Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2013, Qupperneq 14
Sandkorn
T
ónlistarhúsið Harpa átti að
leysa ansi mörg vandamál.
Sinfóníuhljómsveit Íslands
var orðin langþreytt á því að
spila klassíska tóna í bíósal.
Frægir popparar vildu stærri og fínni
tónleikasali en skemmtistaði og bari
í miðbænum. Og Íslenska óperan
glímdi við rekstur sem gekk ekki upp
í hinu sögufræga Gamla bíói.
Harpa gat leyst vandamál allra á
einu bretti. Kostnaðurinn fór reynd
ar úr böndunum – hækkaði úr tólf
milljörðum í 28 milljarða. Og fram
lög ríkis og borgar dugðu skammt
fyrir rekstrinum og þurfti fljótt að
hækka. Strax kviknuðu viðvörunar
ljós.
Íslenska óperan komst svo að því,
þegar Töfraflautan var sett upp fyr
ir tveimur árum, að húsið hafði alls
ekki verið hannað með þarfir óperu
flutnings í huga. Hliðardyr á sviði svo
lágar að ekki er hægt að ýta sviðs
myndum inn og út af sviðinu; ekkert
geymslupláss er til staðar og bún
ingahönnuðir þurftu að geyma verð
mæta búninga í bílageymslunni.
Stefán Baldursson óperustjóri var
í viðtali í DV á mánudaginn. Þar fór
hann yfir stöðu Íslensku óperunn
ar í dag. Hann lýsti því hve vonlaust
rekstrardæmi Gamla bíó hafði verið.
Þrátt fyrir framlög ríkisins og full
an sal komust ekki nægilega margir
áhorfendur fyrir til að sýningar gætu
borið sig. Þess vegna var krafan um
flutning alltaf svo hávær.
Þrátt fyrir flutninginn í Hörpu,
þar sem 1.200 manns komast fyrir í
salnum, er vandamál Íslensku óper
unnar enn óleyst. Nú þarf að tak
marka sýningar, þrátt fyrir að uppselt
sé á allar sýningar. Útskýring Stefáns
var sú að stór hluti framlags ríkis
ins til Íslensku óperunnar færi nú í
húsaleigu.
„Svo er húsaleigan vandamál … í
dag fer verulegur hluti af ríkisstyrkn
um í húsaleigu. Það var ekki raunin í
Gamla bíói,“ segir Stefán.
Tilvistarkreppa Íslensku óper
unnar heldur því áfram. Að minnsta
kosti hentaði Gamla bíó vel til leik
sýninga – sem sést bersýnilega á því
að Borgarleikhúsið hefur nú leigt
húsið fyrir leiksýningar í vetur. Erfið
leikarnir eru ærnir í Hörpu og fjár
hagsvandræði Íslensku óperunnar
eru þau sömu því stór hluti ríkis
styrksins fer í að borga leigu.
Það er orðið tímabært að gera út
tekt á því hvað fór úrskeiðis í hinu
mikla Hörpuævintýri. Kostnaður
inn er löngu orðinn stjórnlaus, fréttir
hafa birst af ofurlaunum þeirra sem
sátu í hinum ýmsu ráðum og nefnd
um tengdum Hörpu og lamandi
áhrif Hörpu á aðra menningarstarf
semi í borginni eru smám saman að
koma í ljós.
Kannski er þetta risavaxna hús
líka skýrasta dæmið um hvað ger
ist þegar finna á eina lausn á öll
um vandamálum. Stundum verður
lausnin sjálf að stærra vandamáli –
líkt og dæmið af Íslensku óperunni
sýnir.
Frjálst fall
Framsóknar
n Það blæs ekki byrlega
fyrir Framsóknarflokknum
á fyrstu mánuðum stjórn
arsetu hans. Flokkurinn
myndi tapa fimm þing
mönnum ef marka má skoð
anakönnun Stöðvar 2. Á
sama tíma er Sjálfstæðis
flokkurinn á fleygiferð upp
í fylgi. Þetta þýðir að Fram
sókn er í frjálsu falli. Ástæð
an er væntanlega sú að kjós
endur telja víst að risastóru
kosningaloforðin verði að
mestu svikin.
Andri Freyr
skammaður
n Jónas Kristjánsson, fyrr
verandi ritstjóri, skrifaði
harðorðan
pistil á blogg
sitt þar sem
hann talar
um siðblindu
fréttabarna.
Vill hann
meina að
fjölmiðlar ráði siðblinda til
að spara. Nefnir hann þar
sérstaklega Andra Frey Við
arsson útvarpsmann og
þáttastjórnanda Sjónvarps
ins. „Dæmi um það er aug
lýsing Andra Freys Viðars
sonar á hamborgurum. Með
sama áframhaldi verður
fjölmiðlun að skrípó frétta
barna, markaðsbarna, dag
skrárbarna og einkum sið
blindingja,“ bloggar Jónas.
Moggi um Mogga
n Stefán Gunnar Sveinsson,
blaðamaður á Morgun
blaðinu, sendi frá sér bók
ina Búsáhaldabyltingin –
sjálfsprottin eða skipulögð,
fyrr á þessu ári. Í laugar
dagsblaði Morgunblaðsins
skrifar annar sjálfstæð
ismaður og blaðamaður
Morgunblaðsins, Börk-
ur Gunnarsson, dóm um
bókina. Athygli vekur að í
dómnum er lítið fjallað um
bókina, en meira um „öfga
vinstriöflin“ sem græddu
á „ofbeldinu“. Auk þess er
kolleganum hrósað fyrir
að skoða atburðina með
„óháðum augum“.
Jaðarfyrirbæri
n Þorbjörn Broddason, pró
fessor í fjölmiðlafræði, ræðst
með óvenju harkalegum
hætti að Morgunblaðinu
vegna meintrar þjónkunar
Davíð Odds-
sonar við út
gerðarmenn
í landinu.
„Eftir að
Morgun
blaðið komst
síðan í eig
ur útvegsmanna og ræður
Davíð Oddsson sem ritstjóra
er það ekki svipur hjá sjón.
Morgunblaðið er orðið að
...,“ segir Þorbjörn við Eyj
una.
Stór sigur fyrir
mig
Það er gott að hafa
kunnuglegt andlit
Dagbjört Steinarsdóttir sigraði Álverið og VÍS. – DV Nanna Elísa Snædal starfar með föður sínum, Jakobi Bjarnari á Vísi. – DV
Þegar lausnin verður vandamál
„Kannski er kom-
inn tími til að útkljá
þessa baráttu í eitt skipti
fyrir öll
Þ
etta er pólitískt ástand,“
sagði gamall blaðamaður í
spjalli fyrir nokkrum dög
um og vísaði til stöðunnar á
fjölmiðlamarkaði í dag. Með
orðum sínum vísaði blaðamaður
inn til þess að allir þrír stóru fjöl
miðlar landsins hafa á liðnum árum
sætt augljósum afskiptum frá yfir
boðurum sínum eða eigendum sem
segja má að séu pólitísk og óeðli
leg. Fyrir vikið er frjáls fjölmiðlun í
landinu í nokkurri hættu.
Sá atburður sem hefur skap
að farveginn fyrir þessi orð blaða
mannsins núna er sú ákvörðun
Illuga Gunnarssonar menntamála
ráðherra að leggja fram frumvarp
um breytingar á lögum um Ríkis
útvarpið og láta Alþingi aftur sjá
um að kjósa stjórn yfir stofnunina.
Í krafti meirihluta síns á þingi get
ur ríkisstjórnin beitt valdi sínu til
að kjósa þá fulltrúa sem hún vill.
Þannig var fyrirkomulagið um skip
un stjórnar RÚV þar til á síðasta
kjörtímabili þegar lögum um stofn
unina var breytt: Þá var val stjórn
arinnar að hluta fært út fyrir veggi
Alþingis, meðal annars til Banda
lags íslenskra listamanna sem átti
að tilnefna einn mann í stjórn. Þau
lög, sem samþykkt voru á Alþingi í
mars síðastliðnum, áttu að tryggja
ákveðna valddreifingu við skipun
stjórnar RÚV. Með lagafrumvarpi
Illuga er horfið frá þessari vald
dreifingu og ákvarðanatakan um
stjórnarmennina færð aftur alfarið
til Alþingis.
Davíðsdaður
Umræðan sem farið hefur í gang
eftir að þessi ákvörðun ráðherrans,
sem af mörgum var talinn nokk
uð hreinlyndur stjórnmálamaður
og ólíklegur til misbeita valdi sínu,
er að Illugi sé með frumvarpinu
meðal annars að þóknast fyrrver
andi formanni Sjálfstæðisflokksins,
Davíð Oddssyni, núverandi ritstjóra
Morgunblaðsins. Illugi var sem
kunnugt er aðstoðarmaður Davíð
til margra ára. Davíð hefur í pistla
skrifum sínum í Morgunblaðinu
haft horn í síðu Ríkisútvarpsins og
gagnrýnt stofnunina harðlega fyrir
meinta þjónkun við Samfylkinguna
og Evrópusambandið. Ritstjóran
um núverandi hefur verið lýst sem
aftur sætisbílstjóra Sjálfstæðis
flokksins sem togar í spotta bak við
tjöldin og reynir að hafa bein áhrif
á ráðamenn flokksins með skrifum
sínum i Mogganum – hver man ekki
eftir því þegar hann kallaði Bjarna
Benediktsson „vikapilt Steingríms“
út af stuðningi hans við Icesave
frumvarp síðustu ríkisstjórnar.
Þessi umræða um Davíðsdaður
Illuga fær byr undir báða vængi þar
sem rök ráðherrans fyrir þessari
ákvörðun sinni hafa ekki komið
fram með sannfærandi hætti. Laga
frumvarpið virðist vera pólitískt
í eðli sínu; gert til að færa valdið
yfir RÚV til stjórnmálamanna í
flokkspólitískum tilgangi svo auð
veldara verði að hafa hagsmuna
tengdan hemil á þessari stofnun
sem oft hefur verið þyrnir í aug
um sjálfstæðismanna út af meintri
vinstri slagsíðu. Frumvarp Illuga,
eins óskiljanlegt og það er, sendir
að minnsta kosti ekki góð skilaboð
til landsmanna um það sem koma
skal.
Tveir valdaðir fjölmiðlar
Þetta frumvarp Illuga er sérstaklega
varhugavert í ljósi þess að Davíð
Oddsson fer sjálfur fyrir þeim fjöl
miðli á Íslandi sem stundar grímu
lausustu hagsmunagæslu allra
miðla hér á landi. Morgunblaðið
var keypt í þeim eina tilgangi út
gerðarmannanna sem leggja því
til fé að berjast gegn síðustu rík
isstjórn, vinna gegn aðild Íslands
að Evrópusambandinu, tala gegn
upptöku veiðigjalda og í alla staði
vernda hagsmuni LÍU og útgerðar
innar sem slíkrar. Mogginn er bæði
flokkspólitískt vopn og eins tæki út
gerðarmanna til að standa vörð um
sína hagsmunastöðu.
Með hugsanlegum pólitískum
afskiptum af skipan stjórnar RÚV,
sem kunna að vera runnin und
an rifjum Davíðs Oddssonar sjálfs,
og mögulegum mannabreyting
um innanhúss í krafti þessa póli
tíska valds, verða tveir af stærstu
fjölmiðlum landsins komnir undir
beina og óbeina stjórn aðila tengd
um Sjálfstæðisflokknum. Líkurnar
á því að í þessum tveimur miðlum
komi fram gagnrýni á núverandi
ríkisstjórn, og það ægivald sem LÍÚ
og stórútgerðin hefur í íslensku
samfélagi, verða að teljast litlar.
Þannig geta þessir tveir miðlar ver
ið notaðir til að valda ríkisstjórnina.
Þáttur Jóns Ásgeirs
Þá stendur eftir þriðji stóri fjöl
miðillinn, 365 miðlar, sem heldur
úti Fréttablaðinu og Stöð 2, með
al annars. Hræringarnar á þeim
miðli síðustu mánuði sýna fram á
þau miklu afskipti sem eigendur
fyrirtækisins, Jón Ásgeir Jóhannes
son og Ingibjörg Pálmadóttir, hafa
af honum. Jón Ásgeir hefur hert tak
sitt á miðlinum og efnistökum hans
með þessum afskiptum og hefur
gert mörgum ágætum fjölmiðla
mönnum ófært að starfa á miðl
inum í ljósi þessara afskipta. Þau
afskipti eru líka hagsmunatengd,
líkt og á Mogganum, þar sem frétt
um um Jón Ásgeir sjálfan, viðskipti
hans og rannsóknir opinberra að
ila á honum hefur farið minnkandi.
Trúverðugleiki 365 er verulega
laskaður út af þessari harðnandi
beitingu eigendavalds og hafinn
er fólksflótti frá miðlinum með til
heyrandi spekileka sem aftur bitnar
á efnistökunum.
Staðan er því sú að ástandið
á fjölmiðlamarkaði er pólitískt:
Stjórnmál og eigendavald hafa,
eða gætu, spillt þremur stóru fjöl
miðlum landsins þannig að frjáls
og óháð miðlun upplýsinga fái
ekki þrifist þar. Þetta er vitanlega
varhugaverð þróun þar sem fjöl
miðill getur verið pólitískt valda
tæki. Við þekkjum harmsögu Mogg
ans og 365 en nú eru teiknin líka á
lofti með Ríkisútvarpið: Hvaða af
leiðingar mun frumvarp Illuga hafa
á yfirstjórn og efnistök RÚV?
„Pólitískt ástand“
Kjallari
Ingi F. Vilhjálmsson
ritstjórnarfulltrúi skrifar
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Fréttastjóri menningar: Símon
Birgisson (simonb@dv.is) Ritstjórnarfulltrúi: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjónarmaður helgarblaðs og innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og
vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
14 3. júlí 2013 Miðvikudagur
Illskiljanlegt Ákvörðun
Illuga Gunnarssonar
menntamálaráðherra um
breytingar á skipun stjórnar
RÚV er illskiljanleg.
Leiðari
Símon Birgisson
simonb@dv.is