Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.2011, Síða 10
Iceland Express hefur verið gagnrýnt
harðlega á undanförnum mánuðum
vegna þjónustu flugfélagsins við far-
þega. Flugvélar félagsins hafa undan-
farið verið seinar í 64 prósentum til-
fella og hefur komið upp matarskortur
í vélunum. Matthías Imsland, forstjóri
Iceland Express, hefur sagt að þetta
séu tímabundnir erfiðleikar vegna
breytinga á þjónustufyrirtæki félags-
ins en félagið skiptir nú við eigið fyrir-
tæki á Keflavíkurflugvelli en ekki IGS,
sem rekið er af eina íslenska sam-
keppnisaðila fyrirtækisins hér á landi
– Icelandair. Erfiðleikarnir hafa þó ein-
kennt starfsemi fyrirtækisins um tals-
vert lengra skeið því tilkynnt var um
breytingar á þjónustufyrirtæki félags-
ins í lok maí síðastliðins.
Vilja skaðabætur vegna seinkana
Breska ferðaskrifstofan Discover the
World hefur stefnt íslenska félaginu
Iceland Express fyrir íslenskum dóm-
stólum vegna viðskipta sinna við fé-
lagið. Breska ferðaskrifstofan vill fá
skaðabætur frá Iceland Express vegna
flugferðar sem íslenska félagið felldi
niður. Málið var tekið til meðferðar
hjá Héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni.
Í stefnu Discover the World gegn Ice-
land Express kemur fram að ferðaskrif-
stofan kaupi flug „í stórum stíl“ af Ice-
land Express og að viðskipti félaganna
nái allt aftur til ársins 2005. Ferðaskrif-
stofan fer fram á 3.908 pund, jafnvirði
um 730 þúsunda króna, í skaðabætur
frá Iceland Express vegna ítrekaðra
seinkana og aflýstra flugferða. Auk
þess er farið fram á dráttarvexti frá því í
lok desember í fyrra.
Vandamál fylgdu Ferðaskrifstofu
Íslands
Athyglisvert er að vandamálin sem tal-
að er um í stefnunni byrjuðu á sama
tíma og Pálmi Haraldsson keypti
Ferðaskrifstofu Íslands. „Frá upphafi
ársins 2009 hafa viðskipti aðilanna
hins vegar ekki gengið sem skyldi.
Ber þar helst að nefna miklar og ítrek-
aðar breytingar á flugáætlun stefnda,
iðulega með skömmum fyrirvara, til
mikilla óþæginda og í einhverjum til-
vikum til tjóns fyrir stefnanda, bæði
beinlínis fjárhagslega en einnig í formi
skerðingar á góðri ímynd og viðskipta-
vild stefnanda,“ segir í stefnunni en
Pálmi keypti Ferðaskrifstofu Íslands
sama ár. Ferðaskrifstofa Íslands á og
rekur ferðaskrifstofurnar Úrval Útsýn,
Sumarferðir og Plúsferðir. Auk þess á
Iceland Express ferðaskrifstofuna Ex-
press ferðir.
Félagið sjálft ferðaskrifstofa
Iceland Express er í raun ekki flugfélag
heldur ferðaskrifstofa en það er breska
flugfélagið Astraeus Airlines sem sér
um flug fyrir Iceland Express. Astra-
eus er að fullu í eigu sömu aðila og Ice-
land Express. 9. janúar árið 2003 hófst
formleg sala farmiða með Iceland Ex-
press en fyrsta flug félagsins var 27.
febrúar sama ár. Félagið hefur síðan
þá starfað hér á landi og hafa stjórn-
endur þess reynt að kynna fyrirtæk-
ið sem helsta hvata fyrir samkeppni á
flugmarkaði hér á landi. Talsvert fleiri
fyrirtæki hafa reynt að komast inn á
íslenskan markað en Iceland Express
virðist vera eina fyrirtækið sem hefur
náð einhverri fótfestu á honum. Hafa
erlend flugfélög flest gefist upp á því að
bjóða flug til Íslands.
Skapa hvort öðru tekjur
Líklegasta skýringin á ótrúlegum ár-
angri Iceland Express við að festa sig
í sessi á íslenskum flugmarkaði er
tengsl félagsins við ferðaskrifstofur
hér á landi. Sami eigandi – það er at-
hafnamaðurinn Pálmi Haraldsson –
eru á bak við félagið og flestar ferða-
skrifstofur hér á landi. DV fjallaði um
tengsl Iceland Express og Ferðaskrif-
stofu Íslands í byrjun mars síðast-
liðins. Í ársreikningi Iceland Express
fyrir árið 2009 kemur fram að Ferða-
skrifstofa Íslands hafi keypti vörur
og þjónustu af systurfélagi sínu, Ice-
land Express, fyrir nærri 620 milljónir
króna á árinu 2009. Þessar fjárfesting-
ar Ferðaskrifstofu Íslands í þjónustu
frá systurfélagi sínu áttu stærstan þátt
í því að Iceland Express fór úr millj-
arði í tap yfir í 590 milljóna hagnað.
Farþegar strandaglópar eða ekki
látnir vita
Ef marka má viðbrögð bæði Íslendinga
og útlendinga við vandamálum Ice-
land Express er ekki hægt annað en að
draga þá ályktun að fyrirtækið sé eitt
það óvinsælasta á Íslandi. Margar sög-
ur óánægðra ferðalanga hafa vakið at-
hygli í fjölmiðlum. Nokkrar Facebook-
síður hafa verið stofnaðar þar sem fólk
vill koma óánægju sinni með Iceland
Express á framfæri. Síðurnar bera ýmis
nöfn en þar á meðal er „Hata Iceland
Express“, „Ég ferðast aldrei aftur með
Iceland Express“ og „Government of
Iceland – BAN Iceland Express From
Flying“. Á annað hundrað manns eru
meðlimir á þessum síðum. Það er þó
rétt að taka fram að opinber Face-
book-síða flugfélagsins hefur rúmlega
22 þúsund aðdáendur.
10 | Fréttir 27. júní 2011 Mánudagur
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
n Iceland Express stefnt vegna óstundvísi og lélegs skipulags n Mikil óánægja með félagið á
meðal viðskiptavina n Vandræðin byrjuðu þegar Pálmi Haraldsson keypti Ferðaskrifstofu Íslands
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Hrakfarir hjá Iceland Express
Ekki látinn vita af niðurfellingu Sigurjón
Sigurðsson fékk ekki að vita að flugi hans hefði
verið aflýst fyrr en hann fór sjálfur að athuga
stöðuna á fluginu til Friedrichshafen í Þýskalandi.
„Mér finnst þetta svo léleg framkoma. Að það skuli
ekki nokkur maður frá þessu fyrirtæki láta okkur
vita,“ sagði Sigurjón í samtali við DV. Þjónustu-
fulltrúi félagsins sagði rétt að flugið hefði verið fellt
niður og vegna sumarleyfa starfsmanna hefði ekki
verið búið að láta vita.
Engar upplýsingar að fá Svipaða sögu hefur
Joshua Feibus að segja en hann átti pantað flug
frá London til Keflavíkur á leið sinni til Grænlands.
Stuttu fyrir flugið frá London var því frestað. Joshua
sagði í samtali við DV í febrúar að hann hefði ekki
fundið neinn starfsmann eða talsmann Iceland
Express á staðnum sem gat gefið upplýsingar eða
leiðbeint farþegunum.
Gleymdu hundi Iceland Express gleymdi að setja
hundinn Lubi af gerðinni Pomeranian upp í flugvél
til Alicante. Hundurinn varð eftir á Keflavíkurflug-
velli og voru eigendur hundsins miður sín á Spáni á
meðan þeir biðu eftir honum. Nokkrum dögum síðar
komst hann loksins til Alicante og þá týndist hann
aftur. Iceland Express bauð endurgreiðslu á flugfar-
gjaldi fyrir hundinn.
Seinkun í langflestum tilfellum Iceland Express hefur að undanförnu verið seint í 64
prósentum tilfella.
Pálmi á allt Athafnamaðurinn Pálmi
Haraldsson á flugfélögin Astraeus og
Iceland Express og Ferðaskrifstofu Íslands.
Ókyrrð í kringum
ferðarisa Pálma
Af 823 brottförum Iceland Express í
júní, júlí og ágúst í fyrra stóðst aðeins
351 þeirra áætlun. Þetta kemur fram
í gögnum frá Isavia sem Fréttablaðið
birti 21. júní síðastliðinn. Aðeins tæp-
lega 30 prósent af komutímum véla
félagsins stóðust þá áætlun. Þetta
þýðir að félagið hélt áætlun í aðeins
ríflega 36 prósentum tilfella, eða 592
af 1.644. Miðað er við að flugfélag hafi
haldið áætlun ef seinkun á brottför eða
komu véla er undir 15 mínútum.
Oftast seinkun
n Á réttum tíma
n Á eftir áætlun
63,8%
36,2%