Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2012, Side 3
Fréttir 3Mánudagur 16. júlí 2012
Ummæli í umfjöllun Vikunnar
sem Ásgeir vildi dæmd ómerk:
n „Ég endaði á því að vinna fyrir Geira
en það var mjög mikið um vændi inn á
stöðunum hans og gríðarleg pressa á
þeim stelpum sem fyrir hann störfuðu
að stunda slíkt.“
n „Geiri hefur alltaf gert mikið út á
vændi og þá inni á stöðunum. Eftir
að einkadansinn var bannaður hefur
vændið einfaldlega farið fram bak við
tjöld sem sögð eru notuð til að hægt sé
að spjalla við kúnnana í einrúmi.“
n „Það er allur gangur á því hvort
kúnnarnir borga Geira sjálfum fyrir
þjónustuna eða stelpunum beint.“
„Ég er komin yfir hræðsluna við þessa
menn þótt mér hafi vissulega verið
hótað lífláti og á tímabili fór ég ekki út
úr húsi vegna hræðslu.“
n „Starfsstúlkur hans sem koma hingað
tímabundið í þrjá mánuði í senn eru eins
og í fangelsi.“
n „Þess á milli eru þær í raun kyrrsettar í
húsinu fyrir utan vissan útivistartíma.“
n „Ástæðan fyrir því er sú að stelpur
urðu uppvísar að því að ná sér í kúnna
utan klúbbsins án þess að Geiri fengi
hlut af þóknuninni en hann vill geta
stjórnað vændinu sjálfur.“
n „Vændi regla frekar en undantekning.“
„Hótað lífláti.“
„Fluttar inn grunlausar um hvert
stefndi.“
„Hótað lífláti ef hún segði frá.“
„Lovísa Sigmundsdóttir vann sem
strippari og segir blaðamanni Vikunnar
allt um vændið og líflátshótanirnar.“
„Lovísa segir vændi látið vera óáreitt
og það sé áberandi inni á nektarstöð-
unum.“
Ummæli úr Ísafold árið 2007 sem
Ásgeir vildi dæmd ómerk:
n „Flest bendir til þess að mansal sé
stundað í Kópavogi.“
„Þær segja vændi vera stundað á
staðnum.“
„Strax við komuna taka yfirmenn þeirra
jafnvel flugmiðana eða vegabréfin af
þeim. Þær verða að vinna fyrir farmiða
og kostnaði áður en þær vinna sér inn
réttinn til að yfirgefa staðinn.“
n „Og þeir sem láta sig málið varða vita
að aðstæður þeirra hafa ekkert með
list að gera, heldur mansal. Þetta eru
stúlkurnar á Goldfinger.“
„Þeim var sagt að þær fengju svo há laun
að þær gætu fætt alla fjölskylduna sína.
Það var hægt, en þá þurftu þær líka að
fara út í vændi. Og flestar gerðu það.“
„Vændi í dansklefum.“
„Stúlkurnar gátu átt von á allt að milljón
króna launum á mánuð, ef þær unnu öll
kvöld og seldu sig.“
„Það var stundað vændi þarna en ég
setti mörkin þar. Vændið er til dæmis
stundað inn í einkadansklefunum.“
„Umboðsmenn eru mafía.“
„Hún staðfestir að vændi sé stundað á
Goldfinger.“
„Flestar stelpurnar, sem eru fengnar frá
Austur-Evrópu, eru ekki dansarar heldur
vændiskonur.“
„Það er vitað að þarna er stundað vændi
og það er ætlast til þess.“
n „Stúlkan segist geta fullyrt að að-
stæður austur-evrópsku stúlknanna á
Goldfinger flokkist undir mansal.“
n „Og þær voru mjög hræddar við
eigandann og hans fólk. Enda var alltaf
sagt: Hér kemur Geiri og hirðin. Er þetta
ekki mansal?“
n „Mansalið í Kópavogi.“
„Sumar stúlkurnar á Goldfinger starfa
við að bera sig og selja sig án þess að
nokkuð áþreifanlegt hafi neytt þær til
þess.“
„Þeir sem ekki þekkja til telja gjarnan
að þessar konur séu þátttakendur í hinu
ólöglega athæfi af fúsum og frjálsum
vilja.“
„Efnahagslegt ójafnvægi sem skapast
hefur á milli Vestur- og Austur-Evrópu
er meginástæða þess að verslun með
konur og börn til kynlífsþjónustu þrífst.“
„Skipulagðir glæpahringir auglýsa
stöðugt eftir konum sem vilja fara utan
að vinna.“
„Hér fái þær hærri laun við að þjónusta
þá kynferðislega en þær geti fengið
heima hjá sér.“
„Þær eru nútímaþrælar án hlekkja.“
„Á meðan dansa stúlkurnar á bak við
tjöldin og heimildir um vændi berast
víða að.“
n Ómerk ummæli eru merkt sérstaklega.
Í
slandsbanki, helsti lánardrottinn
útgáfufélags Morgunblaðsins,
Árvakurs, afskrifaði í fyrra 994
milljónir af skuldum félagsins
við bankann. Þetta má lesa úr ný
útkomnum ársreikningi Árvakurs.
Nemur afskriftin rúmlega helmingi
af skuldum félagsins við bankann,
eða um sextíu prósentum. Óvíst er
hvaða skilyrðum afskriftirnar eru
háðar.
Björn Valur Gíslason, alþingis
maður VG, birti nýlega pistil á vef
síðunni sinni þar sem hann sagði
spurningar vakna í málinu. Seg
ir hann að það virðist sem skuldar
ar sitji ekki við sama borð hjá bank
anum: „Úti frá séð, þá hlýtur einhver
mismunun að vera við lýði þarna,“
segir Björn Valur við DV. Íslands
banki þurfi að skýra frekar málstað
sinn í málinu. Talsmaður bankans
segir hann hins vegar hafa farið eftir
settum vinnuramma í málinu.
Vekur upp spurningar
„Þetta vekur upp spurningar, á hvaða
leið bankinn sé,“ segir Björn Valur
um málið. „Það er spurning hvort
að einstaklingar fái sömu meðferð
og hvort að einhverjar almennilegar
kröfur hafi verið gerðar um endur
skipulagningu rekstursins. Gerir
til dæmis bankinn aldrei kröfu til
þess að lélegir stjórnendur – eins og
hlýtur að vera í þessu tilviki – víki?“
Hann segir bankann þurfa að greina
frá leikreglunum – hver séu viðmið
in á hvaða fyrirtæki séu lífvænleg og
hversu háar skuldir eigi að afskrifa.
Morgunblaðið pólitískt blað
Þá segir Björn Valur eitt skilja
Morgunblaðið frá öðrum fréttamiðl
um landsins, en það sé sú staðreynd
að blaðið sé pólitískt flokksblað og
því ekki í samkeppni. „Morgunblaðið
er ekki á samkeppnismarkaði. Það er
pólitískt blað gefið út í pólitískum til
gangi, og eitt slíkra blaða á landinu.“
Í ársreikningi Árvakurs segir að
tilgangur félagsins sé að styðja frjálst
viðskiptalíf, efla heilbrigðan hugs
unarhátt í þjóðfélagsmálum og beita
sér í hvívetna fyrir því sem miði til
„sannra framfara“.
Tjáir sig ekki
Óskar Magnússon, útgefandi
Morgunblaðsins, vill ekki tjá sig sér
staklega um afskriftirnar. „Við höf
um birt ítarlegustu upplýsingar, sem
íslenskir fjölmiðlar hafa svo birt, og
þær tala sínu máli.“ Aðspurður vill
hann ekki játa því eða neita hvort um
afskriftir sé að ræða, en í ársreikn
ingi sést greinilega hvar 994 milljón
ir hafa á óútskýrðan hátt verið slegn
ar af skuldum félagsins. Það er því
greinilegt að um afskriftir sé að ræða
en óljóst er hvaða skilyrðum þær
voru háðar.
Þá vill Óskar aðspurður ekki tjá sig
sérstaklega um málflutning Björns
Vals. „Ég get ekki verið að eltast við
rangfærslur Björns Vals eða annarra,“
segir hann en tiltekur þó ekki hvort
Björn Valur eða aðrir fari með rang
færslur í þessu tiltekna máli.
Fór að settum viðmiðum
Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýs
ingafulltrúi hjá Íslandsbanka, segir
bankann ekki geta tjáð sig um mál
ið. „Við tjáum okkur ekki um mál
efni einstakra viðskiptavina,“ seg
ir hún en þetta skýtur skökku við
þar sem bankastjórinn sjálfur, Birna
Einarsdóttir, tjáði sig um málið við
Morgunblaðið. Guðný, sem ekki gef
ur færi á gagnrýnum spurningum,
segir bankann starfa eftir ákveðnum
viðmiðum og að farið hafi verið eftir
þeim í máli Árvakurs. „Almennt þá
starfar bankinn samkvæmt ákveðn
um vinnuramma, þegar um endur
skipulagningu fyrirtækju er að ræða.
Sá rammi tekur meðal annars mið af
beinu brautinni, sem stjórnvöld, at
vinnulífið og fjármálafyrirtæki sam
þykktu á sínum tíma og voru und
ir forystu þáverandi efnahags og
viðskiptaráðherra.“
Hefði skilað hagnaði
Áhugavert er í ársreikningnum að
félagið hefði skilað miklum hagnaði
vegna afskriftanna ef ekki hefði ver
ið fyrir endurmat á fasteignum sam
stæðunnar. Fasteignir fyrirtækisins,
þar á meðal vélar, áhöld og inn
réttingar, lækkuðu samtals um 920
milljónir í verði. Vegna þessa tap
aði félagið alls 205 milljónum, en ef
endurmatið hefði verið hagstæðara
hefði Árvakur skilað hundruðum
milljóna í hagnað.
Það virðist sem afskriftirnar hafi
verið skilyrðum háðar. Ársreikn
ingurinn gerir ráð fyrir 335 milljóna
hækkun afborgana á þessu ári. Má
því færa rök fyrir því að það hafi ver
ið eitt skilyrði bankans. Sé það rétt er
heildarniðurfærsla skulda félagsins
hjá Íslandsbanka rúmar 664 milljónir
króna.
Afborgunartími tvöfaldast
Í reikningnum kemur einnig fram að
afborgunarskilmálum við lán bank
ans hafi verið breytt mikið. Ekki er
það skýrt frekar, en svo virðist sem
að lengt hafi verið í afborgunar
tíma. Í stað þess að greiða lánin til
baka á fimmtán árum er afborg
unartíminn orðinn þrjátíu ár. Því er
ljóst að samist hefur um tvöföldun
afborgunar tíma lánanna.
Ekki er óvarlegt að áætla að raun
veruleg afskrift skulda hafi numið 664
milljónum. Bankinn mun fá greiddar
ríflega 330 milljónir á þessu ári, en sá
peningur mun koma frá Þórsmörk
ehf., sem er eignarhaldsfélag Árvak
urs. Hlutaféð í Þórsmörk var nýlega
hækkað um fimm hundruð milljónir
og ætla má að það hlutafé hafi verið
notað til þess að greiða bankanum
og til þess að mæta tapi seinasta árs.
Afskrifað í annað sinn
Árið 2009 námu skuldir Árvakurs um
fimm milljörðum króna. Þegar fé
lagið var selt til núverandi eigenda,
tóku Íslandsbanki og Landsbank
inn ákvörðun um að afskrifa tæpa
þrjá milljarða af skuldum félagsins.
Þetta er því í annað sinn á þremur
árum sem félagið gengur í gegnum
fjárhagslega endurskipulagningu.
Ljóst er í nýjum ársreikningi félags
ins að ráðist var í einhverjar aðhalds
aðgerðir vegna bágrar stöðu félagsins.
Störfum var meðal annars fækk
að og tekist hefur að auka rekstr
arhagnað fyrir afskriftir og vexti
(EBITDA) verulega. Árið 2008 var
hann neikvæður um 575 milljón
ir, árið 2011 var hann rétt rúmar 40
milljónir. Rekstrarskilyrði hafa því
batnað til muna hjá Morgunblað
inu og ætla má að afskriftirnar hafi
átt stóran þátt í því. Tap félagsins á
árinu 2011 var rúmar 205 milljónir.
Símon Örn Reynisson
blaðamaður skrifar simon@dv.is
Mogginn losnar
við einn milljarð
n Hefði skilað hagnaði ef ekki hefði verið fyrir endurmat fasteigna
Listi yfir hluthafa Árvakurs
Nafn Forsvarsmaður Hlutafé í krónum Hlutur í %
Krossanes ehf. Þorsteinn Már Baldvinsson 225 milljónir 18,43%
Hlynur A ehf. Guðbjörg Matthíasdóttir 200 milljónir 16,38%
Áramót ehf. Óskar Magnússon 150 milljónir 12,29%
Ísfélag Vestmannaeyja hf. Stefán Friðriksson 164 milljónir 13,43%
Kaupfélag Skagfirðinga Sigurjón Rafnsson 110 milljónir 9,01%
Rammi hf. Ólafur Marteinsson 75 milljónir 6,14%
Síldarvinnslan hf. Gunnþór Ingvason 75 milljónir 6,14%
Fjárfestingaf. GIGAS ehf. Halldór Kristjánsson 50 milljónir 4,10%
Þingey ehf. Aðalsteinn Ingólfsson 50 milljónir 4,10%
Páll Hreinn Pálsson sami 25 milljónir 2,05%
Brekkuhvarf ehf. Ásgeir Bolli Kristinsson 25 milljónir 2,05%
Fari ehf. Jón Pálmason 25 milljónir 2,05%
Legalis sf. Sigurbjörn Magnússon 24 milljónir 1,97%
Skollaborg ehf. Einar Valur Kristjánsson 21 milljón 1,72%
Óskar Magnússon sami 1 milljón 0,08%
Laugarholt ehf. Þorgeir Baldursson 1 milljón 0,08%
Samtals hlutafé: 1.221 milljónir Heimild: Morgunblaðið
„Morgunblaðið er
ekki á samkeppn-
ismarkaði. Það er pólitískt
blað gefið út í pólitísk-
um tilgangi, og eitt slíkra
blaða á landinu.
Tjáir sig ekki Óskar Magnússon,
útgefandi Morgunblaðsins, vill ekki tjá
sig sérstaklega um afskriftirnar en
segist ekki geta elst við rangfærslur
annarra. Hann tiltekur þó ekki sér-
stakar rangfærslur í því samhengi.
Bankinn bundinn bankaleynd Guðný
Helga Herbertsdóttir upplýsingafulltrúi
hjá Íslandsbanka segir bankann bundinn
bankaleynd en farið hafi verið eftir settum
viðmiðum í málinu.
Sér mismunun Björn Valur Gíslason,
alþingismaður Vinstri grænna, segir að
málið vekji spurningar – utan frá séð hljóti
Árvakur að vera að fá sér meðferð.