphafi kjörtíma-
bilsins í átta. Stefnt er að því að í stað
iðnaðarráðuneytis, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytis, umhverfis-
ráðuneytis, efnahags- og viðskipta-
ráðuneytis og fjármálaráðuneytis
komi atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneyti, fjármála- og efnahags-
ráðuneyti og umhverfis- og auð-
lindaráðuneyti.
Hagsmunasamtök atvinnuveit-
enda eru þó á allt öðru máli.
„Samtökin hafa ítrekað lýst þeirri
skoðun að horfið verði frá hug-
myndum um sameiningu,“ segir í
umsögn Landssambands íslenskra
útgerðarmanna um sameininguna.
Samorka, samtök orku- og veitu-
fyrirtækja, gagnrýnir breytingarnar.
Þó aðeins þann hluta er viðkem-
ur nýju umhverfis- og auðlindar-
áðuneyti. „Ráðuneytið muni m.a.
fá það hlutverk að setja viðmið um
sjálfbærni sem ætlað sé að tryggja
ábyrga umgengni við náttúruna og
allar auðlindir hennar. Engin dæmi
eru hins vegar nefnd um að skort
hafi á slíka ábyrgð í umgengni við
náttúruna,“ segir í umsögn Sam-
orku.
Samtök iðnaðarins lýsa sig
sömuleiðis áhyggjufull vegna fyrir-
hugaðra sameininga og telja að nán-
um tengslum atvinnulífs við ráðu-
neyti verði stefnt í hættu. „Með því
að skipta verkefnum á sviði iðnað-
armála upp með fyrrgreindum og á
köflum óljósum hætti telur stjórn SI
að rofin verði tengsl milli atvinnulífs
annars vegar og rannsókna, nýting-
ar, verndunar og þróunar hins veg-
ar. Samtökin telja að Íslendingum sé
þvert á móti nauðsynlegt að halda
sterkum böndum milli atvinnu,
þekkingar og auðlinda.“
Sameining ráðuneyta úr nefnd
n Atvinnuveitendur ósáttir við stórt umhverfis- og auðlindaráðuneyti
Úr tólf í átta Nái breytingarnar í gegn
mun ráðuneytum hafa fækkað um þriðjung
frá því að núverandi ríkisstjórn tók við.
Tekist á um aðgerðir
Seðlabankans
Á mánudaginn var munnlegur mál-
flutningur í Héraðsdómi Reykjavíkur
í máli Samherja gegn Seðlabanka Ís-
lands. Samherji vill meina að nýlegar
rannsóknaraðgerðir bankans gegn
fyrirtækinu hafi verið ólögmætar. Rann-
sóknin á Samherja teygir sig til erlendra
dótturfélaga Samherja en eignarhaldið
á þeim er í nokkrum tilfellum í gegnum
Kýpur.
Í síðasta mánuði gerðu Seðlabanki
Íslands, sérstakur saksóknari og skatt-
rannsóknarstjóri húsleit í höfuðstöðvum
Samherja vegna rannsóknar á meintum
brotum fyrirtækisins á lögum um
gjaldeyrismál. Lagt var hald á gögn um
viðskipti Samherja með sjávarafurðir. Til
rannsóknar er grunur um að fyrirtækið
hafi selt fisk til þýsks dótturfélags síns,
DFFU, á undirverði. Sérstaklega er rætt
um að karfi hafi verið seldur til félagsins
á undirverði. Með þessu á Samherji að
hafa tekið út hagnað af fiskveiðum hér á
landi í gegnum erlend dótturfélög með
ólöglegum hætti fram hjá gjaldeyris-
haftalögunum sem sett voru á Íslandi
eftir efnahagshrunið 2008. Þessi hagn-
aður Samherja á því, samkvæmt þessu,
að vera tekinn út í öðrum löndum en
ekki hér á landi. Rannsóknin á Samherja
stendur enn yfir hjá gjaldeyriseftirliti
Seðlabanka Íslands.
Lögmaður Samherja, Helgi Jóhannesson
hæstaréttarlögmaður á Lex, segir
að í málinu sé tekist á um það hvort
aðgerðir Seðlabankans hafi átt rétt á
sér. „Samherji vill meina að það hafi ekki
verið tilefni til þessara aðgerða sem
farið var í. Menn telja að málatilbúnaður
Seðlabankans hafi verið byggður á
misskilningi. Krafa okkar er sú að þessi
húsleit og haldlagning gagnanna verði
úrskurðuð ólögmæt eins og til þeirra var
stofnað. Það er inntakið,“ segir Helgi.
Héraðsdómur Reykjavíkur mun nú
dæma í málinu. „Nú er héraðsdómur að
hugsa málið og kveður upp sinn dóm á
næstunni,“ segir Helgi.
ins. Auðvitað hafa þessir fiskveiði-
samningar Evrópusambandsins
áhrif á þessi dótturfélög Samherja.
Það er bara þannig,“ segir hann.
Þegar Þorsteinn er spurður að
því hvaða afleiðingar það hafi haft á
Kötlu Seafood að samningurinn við
ríkisstjórn Marokkó hafi ekki verið
endurnýjaður segir hann það ekki
beint út. Hann segir að starfsmenn
Kötlu Seafood hafi ekki séð tilefni
til að ræða um það. „Þeir sem þarna
vinna eru bara ekkert að tjá sig um
það.“ Hann fæst ekki til að útskýra
hvað hann á við með þessum um-
mælum og hvort ákvörðun Evr-
ópusambandsins hafi þau áhrif að
Samherji verði af þeim gríðarlegu
tekjum sem Afríkuveiðarnar hafa
skilað fyrirtækinu.
Skipin úti fyrir strönd Máritaníu
Miðað við upplýsingar um sigling-
ar skipa Samherja eru að minnsta
kosti einhver þeirra enn við strend-
ur Afríku. Togarinn Geysir var til að
mynda úti fyrir ströndum Máritan-
íu, í nágrenni við landamæri Vest-
ur-Sahara, síðasta dag aprílmánað-
ar. Síðasta höfnin sem skipið lagði
upp frá var í Las Palmas á Kanar-
íeyjum. Þá var togarinn Janus stað-
settur rétt sunnan við landamæri
Vestur-Sahara, úti fyrir strönd Má-
ritaníu við borgina Nouadhibou,
síðustu dagana í apríl. Janus var á
norðurleið, í áttina að Kanaríeyj-
um, á þriðjudaginn þegar staðsetn-
ing skipsins var könnuð. Togarinn
Kristina var einnig úti fyrir strönd
Máritaníu í lok apríl og var síðasta
höfnin sem skipið kom í á Kanar-
íeyjum. Staðsetning skipanna og
siglingaleiðir þeirra á þessum slóð-
um bendir til að skip Kötlu Seafood
séu við veiðar á miðunum úti fyrir
strönd Norður-Afríku. n