Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2012, Side 4
4 Fréttir 2. apríl 2012 Mánudagur
Aðildarviðræður Íslands og
Evrópusambandsins
Áfram einok-
un á áfengi
Gangi Ísland í Evrópusam-
bandið hyggst ríkið viðhalda
núverandi fyrirkomulagi á
verslun með áfengi og tóbak
sem grundvallast á einkaleyfi
ÁTVR á áfengis- og tóbakssölu.
Um þessi mál er fjallað í átt-
unda samningskafla Íslands og
Evrópusambandsins um sam-
keppnismál. Í samningsmark-
miðum Íslands kemur fram
að ríkið stefni að því að halda
einokuninni áfram, en fordæmi
eru fyrir því að þjóðir í aðildar-
viðræðum við ESB hafi fengið
sérlausnir í þessum málaflokki.
Þannig gengu Svíar í Evrópu-
sambandið, en sænska ríkið hélt
áfram einokun á áfengissölu.
Fram kom í máli Štefans
Füle, stækkunarstjóra Evrópu-
sambandsins, sem ræddi við
blaðamenn í Brussel í síðustu
viku, að engar deilur væru um
þetta atriði í aðildarviðræðun-
um og því öruggt að þó að Ís-
land gengi í ESB yrði núverandi
fyrirkomulag á áfengis- og tób-
akssölu óbreytt.
Aðildarviðræðum Íslands og
Evrópusambandsins er skipt
niður í 33 samningskafla eftir
málaflokkum. Þegar hafa verið
opnaðir 15 kaflar og þar af hefur
10 köflum verið lokað aftur, sem
þýðir að samninganefndir Ís-
lands og ESB hafa náð sam-
komulagi um öll atriði þeirra.
Um þriðjungur samnings-
kaflanna snýr beint að löggjöf
sem Ísland hefur þegar innleitt
vegna aðildar að ESS-samn-
ingnum. Þá eru um 10 kaflar
sem tengjast óbeint aðild Ís-
lands að EES.
Štefan Füle hefur sagt að
hvorki hagsmunum Íslands né
hagsmunum ESB sé betur borg-
ið með því að hraða viðræðun-
um frekar. Þær séu risastórt mál
fyrir Ísland og því beri að vanda
til verka.
Stefán Haukur Jóhannesson
aðalsamningamaður Íslands
vill heldur ekki gefa upp neina
sérstaka tímasetningu um hve-
nær aðildarviðræðurnar klárast.
Mikilvægt sé að vanda til verka.
valgeir@dv.is
M
ér finnst mjög skemmti-
legt að sjá að samfélagið
trúir því í alvörunni að
við séum tilbúnar til þess
að beita ofbeldi fyrir mál-
staðinn – sem við erum ekki.“ Þetta
segir Sóley Tómasdóttir, borgar-
fulltrúi VG, í samtali við DV en hún
tók þátt í aprílgabbi vefmiðilsins
Knúz sem DV tók einnig þátt í en þar
var því haldið fram að Sóley færi fyr-
ir stofnun nýs hóps herskárra femín-
ista sem hygðust beita ofbeldi í að-
gerðum sínum.
Fjölda aprílgabbsfrétta mátti
finna á ýmsum fjölmiðlum í gær. Ást-
þór Magnússon forsetaframbjóðandi
var á meðal þeirra sem hlupu apríl.
Moggamenn hlupu apríl
„Ég lét ýmislegt frá mér fara sem ég
hefði aldrei gert undir öðrum kring-
umstæðum,“ segir Sóley og bætir við
að hún myndi aldrei beita herskáum
aðgerðum í baráttu sinni. „Það var
mjög skemmtilegt að ögra svona og
ótrúlegt hverju fólk er tilbúið að trúa
upp á femínista.“ Blaðamenn Morg-
unblaðsins voru á meðal þeirra sem
hlupu apríl í þetta skiptið en þeir
birtu frétt um stofnun hópsins undir
fyrirsögninni „Stofna öfgahreyfingu“
og kipptu henni út stuttu síðar.
„Mér þótti mjög fyndið að bæði
Morgunblaðið og Eyjan höfðu sam-
band og töluðu lengi vel við mig,
spurðu hvort þetta væri aprílgabb
en ég harðneitaði því auðvitað,“ seg-
ir Sóley og bætir við að í kjölfarið
hafi verið birt frétt á vef mbl.is þar
sem fram kom að hún hygðist stofna
femíníska öfgahreyfingu ásamt Hildi
Lilliendahl og Maríu Lilju Þrastar-
dóttur. „Fréttin stóð í svona sjö mín-
útur, þannig að Mogginn hljóp apríl,“
segir Sóley. „Að öðru leyti þá bara
skemmtum við okkur konunglega
sem vorum í þessu.“
Leikrit femínista
Aðspurð um þau illindi sem virtust
vera að skapast á heimasíðu Knúz-
hópsins vegna málsins – en ýmis um-
mæli nafnkunnra femínista bentu til
þess að klofningur væri að skapast
í hópi femínista – segir Sóley að um
leikrit hafi verið að ræða. „Við vorum
bara að leika okkur að því að klofna
og vorum að vona að það myndi vekja
einhverja athygli. Þannig að þessi
hörðu samskipti sem áttu sér stað
voru í rauninni bara leikrit, bæði til
þess að leika okkur og hafa gaman en
líka til þess að auka trúverðugleika
gabbsins,“ segir Sóley sem tekur fram
að þetta hafi verið einhver skemmti-
legasti 1. apríl sem hún hefur upplif-
að lengi.
En gabbið um herskáu femínistana
var alls ekki eina gabbið sem birtist
á hinum ýmsu miðlum í gær. Á Eyja-
vefnum eyjar.net var því haldið fram
að búið væri að staðfesta komu Bjark-
ar Guðmundsdóttur á næstu Þjóðhá-
tíð. Vestfirski vefurinn BB.is var í þjóð-
legri kantinum og hélt því fram að
draugur hefði náðst á filmu á Núpi. Í
kvöldfréttum Stöðvar 2 var því hald-
ið fram að fundist hefði gull í Esjunni
en í kvöldfréttum RÚV sagði að 200
leikarar óskuðust í nýja Hollywood-
mynd sem verið væri að taka upp hér
á landi. Þá sagði að sést hefði til svo-
kallaðs sebrasvans (l. zebra cygnus) í
Mýrdalnum um helgina á vef Sunn-
lenska. Sunnanmenn héldu gríninu
áfram og sögðu enska knattspyrnu-
manninn Robbie Fowler vera kom-
inn til landsins þar sem hann ætlaði
að spila til reynslu hjá liði Selfyssinga
næstu daga.
Clint Eastwood og Pútín
Og grínið og glensið hélt áfram: „Leik-
stjórinn margrómaði Clint Eastwood
verður með leikaraprufur fyrir nýj-
ustu mynd sína, sem til stendur að
taka upp á Austurlandi, klukkan 14:00
á Hótel Héraði í dag. Leitað er að 100
hraustum Austfirðingum til að leika í
bardagasenum myndarinnar.“ Þannig
hófst frétt sem birt var í Austurglugg-
anum, og voru áhugasamir hvattir til
þess að mæta.
Þá var enginn annar en Vladímír
Pútín, forsætisráðherra Rússlands
og fyrrverandi forseti, sagður ætla að
gista í Keflavík aðfaranótt mánudags,
að því er fram kom í Víkurfréttum. Þar
var því einnig haldið fram að háttsett-
ir bandarískir embættismenn væru
staddir á landinu og að þeir hygðust
funda með Pútín hér á landi. Glögg-
ir lesendur hafa eflaust áttað sig á því
að þarna var um aprílgabb að ræða og
fréttirnar voru settar fram í tilefni af 1.
apríl.
Vefmiðillinn Smugan fjallaði um
að Páll Magnússon útvarpsstjóri
hygðist bjóða sig fram til forseta.
Davíð á öllum seðlum
Á mbl.is var aprílgabbið vel undirbú-
ið en þar var fólki boðið að taka þátt
í kosningu um það hver ætti að prýða
nýja tíu þúsund króna seðilinn. Hægt
var að velja á milli ýmissa valinkunnra
einstaklinga eins og Halldórs Laxness,
Vigdísar Finnbogadóttur, Ólafs Ragn-
ars Grímssonar og Davíðs Oddssonar.
En það skipti þó á endanum litlu hvað
fólk valdi, því niðurstaða kosningar-
innar var alltaf sú sama: „Þú hefur
kosið: Davíð Oddsson. Takk fyrir þátt-
tökuna.“
Aprílgabb Vísis var á þá leið að
óprúttnir aðilar hefðu brotist inn í
Húsdýragarðinn í nótt, stolið það-
an sel og sleppt í Reykjavíkurtjörn. Á
Skessuhorni lýsti Magnús Magnússon
ritstjóri því yfir að hann ætlaði í for-
setaframboð: „Ísland stendur á tíma-
mótum. Uppgjör við liðin ár gengur
hægt og þjóðin er löskuð eftir illa með-
ferð útrásarvíkinga á eignum henn-
ar og fjármunum. Endurreisn gengur
hægar en ætla hefði mátt.“ Þá Héldu
Skessuhornsmenn gríninu áfram og
sögðu nöfnin Geirvörtu og Hungurlús
á meðal nýsamþykktra nafna manna-
nafnanefndar.
Fjölmargar
gabbFréttir
n Sóley Tómasdóttir hæstánægð með aprílgabb n Margir trúðu henni
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is „Mér þótti mjög
fyndið að bæði
Morgunblaðið og Eyjan
höfðu samband og töl-
uðu lengi vel við mig,
spurðu hvort þetta væri
aprílgabb en ég harð-
neitaði því auðvitað.
Skemmtilegur 1. apríl
Sóley Tómasdóttir, borgar-
fulltrúi VG, segir þennan
1. apríl hafa verið þann
skemmtilegasta í lengri tíma.
Clint Eastwood Átti að vera með prufur
fyrir leikara 1. apríl.
Robbie Fowler Var sagður eiga að spila
með Selfossi.