Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Qupperneq 3
Menningarverðlaun 3Helgarblað 8.–10. mars 2013
TónlisT
nefndin Ómar eyþórsson, útvarpsmaður og formaður
Andrea Jónsdóttir útvarpskona dr. Gunni tónlistarmaður
Skálmöld
Hljómsveitin Skálmöld var stofnuð á haustmánuðum árið 2009. Sveitin spilar melódískt þungarokk í víkingastíl og sækir innblástur í
sagnaarfinn og goðafræðina. Hefðbundinni bragfræði er gert hátt undir höfði og vandað er til verka. Meðlimir hafa verið lengi að í íslenskri
tónlist og hafa verið viðloðandi hljómsveitir á borð við Ampop, Hraun, Klamidíu X, Innvortis og Ljótu hálfvitana, en hér heyrast þó þyngri
tónar en frá fyrri böndum. Fyrsta plata Skálmaldar, Baldur, kom út árið 2010 og rekur sögu víkings, allt frá því áður en hann missir allt sitt
í árás – fjölskyldu, bú og land – til dauða og reyndar enn lengra. Eftir þessar raunir hefur hann aðeins eitt markmið, að hefna fyrir vígin og
voðaverkin og fylgjum við honum eftir í þeim aðgerðum. Hvert lag plötunnar er því ómissandi hluti sögunnar og textarnir mjög svo mikil
vægir. Baldur, hefur selst í mörg þúsund eintökum hérlendis og er að öllum líkindum söluhæsta þungarokksplata Íslands frá upphafi. Önnur
breiðskífa Skálmaldar kom út í október 2012 og ber titilinn Börn Loka. Platan var tekin upp á vormánuðum sama ár og var tæknivinnsla og
upptökustjórn í höndum Axels „Flex“ Árnasonar, en hann vann einnig með Skálmöld að fyrri plötunni. Líkt og á Baldri er umfjöllunarefnið í
þjóðlegum stíl, leiksviðið er Ísland til forna, víkingar og norrænar goðsagnaverur eru áberandi og verkið ein samhangandi heild. Sagan segir
frá umrenningnum Hilmari sem fær það verkefni að berjast við afkvæmi Loka – Fenrisúlf, Miðgarðsorm og Hel. Sagan ber hlustandann um
víðan völl og hetjulega bardaga og spannar tilfinningaskalann allan, gleði, sorg, glæsta sigra og missi. Sem fyrr er það Snæbjörn Ragnarsson
bassaleikari Skálmaldar sem semur textana, en Snæbjörn þykir hafa einkar gott vald á íslenskri bragfræði. Börn Loka er því verk með sterkar
íslenskar rætur, flutt af kunnáttu, gríðarlegum krafti og sannfæringu meðlima.
Ásgeir Trausti
Ásgeir Trausti er ungur tónlistarmaður sem kom fyrst fram á sjónarsviðið í sjónvarps
þættinum Hljómskálanum vorið 2012. Þar söng hann lagið Sumargestur sem fangaði
vorstemninguna og um leið huga þjóðarinnar. Ásgeir Trausti fylgdi vinsældum þess lags eftir
með smáskífunni Leyndarmál sem náði gífurlegri hylli og kom honum endanlega á kortið
sem einum efnilegasta tónlistarmanni landsins. Ásgeir Trausti lærði klassískan gítarleik
og tónlistin hefur lengi leikið stórt hlutverk í hans lífi. En það var ekki fyrr en hann bankaði
upp á hjá Guðmundi Kristni Jónssyni (Kidda Hjálmi), upptökustjóra í Hljóðrita, að hjólin fóru
virkilega að snúast. Hljóðprufur sem hann hafði í sínum fórum lofuðu svo góðu að ráðist var
í upptökur undir eins. Sú vinna hefur nú skilað sér í fyrstu breiðskífu Ásgeirs Trausta, Dýrð í
dauðaþögn. Tónlistinni má lýsa sem töfrandi blöndu af þjóðlagapoppi og raftónlist þar sem
fallegar laglínur, gítarplokk og há og falleg rödd Ásgeirs gegna lykilhlutverki.
Moses
Higtower
Moses Hightower skipa þeir Andri Ólafsson
sem syngur og spilar á bassa, Daníel Friðrik
Böðvarsson gítarleikari, Magnús Trygva
son Eliassen trymbill og Steingrímur Karl
Teague sem syngur og spilar á hljóm
borð. Hljómsveitin var stofnuð árið 2007
og kom fyrst um sinn fram sem undirleiks
hljómsveit Dísu (Bryndísar Jakobsdóttur).
Þegar fram liðu stundir heyrðist á öldum
ljósvakans lagið Búum til börn, sem varð
í júlí 2010 titillag fyrstu plötu sveitarinn
ar. Platan inniheldur 10 frumsamin lög
með íslenskum textum, og var gefin út
af hljómsveitinni sjálfri. Önnur plata sveitar
innar, Önnur Mósebók, kom út hjá Record
Records í ágúst 2012. Tekin upp á „analog
tape“ hjá Magnúsi Öder í Orgelsmiðjunni.
En Magnús vann einnig með sveitinni að
fyrstu plötunni. Báðar hafa þær fengið
framúrskarandi góða dóma og selst vel.
Sveitin hlaut fjölda tilnefninga til Íslensku
tónlistarverðlaunanna m.a. fyrir hljómplötu
ársins og lag ársins. Andri Ólafsson hlaut til
nefningu sem söngvari ársins. Sveitin hlaut
verðlaunin sem lagahöfundar ársins og þeir
Andri Ólafsson og Steingrímur Teague hlutu
verðlaun sem textahöfundar ársins.
Retro Stefson
Meðlimir Retro Stefson eru ekki gamlir í árum talið en sveitin hefur verið að slípa sinn hljóm
árum saman. Fyrsta plata sveitarinnar, Montana, kom út 2008 og hefur sveitin varla lagt
frá sér hljóðfærin síðan. Retro Stefson er fyrir löngu orðið eitt allra skemmtilegasta tón
leikaband okkar íslendinga og það eru fáir sem standast dansinn á tónleikum. Kimbabwe,
önnur plata Retro Stefson, kom út 2010 og var sveitin dugleg að fylgja eftir plötunni með
tónleikahaldi hér heima og erlendis. Þriðja plata Retro Stefson kom út í fyrra og ber nafn
sveitarinnar. Platan hefur hlotið gríðarlega góða dóma og fengið frábærar viðtökur og má
sjá og heyra leikskólabörn víðsvegar um landið syngja lög af plötunni sem er frábær mæli
kvarði á vinsældir. Unnsteinn Manuel Stefánsson var tilnefndur sem lagahöfundur ársins
og söngvari ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum. Platan Retro Stefson var tilnefnd sem
hljómplata ársins og hlaut lagið Glow verðlaun sem lag ársins og sveitin sjálf hlaut verðlaun
sem tónlistarflytjandi ársins. Frábært ár hjá ungri sveit sem á nóg inni.