Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2013, Blaðsíða 12
Mögulega teknir saklausir af lífi 12 Erlent 18. febrúar 2013 Mánudagur n Amnesty kostar herferð gegn dauðarefsingum n Vafasöm sönnunargögn leiddu til sakfellingar „Ef þú átt erfitt með að melta þetta, bregstu þá við H erferð sem miðar að því að afnema dauðarefsingu í heiminum hefur vak- ið talsverða athygli undanfarna daga. Þar er sjónunum beint að föngum sem teknir voru af lífi en fengu af ýmsum ástæðum óréttláta málsmeðferð og voru mögulega saklausir á dauðadeild. Það eru mannréttinda samtökin Amnesty International – armur samtakanna í Púertó Ríkó – sem eru kostun- araðili herferðarinnar en þar eru birtar myndir af nokkrum föngum, upplýsingar um glæpina sem þeir áttu að hafa framið og loks hver síðasta máltíð þeirra var. „Ef þú átt erfitt með að melta þetta, bregstu þá við,“ stendur undir myndunum og er vísað á vefslóð þar sem hægt er að skrifa undir undirskrifta- lista gegn dauðarefsingum. Allir eiga fangarnir það sameiginlegt að hafa verið dæmdir til dauða og teknir af lífi í Bandaríkjunum. Er markmið herferðarinnar að benda á þá staðreynd að hver teljist sak- laus uns sekt hans er sönnuð. Væru dauðarefsingar ekki við lýði væru einhverjir þeirra hugsanlega frjálsir í dag. n Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Claude Howard Jones Sakfelldur fyrir: Vopnað rán og morð. Tekinn af lífi: Árið 2000. Jones var sagður hafa gengið inn í verslunina Zell‘s í Texas í nóvember 1989, rænt hana og skotið eiganda hennar, Allen Hilzendager, til bana. Meðal sönnunargagna í málinu var eitt hár sem fannst á vettvangi glæpsins. Hárið var talið vera af höfði Jones og lögðu saksóknarar áherslu á að sönnunargagnið myndi tengja Jones við glæpinn. Árið 2010 var DNA-próf framkvæmt og leiddi það í ljós að hárið tilheyrði honum ekki. Hann viðurkenndi þó að hafa beðið úti í bíl á meðan félagi hann fór inn í búðina og skaut Allen til bana. Jones, sem átti langan afbrotaferil að baki, var hand- tekinn í Flórída þremur vikum eftir skotárásina fyrir bankarán. n Ruben Cantu Sakfelldur fyrir: Rán og morð í San Antonio 1984. Tekinn af lífi: Árið 1993. Cantu var 17 ára árið 1984 þegar tvö ungmenni brutust inn í hús í borginni San Antonio í Texas. Viðgerðir stóðu yfir í húsinu og voru tveir verkamenn, sem höfðu það hlutverk að gæta verðmæta hússins, skotnir af ungu mönnunum. Annar þeirra lést en hinn lifði og benti hann á Cantu í sakbendingu hjá lögreglu. Það óvenjulega var að verkamanninum höfðu í tvígang verið sýndar myndir af Cantu áður en til sakbendingarinnar kom og bar hann þá engin kennsl á hann. Síðar gáfu tvö vitni sig fram, þar á meðal maðurinn sem átti að hafa verið með Cantu umrædda nótt og var einnig sakfelldur, og sagði að Cantu hefði ekki verið með sér umrætt kvöld. Rangur maður hefði verið tekinn af lífi. n Leo Jones Sakfelldur fyrir: Morð á lögreglumanni í Flórída 1991. Tekinn af lífi: Árið 1998. Jones var sendur í rafmagnsstólinn þann 24. mars 1998 eftir að hafa verið dæmdur til dauða fyrir morðið á lögregluþjóninum Thomas Szafranski í Jacksonville árið 1981. Jones sagði við réttarhöldin að hann hafi verið þvingaður til að játa á sig morðið – glæp sem hann framdi ekki. Jones sagðist hafa barinn illa í tólf klukkustundir samfleytt við yfirheyrslur fyrst eftir að hann var handtekinn. Lögregla neitaði þessum ásökunum og var játning hans tekin gild. Szafranski var skotinn af löngu færi og þó svo að fjöldi vitna hefði gefið sig fram og sagst hafa séð mann – sem kom ekki heim og saman við lýsingu á Jones – hlaupa frá vettvangi virtist það ekki koma honum að neinu gagni í vörn sinni. Hann fékk þó ný réttarhöld og ákvað fjölskipaður dómur að dauðadómurinn skyldi standa óbreyttur. Jones var tekinn af lífi viku síðar. n Cameron Willingham Sakfelldur fyrir: Sagður hafa kveikt í húsi sínu með þeim afleiðingum að þrjár dætur hans létust. Tekinn af lífi: Árið 2004. Mál Camerons vakti mikla athygli árið 2009 þegar ítarleg blaðagrein um mál hans birtist í tímaritinu New Yorker. Þar kom fram að gögnin sem saksóknarar lögðu fram til að ná fram sakfellingu hefðu verið meingölluð. Atvikið átti sér stað árið 1991 og var Cameron sagður hafa kveikt í húsi sínu að kvöldi 23. desember. Dætur hans, sú elsta tveggja ára, létust í brunanum. Rannsókn leiddi í ljós að ómögulegt væri að fullyrða að eldurinn hefði kviknað af mannavöld- um. Árið 2010 komst sjálfstæð rannsóknarnefnd að því að flest benti til þess að Cameron væri saklaus og hefði ekki fengið réttláta málsmeðferð. Hann hélt fram sakleysi sínu allt til dauðadags og reyndi að fá dauðadómnum breytt án árangurs. n David Spence Sakfelldur fyrir: Morð á tveimur 17 ára stúlkum og 18 ára dreng. Tekinn af lífi: Árið 1997. Spence var sagður hafa þegið greiðslu fyrir að koma 17 ára stúlku fyrir kattarnef árið 1982. Átti greiðslan að hafa komið frá verslunareigandanum Muneer Deeb sem átti eitthvað sökótt við stúlkuna. Morðið á henni fór út um þúfur þegar vitni urðu að atvikinu og ákvað Spence að binda einnig endi á líf þeirra. Deeb og Spence voru báðir dæmdir til dauða en Deeb fékk ný réttarhöld og var sýknaður árið 1993. Spence var ekki svo heppinn. Meðal gagna sem notuð voru til sakfellingarinnar voru bitför sem fundust á líki annarrar stúlkunnar. Síðar kom í ljós að bitförin voru ekki eftir Spence og viðurkenndi rannsóknarlögreglumaður, sem rannsakaði mál Spence, að rannsókn málsins hefði verið ábótavant og hann efaðist um sekt Spence. Hvað sem því líður væri hann enn í fangelsi hefði hann sloppið við dauðarefsinguna. Nokkru áður en hann var ákærður fyrir morðin hóf hann afplánun á 90 ára fangelsisdómi fyrir morð á átján ára dreng. n Á vettvangi morðs Var ekki á staðnum Barinn við yfirheyrslur Eldurinn ekki af mannavöldum Bitförin ekki hans Egg og brauð Jones bað um steik, átta steikt egg, sex brauðsneiðar með sultu og glas af mjólk áður en hann var tekinn af lífi. Steiktur kjúklingur Cantu lét sér nægja að borða steiktan kjúkling og hrísgrjón áður en hann var líflátinn. Einfalt Síðasta máltíð Jones samanstóð af steik, eggjum, ristuðu brauði og kartöflum. Síðasta máltíðin Hér sést hvað Will- ingham snæddi kvöldið áður en hann var líflátinn; rif, laukhringir og fleira. Kúklingur og franskar Síðasta máltíð Spence samanstóð af kjúklingi, frönskum, súkkulaðiís, kaffi, te og kóki. Ástæður rangra sakfellinga n Ófullnægjandi málsvörn. n Vanræksla lögreglu og ákæruvalds. n Ljúgvitni við yfirheyrslu eða fyrir dómi og vitnisburður óáreiðanlegra sjónarvotta. n Kynþáttafordómar. n Framburður samfanga. n Sönnunargögnum leynt eða þau rangtúlkuð. n Samfélagslegur þrýstingur um að ljúka málinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.