Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2012, Síða 2
2 Fréttir 2. apríl 2012 Mánudagur
Sigurvegari Magnús vann einstaklingskeppni
Mottumars í ár. Hann safnaði tæplega einni
milljón króna. Báðir foreldrar hans hafa glímt við
krabbamein að undanförnu.
Mynd Sigtryggur Ari
n Safnaði milljón í Mottumars n Skemmtilegur lokasprettur á skemmtilegri keppni
Báðir foreldrarnir
með krabbamein
Þ
etta var skemmtilegur enda-
sprettur á skemmtilegri
keppni. Auðvitað skiptir
málefnið mestu máli,“ seg-
ir Magnús Sigurbjörnsson,
24 ára tölvunarfræðingur, sem bar
sigur úr býtum í einstaklingskeppni
Mottu mars í ár. Magnús safnaði
987.500 krónum en samtals söfn-
uðust tæplega 29 milljónir króna í
þessu árverknis- og fjáröflunarátaki
Krabbameinsfélags Íslands.
Einn dagur í einu
Líkt og margir þeirra sem skip-
uðu efstu sætin í ár þekkir Magn-
ús krabbameinið og afleiðingar
þess af eigin raun – þótt hann hafi
ekki sjálfur glímt við það. Báðir
foreldrar hans hafa gengið í gegn-
um krabbameinsmeðferðir á síð-
ustu árum. „Mamma greindist
með brjóstakrabbamein árið 2010
og pabbi með krónískt eitilfrumu-
hvítblæði fyrir nokkrum árum.
Hann hefur verið í krabbameins-
meðferðum síðustu misseri. Það
er helsta ástæðan fyrir því að ég
ákvað að taka þátt,“ segir Magnús.
Móðir hans greindist svo aftur með
brjóstakrabbamein fyrir nokkrum
vikum og er í meðferð við sjúk-
dómnum. Þá er faðir hans nýbú-
inn í lyfjameðferð. „Þetta gengur
ágætlega hjá þeim eins og er í dag.
Maður tekur bara einn dag í einu.“
Hörð keppni
Keppni á milli efstu manna í ein-
staklingskeppninni var hörku-
spennandi en henni lauk síðdegis
á fimmtudag. Þannig skiptust efstu
menn á að leiða keppnina en svo fór
að Magnús fór með sigur af hólmi.
„Þetta kom fyrir rest og það var mik-
ið af góðu fólki sem hét á mig. Mað-
ur þekkti ekki alla en samkeppnin
sjálf varð til þess að Krabbameinsfé-
lagið fékk meiri pening,“ segir hann.
Alls skráðu um 3.000 einstak-
lingar og 270 lið sig til leiks í Mottu-
mars og til marks um mikinn áhuga
landsmanna á málefninu voru yfir
500 þúsund heimsóknir á síðuna
mottumars.is frá um 180 þúsund
tölvum. Lið Arion banka reyndist
sigursælast í liðakeppninni þriðja
árið í röð en það náði að safna
1.391.500 krónum. Í öðru sæti var
lið Alcoa Fjarðaáls með 1.151.400
krónur og í þriðja sæti lið Vodafone
með 1.028.000 krónur. Sigurveg-
arar í Mottumarskeppninni fengu
í verðlaun flugmiða frá WOW air,
gistingu á Hótel Keflavík, skegg-
húfur frá Vík Prjónsdóttur, hvala-
skoðun og Viðeyjarsiglingu með
Eldingu og grænmetiskörfur frá Ís-
lensku grænmeti.
Gáfu honum fimm ár
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Þetta kom fyrir
rest og það var
mikið af góðu fólki sem
hét á mig.
L
æknarnir voru búnir að segja að
ég ætti fimm til tíu ár eftir,“ segir
Kristján Björn Tryggvason sem
varð í öðru sæti í einstaklings-
keppni Mottumars í ár. Kristján safn-
aði 959 þúsund krónum og var því ansi
nálægt því að vinna keppnina. Hann
segist engu að síður vera hæstánægð-
ur með annað sætið og tekur undir
með Magnúsi um að málefnið sé ofar
öllu.
Kristján greindist með heilaæxli
árið 2006 og líkt og hann segir sjálfur
gáfu læknar honum ekki mikla von.
„Ég byrjaði að fá flog í janúar 2006 en
lét ekkert athuga það fyrr en þremur
mánuðum síðar. Ég var í Bláa lón-
inu með konunni minni og syni mín-
um og við vorum að bíða eftir henni
þegar ég fékk stórt flog. Það fór allt
að hringsnúast og ég sagði stráknum
mínum að koma með mér inn. Ég var
mjög ringlaður og fór inn til að jafna
mig. Svo þegar ég náði áttum hugs-
aði ég með mér hvaða tyggjó ég væri
eiginlega með,“ segir Kristján og bæt-
ir við að tyggjóið hafi í raun verið síg-
aretta sem hann var að reykja þeg-
ar hann fékk flogið. „Þá fór ég og lét
tékka á mér. Þegar maður er farinn
að tyggja sígarettur þá þarf maður
að láta tékka á sér,“ segir Kristján og
hlær. Hann segir að læknar hafi ver-
ið svartsýnir og sagt honum að hann
gæti búist við því að missa málið og
jafnvel sjónina. Heilaæxlið var stórt
en með uppskurði, lyfjameðferð og
geislameðferð tókst þeim hins vegar
að vinna bug á krabbameininu og er
Kristján við ágæta heilsu í dag – hann
er allavega laus við æxlið. „Ég þarf að
vera á flogaveikitöflum alla ævi en allt
æxlið er farið. Læknarnir bara hristu
hausinn og skildu þetta ekki,“ seg-
ir Kristján um þennan góða árangur.
Hann lenti að vísu í bílslysi í ágúst í
fyrra og er enn að ná sér. „Þess vegna
var ég kannski svona hár í Mottumars.
Ég gekk á milli fyrirtækja og safnaði
áheitum. Það gekk svona vel.“
n Kristján Björn vann bug á heilaæxli
Safnaði í tíu ár
É
g náði ágætum lokaspretti og
er að sjálfsögðu mjög ánægður
með niðurstöðuna,“ segir Ævar
Ágústsson, rétt rúmlega fimm-
tugur, sem varð í þriðja sæti í ein-
staklingskeppninni í ár. Ævar, sem
hefur starfað hjá Vodafone síðast-
liðin tólf ár, safnaði 655 þúsund
krónum og segir hann að Voda-
fone hafi aðstoðað hann dyggilega á
lokasprettinum. Eins og sést á með-
fylgjandi myndum skartaði Ævar
glæsilegu skeggi, eða þangað til
hann rakaði það af á föstudag. „Það
fékk að fjúka af. Þetta breytist að-
eins. Ég var búinn að vera með þetta
í tíu ár og líður mjög vel. Allt annað
líf,“ segir hann.
Ævar missti föður sinn árið 2008
en hafði glímt við krabbamein í
nokkur ár. „Þetta byrjaði í blöðru-
hálskirtli hjá honum sem er ein al-
gengasta tegund krabbameins hjá
körlum,“ segir Ævar en faðir hans
var rétt innan við áttrætt þegar hann
lést. Þá missti Ævar móðurbróður
sinn í desember síðastliðnum en
hann hafði glímt við lungnakrabba-
mein. Hann var rétt tæplega sextug-
ur.
n Missti föður sinn og móðurbróður
Hetjuleg barátta Kristján Björn greindist
með heilaæxli árið 2006. Hann er laus við
æxlið í dag og við ágæta heilsu.
Fyrir og eftir Ævar segir að það hafi
verið mikill léttir þegar skeggið fékk að
fjúka á föstudagsmorgun.