Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2011, Page 24
24 | Sport 20. júlí 2011 Miðvikudagur Þ etta er ný og skemmti- leg áskorun,“ sagði Eiður Smári Guð- johnsen á blaða- mannafundi í Aþenu í gær þegar hann var kynntur til leiks sem nýjasti leikmað- ur AEK. Eiður skrifaði í gær undir tveggja ára samning við gríska liðið sem grískir miðl- ar haldi fram að tryggi honum 1,3 milljónir evra í laun eða því sem samsvarar 216 milljónum íslenskra króna. Myndi þetta útleggjast sem 11.000 pund á viku en til viðmiðs hafði Eiður 65.000 pund í vikulaun þeg- ar hann lék síðast með Stoke. Gríðarleg spenna hefur verið í Aþenu vegna komu Eiðs en öll íþróttablöð hafa verið með hann á forsíðum sínum og þá tóku 2.000 manns á móti hon- um þegar Eiður lenti á flug- vellinum klukkan sjö að stað- artíma á mánudagskvöldið. Salurinn sem fréttamanna- fundurinn fór fram í á æfinga- svæði AEK var orðinn fullur löngu áður en fundurinn hófst. Reyndar tafðist fundurinn um rétt tæpan klukkutíma þar sem Arnór Guðjohnsen, faðir Eiðs og umboðsmaður, var fastur í umferð og vildu menn bíða eftir honum. Það endaði þó með því að Eiður skrifaði und- ir samninginn, tók í höndina á forseta AEK, Stvaros Adamid- is, og lyfti treyju númer 22 sem hann mun klæðast næstu tvö árin. Mun klæðast treyjunni með stolti „Ég er spenntur fyrir metn- aði Arnars [Grétarssonar yfir- manns knattspyrnumála AEK] og forseta félagsins að fá mig til félagsins. Ég er mjög spennt- ur fyrir þessu,“ sagði Eiður á blaðamannafundinum. „For- setinn og Arnar sannfærðu mig um að þetta væri góð áskorun fyrir mig,“ sagði Eiður sem síð- ast lék með Fulham í ensku úr- valsdeildinni sem lánsmaður frá Stoke. Það ætlaði allt um koll að keyra á flugvellinum í Aþenu í gær þegar Eiður lenti en 2.000 manns mættu til að taka á móti honum. Sungu þeir söngva, öskruðu nafn Eiðs stöðugt og umkringdu svo bíl hans í von um að berja goðið augum. „Ég hef hrifist mjög af því sem ég hef séð hérna og mót- tökurnar voru frábærar,“ sagði Eiður um herlegheitin en hann er spenntur fyrir því að spila í svarta og gula búningnum. „Ég veit ekki mikið um fé- lagið en Arnar spilaði hérna og þá sagði forsetinn frá sögu AEK. Ég mun læra meira um söguna og ég vill verða hluti af sögu félagsins. Eins og ég segi er ég spenntur. Ég gef samt aldrei loforð sem ég stend ekki við. Ég get aftur á móti lofað því að ég mun klæðast treyju AEK með stolti og mun leggja mig allan fram fyrir félagið,“ sagði Eiður Smári. Þreifingar hófust í fyrra „Tilfinningin er bara mjög góð, það eru allir í skýjunum yfir þessu,“ segir Arnar Grétarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK en DV sló á þráðinn til hans í gær þegar ró var far- in að færast yfir eftir storminn í kringum blaðamannafundinn. Hann er skiljanlega hæst- ánægður með kaupin. „Eið- ur er mikill hvalreki fyrir AEK. Það er búist við miklu af hon- um og ég hef ekki áhyggjur af neinu. Ef hann kemst í fyrra form á hann eftir að hjálpa okkur mikið. Ég hef fulla trú á því,“ segir Arnar en síðasta sumar bauðst Eiði einnig að koma til Grikklands. „Þetta byrjaði allt fyrir ári síðan þegar ég hitti guttann á Íslandi og spurði hann hvort hann hefði áhuga. Ég bjóst nú ekkert við að svo yrði þar sem við gátum ekkert borgað það sem hann vill fá. Svo kom þetta bara aftur upp núna rétt áður en hann steig upp í flug- vélina á leið í læknisskoðun hjá West Ham. Svona viku, tíu dögum áður en það gerð- ist kom nafn hans aftur upp á borð hjá okkur en ég hélt þá að við gætum ekki gert þetta fjár- hagslega. Það kom bara upp í hendurnar á okkur að þetta væri möguleiki og þegar Arnór hafði samband vorum við fljót- ir að svara. Við gerðum tilboð svona tíu mínútum seinna og þar með var fyrsta skrefið tek- ið,“ segir Arnar. Utanaðkomandi aðilar borga brúsann Eins og Arnar segir hunsaði Eiður West Ham til að ganga í raðir AEK. Sam Allardyce, stjóri West Ham og sá hinn sami og fékk Eið til Bolton á sínum tíma, lýsti yfir miklum vonbrigðum þegar ljóst var að Eiður kæmi ekki til liðsins en hann hélt að félagaskiptin væru klár. „Það hefði verið betra hefði þetta allt gerst viku fyrr. Eið- ur hefur eflaust tilfinningar til þessa þjálfara og því ekki létt fyrir hann að snúa við á síð- ustu stundu. En þetta er ferill- inn hans Eiðs og hann verður að taka ákvarðanir fyrir sjálfan sig. Ég held að hann hafi viljað breytingar. Þetta er samt tölu- verð áskorun fyrir hann en það á eflaust stóran þátt í ákvörðun hans,“ segir Arnar en hvern- ig náði félagið að safna þeim 1,3 milljónum evra sem grísku blöðin segja að hann fái í laun. „Það eru utanaðkomandi aðilar sem koma að þessu. Eig- endur félagsins eru vel stæðir og svo eru aðilar sem hafa átt í félaginu og svona. Þegar svona leikmenn bjóðast eru menn tilbúnir að hjálpa til og þann- ig er það í þessu tilfelli. Annars hefðum við ekkert getað tekið Eið því þessi samningur er of stór fyrir okkar fjárhagsáætl- un,“ segir Arnar. Óvíst hvaða lið verða í deildinni Spilamennska AEK og stærð liðsins ætti að henta Eiði vel segir Arnar þar sem liðið er alla jafna að keppa á móti lakari liðum og er mikið með boltann. „Eiður er hvalreki fyrir AEK“ n Eiður Smári Guðjohnsen samdi við AEK og leikur í treyju númer 22 n Utanaðkomandi aðilar hjálpa til við að borga brúsann n Bauðst að fara til AEK í fyrra n „Mun leggja mig allan fram fyrir félagið“ Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Fótbolti „Ég hef hrifist mjög af því sem ég hef séð hérna og móttökurnar voru frábærar. Eiður Smári Guðjohnsen Nýr leikmaður AEKStund milli stríða Á mánudagskvöldið slökuðu Arnar og Eiður á eftir að hafa komist í gegnum mannþröng á flug- vellinum. Mynd KitrinoMavri ora & newSportS photo agency Lið Ár Leikir/Mörk Valur 1994 17 7 PSV 1994–98 13 3 KR 1998 6 0 Bolton 1998–2000 55 18 Chelsea 2000–06 185 54 Barcelona 2006–09 72 10 Mónakó 2009–10 9 0 Tottenham 2010 11 1 Stoke 2010–11 4 0 Fulham 2011 10 0 AEK 2011–? - - Ferill Eiðs Smára Fullt nafn: PAE Athlitiki Enosis Konstantinoupoleos. gælunöfn: Sambandið, tvíhöfða örninn, svartir og gulir. Stofnað: 1924. völlur: Ólympíuvöllurinn í Aþenu (69.618). Forseti: Stavros Adamidis. Þjálfari: Manolo Jimenez (Spánn) Árangur í fyrra: 3. sæti í deild og bikarmeistarar. grískir meistarar: 11 (1939, 1940, 1963, 1968, 1971, 1978, 1979, 1989, 1 992, 1993, 1994). Bikarmeistarar: 14 (1932, 1939, 19 49, 1950, 1956, 1964, 1966, 1978, 1 983, 1996, 1997, 2000, 2002, 2011) Besti árangur í evrópu: Undanúrslit UEFA Cup 1977. AEK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.