Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Side 6
6 | Fréttir 20. júlí 2011 Miðvikudagur Milljónir króna til Afríku Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að veita 18,5 milljónum króna til neyðar aðstoðar í austanverðri Afr- íku. Össur Skarphéðinsson utan- ríkisráðherra lagði fram tillögu þessa efnis sem hann kynnti á ríkisstjórn- arfundi á þriðjudag. Neyðarástand hefur skapast í austanverðri Afríku, einkum í Sómalíu, vegna hungurs- neyðar af völdum uppskerubrests í kjölfar þurrka og ófriðar. Fjöldi flóttamanna hefur farið yfir landa- mærin frá Sómalíu til Keníu. Utanríkisráðuneytið hefur upp- lýst samstarfshóp íslenskra félaga- samtaka um að fjárstyrk, allt að 12,5 milljónum króna, verði veitt til verk- efna vegna þessa neyðarástands. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 22. júlí. Ákall um framlag hefur bor- ist frá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) vegna hjálparstarfs hennar í Sómalíu og hefur verið ákveðið að 50 þúsund Bandaríkja- dölum, um 6 milljónum króna, verði veitt til þess. Í desember 2008 breyttu stjórn og forstjóri sparisjóðsins Byrs skilmál- um á kúlúláni sem félag í eigu Sunds, eins stærsta hluthafa sjóðsins, hafði tekið árið áður. Eigendur Sunds voru þeir Jón Kristjánsson og Páll Þór Magnússon, sem gjarnan ganga undir nafninu Sundararnir. Jón sat í stjórn Byrs á þessum tíma. Upphæð lánsins til félagsins, IceCapital ehf., nam nærri 630 milljónum króna og hafði það verið veitt án veða árið 2007. Þetta kemur fram í lánagögn- um og tölvupóstum sem DV hefur undir höndum. Ragnar Z. og Jón Kristjánsson skrifuðu undir skilmálabreytinguna fyrir hönd Byrs og Sunds þann 20. desember 2008. Skilmálabreyting- in hafði verið samþykkt í stjórn Byrs þann 19. desember 2008, sama dag og stjórn Byrs samþykkti allt að 1.400 milljóna króna lánalínu til eignar- haldsfélagsins Exeter Holdings. Stjórn Byrs samþykkti líka framleng- ingu á yfirdráttarheimild IceCapi- tal upp á 2,3 milljónir króna í þrjá mánuði. Exeter-viðskiptin hafa get- ið af sér dómsmál þar sem Ragnar Z. og stjórnarformaður Byrs, Jón Þor- steinn Jónsson, voru ákærðir fyrir umboðssvik. Þeir voru sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur en embætti ríkissaksóknara hefur áfrýjað málinu til Hæstaréttar. Sent til sérstaks saksóknara Stjórn Byrs sendi skilmálabreyt- inguna á láninu til Fjármálaeftirlits- ins og embættis sérstaks saksókn- ara í fyrra ásamt nokkrum öðrum málum sem stjórninni þóttu vafa- söm. Skilmálabreytingin er einungis eitt af mörgum vafasömum málum í rekstri Byrs í kjölfar hrunsins 2008 sem komu upp þegar ný stjórn spari- sjóðsins skoðaði bókhald hans. Með- al annarra mála má nefna skilmála- breytingu Byrs á láni sem félag sem að hluta til var í eigu Ragnar Z. fékk og viðskipti Sunds með fasteignina að Digranesvegi 1, líkt og greint var frá í DV á miðvikudaginn var. Lengt í láninu í tæpt ár Breytingin á láninu fór þannig fram að láni sem IceCapital tók upp á 270 milljónir króna í svissneskum frönkum og japönskum jenum í lok júlí 2007, og stóð í tæpum 630 millj- ónum króna í desember 2008 vegna verðhruns íslensku krónunnar, var breytt í evrur auk þess sem gjalddagi lánsins var færður fram um tæpt ár. IceCapital, sem þá var ekki leng- ur aðeins dótturfélag Sunds heldur hafði runnið saman við félagið, átti því ekki að þurfa að greiða lánið fyrr en þann 22. júní 2009 í stað 1. ágúst 2008. Nokkra athygli vekur að skilmála- breyting lánsins er gerð nærri fimm mánuðum eftir að lán IceCapital gjaldféll. Breytingin á láninu var því afturvirk. Í gögnum frá Byr um lán- ið kemur fram að það hafi upphaf- lega verið veitt án trygginga. „Lána- samningur var án trygginga,“ segir í gögnunum. Byr var því í vondri stöðu gagnvart Sundurunum þar sem sparisjóðurinn hafði ekkert í hönd- unum sem tryggði honum að ein- hver verðmæti fengjust upp í lánið. Sjóðurinn varð því bara að sætta sig við það að Sund gæti ekki greitt lánið á þeim tíma. Sund fékk nýtt lán Þetta lán var svo fært frá IceCapital yfir á Sund ehf. í byrjun febrúar 2009. Yfirfærslan á láninu átti sér stað vegna þess að IceCapital hafði runn- ið inn í Sund. Um þetta segir í tölvu- pósti um málið frá starfsmanni Byrs: „IceCapital er runnið inní Sund ehf. og ætlum við að færa lánssamning sem er á IceCapital yfir á Sund ehf. Við myndum vilja gera nýjan samn- ing á sömu forsendum og samningn- um var breytt fyrir áramót.“ Því var gerður nýr lánssamning- ur á milli Byrs og Sunds, í stað Ice- Capital. Þetta lán var notað til þess að greiða lán IceCapital upp á sömu upphæð og var skýrt kveðið á um þetta í lánasamningi félagsins sem DV hefur undir höndum. „Lántaki skuldbindur sig til þess að ráðstafa láninu til þess verkefnis sem það er veitt til,“ segir í samningnum. Auð- ur Eiríksdóttir, útibússtjóri hjá Byr, og Jón Kristjánsson skrifuðu undir lánasamninginn. Lánið var veitt til fimm mánaða. Engir fjármunir skiptu því um hendur í þessum viðskiptum held- ur var eldri skuld IceCapital strikuð út fyrir nýja skuld Sunds og eigend- ur Sunds fengu gálgafrest í nokkra mánuði til viðbótar. n Eigendur Sunds fengu greiðslufrest á 630 milljóna kúluláni n Láninu breytt aftur- virkt eftir að það var gjaldfallið n Fengu einnig greiðslufrest á yfirdráttarheimild Kúluláni eigandans var breytt afturvirkt Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum Steypugljái á stéttina í sumar SUPERSEAL TOP COAT Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Sund og Byr 2. hluti „ IceCapital er runnið inní Sund ehf. og ætlum við að færa láns- samning sem er á IceCapi- tal yfir á Sund ehf. Samþykkti gjörn- inginn Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðs- stjóri samþykkti að breyta kúluláni Sunds: Gjalddaga lánsins var frestað um tæpt ár og því var breytt yfir í evrur. Skrifaði undir fyrir Sund Jón Kristjánsson skrifaði undir breytinguna á lánasamningnum fyrir hönd Sunds í lok árs 2008. Tvær líkamsárásir voru kærðar á bæj- arhátíðinni Húnavöku sem var haldin á Blönduósi um liðna helgi. Sú fyrri átti sér stað fyrir utan félagsheim- ilið á Blönduósi eftir níunda áratugs dansleik útvarpsmannsins Sigurðar Hlöðverssonar aðfaranótt laugardags. Höskuldur Erlingsson, varðstjóri lög- reglunnar á Blönduósi, segir fjóra karlmenn klædda í treyjur KR, Knatt- spyrnufélags Reykjavíkur, hafa þar lent í útistöðum við aðra menn. „Það brutust út ólæti og það ligg- ur ekki alveg á hreinu hvernig upp- tökin voru og hver kýldi hvern. Það kom einn á stöðina til okkar og kærði líkamsárás. Það hafði kvarnast eitt- hvað upp úr tönnunum á honum,“ segir Höskuldur í samtali við DV. Hann segist ekki geta staðfest það að átökin hafi verið vegna rígs knatt- spyrnuaðdáenda. „Það voru eflaust einhver orð lát- in fjúka í garð KR-inga þess utan. Ég held að upptökin hafi ekki ver- ið tengd því,“ segir Höskuldur sem segir mennina hafa mætt á dansleik- inn í treyjum Vesturbæjarfélagsins. „Það voru fjórir strákar í KR-bún- ingum. Ég þori ekki að staðfesta að það hafi tengst því. Þeir lentu þarna í einhverju hnoði. Þeir voru bara á dansleiknum og í KR-treyjum,“ segir Höskuldur. Enginn var þó handtek- inn vegna átakanna segir Höskuldur og voru átökin leyst upp með því að keyra mönnum til síns heima. Seinni líkamsárásin sem var kærð átti sér stað eftir dansleik Ing- ós og Veðurguðanna, þar sem Björg- vin Halldórsson var gestasöngvari. Höskuldur segir að það hafi verið svo mikið af fólki á hátíðinni um helgina að erfitt hafi verið að átta sig á því hver gerði hvað. „Þetta er svo mikið af fólki og þegar verður múgæsing- ur er erfitt að átta sig á því hver gerði hvað.“ Tvær líkamsárásir kærðar eftir Húnavöku á Blönduósi: Karlar í KR-treyjum í átökum Fóru á ball í KR-treyjum Fjórir karlar klæddir KR-treyjum lentu í átökum eftir dansleik á Blönduósi. Myndin tengist frétt- inni ekki beint. Hættulegar aðstæður Almannavarnardeild ríkislögreglu- stjóra varar við því að ferðalangar fari um suðausturhluta Mýrdals- jökuls vegna sprungumyndunar umhverfis sigkatlana sem þar hafa myndast. Á mánudag fóru vísinda- menn í þyrluflug með Landhelgis- gæslunni yfir Vatnajökul og Mýr- dalsjökul. Markmiðið var meðal annars að fylgjast með sigkötlum sem mynduðust í hlaupinu 9. júlí síðastliðinn auk þess sem skoðað var hvort breytingar væru á yfir- borði jökulsins eftir jarðskjálftann aðfaranótt mánudags, sem mældist 3,8. Þá var mælitækjum komið fyrir og verða þau sótt síðar í þessari viku eða byrjun þeirrar næstu til að skoða breytingar. Áfram verður fylgst náið með þessum svæðum, að því er segir í tilkynningu frá almannavarnar- deild ríkislögreglustjóra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.