Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Qupperneq 18
Græddu á Grænum bíl 18 Neytendur 2. maí 2012 Miðvikudagur E ld sn ey ti Algengt verð 263,9 kr. 261,3 kr. Algengt verð 263,7 kr. 261,1 kr. Algengt verð 263,6 kr. 261,0 kr. Algengt verð 263,9 kr. 261,3 kr. Algengt verð 265,9 kr. 261,3 kr. Melabraut 263,7 kr. 261,1 kr. Ánægjuleg áminning n Lofið fær Þjóðleikhúsið en ánægður leikhúsgestur sendi eftir- farandi. „Ég fékk sent SMS frá Þjóð- leikhúsinu þar sem ég var minnt á sýningu á Vesaling- unum sem ég hafði keypt miða á. Ekki það að ég hefði nokkurn tíma gleymt því, heldur fannst mér þetta gott fram- tak og gaman að fá áminningu um eitt- hvað jafn ánægjulegt.“ Hækkaði um 100.000 kr. n Lastið að þessu sinni fær verslun- in Rekkjan en DV fékk eftirfarandi sent: „Ég hafði samband við þá um daginn og fékk verðlista hjá þeim, en þetta var 31. mars. Mér leist vel á eitt rúmið hjá þeim, Alberta Plus Queen size sem var á 192.980 krón- ur samkvæmt listanum, og þegar ég ætlaði að ganga frá þessu fór ég á heimasíðu þeirra og sá að það var komið á 299.200 krónur sem það er á núna. Þeir sögðu að þetta væri eðlileg hækkun en það finnst mér alls ekki. Manni finnst eins og rúmið hafi verið hækkað í verði til að hægt væri að setja það á afslátt en þeir auglýsa núna 50 prósenta afslátt á rúmum á tilboðsdögum,“ segir viðskiptavinurinn. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last n Hægt er að spara á þriðja hundrað þúsund við að fá sér nýrri og grænni bíl Þ ú sparar 218.000 krónur í eldsneytiskostnað á ári með því að skipta úr 2005-árgerð- ar bíl yfir í nýjan bíl á grænu bílaláni, samkvæmt útreikn- ingum Ergo. Auk þess sparar þú þér tæplega 25.000 krónur í bifreiðagjöld og þú hlífir umhverfinu við 2.000 kílóum af CO2-útblæstri. Græn lán bera auk þess ekki lántökugjald en slíkt gjald fer eftir lengd lánins. Sem dæmi þarf að greiða 78.750 krónur í lántökugjald fyrir 3.000.000 króna bíl sem er keyptur með 75 prósenta láni. Lægri vörugjöld og frí bílastæði Á heimasíðu Ergo hefur nú verið birtur listi yfir eyðslugrennstu, um- hverfisvænstu og hagkvæmustu bílana sem hægt er að fá í dag. Þessir bílar eru í útblástursflokki A, B og C, sem þýðir að þeir losa 120 grömm af CO2 eða minna og því standa græn lán til boða við kaup á þeim. Þeir bílar sem falla undir þessa skilgrein- ingu bera einnig lægri vörugjöld en eyðslufrekari bílar. Þar að auk fá eig- endur grænna bíla frítt í bílastæði í miðborginni. Fjölskyldurbílar á listanum „Við lítum svo á að það sé ekki hægt að segja að bílar verði umhverfis- vænni, en þeir eru stöðugt að verða umhverfishæfari,“ segir Ásthildur J. Kristjánsdóttir, forstöðumaður hjá Ergo fjármögnunarþjónustu Íslands- banka, en þar hefur verið boðið upp á græn bílalán í nokkurn tíma. Segir hún að fólk hafi tekið mjög vel í þessa nýjung og að móttökurnar hafi farið fram úr þeirra björtustu vonum. Ásthildur segir að upphaflega hafi Ergo ætlað að bjóða upp á slík lán til áramóta en ákvörðun var tekin um að framlengja þau út júní. Þá verði metið hvort fyrirtækið haldi áfram að bjóða slík lán. „Fólk hefur haft þá til- finningu að þeir bílar sem falla und- ir þessar skilgreiningar séu bara litlu bílarnir. Við viljum leggja okkar af mörkum og benda fólki á að þeir eru miklu fleiri. Þegar þú skoðar listann sérðu að þar eru fjölskyldubílar jafnt á við litla smábíla. Við á Íslandi erum háð einkabílnum og við viljum eiga stóra bíla til að ferðast á. Það sem við höfum tekið eftir er að fólk jafnar þetta út með því að fá sér umhverf- ishæfari bíl til að snattast í bænum.“ Útblástur og eyðsla Ásthildur segir að það sé greinilega mikil vitundarvakning hjá almenn- ingi og nefnir í því samhengi að nú sé það að verða regla frekar en undantekning að tekið sé fram hve miklu bíllinn eyðir og hve mikill út- blásturinn sé í auglýsingum. „Bíla- val er í eðli sínu ákveðin ástríða og við veljum bíl eftir tilfinningum. Breytingin sem við sjáum í dag er sú að fólk er einnig farið að hugsa út í útblástur og eyðsluna. Það hefur breyst. Fólk er farið í meira mæli að velta þessum hlutum fyrir sér.“ Það séu þó ekki einungis vænt- anlegir kaupendur sem hugi að þessu því framleiðendur séu mark- visst farnir að bæta og þróa vél- ar sínar þannig að þær eyði mun minna en áður. Miklar breyting- ar hafi orðið á þessu síðustu árin. „Samhliða framleiðslu á rafmagns- bílum og þróun á öðrum orkugjöf- um, eins og metan og lífrænni olíu, eru framleiðendur dísil- og bens- ínbíla farnir að bæta sig til að vera samkeppnishæfari. Þetta hjálpast allt við að gera bílana umhverfis- hæfari,“ segir hún. „Þegar þú skoðar listann sérðu að þar eru fjölskyldubílar jafnt á við litla smábíla. Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Ásthildur J. Kristjánsdóttir Segir fjölmarga bíla vera umhverfishæfari en áður. * Blönduð eyðsla á hverja 100 km ** Rekstur í eitt ár á meðalstórum fólksbíl m.v. að bensínverð sé 243 kr., dísilolíuverð 254 kr. og akstur á ári 20.000 km Árgerð 2005 ** Sjálskiptur /bensín Árgerð 2012 ** Beinskiptur / dísil Sparnaður á ári 221 g/km 113 g/km 9,2 l 4,5 l 447.120 kr.Eyðsla * 228.600 kr. 218.520 kr. 34.240 kr.Bifreiðagjöld 9.760 kr. 24.480 kr. 4.420 kgCO² útblástur 2.380 kg 2.040 kg Sparnaður Hér má sjá sparnaðinn við það að fá sér nýjan bíl á grænu bílaláni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.