Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Page 10
10 Fréttir 18. febrúar 2013 Mánudagur M enningar- og ferðamála- ráð Reykjavíkurborgar fer með skýrslu eftirlitsnefnd- ar um kvikmyndahátíð- ina RIFF sem trúnaðar- mál. Hátíðin er fjármögnuð að mestu leyti með styrkjum, meðal annars frá Reykjavíkurborg – af um 56 milljóna króna tekjum hátíðarinnar árið 2011 voru 40 milljónir tilkomnar vegna styrkveitinga. Vegna inntaks trúnaðar- skýrslunnar liggur ekki fyrir vilyrði fyrir styrk frá borginni til hátíðarinnar, líkt og síðastliðin níu ár. DV hefur gert tilraunir til að fá aðgang að skýrslunni en það hefur ekki gengið. RIFF er árleg kvikmyndahátíð sem haldin er í Reykjavík. Hátíðin hefur verið haldin síðastliðin níu ár en á henni á eru sýndar kvikmyndir víða að úr heiminum og koma leik- arar og leikstjórar gjarnan hingað til lands í tengslum við hátíðina. Fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar er Hrönn Marinósdóttir sem jafnframt er eini eigandi og stjórnarmaður rekstrar- félags hátíðarinnar, Alþjóðleg kvik- myndahátíð í Reykjavík ehf. Á hverju ári hefur Reykjavíkurborg styrkt hátíð- ina um 8 til 9 milljónir króna en hátíð- in hefur einnig fengið styrki frá öðrum aðilum, til dæmis í gegnum mennta- málaráðuneytið. Trúnaðarmál Einar Benediktsson, formaður menn- ingar- og ferðamálaráðs, segir það vera trúnaðarmál af hverju borgin hafi ekki viljað gefa hátíðinni vilyrði fyrir áframhaldandi styrk. „Það er trúnaðar mál af hverju það er ekki vil- yrði fyrir styrk, og við erum að vinna í því máli. Kvikmyndahátíð í Reykja- vík er sterk kvikmyndahátíð og ég er að vinna að því að hún haldi áfram að vera sterk [...].“ Hann segir jafnframt að þó að ekki hafi verið ákveðið að halda áfram að styrkja hátíðina þá séu viðræður í gangi um framtíðarskipulag hennar. „Ég hef verið í samskiptum við hátíð- ina um framtíðarskipulag hennar og sú vinna hefur gengið vel. Við höfum verið að fara yfir það hvernig við vilj- um hafa þessa hátíð, hvernig fyrir- tækjaformið er og annað í þeim dúr. Hátíðin er að endurskipuleggja sig.“ Hrönn Marinósdóttir segir að- spurð við DV að hún vilji ekki ræða um málið við blaðið. Hátíðin vernduð DV hefur heimildir fyrir því að á ný- legum fundi menningar- og ferða- málsráðs hafi skýrslan um RIFF, sem unnin var af eftirlitsnefndinni sem í voru Eva Baldursdóttir, Jarþrúður Ásmundsdóttir og Signý Pálsdóttir, verið kynnt fyrir meðlimum ráðsins. Inntak skýrslunnar er ekki reifað í fundargerð ráðsins. Meðlimir ráðsins fengu heldur ekki eintak af skýrslunni, sem köll- uð var „minnisblað“ til að undirstrika að um vinnugagn, en ekki opinbert plagg, væri að ræða. Slík vinnugögn, eins og minnisblöð eru gjarnan, eru ekki háð ákvæðum um upplýsingalög og því þarf ráðið ekki að gera gagnið opinbert. DV hefur heimildir fyrir því að á fundi menningar- og ferðamála- ráðs hafi verið ákveðið að skýrslan yrði trúnaðarmál vegna þess að inn- tak hennar gæti skaðað aðstandendur RIFF og þar með hátíðina sjálfa. „Viðkvæmar upplýsingar“ Eva Baldursdóttir, meðlimur eftirlits- nefndarinnar sem vann skýrsluna um RIFF, segir aðspurð að menningar- og ferðamálaráð hafi ákveðið að „minn- isblaðið“ yrði trúnaðarmál vegna þess að þar kæmu fram „viðkvæmar upp- lýsingar“. Annar aðili innan úr stjórn- sýslunni, sem ekki vill láta nafn síns getið segir, að upplýsingarnar sem komi fram í skýrslunni séu „erfiðar, óvægnar og viðkvæmar“. Skýrslan var meðal annars byggð á samtölum við fyrrverandi og nú- verandi starfsmenn hátíðarinnar sem munu hafa verið gagnrýnir á starfs- hætti stjórnenda RIFF samkvæmt heimildum DV. Einn af heimildar- mönnum DV talar um „samstarfsörð- ugleika“ framkvæmdastjóra hátíðar- innar við starfsfólk hennar. Þá hefur DV heimildir fyrir því að einhverjir af starfsmönnunum hafi kvartað undan þeim launum sem þeir fengu greidd fyrir störf sín fyrir hátíðina. Ársreikningar ekki endurskoðaðir Eitt af því sem auk þess mun hafa ver- ið gagnrýnt í skýrslunni er að ársreikn- ingar rekstrarfélags RIFF í gegnum tíð- ina hafi ekki verið endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda. Í ársreikn- ingi félagsins fyrir árið 2011 kemur fram að ekki hafi farið fram endur- skoðun á ársreikningnum. „Endur- skoðun hefur ekki verið framkvæmd.“ Sá einstaklingur sem endurskoðaði reikninginn er titlaður viðskipta- fræðingur. Eitt af því sem menningar- og ferðamálaráð mun vilja í framtíðinni, ef sú ákvörðun að veita hátíðinni ekki styrk verður ekki endurskoðuð, er að ársreikningur rekstrarfélagsins verði endurskoðaður í framtíðinni. Í ársreikningnum kemur meðal annars fram að af tæplega 57 millj- óna króna tekjum rekstrarfélags RIFF fari rúmar 32,5 milljónir króna í laun og launatengd gjöld og eru rúmar 23 milljónir króna gjaldfærðar undir liðnum „annar rekstrarkostnaður“. Tap rekstrarfélagsins árið 2011 nam rúmum 2,5 milljónum króna. Samráð haft við borgarlögmann Svanhildur Konráðsdóttur, sviðs- stjóri menningar- og ferðamála- sviðs Reykjavíkur, segir aðspurð af hverju skýrslan um RIFF sé trún- aðarmál, að ákveðið hafi verið að skipa eftirlitsnefnd til að gera út- tekt á starfsemi hátíðarinnar í fyrra. „Það var ákveðið snemma á síðasta ári að setja af stað ákveðna eftirlits- nefnd til þess að vinna með þetta verkefni. Þetta gerði nefndin í sam- starfi við framkvæmdastjóra hátíðar- innar og eiganda hennar. Niðurstaða vinnu nefndarinnar er vinnugagn og trúnaðarmál. Það er eitthvað sem ég hef ekki heimild til að senda þér.“ Hún segir að fullt samráð hafi verið haft við borgarlögmann um hvernig bæri að meðhöndla gögnin sem eftir- litsnefndin um starfsemi RIFF vann. „Það liggur algerlega fyrir hvaða fjár- munum er veitt í hátíðina og það er fyrst og fremst eiganda hátíðarinnar að svara fyrir hvernig fjármunir frá Reykjavíkurborg nýtast. Það eru engar afleiðingar, það liggur fyrir eins og staðan er núna að hátíðin hefur ekki vilyrði fyrir styrk frá Reykjavíkurborg fyrir árið 2013. Þannig er staðan núna. Okkar málsmeðferð viljum við hafa eins vandaða eins og kostur er. Við höfðum fullt samráð við borgarlög- mann nákvæmlega um það hvernig við ætlum að meðhöndla þessi gögn og þar er horft á stjórnsýslu- og upp- lýsingalög.“ Miðað við ummæli þessara starfs- manna borgarinnar sem rætt er við hér þá mun RIFF ekki fá styrk frá Reykjavíkurborg nema að ákveðnar forsendur breytist. Í máli Einars Arnar kemur hins vegar fram að viðræður um framtíð hátíðarinnar gætu skilað sér í breyttu viðhorfi varðandi styrk- veitingu til hennar. Þá er ljóst út frá máli formannsins að vilji borgaryfir- valda stendur til þess að haga málum þannig að kvikmyndahátíðin verði í borginni líkt og fyrri ár með stuðn- ingi Reykjavíkurborgar. Ekki liggur hins vegar fyrir hvaða forsendur þurfa að vera fyrir hendi til þess að Reykja- víkurborg haldi áfram að styrkja hátíðina. n n Skýrsla um kvikmyndahátíðina leiðir til þess að Reykjavíkurborg styrkir hana ekki Trúnaðarmál Einar Örn Benediktsson, formaður mennta- og ferðamálaráðs, segir að skýrslan um starfsemi kvikmynda- hátíðarinnar RIFF sé trúnaðarmál. Óvíst með styrk Svanhildur Konráðs- dóttir, sviðsstjóri menningarsviðs Reykja- víkurborgar, segir að hátíðin hafi ekki vilyrði fyrir styrk frá borginni fyrir árið 2013. Hátíðin vernduð Skýrsla eftirlitsnefndarinnar er skilgreind sem „minnisblað“ og trúnaðarmál til að vernda kvikmyndahátíðina. Hrönn Marinósdóttir er framkvæmdastjóri RIFF og eigandi rekstrarfélags hátíðarinnar. Leyna svartri skýrsLu um riFF Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Um RIFF Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykja- vík, RIFF, var haldin í fyrsta sinn í Reykjavík í nóvember árið 2004 og hefur stækkað ár frá ári hvað varðar fjölda gesta, við- burða og kvikmynda á hátíðinni. Síðari ár hafa fulltrúar annarra þekktra kvikmynda- hátíða sótt RIFF, sem dæmi má nefna Cameron Bailey frá kvikmyndahátíðinni í Toronto, fulltrúa frá kvikmynda- hátíðunum Berlinale, Karlovy Vary og Tribeca. Hátíðinni lauk snemma í október á síðasta ári og aðsóknin var þá, að sögn aðstandenda, sú mesta frá upphafi. Margar stórstjörnur úr heimi kvikmyndanna hafa sótt Reykjavík heim í tengslum við hátíð- ina. Meðal þeirra stærstu má nefna, Costa-Gavras, Dario Argento, Jim Jarmusch, Aki Kauris- mäki og Milos Forman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.