Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2012, Side 20
20 Lífstíll 2. maí 2012 Miðvikudagur Mikilvægast að taka lýsi n Hægt að verjast krabbameini með góðu mataræði Þ órunn Steinsdóttir er lög- fræðingur og auk þess mikil áhugamanneskja um mat- argerð og forvarnir gegn krabbameini. Hún hefur um nokkurt skeið haldið úti vefsíð- unni matturmatarins.com þar sem hún miðlar upplýsingum um fæðu- tegundir sem vinna gegn krabba- meini og kynnir heilbrigt mataræði og lífsstíl sem áhrifaríka forvörn. „Þessi síða snýst um það að kynna fyrir fólki hvaða þættir og þá sér- staklega mataræði geta minnkað lík- urnar á því að fólk fái krabbamein. Á síðunni er umfjöllun um forvarnir gegn krabbameini. Hvaða áhrif nær- ingarefni í matnum geta haft. Ég vil benda fólki á ákveðin efni í matnum sem eru bólguhamlandi eða næring- arefni sem vinna gegn krabbameini. Ég reyni að skrifa á mannamáli og kynna fyrir fólki einföld atriði sem það getur fært til betri vegar.“ Hægt að minnka líkurnar Í fjölskyldu Þórunnar er saga um brjóstakrabbamein og hún segist þess vegna hafa fengið áhuga á því að verja sjálfa sig gegn meininu. „Ég held að það sé þannig með alla sem hafa ástríðu fyrir einhverju ákveðnu að það snerti þá eitthvað sérstaklega. Ég hef alltaf verið meðvituð um það að ég er kannski líklegri en margir til þess að veikjast af krabbameini. Þess vegna hef ég frá unga aldri velt því svolítið fyrir mér hvað það er í umhverfi okkar sem hefur áhrif á krabbameinsmyndun og hverju við getum stjórnað.“ Þórunn bendir á að enginn geti útrýmt hættunni á því að þróa með sér krabbamein enda séu umhverf- isþættir og lífsstíll mikilvægur. „Um 5 prósent af krabbameinum er beint hægt að rekja til erfða, þannig að það eru mörg tilfellin sem er hægt að koma í veg fyrir. Rannsóknir sýna að um þriðjung krabbameinstilfella má rekja til lélegs mataræðis og fólk get- ur því minnkað líkurnar talsvert með því að taka ábyrgð á eigin heilsu.“ Tengsl krabbameins og bólgu eru mikil Stærstu breytingarnar sem Þórunn hefur gert á mataræði sínu varða jafnvægi á milli omega 3 og omega 6 fitusýra og bólguhamlandi fæði. „Hefðbundið vestrænt fæði inni- heldur of mikið af omega 6 fitusýrum sem eru bólguhvetjandi en of lítið af omega 3 fitusýrur eru bólguhaml- andi. Tengsl milli krabbameins og bólgu eru mikil og margar tegundir æxla virðast helst myndast í bólgu- vef. Ýmsir bólgusjúkdómar auka því líkurnar á krabbameini í viðkomandi líffærum. Mér fannst þetta merkileg- asta uppgötvun sem ég hef gert til að bæta mataræðið. Ég er mjög meðvit- uð um fituna sem ég borða og reyni að minnka neysluna á omega 6 og auka neyslu mína á omega 3.“ Þórunn mælir með bætiefnum þótt henni finnist nauðsynlegt að fá sem flest næringarefna úr fæðu. „Mikilvægast er að taka lýsi,“ segir Þórunn. „En það er ekki nóg, ég tek líka D-vítamín. Tel það nauðsynlegt vegna þess hve norðarlega við erum. Ég er líka afar hrifin af þörungum, sem eru fæða í sjálfu sér. Ég tek aldrei samsett vítamín. Mér finnst mikil- vægt að fá sem flest næringarefni úr fæðunni.“ kristjana@dv.is Máttur matarins Þórunn Steinsdóttir rekur vefsíðuna matturmatarins.com þar sem hún fræðir fólk um það hvernig má verjast krabbameini með lífsstíl og mataræði. Innkaupalisti Þórunnar n Lýsi n Hörfræolía n Chia-fræ n Hampfræ n Spirulina n D-vítamín í töfluformi n Chlorella Uppskrift af vefsíðu Þórunnar Unaðslegur chia-morgunverður með möndlum og berjasósu n Mér finnst fátt huggulegra en að vakna útsofin um helgar og búa til hollan og góðan morgunmat fyrir mig og mína. Þessi morgunmatur krefst örlítils undir- búnings þar sem mikilvægt er að leggja hafrana og chia-fræin í bleyti í eplasafa yfir nótt. Þetta tekur engan stund og ætti ekki að vefjast fyrir neinum. Þegar maður vaknar er morgunmaturinn síðan nánast tilbúinn. Það eina sem maður þarf að gera er að hita berin með hlynsírópi í potti og dreifa öllu saman í skál. Einfaldara verður það varla. Ég hvet fólk því til að prófa þessa góðu uppskrift um næstu helgi. Það er alveg tilvalið að vakna á sunnudagsmorgun og borða hollan morgunmat áður en maður fer að belgja sig út af óhollustunni. Uppskriftin inniheldur eftirfarandi krabbameinshamlandi fæðutegundir: n Ávextir: brómber, hindber n Hnetur og fræ: chia-fræ, möndlur n Kornmeti: hafrar Uppskrift fyrir 4 Chia-hafragrautur n 1 bolli tröllahafrar n 1 bolli hágæða eplasafi n 3 msk. chia-fræ Blandað saman í skál og geymt í ísskáp yfir nótt. Berjasósa n 1 bolli berjablanda – hindber/brómber/ rifsber/bláber n 1 msk. hlynsíróp Allt hitað saman í potti í 3–4 mínútur þar til allt er orðið mjúkt og vel blandað saman. Annað n 2 bollar hreint jógúrt/ab-mjólk/hrís- mjólk/sojamjólk n 1/2 bolli möndlur eða eftir smekk Dreifið chia-grautnum í 4 skálar. Hellið smá hreinu jógúrti/ab mjólk (eða hrísmjólk/sojamjólk) í skálina. Dreifið möndlum yfir og því næst hellið berjasósunni yfir. Berið fram og njótið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.