Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Side 19
E rindi til stjórnlagaráðs hafa verið mörg. Fjallaði talsverð- ur hluti þeirra um samlífi ríkis og kirkju og vildu flestir hjóna- bandið feigt. Þó nokkrir sóttu þetta fast og lýstu yfir andstöðu við nýtt stjórnarskrárplagg yrði þjóðkirkj- unni gerð sérstök skil umfram önn- ur trúfélög. Slíkt ákvæði væri frat- yfirlýsing við trúfrelsi í landinu. Þessu er ég reyndar ósammála og skal útskýra hvers vegna. Skýrt er kveðið á um trú- frelsi í mannréttindakafla nú- verandi stjórnarskrár sem og þeirrar sem er í smíðum. Öllum er frjálst að velja sinn guð eða hafna öll- um. Álfar, tröll, stokkar, steinar, allt í boði. Sess þjóðkirkjunnar er vegna aldalangrar hefðar, hún hefur verið andleg leiðbeining kynslóð fram af kynslóð, allt fram á okkar dag. Vissu- lega er sú leiðbeining ekki gallalaus en engu að síður rúmar þjóðkirkjan enn meirihluta þjóðarinnar. Þeim fer að vísu fjölgandi sem leita and- legrar uppfyllingar annars staðar og ekki hefur framganga sumra kirkju- þjóna eflt traust fólks. Það er innan- hússvandamál sem vonandi verður tekið föstum tökum. Öðru hlutverki kirkjunnar hefur hins vegar vaxið fiskur um hrygg en það er þjónusta. Skírnir og giftingar njóta mikilla vin- sælda og jarðarfarir halda sínu. Tel þorra landsmanna vart vilja af þessu sjá. Þjóðkirkjan er því enn fylginaut- ur þessarar þjóðar og hennar einnar að ákveða lengd þeirrar göngu, ekki 25 manneskja í stjórnlagaráði. Ráðið leggur því til óbreytta kirkjuskipan um sinn. Þessu samhliða er rétt að benda á annað ákvæði í nýrri stjórnarskrá. Viðkemur það beinu lýðræði og seg- ir að 2% þjóðarinnar geti lagt fram þingmál. Taki þingið ekki upp þráð- inn er annar möguleiki og hann er sá að ákveðið hlutfall kosningabærra manna (10–15%), geti að eigin frum- kvæði búið til frumvarp og krafist þjóðaratkvæðagreiðslu. Enn er ekki ljóst hvort sú þjóðar- atkvæðagreiðsla verði ráðgefandi eða bindandi en hvort sem er verð- ur einhver niðurstaða. Þessi farveg- ur þjóðarfrumkvæðis er nýr valkost- ur og verkfæri hverjum einstaklingi sem vill hafa áhrif á gang mála, þar á meðal kirkjuskipan. Þetta inniber líka þann kost að víðtæk umræða fæst um málið áður en ákvörðun er tekin og andstæðar fylkingar geta tekist á. Vissulega voru uppi raddir í stjórnlagaráði þess efnis að ákvæði um kirkjuskipan væri óþarft. Stjórn- lagaráð hafði aukinheldur fullt um- boð til slíkra breytingar. En hefði stjórnlagaráð tekið af skarið mætti eins spyrja fyrir hvern? Kannski þá sem sendu inn erindi en hvað um hinn þögla meirihluta, hvað vill hann? Sú niðurstaða stjórnlagaráðs, að gera ekki neitt, er að mínu viti hyggi- leg niðurstaða um mjög viðkvæmt mál. Þjóð og þing mun innan skamms þurfa að taka afstöðu til þjóðkirkj- unnar og hefur stjórnlagaráð með af- stöðu sinni skapað grundvöll til lýð- ræðislegrar lausnar. Bendi ennfemur andstæðingum núverandi kirkjuskip- unar á að stjórnarskrá er ekki óska- listaplagg hvers og eins, það höfum vér ráðsliðar sannlega reynt á eigin skinni. Vona þess vegna að sem flestir hugi að heildarinnihaldi hinnar nýju stjórnarskrár og falli ekki í þá gryfju að viðhalda núverandi upplausnar- ástandi í íslenzku samfélagi með van- hugsuðu nei-i vegna yfirnáttúru. Umræða | 19Miðvikudagur 20. júlí 2011 „How do you like Iceland?“ „Ég kann bara mjög vel við landið hingað til en við erum bara búin að vera hér í einn dag.“ Olle Berg 55 ára sölumaður frá Svíþjóð „Bara mjög vel. Þetta er í þriðja skipti sem ég kem hingað. Við erum að heimsækja íslenska vini.“ Gita Berg 55 ára læknir frá Svíþjóð „Ég elska það!“ Petra Tjescakova 26 ára nemi frá Tékklandi „Ég elska það líka! Við erum búin að hér í 11 daga og líkar mjög vel.“ Ludvék Baumruk 25 ára nemi frá Tékklandi „Mjög vel. Við erum búin að fá gott veður og þetta er bara frábært.“ Trude Brobakk 42 ára kennari frá Noregi 1 Kennitöluflakkara lofað hámarksláni Páll Guðfinnur Einars- son, eigandi Ökugerðis Íslands, sem lofað hefur verið hámarksláni frá Byggðastofnun, er með fjölda gjald- þrota á bakinu. 2 Vala Grand einhleyp á ný? Til-kynnti sambandsslit á Facebook. 3 Ófrjó vegna átröskunar 27 ára „Ég hef refsað líkama mínum og nú refsar hann mér.“ 4 Útlendingastofnun reyndi að senda þræl úr landi Samkvæmt heimildum DV fer Mouhamde Lo nú huldu höfði, einhvers staðar á Íslandi. 5 Nauðgunarlyf á útihátíð: „Tökum þetta mjög alvarlega“ Formaður þjóðhátíðarnefndar segir að mikið sé lagt upp úr öryggi gesta á Þjóðhátíð og að allt fari sem friðsam- legast fram. 6 Farþegar í martraðarflugi fá bætur Farþegar Iceland Express, sem voru strandaglópar í einn og hálfan sólarhring í París, fá 400 evrur, frítt flug og út að borða. 7 Leynd yfir kaupverði og fjár-mögnun Toyota Nýir eigendur vilja ekki gefa upp söluverðmæti. Mest lesið á dv.is Myndin Fegrunaraðgerð Ungmenni á vegum Reykjavíkurborgar vinna nú hörðum höndum að því að grisja úr sér vaxið gras á umferðareyjum og öðrum opnum svæðum. Mynd SiGTryGGur Ari JóhAnnSSOn Maður dagsins Í konunglegri akademíu Þorfinnur Gunnlaugsson efnafræðingur er prófessor við háskólann Trinity College í Dublin. hver er maðurinn? „Hafnfirðingur, Flensborgari, og síðan kláraði ég efnafræði á Íslandi. Fór svo í framhaldsnám til Norður-Írlands þar sem ég vann með riddara í þessum fræðum. Þaðan fór ég til Englands þar sem ég vann við Durham-háskóla í eitt ár. Síðan kom ég til Dyflinnar þar sem ég hef verið síðan 1998.“ hvað heldur þér gangandi? „Ég er alveg ljónheppinn því ég er með stóra rannsóknargrúppu sem telur í kringum 17 eða 18 manns held ég og svo er ég líka ljónheppinn því ég á voðalega góða fjöl- skyldu bæði hér og heima og það gerir það að verkum að maður vinnur vel.“ hvað finnst þér best að borða? „Mér finnst allur matur góður og dunda mér mikið við eldamennsku.“ Áttu þér einhver áhugamál? „Ég hef rosalega mikinn áhuga á mat, matargerðarlist, að borða og njóta góðra vína. Ég er mjög heppinn að vera í þessari stöðu sem ég er í og fá að ferðast um allan heim þannig að ég hef tækifæri til að borða góðan mat úti um allan heim.“ Af hverju fluttir þú til Írlands? „Ég fór upprunalega til Norður-Írlands í nám. Lærði þar hjá manni sem heitir A. Peter Silver og er einn af bestu efnafræðingum sem til eru. Þaðan fór ég til Englands en svo voru mér boðnar tvær stöður hér á Írlandi og ég tók þeirri hér í Trinity College.“ Saknar þú Íslands? „Já, mikil ósköp. Ég kem nú ekki oft heim, kannski einu sinni eða tvisvar á ári í mesta lagi. Ég var heima í júní en það var í fyrsta skipti í eitt og hálft ár. Það er alltaf gott að koma heim og best að koma í Hafnar- fjörðinn.“ Varstu alltaf viss um að þú vildir læra efnafræði? „Ég hafði alltaf mjög gaman af vísindum þegar ég var barn en þegar ég fór í Flensborg fór ég ekki á raungreinabraut. Ég ætlaði að vera blaðamaður og ætlaði að fara á fjölmiðlabraut en það var ekki í boði þannig að ég þurfti að breyta til og fór þá í raun- vísindin. Þegar ég byrjaði svo í háskólanum tók ég nokkur fög í hinu og þessu en ákvað svo að fara í efnafræði.“ hvaða þýðingu hefur það að vera í konunglegu írsku akademíunni? „Þetta þykir mikill heiður hér og það eru teknir inn um tíu raunvísindamenn á hverju ári. Við vorum þrjú úr Trinity College. Það sem er sérstakt við þetta er að maður sækir ekkert um heldur er stungið upp á manni og svo er maður kosinn inn. Þetta er ákveðinn heiður sem er gaman að hljóta en ég var ekki að sækjast neitt sérstaklega eftir þessu. Þetta þýðir í rauninni að maður hafi gert eitthvað rétt.“ Yfirnáttúran í öllu sínu veldi Dómstóll götunnar Kjallari Lýður Árnason„Þessi farvegur þjóðarfrumkvæðis er nýr valkostur og verk- færi hverjum einstaklingi sem vill hafa áhrif á gang mála, þar á meðal kirkju- skipan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.