Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2013, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.2013, Side 23
Menning 23Miðvikudagur 3. júlí 2013 Til hamingju með fallið sínar og eru flestir sammála um að þetta sé þeir bestu sem þeir hafa séð. Birgitta Jónsdóttir Pírati segist hafa verið að sjá hann í tíunda sinn og aldrei jafn góðan. Svalasti maður í heimi Brátt byrja þó sögusagnirnar að breiðast út. Nick Cave hefur ver­ ið keyrður upp á slysó, rófubeins­ brotinn og með gat á höfði. Hann hefur sést baksviðs reykjandi jónu í lækningaskyni. Hann þarf að sleppa Glastonbury hátíðinni daginn eftir. Að lokum kemur í ljós að vissulega fór hann á Fossvogs­ spítala, en meiðslin voru bless­ unarlega ekki alvarleg. Það er þó eitthvað við það að sjá svalasta mann í heimi detta á rassinn sem gerir það að verkum að manni líð­ ur betur með sjálfan sig. Nick Cave hefur oft trúarlegt þema í lögum sínum, en seg­ ist sjálfur alls ekki svo viss um til­ vist guðdómsins þó honum þyki það skemmtileg hugmynd. Það er kannski eins gott að hann lagði fyrir sig rokktónlist frekar en trúar­ brögð, því enginn gengur ófrelsað­ ur út af Nick Cave tónleikum. n Tók mörg af sínum bestu lögum Stagger Lee og Red Right Hand voru há- punktur tónleikanna. Myndir STeingríMur bjarnaSon Stórleikari látinn Róbert Arnfinnsson leikari lést aðfara nótt þriðjudags, á nítugasta aldursári. Hann fæddist í Leipzig í Þýskalandi árið 1923, bjó lengst af í Kópavogi en bjó á dvalarheimilinu Grund þegar hann lést. Róbert var einn af helstu leikurum þjóðarinnar. Hann lék um 230 hlutverk á ferlinum – flest í Þjóðleikhúsinu og hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir sín störf á ferlinum. Árið 2007 hlaut Róbert heiðurs verðlaun Leiklistarsambands Íslands á Grímuverðlaununum. Nánar verður fjallað um líf og feril Róberts í helgarblaði DV. Hér sést hann með Herdísi Þorvaldsdóttur leikkonu. Drykkja, læti og leiðindapúkar n Ungir sviðslistamenn rannsaka næturlífið á Austurlandi U tanbæjarmenn með læti, of mikil drykkja og leiðinda­ púkar eru helstu orsak­ ir lélegs næturlífs,“ segir Pétur Ármannsson leikari sem fer fyrir hópi sviðslistafólks sem frumsýnir sýninguna Næturlíf á föstu daginn í Sláturhúsinu á Egils­ stöðum. Hópurinn kallar sig Til­ raunaleikhúss Austurlands og hef­ ur rannsakað næturlíf og mikilvægi þess í smábæjum jafnt og stórborg­ um. Meirihluti hópsins er fæddur og uppalinn á Fljótsdalshéraði og hef­ ur eytt síðustu árum í listnám fjarri heimaslóðum. „Við erum öll fædd og uppalin á Austfjörðum fyrir utan einn með­ lim hópsins sem kemur frá Brighton í Englandi. Leiðir okkar lágu í list­ nám, bæði hér heima og erlendis og nú má segja að við séum að snúa aftur til heimahagana með sýningu sem okkur þykir mjög spennandi,“ segir Pétur. Auk Péturs skipa Hjálmar Baldurs­ son hönnuður, Brogan Davison danshöf undur, Bjarni Rafn Kjartans­ son tónl istar maður og Jónas Reynir Gunnars son texta smiður, hóp inn sem stofnaður var í byrjun sumars. „Hugmyndin að sýningunni kviknaði þegar ég og Brogan vor­ um úti í Berlín. Við fórum mik­ ið á klúbba og skemmtistaði og fannst andrúmsloftið allt öðruvísi en heima á Íslandi. Það var eins og fólk væri afslappaðra og vildi bara skemmta sér saman. Við spurðum okkur því – af hverju er því ekki eins farið hér?“ Pétur segir sýninguna unna undir formerkjum samsköpunarleikhúss­ ins þar sem eigin upplifanir og minn ingar leiða af sér persónulegar sýn ingar. Hópurinn vinnur út frá eigin vandamálum tengdum nætur­ lífi, félagslegu óöryggi, fortíðarþrá og ótta við að fullorðnast. Sýningar eru út júlí. n Tilraunaleikhús austurlands Hópinn skipa Hjálmar Baldurs- son, Bjarni Rafn Kjartansson, Pétur Ármannsson og Brogan Davison.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.