Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2013, Side 6
6 Menningarverðlaun 8.–10. mars 2013 Helgarblað nefndin Símon Birgisson leikhúsrýnir formaður Hlín Agnarsdóttir leikstjóri Valur Grettisson blaðamaður nefndin Jón Proppé formaður Bjarni Sigurbjörnsson listmálari Bergdís Hörn Guðvarðardóttir myndlistarmaður og listfræðingur LeikList MyndList Halldóra Geirharðs Halldóra Geirharðsdóttir er hæfileikarík og fjölhæf leikkona sem ræður við mörg stílbrigði leiklistar, jafnt skapgerðarhlut- verk sem gaman- og trúðsleik. Hún sýndi stjörnuleik í Beðið eftir Godot í sýningu leikhópsins Pörupilta í Borgarleikhúsinu á s.l. vori og stal senunni í hlutverki bak- veikrar nágrannakonu í Gullregni Ragnars Bragasonar. Hún hefur um nokkurt skeið leikið í fastri jólasýningu Borgarleikhússins Jesú litla og nú síðast heimsótti hún aftur á leiksviðið í Ormstungu ásamt Benedikt Erlingssyni. Öll þessi hlutverk sýna þá miklu breidd og næmi sem Halldóra býr yfir sem leikkona og listamaður. Sýning ársins Sviðslistahópurinn 16 elskendur stóð fyrir einni djörfustu leikhústilraun ársins undir heitinu Sýning ársins. Grunnur sýningarinnar var könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir hópinn þar sem hugur og afstaða Íslendinga til leiklistar var skoðuð. Íslensk leiklist hefur liðið fyrir það hve litlum tíma og orku er varið í rannsóknir á sviðslistum. Sýning ársins var bæði djörf leikhústilraun en einnig mikilvægt innlegg í fræðimennsku og skráningu á íslenskri leiklist.Macbeth Macbeth í uppsetningu ástralska leikstjórans Benedicts Andrews var leiklistarviðburður, óhefðbundinn og ögrandi í senn. Sýningunni mætti lýsa sem sviðsgjörningi sem byggði á styttri útgáfu á leikriti Shakespeares, stórkostleg veisla fyrir augað og önnur skynfæri. Öll ytri umgjörð og útlit sýningarinnar ásamt leik, lýsingu og tónlist skiluðu áhrifamikilli leik- sýningu sem tvímælalaust reyndi meira á skynjun en skilning áhorfenda. Finnur Arnar Arnarson Finnur Arnar Arnarson er tilnefndur fyrir sviðsmyndir sínar í leikritinu Jónsmessunótt eftir Hávar Sigurjónsson og Fyrirheitna landinu eftir Jez Buttersworth í leikstjórn Guðjóns Pedersen. Báðar þessar sviðs- myndir sína styrkleika Finns Arnars sem leikmyndahöfundar. Hann hefur einstakt næmi fyrir hugmyndaheimi þeirra leikverka sem hann vinnur við og er fundvís á frum- legar lausnir. Áðurnefndar leikmyndir Finns Arnar bera þessu órækt vitni í sjónrænni útfærslu sinni, ekki síst leikmyndin í Jónsmessunótt. Egill Heiðar Anton Pálsson Egill Heiðar hefur leikstýrt og sett upp fjölda sýninga í Danmörku og Þýskalandi. Í haust sneri hann heim og setti upp leikritið Leigumorðingjann hjá Leikfélagi Akureyrar. Sú sýning var framsækin og full af húmor og sýndi allar sterkustu hliðar Egils sem leikstjóra. Egill Heiðar hélt svo til höfuðborgarinnar og leikstýrði í Nemandaleikhúsinu eftirminnilegri og athyglisverðri leiksýningu sem hann byggði á tveimur verka sænska leikskáldsins Augusts Strindberg, Fröken Júlíu og Leikið að eldi. Ragnheiður Jónsdóttir Ragnheiður Jónsdóttir á sér langan feril í myndlist og hefur lifað og stundum verið leiðandi í þeim miklu umbrotum sem orðið hafa í íslenskri myndlist síðustu ára- tugi. Hún var leiðandi listamaður í þeirri miklu grafíkvakningu sem setti svo sterk- an svip á íslenska myndlist á áttunda ára- tugnum. Sumar myndir hennar frá þeim tíma eru orðnar að eins konar þjóðareign – táknmyndir kvennabaráttu og nýrrar samfélagshugsunar. Seinna sneri Ragn- heiður sér að teikningu og hafa sýningar hennar síðustu tvo áratugi opnað nýja sýn á möguleika þess miðils – látlausasta myndlistarmiðilsins. Á síðasta ári hélt Ragnheiður sýningu á nýjustu verkum sínum í Listasafni ASÍ en á sama tíma var sett upp stór yfirlitssýning á verkum hennar í vestursal Kjarvalsstaða. Angelus Novi Angelus Novi er yfirskrift að samstarfi Steinunnar Gunnlaugsdóttur myndlistar- manns og Ólafs Páls Sigurðssonar sem meira hefur undanfarin ár unnið að kvikmyndagerð. Þau eru hins vegar bæði mjög virk í pólitísku starfi – eru það sem oft er kallað „aktívistar“. Með sýningu sinni í Nýlistasafninu í haust tókst þeim það sem engum öðrum á myndlistarsviðinu hefur tekist, að búa til verk sem á íhugulan hátt taka á því efnahagslega og pólitíska hruni sem hér varð árið 2008. Sýningin var beitt og að mörgu leyti erfið – eins og góð pólitísk myndlist hlýtur alltaf að vera – en hvergi var heldur gefið eftir þegar kom að fagurfræðilegri hugsun eða táknrænni úrvinnslu verkanna. Kunstschlager Kunstschlager er samstarfsvettvangur ungra myndlistarmanna – listamannarekið gallerí við norðurenda Rauðarárstígsins í Reykjavík. Þar hefur nú um nokkurra missera skeið verið haldið úti öflugri sýningaröð, auk þess sem aðstandendur gallerísins hafa haft verk sín til sýnis og sölu. Þetta látlausa gallerí í hornrými þar sem áður var kvenfataverslun er nýjasta vitnið um þann kraft sem ungir myndlistamenn á Íslandi hafa lengi haft til að búa sér sjálfir til vettvang til að sýna list sína og miðla hugmyndum sínum til almennings. Sýningarstaðir sem þannig var stofnað til hafa verið leiðandi í íslenskri myndlist í meira en sjötíu ár: Listamannaskálinn, SÚM, Suðurgata 7, Nýlistasafnið, Kling og Bang. Kunstschlager gengur inn í þessa sögu. Sigurður Guðjónsson Sigurður Guðjónsson hefur sérstaka sýn og hefur fyrir löngu markað sér sess sem einn af okkar helstu vídeólistamönnum. Þessi miðill – mynd- listarverk á myndbands- eða kvikmyndaformi – á sér orðið nokkuð langa sögu á Íslandi þótt hún hafi lítið verið skráð fyrr en Harpa Þórs- dóttir lagði á sig mikla grunnvinnu við að taka saman heilmildir fyrir listasöguútgáfuna síðustu. Myndheimur Sigurðar er dökkur og getur kannski við fyrstu sýn virst þungur en með því að beina sjónum sínum (og linsum) að einföldum hlutum tekst honum að vekja upp tilfinningu fyrir fegurðinni þar sem við síst myndum vænta hennar. Gálgaklettur - Ólafur Gíslason Gálgaklettur var umfangsmikil sýning í Vestursal Kjar- valsstaða þar sem Ólafur Gíslason dró saman í eina heild heimspekilegar hugmyndir sínar út frá starfi Jóhannesar Kjarval og ýmissa annarra íslenskra listamanna. Kjarval þekkja allir en færri vissu kannski að að hann fór aftur og aftur á sama stað, í Álftaneshrauni, þar sem hann setti upp trönur sínar og málaði sama klettinn – Gálgaklett – aftur og aftur, ár eftir ár. Sumir hafa kannski talið þetta einhvers konar þráhyggju en á sýningunni og í fyrirlestr- um henni tengdri sýndi Ólafur fram á það hvernig einmitt þessi endurtekning – þessi löngu átök við sama efni – geta verið uppspretta nýsköpunar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.