Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2012, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2012, Blaðsíða 22
22 Menning 16. júlí 2012 Mánudagur Ted er frábær skemmtun n Frá þeim sem gera Family Guy G amanmyndin Ted er komin í bíóhúsin og eru Mark Wahlberg og Mila Kunis í aðalhlutverk- um, ásamt bangsanum sjálf- um, sem Seth MacFarlane tal- ar fyrir, en Seth bæði skrifaði og leikstýrði myndinni líka. Seth er að mínu mati algjör snillingur sem hefur talað inn á Family Guy og American Dad ásamt því að skrifa og leikstýra þáttunum líka. Myndin er fyndin frá upp- hafi til enda. Hún fjallar um John Bennett sem eignast bangsa þegar hann er átta ára, óskar þess að hann verði besti vinur sinn og morguninn eft- ir er bangsi farinn að tala. Þeir alast upp saman og myndin byrjar fyrir alvöru þegar John er orðinn 35 ára og komin í samband með Lori en hún er ekki alveg sátt við hversu mikl- um tíma þeir eyða saman. Húmorinn er rosalega beittur og oft og tíðum mjög grófur svo þetta er ekki mynd fyrir börn þrátt fyrir að bangsi sé í einu aðalhlutverkinu. Þegar ég fór á myndina, klukkan 22.20 á fimmtudagskvöldi, þá var óþægilega mikið af börnum í salnum þrátt fyrir að myndin sé bönnuð innan 12 ára. Ég hló rosalega mikið nánast alla myndina en það eina sem mér fannst ekki fyndið var þegar verið var að flétta ofur hetjuna The Flash, frá 1990, inn í myndina, en ég held að fæstir viti mik- ið um þennan karakter hér á landi. Þetta skemmdi samt ekki heildarupplifunina af myndinni því ég skemmti mér konunglega og ég held að það eigi við langflesta sem voru í salnum. Kidda Svarfdal kidda@dv.is Bíómynd Ted IMDb 7,8 RottenTomatoes 68% Metacritic 6,2 Leikstjóri: Seth MacFarlane Handrit: Seth MacFarlane Leikarar: Seth MacFarlane, Mark Wahlberg, Mila Kunis. 106 mínútur Ungleikur á Unglist Ungleikur er dagskrárliður á komandi Unglist í Reykja- vík. Markmið Ungleiks er að skapa umgjörð fyrir ung skáld og unga leikara til að sýna vinnu sína með því að setja upp sýningu. Sýningin verður svo á litla sviðinu í Borgarleikhús- inu þann 6. nóvember. Um þessar mundir er því aug- lýst eftir aðsendum leikrit- um frá skáldum á aldrinum 16–25 ára. Hægt er að senda verkin á ungleikur@gmail. com. Í dómnefnd sitja Rúnar Guðbrandsson, Andri Snær Magnason og Katla Margrét Þorgeirsdóttir. Raddir í Nor- ræna húsinu Austurríski kórinn Voices Unlimited heldur tónleika í Norræna húsinu mánu- daginn 16. júlí klukkan 20.00. Kórinn var stofnaður árið 2003 með það mark- mið að auðga tónlistarlíf Salzburg í Austurríki. Kór- inn, sem telur átta manns, syngur án undirspils og er áhersla lögð á lifandi sviðs- framkomu og húmor. Kór- inn flytur allt frá gamaldags pólýfóníu til „barbershop“- tónlistar, og popps með „beatbox“. Frítt er á tónleik- ana. Síðasta Þriðjudags- kvöldið Sjöttu og síðustu tónleikarn- ir á sumarhátíðinni Þriðju- dagskvöld í Þingvallakirkju verða haldnir þriðjudaginn 17. júlí. Þá mun Arnaldur Arnarson gítarleikari leika einleiksverk frá Spáni, Bras- ilíu og Paragvæ. Meðal höf- unda eru tónskáldin Fern- andi Sor, Villa-Lobos og Moreno-Torroba. Aðgangur er ókeypis og tónleikagest- ir eru að venju beðnir um að nota bílastæðin við Niku- lásargjá og ganga heim að kirkju. Tónleikarnir hefj- ast kl. 20.00 og taka innan við klukkustund. Það er að venju Einar Jóhannesson sem skipuleggur og heldur utan um tónleikana. Ted Frábær skemmtun með hárbeittum húmor. Þ að er óþægilegt að dæma bókina Ég er á lífi, pabbi. Hún er rit- uð af feðginum sem upplifðu hryðjuverkin í Noregi hvor frá sínum enda. Siri lýsir hvernig hún lifði af fjöldamorð Breiviks í Útey. Samhliða lýsir Erik, faðir henn- ar, martröð óvissu á meðan hryðjuverkamaður gekk laus í sumarbúðum Verkamanna- flokksins, þar sem dóttir hans var stödd. Sjálfur sat ég stjarfur yfir fréttum 22. júlí 2011. Ég bjó um tíð í Noregi, stundaði þar nám og starfaði meðal annars í AUF – ungliðahreyfingu Verkamanna- flokksins. Ég var þó aldrei nægj- anlega virkur til að stefna á för til Úteyjar. Andstaða mín við FRP – Fremskrittspartiet – átti stærstan þátt í veru minni í samtökunum. Skólinn minn var í bæjarfélagi þar sem FRP fór með meirihluta. Afstaða þeirra til fólks þótti mér viður- styggileg. Að Breivik hafi árum saman starfað í FRP kom ekk- ert á óvart. Í yfirlýsingum hans er einfaldlega samhljómur með þeim viðurstyggilegu skoðun- um sem heyrðust í Örsta, smá- bænum þar sem skólinn minn var og FRP naut stuðnings. Kuldalegt að dæma Af þessum ástæðum vildi ég að bókin talaði til mín. Ég viður- kenni að hún stóð ekki undir væntingum. Ég lifi, pabbi flakk- ar á milli frásagna Siri og föð- ur hennar. Skiptingin í bókinni er allt of skörp. Lesandinn nær varla að kortleggja umhverf- ið áður en flakkað er á milli frá- sagna. Það er kuldalegt að skrifa svona dóm um frásögn stúlku af fjöldaaftöku. Í bókinni lýs- ir Siri þegar hún sættist eitt andartak við að deyja – ef til vill væri það best. Hún lýsir þeirri ósk sinni að hún fái skot í fæt- urna, ekki höfuðið eða hjartað og ógleðinni sem fylgir því að heyra skothljóð í fjarlægð. Bókin er kaótísk og skrifin eru oft og tíðum samhengislaus. Það pirraði mig. Hvernig á samt bók sem er skrifuð, gefin út og þýdd innan við ári eftir að öfga- maður æddi um slátrandi börn- um vegna stjórnmálaskoðana þeirra, að vera annað en kaó- tísk, ekki síst í ljósi þess að allar kringumstæður þennan örlaga- ríka dag einkenndust af ringul- reið í sinni tærustu mynd? Varla er hægt að ætlast til þess að slíkri frásögn sé raðað á blað með skipulögðum hætti. Hugsjónir í stað Gillz Í bókinni lýsir Siri köllun sinni til stjórnmála. Á Íslandi Gillz, FM957 og Reykjavíkur síðdegis er upplífgandi að sjá hugsjón- ir ungrar konu upphafnar. Ekki neyslu eða skoðanaleysi held- ur hugsjónum. Erik lýsir köllun sinni til blaðamannastarfsins. Starfsstétt sem hér á landi hef- ur verið misnotuð af þeim sem sækjast eftir frama innan stjórn- mála en ekki starfsævi í frétta- mennsku. Frásagnir sem varða flesta. Það er ekki sársauka- laust að rifja upp ömurleg- ustu andartök ævi þinnar. Það gerir bók áhugaverða, sama hvað segir í gagnrýni á upp- setningu, frásögn eða stíl. Ég lifi, pabbi segir frá atburðum sem varða okkur öll. Við get- um ekki leyft okkur að sitja þegjandi og hljóðalaus á með- an sturlað hatur tekur sér ból- festu í umræðunni. Bókina ættu allir að lesa enda frá- sögnin okkur víti til varnaðar. Atli Þór Fanndal atli@dv.is Bækur Ég er á lífi, pabbi Höfundur: Siri Mari Seim Sønsteli, Erik Søsnteli Útgefandi: Draumsýn bókaforlag Víti til varnaðar Kaótísk frásögn Litlum vafa er undirorpið að lestur bókarinnar kann að verða mörgum sársaukafull lesning.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.