Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2012, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2012, Qupperneq 18
Veldu réttu bílaleiguna Þarf að borga fyrir kerru n Lastið fær Toys R Us en faðir einn er ósáttur við að þurfa að greiða 100 krónur fyrir að nota búðar- kerrurnar. „Það er enginn með 100 kall á sér og því blasir það við flest- um foreldrum sem eiga lítil börn að þurfa að bera þau á háhesti eða halda á þeim í gegnum búðina,“ segir hann. Einar Jónsson, að- stoðarverslunar- stjóri Toys R Us seg- ir að í raun og veru borgi fólk ekki fyrir kerruna þar sem það fær peninginn til baka þegar henni er skilað. „Við höf- um þetta svona því við erum ekki með kerrustráka til að safna saman kerrum og getum þar með lækkað vöruverð. Það er hins vegar ekkert mál að fá lánað hjá þeim á kössunum. Þau eru mjög sveigjan- leg og ég hvet viðskiptavini til að fá aðstoð hjá starfsfólkinu.“ 18 Neytendur 16. júlí 2012 Mánudagur Ný heimasíða fyrir neytendur n Fríar ráðleggingar og aðstoð vegna viðskipta við erlenda seljendur O pnuð hefur verið íslensk heimasíða Evrópsku neyt- endaaðstoðarinnar á Ís- landi (ECC) með slóðina ena.is sem neytendur eru hvatt- ir til að kynna sér. Þar má finna ýmsar upplýsingar um rétt neyt- enda og ráðleggingar um til dæm- is farsíma, ferðalög, flugfarþega, kaup á netinu og ýmsa aðra þjón- ustu og vöru. Á síðunni segir að ECC sé hluti af ECC-netinu sem er starfrækt í 29 Evrópulöndum, eða öllum að- ildarríkjum Evrópusambandsins auk Íslands og Noregs. Tilgang- ur netsins sé að veita neytendum, sem kaupa vöru eða þjónustu af seljanda í öðru Evrópuríki, upp- lýsingar, leiðbeiningar og aðstoð komi upp ágreiningur vegna við- skiptanna. Þá taki ECC-Ísland að sér milligöngu í deilumálum selj- enda og neytenda, en milligangan fari þá fram með aðstoð systur- stöðvar ECC-Íslands í heimalandi seljanda. Þjónustan sem veitt er neyt- endum er þeim kostnaðarlausu en kostnaður við rekstur stöðvanna skiptist milli Evrópusambandsins og aðildarríkjanna sjálfra. Þar segir jafnframt að árið 2011 hafi meira en 70.000 neytend- ur leitað til ECC-stöðvanna, með spurningar og kvartanir  vegna kaupa á vöru eða þjónustu af selj- endum utan heimalands síns. E ld sn ey ti Algengt verð 245,5 kr. 247,3 kr. Algengt verð 243,3 kr. 243,1 kr. Algengt verð 243,2 kr. 243,0 kr. Algengt verð 245,5 kr. 247,3 kr. Algengt verð 245,7 kr. 243,5 kr. Melabraut 243,3 kr. 243,1 kr. Vel útilátinn skammtur n Lofið fær veitingastaðurinn Austur landahraðlestin sem er til húsa í Spönginni í Grafarvogi en DV fékk eftirfarandi sent: „Ég pantaði einn rétt hjá þeim um daginn sem var svo vel útilátinn að hann hefði get- að mettað tvo. Það er mjög gott verð hjá þeim, afgreiðslan var hröð og góð og maturinn sérlega góður. Þetta er snyrti- legur staður og þar eru fagmenn að verki,“ segir viðskipta- vinurinn ánægði. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Bensín Dísilolía Á ður en bíll er tekinn á leigu eru nokkur atriði sem gott er að hafa í huga, svo sem verð og önnur gjöld, tryggingar og hverjir mega keyra bílinn. Á nýrri heimasíðu Evrópsku neyt- endaaðstoðarinnar eru upplýsingar og ráð um hvað skal skoða þegar bíll er tekinn á leigu. Þessi atriði eiga við hvort sem um ræðir bílaleigu erlend- is eða hér heima. Áður en bíll er tekinn á leigu n Þegar bílar eru pant- aðir í gegnum netið er gott að kynna sér vel viðsemjandann og reyna að finna hvernig umsögn hann hefur fengið hjá öðrum viðskiptavinum. n Gott er að kynna sér vel hvort upp- gefið verð sé endanlegt eða hvort önnur gjöld bætist við. Slík gjöld geta verið til dæmis vegna aksturs, trygginga eða barnabílstóls. n Þá skal skoða hvaða reglur gilda um kostnað vegna eldsneytiskaupa, hvort skila á bílnum með fullan eða tóman, og hvernig fer með kostnað vegna áfyllingar. n Mikilvægt er að skoða hvort það sé lágmarksaldur fyrir ökumann en margar bílaleigur setja sérstakar reglur um leyfilegan aldur ökumanns. n Vert er að kanna hvort þurfi að borga afbókunargjald ef ekkert verður af leigu á bílnum eða hvort það sé hægt að hætta við án kostnaðar. n Kynntu þér umferðarreglur í viðkom- andi landi. Þegar bíllinn er sóttur n Skoðið hverjir trygginga- skilmálarnir eru og hvort kaupa þurfi viðbótar- tryggingu. n Það borgar sig alltaf að lesa smáa letrið en til eru dæmi um að ferðamenn hér á landi hafi farið illa út úr tjóni vegna öskufoks sem tryggingar ná ekki yfir. n Skoðaðu skilamála annarra trygginga, svo sem ferða- eða kreditkorta- trygginga. Kannaðu hvort þær nái yfir hugsanlegt tjón á bílaleigubílum. n Mundu að spyrja um verklags- reglur þegar kemur upp bilun í bifreiðinni eða þegar slys eiga sér stað. n Það er mikilvægt að starfs- maður yfirfari bílinn með þér og merki við allar þær skemmdir sem kunna að vera á honum. Ef þú færð ekki teikn- ingu af bílnum skrifaðu þá niður lýsingu á skemmdum og fáðu starfsmann til að staðfesta það og kvitta fyrir. Einnig er gott ráð að taka dag- og tímasettar myndir af skemmdum. Ef þú passar ekki upp á þetta getur bílaleigan reynt að rukka þig fyrir skemmdir sem voru á bílnum við móttöku hans. Á leigutíma n Það er mikilvægt að hafa strax samband við bílaleiguna ef bíllinn bilar. Ekki reyna að gera við hann sjálfur eða fara með hann í við- gerð án þess að fá samþykki fyrir því hjá bílaleigunni. n Ef þú lendir í slysi eða árekstri skaltu taka niður upplýsingar um alla viðstadda. Ef um meiðsl er að ræða eða upp kemur ágreiningur um málsatvik skaltu hafa samband við lögreglu, auk þess þarf að tilkynna bílaleigunni strax um atvikið. Þegar bílnum er skilað n Best er að skila bílnum á opnunartíma svo að starfsmaður geti yfirfarið bílinn. Þá ætti að skrá niður hugsanlegar skemmdir og bæði starfsmaður og leigutaki eiga að kvitta fyrir. n Ef þú þarft að skila bílnum eftir opnunartíma er gott ráð að taka dag- og tímasettar myndir af bílnum. Þá er gott að taka mynd af því hvar bílnum var skilað auk þess að taka mynd af kíló- metramælinum. n Evrópska neytendaaðstoðin hefur gefið út leiðarvísi um bílaleigubíla Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Bílaleigubílar Gott er að kynna sér ástand bílsins og hvaða reglur gilda hverju sinni áður en bíll er tekinn á leigu.„Skoðið hverjir tryggingaskilmál- arnir eru og hvort kaupa þurfi viðbótartryggingu. Viðskipti netinu Fjölmargir kaupa vörur og þjónustu af erlendum aðilum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.