Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Qupperneq 4
S parisjóðurinn Byr afskrifaði um 8,5 milljarða króna af út- lánum sínum til átta stórra viðskiptavina árið 2009. Þetta kemur fram í úttekt sem innri endurskoðun Byrs vann fyrir spari- sjóðinn árið 2009 og DV hefur undir höndum. Þetta var gert vegna þess að starfsmenn Byrs reiknuðu ekki með því að neitt fengist upp í þessar kröfur. Í úttektinni er fjallað um eignar- haldsfélög sem voru í eigu nokkurra af helstu skuldurum Byrs sem komnir voru í vanskil við sparisjóðinn. Með- al þeirra má nefna Hannes Smára- son, Magnús Ármann, Þorstein Jóns- son, Jón Þorstein Jónsson og Magnús Jónatansson, og greint frá því hversu mikið af lánum þeirra hafi verið færð á afskriftarreikning. Mestu afskriftirnar voru hjá fé- lögum í eigu Þorsteins Jónssonar og Magnúsar Ármanns, Runns , Runns 2. og Sólstafa, en rúmlega 4,3 milljarð- ar af rúmlega 4,7 milljarða skuldum þeirra við Byr voru færðir á afskriftar- reikning. Þá voru rúmir 1,3 milljarð- ar af skuldum Saxhóls, fjárfestingar- félags Jóns Þorsteins og systkina hans, og tengdra aðila færðir á afskriftar- reikning. Rúmlega 2,1 milljarður af skuldum félaganna var kominn í van- skil á þessum tíma. Eignarhaldsfélag Hannesar Smársonar, FI fjárfestingar ehf., var einnig í vanskilum við Byr upp á rúman milljarð króna og var nánast öll skuldin færð á afskriftar- reikning. Einnig er þar að finna rúmlega 840 milljóna króna afskrift á láni til eign- arhaldsfélagsins Exeter Holdings en tveir af stjórnendum Byrs, Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þorsteinn Jóns- son, voru ákærðir fyrir umboðssvik og sýknaðir í undirrétti vegna viðskipta Byrs og félagsins. Lítið bókað þrátt fyrir háar skuldir Innri endurskoðun Byrs fetti fingur út í það í úttektinni að áhættunefnd Byrs hefði lítið sem ekkert bókað um skuldir og vanskil þessara viðskipta- vina í fundargerðum sínum. Heildar- skuldir þessara átta viðskiptavina og félaga þeirra við Byr námu rúmlega þrettán milljörðum króna árið 2009 og voru afskriftir um 8,5 milljarðar eins og áður segir. Í úttektinni kemur fram: „Við skoðun á aðilum sem teljast til 30 stærstu lánþega, og eru í van- skilum, hefur lítið eða ekkert verið bókað um málefni þeirra í fundar- gerðum áhættunefndar.“ Síðan er rakið hvernig þessi vinnubrögð áhættunefndar hafi ver- ið þvert á útlánareglur Byrs en sam- kvæmt þeim átti áhættunefndin að „fjalla um skuldbindingar sem eru í tapsáhættu og vísað hefur verið til sérmeðferðar“. Ályktun innri endurskoðunar Byrs er á þá leið að áhættunefndin hafi ekki staðið sig sem skyldi. „...er það álit IE [innri endurskoðunar, innskot blaðamanns] að bókanir í fundar- gerðir um veruleg vanskil einstakra viðskiptavina verði að vera markviss- ari og eftirfylgni mála betri.“ Byr hafði því, árið 2009, gefið upp á bátinn að ná að innheimta skuldir sem námu um einum fimmta hluta af rúmlega 40 milljarða króna eiginfjár- grunni sparisjóðsins. Kaupverð Byrs Líkt og kom fram í fjölmiðlum í síð- ustu viku hefur Íslandsbanki fest kaup á Byr. Kaupin eru háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppnis- eftirlitsins. Gagnrýnt hefur verið að kaupverðið hafi enn ekki verið gefið upp. Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokksins, hefur sagt að það sé um 15 milljarðar króna. Ýmsar kenningar eru á lofti um af hverju kaupverðið á Byr hefur ekki verið gefið upp. Ein kenningin er sú að seljendur Byrs, slitastjórn spari- sjóðsins og fjármálaráðuneytið, vilji ekki gefa kaupverðið upp þar sem kaupin eru ekki gengin í gegn þar sem Fjármálaeftirlitið og Samkeppn- iseftirlitið þurfa að samþykkja þau. Ef þessir aðilar samþykkja ekki kaupin mun kauptilboð Íslands- banka í Byr vera orðið opinbert án þess að viðskiptin hafi gengið í gegn. Þetta gæti hugsanlega skaðað hags- muni seljenda Byrs ef svo ólíklega vill til að kaupin verði ekki samþykkt og að hefja þurfi annað söluferli á spari- sjóðnum. Ef þetta er rétt mun kaup- verðið nær örugglega verða gefið upp þegar kaupin verða gengin í gegn. Hin kenningin er á þá leið að kaupverðið liggi ekki fyrir þar sem fram þurfi að fara verðmat á eigna- safni Byrs áður en hægt verði að full- yrða um endanlegt verð á sparisjóðn- um. Ef þetta er raunin þá munu atriði eins og afskriftir á útlánum til við- skiptavina Byrs, til að mynda eins þær sem fjallað er um í þessari grein, skipta verulegu máli þegar endanlegt kaupverð á sparisjóðnum er fundið. Alveg ljóst er hins vegar, sama hvor kenningin er sönn, að útlána- safn Byrs er alls ekki upp á marga fiska. 4 | Fréttir 20. júlí 2011 Miðvikudagur Fjölþrepa bakbrettið • Teygir á hrygg og bakvöðvum • Minnkar vöðvaspennu • Linar bakverki • Bætir líkamsstöðu • Auðvelt í notkun Verð: 7.950 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Í sumar er opið virka daga frá kl. 9 -18 Héraðsdómur Reykjavíkur: Gert að greiða Stapa 5 milljarða ALMC hf, áður Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki, þarf að greiða líf- eyrissjóðnum Stapa rúmlega fimm milljarða króna ásamt dráttarvöxtum. Þetta er samkvæmt dómi Héraðs- dóms Reykjavíkur á þriðjudag. Stapi stefndi ALMC til greiðslu á kröfum sem sjóðurinn átti á bankann upp á um fjóra milljarða króna. Var það gert eftir að kröfum sjóðsins var hafnað vegna mistaka Lögmannsstof- unnar ehf., en kröfum var lýst of seint í Straum-Burðarás við gjaldþrota- skipti eða slitameðferð bankans. Forsvarsmenn lífeyrissjóðsins sættu sig hins vegar ekki við það. Þeir töldu að krafan ætti að halda gildi sínu og fá sömu meðferð og aðrar kröfur þar sem Straumur-Burðarás náði nauðasamningum við kröfuhafa sína og fór því ekki í gjaldþrot. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að kröfur sem komust ekki að við skiptin á bankanum, hafi „ef svo má segja vaknað til lífs á ný þar sem skuldari þeirra er ekki lagður niður.“ Enga heimild sé að finna í lög- um um að kröfur falli alveg niður þótt þeim hafi ekki verið lýst við gjald- þrotaskipti eða slitameðferð. Auk þess að dæma ALMC til að greiða tæpa 5,2 milljarða króna þarf ALMC að greiða málskostnað upp á 1,6 milljónir króna. Fær riffilinn en verður sektaður Lögreglan á Vestfjörðum hefur haft til rannsóknar mál sem hófst með því að landvörður á Hornströnd- um kom með riffil til lögreglu en skotvopnið hafði fundist í Hornvík. Fréttablaðið greindi frá því á þriðjudag að riffill og skot hefðu fundist meðal farangurs og varn- ings sem fluttur var frá Ísafirði til Hornvíkur. Þar vitjaði enginn riffilsins. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hefur eigandi riffilsins nú gefið sig fram og gefið skýringar á málavöxtum. Hann fær riffilinn af- hentan aftur en má vænta þess að verða sektaður. Ingi F. Vilhjálmsson ingi@dv.is Lánabók Byrs Vanskil Fært á afskriftarreikning Sólstafir ehf. og tengd félög 4,7 milljarðar 4,3 milljarðar (Þorsteinn Jónsson og Magnús Ármann) Saxhóll og tengdir aðilar 2,1 milljarður 1,3 milljarðar (Jón Þorsteinn Jónsson og fjölskylda) Pálmatré ehf. 1,7 milljarðar 730 milljónir (Pálmi Pálsson) Exeter Holdings 1,1 milljarður 847 milljónir Magnús Jónatansson 200 milljónir 72 milljónir FI fjárfestingar 1 milljarður 1 milljarður (Hannes Smárason) Gunnar Örn Haraldsson 844 milljónir 314 milljónir Hilmar E. Konráðsson 360 milljónir 0 Samtals 12 milljarðar 8,5 milljarðar Vanskil og afskriftir hjá Byr„Er það álit IE að bókanir í fundar- gerðir um veruleg vanskil einstakra viðskiptavina verði að vera markvissari og eftirfylgni mála betri. Byr afskrifaði milljarða 2009 n Færðu 8,5 milljarða á afskriftarreikning n Um fimmtungur af eiginfjár- grunninum afskrifaður n Innri endurskoðun gagnrýndi áhættunefndina 18. júlí 2011 LEYN IGÖG N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.