Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2012, Síða 17
Dómstóll götunnar
Æi, við erum að skrifa grín
hérna, plís ekki trufla
Ég reyni að vera
minn eigin herra
Það gengur
rosalega hægt
Bergur Ebbi Benediktsson um handritaskrif. – DVEgill Helgason fer sínar eigin leiðir. – DV Birgir Guðmundsson um efnahagsmálin – DV
Munu Skotar taka sér sjálfstæði?
„Það er bara fínt að fá fleiri í
þetta. Ég veit þannig ekkert um
hana en ég vil sjá nýjan forseta.“
Haraldur Gíslason
27 ára, starfar hjá NTC
„Ég hef voðalega lítið kynnt mér
framboðið hennar. Mér finnst
hún samt koma vel til greina.“
Þórunn Ragnarsdóttir
56 ára hjúkrunarfræðingur
„Ég hef litla tilfinningu fyrir henni
eins og stendur. Mín skoðun mun
fara eftir þeim málefnum sem
hún setur á oddinn.“
Íris Ellenberger
34 ára sagnfræðingur
„Ég hef ekkert heyrt um hana. Ég
býst við að Ólafur taki þetta.“
Andri Már Friðriksson
23 ára, atvinnulaus
„Ég hef enga hugmynd um hver
hún er. Ég fylgist ekki mikið með
forsetaembættinu.“
Fanndís Fjóla Hávarðardóttir
21 árs förðunarnemi
Hvernig líst þér á
framboð Herdísar
Þorgeirsdóttur?
S
kotar íhuga nú að lýsa yfir
fullu sjálfstæði og snúa af
þeirri braut, sem þeir mörk-
uðu 1707, þegar England og
Skotland sameinuðust undir
einum kóngi í einu ríki, Stóra Bret-
landi. Markmið Skota með samein-
ingunni 1707 var að tryggja Skotum
aðgang að mörkuðum Englands og
nýlendum Englendinga og einnig að
efla frið, en löndin tvö höfðu eldað
grátt silfur á fyrri tíð allar götur fram
yfir aldamótin 1600.
Skotland í Evrópu
En nú er öldin önnur. Bretland er í
Evrópusambandinu. Skotar þurfa
ekki lengur á Englendingum að halda
til að tryggja sér aðgang að mörk-
uðum Englands eða annarra Evr-
ópulanda, þar eð ESB-aðildin trygg-
ir þann aðgang. „Skotland í Evrópu“
hefur lengi verið kjörorð skoskra
þjóðernissinna. Skoski þjóðarflokk-
urinn hefur nú ríflegan meiri hluta í
skoska þinginu, sem var endurreist
1999 sem liður í aukinni heimastjórn
Skotlands. Flokkurinn hefur sjálf-
stætt Skotland efst á stefnuskrá sinni
og stefnir að þjóðaratkvæði um mál-
ið 2014.
Skoska þjóðin er klofin í sjálfstæð-
ismálinu líkt og Færeyingar. Margir
Skotar óttast, að þeir muni ekki eiga
auðvelt með að fóta sig á eigin spýt-
ur, fimm milljóna þjóð á næsta bæ við
52 milljónir Englendinga. Sjálfstæðis-
sinnar spyrja á móti: Hvers vegna
skyldu Skotar ekki geta staðið á eig-
in fótum líkt og t.d. Danir, Finnar og
Norðmenn, álíka fjölmennar þjóðir?
Spurningin svarar sér sjálf.
Leikreglur
Skotar hugsa að ýmsu leyti öðru-
vísi en Englendingar. Muninn má
t.d. ráða af því, að breski Íhaldsflokk-
urinn hefur lengi haft miklu minna
fylgi í Skotlandi en á Englandi. Skotar
taka t.a.m. ekki í mál að leyfa skosk-
um háskólum að innheimta skóla-
gjöld af stúdentum, en háskólagjöld
hafa rutt sér til rúms á Englandi síð-
ustu ár. Margir Skotar líta í ríkari mæli
en Englendingar til Norðurlanda um
fyrirmyndir í ýmsum greinum. Þess
vegna m.a. finnst mörgum Skotum
eðlilegt að stíga skrefið til fulls og lýsa
yfir óskoruðu sjálfstæði og setja sér
um leið skriflega stjórnarskrá til að
undirstrika sjálfstæðisyfirlýsingu sína
og lýsa þar fyrir sjálfum sér og um-
heiminum, hvers konar samfélag þeir
vilja byggja.
Bretland er eitt örfárra landa
heimsins, sem hefur ekki sett sér
skriflega stjórnarskrá. Sumir segja, að
Bretar séu svo reglufastir, að þeir þurfi
ekki stjórnarskrá, og vísa þá í þjóðarí-
þróttina, krikket. Þeir eiga við, að það
séu ekki úrslit leiksins, sem skipta
höfuðmáli, heldur gangur leiksins,
leikreglurnar og virðingin fyrir þeim.
Olía og annað
Hvernig færi með olíulindir Bret-
lands, ef Skotar tækju sér sjálfstæði?
Í grófum dráttum má segja, að fjórð-
ungur allrar olíu og jarðgass innan
lögsögu Bretlands tilheyri Hjaltlands-
eyjum (Shetland Islands), 15% til-
heyri Englendingum og 60% Skotum.
Hjaltlendingar eru aðeins um 20.000
að tölu, svo að olíuauður þeirra er
mikill á hvert mannsbarn. Olíusjóð-
ur eyjarskeggja er nú um 300 milljón-
ir punda eða um 60 milljarðar króna.
Það gerir næstum 12 mkr. á hverja
fjögurra manna fjölskyldu á Hjalt-
landseyjum. Arðinum af olíunni hef-
ur verið varið til margvíslegrar upp-
byggingar á eyjunum fyrir tilstilli
almannavaldsins. Úr því að Skot-
ar eiga fjórum sinnum drýgri hlut-
deild í olíuauðnum en Englendingar,
er olíuauður Skota á hvern íbúa fer-
tugfaldur á við olíuauð Englendinga,
sem eru tíu sinnum fleiri en Skotar.
Olíulindirnar skipta ekki sköpum.
Ákvörðun Skota um sjálfstæðismál-
ið mun ekki ráðast af olíuauðnum
nema að litlu leyti. Hitt skiptir meira
máli, að Skotum hefur að ýmsu leyti
vegnað vel að undanförnu. Þeir hafa
byggt upp nýja atvinnuvegi og standa
nú framarlega í hátækni á heims-
vísu. Skotland er ekki lengur bara
viskí, vefnaðarvara og misheppnaður
þungaiðnaður. Menningin blómstr-
ar. Edinborg, höfuðborg Skotlands,
er ein fegursta borg álfunnar og þykir
jafnan vera besti staður Bretlands að
búa á. Glasgow er annar handlegg-
ur. Þar í borg eru þrjú fátækustu kjör-
dæmi Bretlands, og þar er mannsæv-
in að meðaltali styttri en víðast hvar
annars staðar í Evrópu.
„Muninn má
t.d. ráða
af því, að breski
Íhaldsflokkurinn
hefur lengi haft
miklu minna fylgi
í Skotlandi en á
Englandi
Fótabað Það er huggulegt að setjast við fótabaðið á fallegum vordegi. Mynd Eyþór árnaSOnMyndin
Umræða 17Mánudagur 2. apríl 2012
1 Stofnar herskáa femínistahreyfingu
Aprílgabb um ofbeldisfulla hreyfingu
Sóleyjar Tómasdóttur
2 Hér eru aprílgöbbin á miðl-unum í dag
Fjölmiðlar reyndu ýmislegt til að gabba
landsmenn
3 Skorað á Davíð að bjóða sig fram til forseta
Vilja að Davíð Oddsson verði næsti
húsráðandi á Bessastöðum
4 Sheen viðurkennir „ógeðs-lega“ hegðun
Hollywood-leikarinn segist hafa snúið
við blaðinu.
5 Blaðamaður hraunar yfir AMXMagnús Halldórsson lét smáfuglana
hafa það óþvegið..
6 Megan Fox: Ólétt?Hollywood-stjarnan er sögð eiga von
á barni.
7 Blóðugir hundar fóru í barnavagn í Grafarvogi
Höfðu skömmu áður tætt í sig kött í
hverfinu.
Mest lesið á DV.is
Kjallari
Þorvaldur
Gylfason