Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Síða 10
10 | Fréttir 20. júlí 2011 Miðvikudagur
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Sigurbjörn Hjaltason, fyrrverandi
oddviti Kjósahrepps, hefur lagt fram
kæru til umhverfisráðuneytisins fyr
ir meinta ólöglega förgun úrgangs
í flæðigryfju við álverið á Grundar
tanga. Í bréfi sem hann sendi á ráðu
neytið kvartar hann vegna viðbragða
Umhverfisstofnunar við umkvört
unum hans. Hjá ráðuneytinu feng
ust þær upplýsingar að málið væri til
skoðunar.
Kristján Geirsson, deildarstjóri
hjá Umhverfisstofnun, segir umrætt
svæði ekki vera á ábyrgð stofnunar
innar og kveðst hafa sent erindi til
heilbrigðiseftirlitsins vegna málsins.
Hjá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands
fengust þær upplýsingar að búið væri
að hreinsa til á svæðinu og því myndi
eftirlitið ekki aðhafast neitt frekar.
Ráðuneyti fylgi lögum
Sigurbjörn var í siglingu ásamt
tveimur öðrum í Hvalfirði í síðasta
mánuði þegar þeir urðu vitni að
urðun bíldekkja og annars úrgangs
í fjöru við flæðigryfju nálægt álveri
Norðuráls við Grundartanga. Þeir
tóku mynd af svæðinu og sendu
kvörtun á Umhverfisstofnun. Þaðan
fengust þær upplýsingar að svæð
ið væri ekki á ábyrgð stofnunarinn
ar þar sem það tilheyrði Faxaflóa
höfnum. Sigurbjörn brást við með
því að senda kæru á umhverfisráðu
neytið og kvarta vegna viðbragða
Umhverfis stofnunar sem honum
þótti ekki til eftirbreytni.
„Þetta er inni á starfssvæði álvers
ins sem starfar undir leyfi frá Um
hverfisstofnun,“ segir Sigurbjörn í
samtali við DV.
Eins og kemur fram í bréfinu sem
sent var til ráðuneytisins, hefur álver
Norðuráls við Grundartanga heimild
til að urða ákveðinn úrgang í flæði
gryfju, en ekki endurvinnanlegan úr
gang. Þá segir meðal annars þetta í
bréfinu:
„Jafnframt er ekki vitað að flæði
gryfjan hafi sérstakt starfsleyfi sem
inniheldur heimild til urðunar á
sorpi, heldur er rekstur hennar inni
í starfsleyfi Norðuráls.“
Þá er vakin athygli á því að flæði
gryfjan sem á að vera undir eftir
liti Umhverfisstofnunar sé ekki sér
staklega á skipulaginu. Í niðurlagi
bréfsins er þess krafist að ráðuneytið
sjái til þess að meðhöndlun úrgangs
og spilliefna á Grundartanga verði í
samræmi við þau lagaákvæði sem
um það gilda.
Á starfssvæði álvers
Kristján Geirsson, deildarstjóri hjá
Umhverfisstofnun, segir í sam
tali við DV að svæðið á myndinni
sé ekki flæðigryfja og falli því ekki
undir starfsleyfi Umhverfisstofnun
ar. Hann segir ennfremur að Um
hverfisstofnun hafi áframsent erindi
Sigurbjörns til Heilbrigðiseftirlits
Vesturlands sem hefur málið á sinni
könnu. Aðspurður um hvort hann
hafi kynnt sér kæruna sem send
hefur verið á umhverfisráðuneytið
segist hann hafa séð hana og lagt
fram ákveðna punkta þar sem hann
svari gagnrýni Sigurbjörns.
„Það getur vel verið að flæði
gryfjan sé á athafnasvæði Faxaflóa
hafna en það breytir því ekki að hún
er á starfssvæði álversins og Um
hverfisstofnun ber að hafa eftirlit
með henni,“ segir Sigurbjörn. Í fyrr
greindu bréfi benti hann meðal ann
ars á að skipulagsfulltrúi Hvalfjarðar
sveitar hafi staðfest að umrædd
flæðigryfja sé notuð af Norðuráli.
Sigurbjörn kveðst ekki hafa heyrt frá
ráðuneytinu síðan hann sendi kær
una frá sér en DV hefur fengið þær
upplýsingar að málið sé til skoðunar
hjá ráðuneytinu.
Ekki aðhafst frekar
Helgi Helgason, framkvæmdastjóri
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, segir
í samtali við DV að starfsmenn eftir
litsins hafi farið í málið þegar það
kom inn á borð til þeirra. Þegar þeir
skoðuðu svæðið hafi verið búið að
hreinsa þar til. Hann staðfestir að úr
gangurinn hafi verið við nýja flæði
gryfju álversins.
„Þarna er leyfilegt að losa kerbrot
og annað sem talist getur spilliefni
en annar úrgangur á að fara á viður
kenndan urðunarstað,“ segir hann.
Hann segir svæðið ekki sérstaklega
vaktað og því hafi einhverjir getað
laumast þar inn og losað úrgang.
„Við fórum þarna inn og sáum að
það var búið að hreinsa allt upp og
töldum þess vegna að við þyrftum
ekki að aðhafast frekar í málinu,“ seg
ir Helgi.
„Mér finnst stærsta fréttin í þessu
vera sú hvernig þeir bregðast við,“ seg
ir Sigurbjörn sem er afar óánægður
með viðbrögð Umhverfisstofnunar.
„Þeir sögðu mér að þetta svæði hefði
ekkert með álverið að gera en það
er bara ekki rétt. Þeir þekkja greini
lega ekki aðstæður þarna. Og þó svo
að þetta væri ekki á vegum álversins
þá ætti Umhverfisstofnun samt sem
áður að bregðast við. Það hefur eng
inn starfsleyfi fyrir urðun þarna.“
Sigurbjörn segir það vera lágmark
að Umhverfisstofnun fari eftir þeim
starfsleyfisskilyrðum sem stofnunin
hefur sjálf sett.
Ólögleg urðun Fyrrverandi oddviti Kjósahrepps varð vitni að ólöglegri urðun við flæði-
gryfju álversins á Grundartanga. Hann er óánægður með viðbrögð Umhverfisstofnunar.
n Fyrrverandi oddviti hefur kært ólöglega förgun úrgangs við álver n Óánægður
með vinnubrögð Umhverfisstofnunar n Umhverfisráðuneytið skoðar málið
Kærir ólöglega
förgun úrgangs
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
„Þetta er inni á
starfssvæði álvers-
ins sem starfar undir leyfi
frá Umhverfisstofnun.
Sæstrengur stór-
eykur gagnaflæði
Fyrirtækin Emerald Atlantis og Te
Subcom skrifuðu í gær undir samn
ing um lagningu á nýjum sæstreng á
milli Íslands, NorðurAmeríku, Bret
landseyja og meginlands Evrópu. Til
stendur að leggja strenginn á næsta
ári og mun hann gefa aukna mögu
leika á hýsingu tölvugagna hér á landi.
Strengurinn verður sá fyrsti sinnar teg
undar í heiminum og mun geta flutt
allt að 60.000 gígabæt á sekúndu. Um
strenginn mun fara umtalsverður hluti
af öllum gagnaflutningum sem fara
munu um sæstrengi í Atlantshafi. Sjáv
arbotnsrannsóknir vegna verkefnis
ins munu fara fram í ágúst á þessu ári
og áætlað er að lagning sæstrengsins
hefjist næsta sumar. Stefnt er að notk
un hans geti hafist síðla árs 2012.
Mat Moody‘s
óbreytt
Matsfyrirtækið Moody‘s hefur ekki
breytt lánshæfismati sínu á íslenska
ríkinu. Fyrirtækið telur horfur í efna
hagslífi enn neikvæðar þó að nokkur
árangur hafi náðst
í endurreisn efna
hags landsins eftir
hrun. Vilji og geta
stjórnvalda til
þess að standa við
skuldbindingar
sínar veldur ekki
áhyggjum en þó
að Icesavedeilan hafi ekki haft jafn
veigamikil áhrif á afdrif ríkisins eins
og óttast var er hún enn óleyst. Segir
í skýrslu fyrirtækisins að neikvæðar
horfur byggist aðallega á erfiðleikum
við endurskipulagningu skuldsettra
fyrirtækja hér á landi, lítilla fjárfestinga
og gjaldeyrishafta. Þótt nokkuð vel hafi
tekist að bæta fjárlagahalla seinustu
ára þurfi að halda fjárhagslegu aðhaldi
til streitu í allmörg ár til viðbótar ef rík
ið eigi að ná tökum á skuldum sínum.
Þá er búist við að skuldir ríkisins lækki
eftir 2012. Lánshæfi ríkisins stendur
óbreytt í flokki Baa3.
Ögmundur
safnar gögnum
Ögmundur Jónasson innanríkis
ráðherra segir ráðuneytið nú vera að
safna gögnum og skýrslum um Geir
finnsmálið. Síðar verður metið hvort
tilefni sé til að skipa sérstaka nefnd
um málið eða hvort tilefni sé til að taka
málið upp fyrir dómstólum að nýju.
„Það er ríkur vilji til þess að láta kanna
þetta mál – og það hefur alla tíð verið
hjá mér líka,“ segir Ögmundur í sam
tali við blaðamann um málið. Hann
vill ekki tjá sig sérstaklega um það
hvort sérstök nefnd verði skipuð vegna
málsins, en hann segir að leggja þurfi
mat á gögn í málinu, sem eru mörg,
áður en nánari ákvörðun verður tekin.
„Ég vil ekki tjá mig nánar um þetta mál
fyrr en ég hef fengið tækifæri til þess
að ígrunda það vel í ljósi þeirra gagna
sem við fáum.“