Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2013, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2013, Page 20
Ég verð glaður ef ég kemst lifandi í mark É g held að ég hafi bara verið maraþonhlaupari í fyrra lífi,“ segir Pétur Jóhann Sigfús­ son uppistandari, sem býr sig þessa dagana undir að hlaupa 21 km í Reykjavíkurmara­ þoni Íslandsbanka. Silja Úlfarsdóttir, einkaþjálfari, hefur verið með Pétur Jóhann í þjálfun undanfarið og segist hissa á hvað hann er góðu formi. „Ég hef fulla trú á að hann klári þetta með glans. Það tók hann svolítinn tíma að finna rétta andann. Í byrjun mætti hann aðeins þrisvar af átta bókuðum tímum með mér. Hann þurfti aðeins að endurskipuleggja sig til að gefa æfingunum meiri tíma,“ segir Silja um framganginn. Forrest Gump augnablik „Lífið er alltaf að flækjast fyrir,“ út­ skýrir Pétur Jóhann spurður um mætinguna sem er nú kominn á gott ról. Þetta er bara gaman og ég held að þetta gangi bara ágæt­ lega. Ég hljóp samkvæmt skipun­ um 9 kílómetra á laugardag og ætl­ aði bara að aldrei að geta stöðvað,“ segir hann og hlær. Hann segir fjölskyldumeðlimi stolta af sér og þótt enginn úr fjöl­ skyldunni ætli sér að hlaupa með honum fylgjast þeir vel með og styðja við bakið á honum. „Það eru allir voða ánægðir með þetta og það hefur orðið vakning í fjöl­ skyldunni. Það ætlar enginn að hlaupa með mér úr fjölskyldunni, en einhverjir ætla að hlaupa með mér. Nokkrir af auglýsingastofunni ENNEMM til að mynda, kannski fylgja fleiri og það verða góð Forrest Gump augnablik í þessu hlaupi.“ Markið skrúfað niður klukkan 3 Hann segist ekki óttast að ná ekki tilsettu marki. „Þetta er bara skemmtiskokk. Maður nær lengri vegalengd ef maður er á jöfnum þægilegum hraða. Þú kemst yfir þreytuhjall eftir 1 til 2 kílómetra og þá er eftirleikurinn auðveldari,“ segir Pétur Jóhann. „Ég verð glaður ef ég kemst lif­ andi í mark. Hlaupið byrjar hálf níu og þeir byrja að skrúfa markið niður klukkan þrjú. Ég stefni á að vera kominn yfir marklínuna áður en þeir skrúfa niður markið.“ Jákvæðnin skiptir máli Margir fylgjast með framtaki Péturs Jóhanns sem hleypur und­ ir viðurnefninu „Maraþonmaður­ inn“. Silja Úlfarsdóttir segist fara rólega í að byggja upp þol og styrk. Þá gera þau æfingar sem fyrir­ byggja meiðsli enda er markið sett hátt fyrir byrjanda. „Við gerum æf­ ingar sem fyrirbyggja meiðsli. Ger­ um æfingar sem eru notaðar af sjúkraþjálfurum til að styrkja miðj­ una og mjaðmirnar. Það er aldrei leiðinlegt á æfingum, ég get sagt þér það. Hann er alltaf í gírnum.“ Silja og Pétur Jóhann stunda æfingar í Kaplakrika og hlaupa á grasi eða á hlaupabretti til að minnka hættuna á meiðslum. „Ég er ekki tilbúin að fara með hann á malbikið strax. Kári Steinn setti upp hlaupaplan fyrir okkur og við erum svona að fikra okkur eftir því. Notum það sem leiðarljós. Í plan­ inu er mælt með rólegu skokki, um daginn hlupum við 6 kílómetra og þá var hlaupið og gengið til skipt­ is. Gangan er þá notuð sem gulrót. Ég held að hann eigi eftir að koma skemmtilega á óvart. Hann er mjög jákvæður og það fleytir fólki langt.“ n 20 Lífsstíll 3. júlí 2013 Miðvikudagur Hvað er best að borða fyrir hlaup? n Eplabiti getur valdið vindgangi Þ egar útihlaup eru orðin fastur liður á dagskránni er mikilvægt að næra líkamann vel. Það er aldrei ráðlegt að hlaupa með tóman maga, það getur valdið slæm­ um höfuðverkjum, magakrampa og blóðsykurfalli sem getur leitt til yfirliðs. Þá geta vissar fæðutegundir valdið erfiðleikum við æfingar, að borða epli getur til að mynda valdið vindgangi og hver vill eiga það á hættu á hlaupum eða í ræktinni. n Matarhugmyndir 2 klukkustundum áður n 300 til 400 kaloríu máltíð sem inni- heldur kolvetni, prótín og holla fitu. n Kínóagrjón og grillaður kjúklingur. n Heilhveitipasta með osti og grænmeti. n Samloka með hnetusmjöri. n Grísk jógúrt með ávöxtum, hnetum og múslí. n Vefja með grilluðum fiski, avókadó og mangó. n Omeletta með ristuðu brauði. 1 klukkustund áður n 150 kaloríu millibiti sem inniheldur auðmeltanleg kolvetni og prótín. n Ristað brauð með möndlusmjöri. n Banani og handfylli af Kashew-hnetum. n Lítil skál af morgunkorni. 15 til 30 mínútum áður n Lítill skammtur af auðmeltum kolvetnum: n Banani n Eplamús n Rúsínur n Þurrt tekex Forðist n Brokkólí, laukur, baunir og fæðu með hátt fituinnihald, rjómalagaðar súpur, franskar, hamborgara, ís. Fæða sem kallar fram vindgang n Perur n Epli n Melónur Flókin kolvetni n Pasta, gulrætur, heitar máltíðir og allt ofangreint. Eldsneytið skiptir máli Best er að vanda vel bitann áður en farið er út að hlaupa. Vatnsdrykkja er nauðsyn Drekkið um hálfan lítra af vatni einni til tveimur klukkustundum áður en farið er út að hlaupa. Drekkið svo örlítið rétt áður. n Pétur Jóhann skrópaði á nokkrar æfingar n Aldrei stundað líkamsrækt Á hlaupabrettinu Þegar þessi mynd er tekin hefur Pétur Jóhann hlaupið 6.5 km og er afar stoltur af. Þjálfar Pétur Silju Úlfarsdóttur kom á óvart í hversu góðu formi Pétur er. „Þeir byrja að skrúfa markið niður klukkan 3, ég vona að ég nái því.Mundu eftir mjöðmunum Fyrir hlaupara er algjör nauðsyn að styrkja mjaðmir eins og Silja Úlfars­ dóttir bendir á. Styrkar mjaðmir og mjúkir liðir geta komið í veg fyr­ ir meiðsli neðst í baki. Þessi teygja sem sýnd er hér á mynd að ofan reynist góð til að opna mjaðmir og styrkja. Hún er kölluð „eðlan“. Um hálfmaraþon: Ekki á allra færi Hálfmaraþon er 21,1 km langt. Í fyrsta Reykjavíkurmaraþon­ inu árið 1984 tóku 68 þátt í hálfu maraþoni en árið 2012 voru 2.004 hlauparar skráðir til þátttöku. Þátttakendur Allir sem náð hafa 15 ára aldri geta skráð sig og tekið þátt í hálfmara­ þoni Reykjavíkurmaraþonsins. Ekki er mælt með því að óvan­ ir hlauparar taki þátt í þessari vegalengd enda ekki á allra færi að hlaupa rúma 21 kílómetra. Skráning Skráning í maraþon fer fram á vef Reykjavíkurmaraþons en einnig er hægt að skrá sig á skráningarhátíð daginn fyrir hlaup. Athugið þó að þátttökugjald hækkar eftir því sem nær dregur hlaupi og því borgar sig að skrá sig tímanlega.  Leiðin Hlaupið hefst eins og aðrar vegalengdir Reykjavíkurmara­ þonsins í Lækjargötu fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík og end­ ar á sama stað. Hlaupið er um eft­ irfarandi götur og stíga:  Lækjargata, Fríkirkjuvegur, Skothúsvegur, Suðurgata, Lyng­ hagi, Ægisíða, Nesvegur, Suður­ strönd, Lindarbraut, Norðurströnd, Eiðsgrandi, Ánanaust, Fiskislóð, Grunnslóð, Grandagarður, Mýrar­ gata, Geirsgata, Kalkofnsveg­ ur, Sæbraut, stígur við Kletta­ garða, Klettagarðar, Sundagarðar, Vatnagarðar, Sægarðar, Sæbraut, Kalkofnsvegur og Lækjargata.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.