Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Page 8
8 | Fréttir 20. júlí 2011 Miðvikudagur
Flóttamaður fer huldu höfði:
Reyndu
að senda
þræl úr
landi
Útlendingastofnun
gerði tilraun til þess
að vísa 22 ára flótta-
manni, Mouhamde
Lo, úr landi fyrr í mán-
uðinum. Stofnunin
hafði ekki erindi
sem erfiði og hefur
Mouhamde Lo
nú yfirgefið gisti-
heimilið Fit
þar sem hann
dvaldi og fer
hann nú huldu höfði einhvers stað-
ar á Íslandi.
Samtökin No Borders í Reykjavík
gera alvarlegar athugasemdir við
tilraun stofnunarinnar til brottvís-
unar. Samtökin krefjast þess að Ög-
mundur Jónasson innanríkisráð-
herra snúi þessari ákvörðun, sem
samtökin segja ólöglega, og veiti
Mouhamde þegar í stað tímabund-
ið dvalarleyfi. Ráðherra ber fyrir sig
Dyflinnarreglugerðinni. Samkvæmt
henni yrði Mouhamde sendur aftur
til Noregs þar sem umsókn hans
um hæli hefur þegar verið hafnað.
Í fréttatilkynningu frá No
Borders í Reykjavík segir að Mou-
hamde hafi fæðst inn í þrældóm
í Máritaníu, sem hann náði með
naumindum að flýja fyrir rúmu ári
síðan. Þá segir að þar eigi Mou-
hamde enga fjölskyldu og ekkert
bakland. Þrælahaldari Mouhamdes
sé hins vegar ríkur og valdamikill
maður sem muni leitast við að refsa
honum fyrir flóttann snúi hann aft-
ur. Slík refsing felur í sér geldingu
á hrottalegan hátt og/eða aftöku.
Þrælahald er útbreitt í Máritaníu
en það var löglegt þar í landi allt til
ársins 2007. Þrátt fyrir að lögunum
hafi verið breytt eru þrælahald-
arar sjaldnast dæmdir enda oft um
valdamikla aðila að ræða.
Á meðal þess sem No Borders
samtökin gera athugasemdir við er
sú staðreynd að Útlendingastofn-
un útvegaði Mouhamde franskan
túlk þrátt fyrir að hann tali litla sem
enga frönsku. „Mouhamde fékk
því aldrei raunverulegt tækifæri til
þess að koma að öllum þeim upp-
lýsingum sem hann vildi og þurfti
og gætu hafa orðið að gagni við
úrvinnslu umsóknar hans,“ segir
meðal annars í tilkynningunni. Þá
segir að þetta hafi leitt til þess að
mál hans hafi aldrei getað talist
fullupplýst þegar Útlendingastofn-
un tók ákvörðun um að vísa honum
úr landi.
Ragnheiður Böðvarsdóttir for-
stöðumaður stjórnsýslusviðs Út-
lendingastofnunar sagði í samtali
við DV að málinu væri lokið af hálfu
stofnunarinnar. Hún segir stofn-
unina ekki fara fram á það við lög-
reglu að hún leiti Mouhamdes. Slík
ákvörðun sé algjörlega í höndum
ríkislögreglustjóra. Ekki er óalgengt
að flóttamenn láti sig hverfa þegar
stjórnvöld láta sverfa til stáls. Nokk-
uð var fjallað um flóttamanninn
Henry Turray frá Sierra Leone á sín-
um tíma. Hann fór lengi vel huldu
höfði hér á landi en ekkert hefur
spurst til hans lengi. DV hefur sent
formlegar spurningar til Útlend-
ingastofnunar í tengslum við málið
og bíður frekari svara.
Fjórir unglingspiltar yfirbuguðu
nætur vörð á meðferðar- og skóla-
heimilinu Háholti í Skagafirði um
síðastliðna helgi, aðfaranótt sunnu-
dags. Unglingarnir læstu nætur-
vörðinn inni í herbergi, að sögn lög-
reglunnar á Sauðárkróki, stálu bíl
og keyrðu til Akureyrar þar sem þeir
voru loks handsamaðir. Hópurinn
samanstóð af unglingum á aldrin-
um fimmtán til átján ára og voru þeir
allir vistaðir á meðferðar- og skóla-
heimilinu Háholti.
Læstur inni í fjóra tíma
Lögreglan á Sauðárkróki segir næt-
urvörðinn hafa verið læstan inni í
herberginu í fjórar klukkustundir
áður en næsta vakt kom til vinnu um
morguninn. Lögreglan á Akureyri
handtók drengina að kvöldi sunnu-
dags í húsi á Akureyri. Tveir þeirra
voru fluttir aftur á meðferðarheim-
ilið að Háholti en hinum tveimur var
fundið annað vistunarúrræði. Lög-
reglan sagðist að öðru leyti ekki geta
gefið frekari upplýsingar um málið.
Engar upplýsingar fengust um líðan
næturvarðarins.
Unglingar með hegðunar-
vandamál
Á vef Barnaverndarstofu kemur fram
að þeir unglingar sem vistast í Há-
holti eigi það sameiginlegt að eiga við
alvarlegan hegðunarvanda að stríða.
Unglingar sem dvelja þar eru oftast
nær þeir sem hafa leiðst út í fíkni-
efnaneyslu, komist í kast við lögin,
eiga í vandræðum í skóla og í félags-
legum vanda af ýmsu tagi. Í einstaka
tilvikum dvelja unglingar í Háholti
sem dæmdir hafa verið til fangavist-
ar. Samkvæmt samkomulagi Fang-
elsismálastofnunar og Barnavernd-
arstofu stendur unglingum til boða
að afplána fangelsisdóm í Háholti.
Forstöðumenn Háholts sögðust ekki
mega tjá sig um mál sem varða með-
ferðarheimilið þegar DV leitaði eftir
viðbrögðum.
Viðeigandi úrræði
„Ef að börn brjóta af sér á meðferð-
arheimilum sem og annars staðar,
þá er gripið til viðeigandi úrræða.
Það er leitað til lögreglu og grip-
ið til annarra vistunarúrræða og
það er gert í samráði við viðkom-
andi barnaverndarnefndir sem vista
börnin á heimilinu,“ segir Steinunn
Bergmann, félagsráðgjafi hjá Barna-
verndarstofu. Hún segir það koma
fyrir af og til að unglingar strjúki frá
Háholti. „Þetta er ekki fangelsi. Það
gerist líka að fangar strjúki úr fang-
elsum. En það er ekkert svo ramm-
gert að það sé ekki hægt strjúka ef
það er einbeittur brotavilji,“ segir
Steinunn. Fjórir til fimm unglingar
eru jafnan vistaðir í Háholti hverju
sinni og starfa þrettán manns á vökt-
um við meðferðarheimilið.
n Vistmenn meðferðarheimilisins í Háholti yfirbuguðu næturvörð og læstu hann inni
n Stálu bíl og struku til Akureyrar n Unglingar með hegðunarvandmál vistaðir í Háholti
Læstu næturvörð inni
og struku til Akureyrar
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
„Það er ekkert svo
rammgert að það
sé ekki hægt strjúka ef
það er einbeittur brotavilji
Háholt Meðferðar- og skólaheimilið í Háholti þar sem unglingspiltar yfirbuguðu næturvörð
og struku.
Læstur inni Drengirnir fjórir læstu næturvörð
inni eftir að hafa yfirbugað hann. SViðSett Mynd dV.
Heimildir DV herma að Þorsteini
Erlingssyni, eiganda útgerðar-
félagsins Saltvers í Reykjanesbæ,
verði gert að greiða yfir 200 milljón-
ir króna til Fiskistofu vegna meints
löndunarsvindls. Þorsteinn, sem er
fyrrverandi bæjarfulltrúi og stjórn-
armaður í Sparisjóði Keflavíkur, tjá-
ir sig ekki um málið í samtali við DV.
„Talaðu bara sjálfur við Fiski-
stofu og vertu blessaður,“ sagði
Þorsteinn þegar hann var spurð-
ur hvort hann þyrfti að greiða fjár-
sektir og hversu háar þær væru, í
kjölfarið skellti hann á blaðamann.
Heimildir DV herma að sektin sé
tilkomin vegna ólöglegrar löndunar
fyrirtækisins framhjá vigt, en málið
hefur verið til rannsóknar hjá Fiski-
stofu undanfarna mánuði.
Hjá Fiskistofu fengust þær upp-
lýsingar að málið væri í ferli og að
það „færi sínar leiðir“. Þorsteinn
Hilmarsson, starfsmaður Fiski-
stofu, staðfesti hvorki né neitaði því
að eiganda Saltvers hefði verið gert
að greiða fjársektir til stofnunarinn-
ar.
Fiskistofa hefur heimild sam-
kvæmt lögum til að vinna rann-
sóknir sem snúa að því að bak-
reikna afurðir til afla. Heimildir DV
herma að Þorsteini verði nú sendur
reikningur í kjölfar slíks bakreikn-
ings.
„Starfsemi þessara aðila er bara
til rannsóknar og í sjálfu sér ekk-
ert meira að segja á meðan svo er,“
sagði Þorsteinn. Hann sagði að um
væri að ræða stjórnsýsluákvarðanir
sem færu sínar leiðir og menn gætu
í framhaldinu véfengt þær og ennþá
væri ekki komin lokaniðurstaða.
Eftirlitsaðilar á vegum Fiski-
stofu heimsóttu Saltver þann 1.
apríl síðastliðinn í þeim tilgangi að
afla gagna fyrir rannsókn stofnun-
arinnar á fyrirtækinu. Eins og fram
kom í DV í janúar sakaði Þorleifur
Frímann Guðmundsson, fyrrver-
andi matsveinn á Ósk KE-5, Saltver
um skipulagða og afar grófa lönd-
un fram hjá vigt, í bréfi sem hann
sendi Fiskistofu. Samkvæmt minn-
isblöðum sem hann hafði skráð í
nóvembermánuði virtist skeika um
að minnsta kosti tíu tonnum þann
mánuðinn, sem hann kvaðst hafa
staðfestan grun um að hefði verið
landað fram hjá vigt. Þorsteinn Erl-
ingsson, eigandi Saltvers, brást við
með því að segja ásakanir Þorleifs
vera kjaftæði. jonbjarki@dv.is
Þorsteinn erlingsson Þorsteinn sagði
málflutning Þorleifs vera kjaftæði á sínum
tíma, en nú tjáir hann sig ekki um málið.
Heimildir DV herma að Þorsteini Erlingssyni verði gert að greiða yfir 200 milljónir:
Algjör þögn um fjársektir