Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Page 15
Neytendur | 15Miðvikudagur 20. júlí 2011 Leiðrétting Í úttekt á verði í vegasjoppum víðs vegar um land sem DV birti þann 18. júlí voru rangar upplýsingar um verð í Olís á Reyðar- firði. Réttilega stóð í texta við úttektina að þar væri ódýrasta hamborgara- tilboðið. Í ramma við staðsetningu Olís á Reyðarfirði voru hins vegar rangar upplýsingar og leiðréttist það hér með. Rétt verð í Olís á Reyðarfirði á hamborgaratilboði er 990 krónur (hamborgari, franskar, kokteilsósa og gos), pylsa með öllu 290 krónur, kók 0,5 l 239 krónur, lítill ís í brauð- formi 225 krónur og Prins póló 145 krónur. Grillum á umhverfis- vænan hátt Þar sem grilltímabilið er nú í há- marki er vert að minna á að það er hægt að grilla á umhverfisvæn- an hátt. Á nattura.is segir að forð- ast skuli einnota grill en ef nauð- synlegt sé að nota þau sé gott að nota hvert grill nokkrum sinnum. Best sé að velja grillkol sem eru merkt FSC-merkingu (Forest Stewardship Council ). Betra sé að nota góð rafmagns- eða gas- grill en einnig séu til rafmagns- hitarar og sérhannaðir hólkar til að hita kolin þannig að ekki sé þörf á að nota uppkveikilög. Fólk er beðið um að hafa það í huga að reykurinn frá grillinu er ekkert annað en mengun, sót og koltví- sýringur auk annarra efna. Þar er einnig bent á að brenndur matur er ekki hollur og jafnvel talinn vera krabbameinsvaldandi. Þar sem það að grilla er í raun nokk- uð óumhverfisvænn og jafnvel óhollur eldunarmáti er fólk hvatt til að stunda það í hófi. Slæm tannhirða getur valdið hjartasjúkdómum eríur frá gómnum gefi frá sér prótín sem hafa áhrif á að gigt myndist.“ Bronkítis Fyrr á þessu ári birtist grein í Journal of Periodontology þar sem greint var frá tengslum á milli sýkinga í önd- unarveginum og tannholdsbólgna. Vísindamennirnir rannsökuðu 100 manns sem höfðu verið lagðir inn á sjúkrahús vegna öndunarfærasjúk- dóma, svo sem bronkítis. Tannheilsa og ástand góms var verri hjá þeim sem höfðu átt við sjúkdóma í öndun- arfærum að stríða. Talið er að bakt- eríur í gómi geti borist niður í lungu við innöndun og komið þar af stað sýkingum eða gert ástand þar verra. Risvandamál Risvandamál hafa einnig verið tengd við slæma gómheilsu. Fyrr á þessu ári greindu indverskir vísindamenn frá því að þeir hefðu fund- ið tengsl á milli tannholdsbólgu og risvandamála hjá körlum. Nið- urstöður rann- sóknarinnar voru birtar í Journal of Periodontology en rannsóknin náði til 70 karlmanna. Önnur rannsókn bendir til að tannholdsbólgur geti hindar fram- leiðslu á efni sem kallast nitric ox- ide sem slakar á æðum og eykur blóðflæði til limsins. Rannsakendur halda að tannholdsbólgur minnki framleiðslu á efninu. Heilabilun Rannsóknir sýna tengsl á milli tann- holdsbólgu og hættu á heilabilun. Fyrir tveimur árum rannsökuðu vís- indamenn við Colombia-háskóla í Bandaríkjunum hóp fólks 60 ára og eldri. Þeir fundu út að þeir sem áttu við tannholdsbólgur að stríða, tann- hold farið að hörfa eða voru með lausar tennur áttu frekar á hættu að missa minnið. Kenningin er að ómeðhöndlaðir tannholdssjúkdóm- ar geti komið af stað bólgumyndandi ferli í heila sem veldur framleiðslu á prótíni sem ræðst á heilafrumur. Hjartasjúkdómar Þeir sem eiga við tannholdssjúk- dóma að stríða eru tvöfalt líklegri til að fá hjartasjúkdóma en aðrir. Skosk rannsókn sem var framkvæmd á síð- asta ári og náði til 11.000 manns sýn- ir að einungis það að bursta tennur sjaldnar en tvisvar á dag auki líkur á hjartasjúkdómum. Þeir sem ekki bursta tennurnar eru í 70% meiri hættu á að fá hjartasjúkdóma. Nið- urstöðurnar sem birtar voru í breska læknatímaritinu The British Medical Journal staðfesta fyrri niðurstöður rannsókna um að samband sé á milli sjúkdóma í munnholi og hjartasjúk- dóma.  Ákveðinn grunur var til staðar um að tannholdsbólgur yllu bólgum og skemmdum á æðum sem síðan leiddu til hjartasjúkdóma. Það hefur þó aldrei verið sannað en nú er talið að bakteríur úr munni komist beint inn í blóðrásina og valdi sýkingu í hjartalokunum. Þeir sem ekki sinntu hreinlæti í munni greindust einnig með eggjahvítuefni í blóði sem talið er að tengist bólgum en bólgur auka hættu á að blóðtappar myndist sem geta leitt til hjartaslags. John Cleland, prófessor við há- skólann í Hull, segir að áður en sjúk- lingar fari í aðgerðir séu tannholds- sjúkdómar meðhöndlaðir til að koma í veg fyrir endurtekna sýkingu. Sykursýki Tannholdssjúkdómar geta auk- ið einkenni á tveimur tegundum sykur sýki. Vísindamenn við há- skólann í Edin- borg skoðuðu sjö eldri rannsókn- ir og komust að þeirri niðurstöðu að það að með- höndla tann- holdssjúkdóma og að minnka bólgur við tenn- ur, hjálpaði til við að minnka ein- kenni sykursýki, svo sem augn- vandamál. Svo virðist sem bólgur í tannholdi stuðli að efnafræðilegum breyting- um sem verða til þess að insúlín virk- ar ekki sem skildi. Meðhöndlun tannholdssjúk- dóma hjálpar til við að viðhalda réttu sykurjafnvægi. Mikið hefur verið rætt um tann- heilsu barna undanfarið og hve slæm hún sé orðin. Dökk mynd hefur verið dregin upp af ástandinu og á heima- síðu Tannlæknafélagsins segir að ástand- ið í dag minni um margt á tannheilsu á fyrri hluta 20. aldar. Þar segir einnig að í nýrri skýrslu UNICEF um stöðu barna á Íslandi hafi komið fram upplýsingar um komu barna til tannlækna á Íslandi. Um 42 prósent barna á aldrinum 0–17 ára mættu ekki til tannlækna árið 2010 sem verður að teljast afar slæmt. Með því að fara með börnin til tannlæknis einu sinni á ári er hægt að koma í veg fyrir að tannheilsa nýju kynslóðanna haldi áfram að versna. Borinn ógurlegi Þótt borinn hræði marga þá geta reglulegar heimsóknir til tannlæknis komið í veg fyrir vandamál við getnað hjá konum og risvandamál hjá körlum. Mynd: PHotoS.coM Sigurður Benediktsson Formaður Tannlæknafélags Íslands segir tannholdsbólgur vissulega hafa áhrif á almenna heilsu. Mynd: ERniR EyjólfSSon Aðföng innkallar eldspýtur Aðföng hefur innkallað eldspýtur sem fyrirtækið flutti inn og voru seldar í Bónus og 10-11 á tímabilinu 13. maí 2010 til 23. maí 2011. Neyt- endastofa vekur athygli á þessu á heima- síðu sinni. Þar segir að eldspýturnar hafi verið seldar átta stokkar í búnti með strikamerkinu 8711295491900  og merktar AM/65 PO.box 37211, 1030 AE Amsterdam. Ábendingar höfðu borist um að eldspýturnar brotnuðu auðveldlega í sundur þegar kveikt var á þeim, glóðin hafi dottið af þegar eldspýtan var brunn- in og þannig skapast eldhætta. Þá var varúðarmerkingum ábótavant. Neytendastofa hvetur því alla sem sem keypt hafa umræddar eldspýtur að hætta notkun þeirra strax og skila þeim í næstu verslun þessara versl- anakeðja gegn endurgreiðslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.