Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2012, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2012, Page 8
8 Fréttir 16. júlí 2012 Mánudagur fær PlastPrent eftir milljarða afskriftir F ramtakssjóður Íslands hefur selt Plastprent til eignarhalds- félagsins Kvosar. Kvos ehf., sem nýverið fékk tæplega fimm milljarða afskrifaða hjá Landsbankanum og Arion banka, er í eigu Þorgeirs Baldurssonar sem sat í stjórn Landsbankans fyrir hrun. Þá er Framtakssjóðurinn í meirihlutaeigu Landsbankans, en framkvæmdastjóri sjóðsins er Brynjólfur Bjarnason, flokksbróðir Þorgeirs Baldurssonar. Gengið frá kaupum Á föstudaginn síðastliðinn skrifuðu Framtakssjóður Íslands og Kvos ehf. undir samning um kaup Kvosar á Plastprenti ehf. Kvos er móðurfélag prentsmiðjunnar Odda, Gutenberg og Kassagerðarinnar. Um 250 starfs- menn starfa hjá Kvos og Odda en samstæðan er með um 37 prósenta markaðshlutdeild á prentmark- aðnum á Íslandi. Plastprent, sem áður var í eigu eignarhaldsfélagsins Vestia, annast hins vegar framleiðslu á plastfilmum, plastpokum og ýms- um plastumbúðum. Sat í stjórn Landsbankans Þorgeir Baldursson er forstjóri og stærsti eigandi Kvosar, en áður var hann forstjóri Prentsmiðjunn- ar Odda hf. Hann var umsvifamik- ill í viðskiptalífinu fyrir hrun og kom víða við. Hann sat í stjórn Baugs þegar Baugur var almennings- hlutafélag og var kallaður til yfir- heyrslu þegar Baugsmálið stóð yfir. Hann sagði sig úr stjórninni vorið 2003 vegna trúnaðarbrests og settist sama ár í stjórn Landsbankans. Þar sat hann fram að hruni og átti jafn- framt hlut í bankanum. Virði hlutar- ins nam tæplega 60 milljónum króna þegar best lét en bréfin eru verðlaus í dag. Baldur sat einnig í stjórn SPRON og var stjórnar formaður SP-Fjár- mögnunar, en þar að auki er hann einn af eigendum Þórsmerkur sem er eignarhaldsfélag Morgunblaðsins. Þorgeir hefur gegnt trúnaðarstörfum innan Sjálfstæðisflokksins um árabil og var um tíma formaður fjármála- ráðs flokksins. Ekki náðist í Þorgeir við vinnslu fréttarinnar. Fékk afskrifað hjá Landsbanka Kvos skuldaði 8,8 milljarða króna í lok ársins 2009. Arion banki og Landsbankinn tilkynntu um afskriftir á tæplega fimm milljörðum af skuld- um félagsins á þessu ári og fengu eigendur þess að halda því. Skuld- irnar stöfuðu ekki síst af því að fyrir hrun hafði félagið tekið gengistryggð lán í erlendum myntum, aðallega evrum. Í ársreikningum fyrirtækisins segir að skuldirnar hafi stökkbreyst vegna gengishruns íslensku krón- unnar árið 2008. Nú, eftir að skuldir Kvosar hafa verið afskrifaðar, virð- ast umsvif félagsins í viðskiptalífinu vera að aukast á ný samanber kaup félagsins á Plastprenti. Gjaldþrot og samkeppnislagabrot Framtakssjóður Íslands er í meirihlutaeigu Landsbankans en að öðru leyti fyrst og fremst í eigu lífeyris sjóðanna. Lífeyrissjóðurinn Stafir, sem á 5,52 prósenta hlut í Framtakssjóðnum, átaldi stjórn sjóðsins sérstaklega fyrir að ráða Brynjólf og bent var á vafasama for- tíð hans í viðskiptalífinu. Brynjólfur Bjarnason var for- stjóri Símans og Skipta árin 2002 til 2010. Samkeppniseftirlitið sektaði Símann í apríl á þessu ári fyrir brot á samkeppnislögum, en brotin voru framin á árunum 2001 til ársloka 2007. Lögð var 390 milljóna króna sekt á fyrirtækið, en það er hæsta sekt sem lögð hefur verið á fyrir- tæki hér á landi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Þegar Brynjólfur Bjarnason lét af störfum hjá Símanum átti fyrirtækið í mikl- um fjárhagskröggum og í febrúar á þessu ári var félag í hans eigu, B-17 ehf., tekið til gjaldþrotaskipta. Ekki virðast þau samkeppnislaga- brot og gjaldþrot sem hér eru rakin hafa komið í veg fyrir að Brynjólfur yrði framkvæmdastjóri Framtaks- sjóðs Íslands. Framtakssjóðurinn er eitt stærsta fyrirtæki íslensks við- skiptalífs. Sjóðurinn á eignarhluti í sex fyrir tækjum, svo sem 75 pró- senta hlut í Advania, 19 prósenta hlut í Icelandair, 100 prósenta hlut í Icelandic Group og 79 prósenta hlut í Vodafone. Félagi í Eimreiðarhópnum Rétt eins og Þorgeir Baldursson hefur Brynjólfur Bjarnason starfað af krafti með Sjálfstæðisflokknum. Brynjólfur var einn af meðlimum Eimreiðarhópsins svokallaða sem gaf út tímarit á áttunda áratugn- um og boðaði frjálshyggju af mikl- um móð. Hópurinn hefur orðið æ umdeildari í seinni tíð, en nær allir meðlimir hans urðu áhrifamiklir í íslensku þjóðlífi. Meðal þeirra eru Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, Hrafn Gunnlaugsson, Jón Steinar Gunnlaugsson, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson og Þorsteinn Pálsson. Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannpall@dv.is n Félag Þorgeirs Baldurssonar kaupir Plastprent af Framtakssjóði eftir milljarðaafskriftir„Ekki virðast þau samkeppnislaga- brot og gjaldþrot sem hér eru rakin hafa komið í veg fyrir að Brynjólfur yrði framkvæmdastjóri Fram- takssjóðs Íslands. Brynjólfur Bjarnason Brynjólfur Bjarnason, framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands, var einn af meðlimum Eimreiðarhópsins. Þorgeir og Brynjólfur Hér má sjá flokksbræðurna Þorgeir Baldursson (annar frá vinstri) og Brynjólf Bjarnason (lengst til hægri) ásamt Ara Edwald og Helga Jóhannessyni. Myndin er tekin á viðskiptaþingi Viðskiptaráðs árið 2010.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.