Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2013, Page 19
Menning 19Mánudagur 21. október 2013
Brjáluð ást
L
íf Adèle, líka kölluð Blue
is the warmest color, er
nýjasta kvikmynd fransk-
túniska leikstjórans
Abdellatif Kechiche. Myndin
hlaut Gullpálmann á Cannes-
kvikmynda hátíðinni í ár og var
þetta í fyrsta skipti í sögu hátíðar-
innar sem verðlaunin voru af-
hent bæði leikstjóranum og aðal-
leikurum myndarinnar. Myndin
er byggð á teikninmyndaskáld-
sögunni Le bleue est un couleur
chaude eða Blár er heitur litur eft-
ir Julie Maroh.
Líf Adèle er í senn þroska- og
ástarsaga sem fjallar um 15 ára
unglingsstúlku að nafni Adèle
(Adèle Exarchopoulos). Líf hennar
tekur kollsteypu þegar hún kynn-
ist eldri stúlku, bláhærða list-
nemanum Emmu (Léa Seydoux).
Brátt áttar Adèle sig á því að hún
hneigist fremur að sama kyni og
úr verður ástríðufullt samband
stúlknanna tveggja.
Líf Adèle er einhver mest gríp-
andi ástarsaga sem sést hefur
á hvíta tjaldinu í þó nokkur ár.
Myndin er þriggja klukkutíma
rússíbanareið full af mannlegum
tilfinningum. Enga einföldun
á mannlegu eðli er að finna –
myndin er beinskeytt, hreinskilin
og felur ekkert. Myndin hefur ver-
ið umdeild eftir að aðalleikkon-
urnar tvær lýstu því yfir að upp-
tökurnar á kynlífsatriðunum, sem
eru afar löng og náin, hafi stund-
um verið niðrandi fyrir þær. „Mér
leið eins og vændiskonu,“ sagði
Seydoux á dögunum. Það má deila
endalaust um hvort senurnar
flokkist undir klám eða erótík (rit-
höfundur bókarinnar Julie Maroh
fannst þær klámfengnar og óþarf-
ar) en eitt er víst – að þær auka á
ástríðuþrungna spennu milli aðal-
persónanna og gera þessa sögu af
„amour fou“ eða brjálaðri ást enn
trúverðugri.
Það kemur ekki á óvart að aðal-
leikkonurnar tvær, Exarchopoulos
og Seydoux, hafi deilt Gullpálm-
anum á milli sín og leikstjórans,
enda leika þær báðar framúrskar-
andi vel í myndinni. Seydoux
sýnir stjörnuleik sem hinn öflugi
og lífsreyndi eldri elskhugi. Ex-
archopoulos náði að fanga hjarta
undirritaðs með frammistöðu
sinni en hún nær fullkomlega
hinni brothættu áru ráðvillts ung-
lings. Að þessu leyti minnti Líf
Adèle mig örlítið á hina sígildu
Fucking Åmål eftir Lukas Moodys-
son, sem einnig var sýnd á RIFF
í ár – eini munurinn er kannski
að skandinavískri örvæntingu er
hér skipt út fyrir eilítið hlýrra and-
rúmsloft Miðjarðarhafsins. n
Dulin heimssýn
undir yfirborðinu
n Mótsagnakennd og skemmtileg n Notar dæmi úr kvikmyndum
H
andbók hugmyndafræði-
perrans er nýjasta sam-
starfsverkefni breska leik-
stjórans Sophie Fiennes og
slóvenska heimspekingsins
Slavoj Žižek. Myndin er eins kon-
ar framhald af heimildamyndinni
Handbók kvikmyndaperrans en í
báðum myndunum stiklar Žižek á
stóru um kenningar sínar og notar
hinn dulda táknheim kvikmyndanna
til að útskýra þær frekar. Þá skal þess
getið að auk þess að vera undir mikl-
um áhrifum frá þeim Freud, Marx og
Hegel, tilheyrir Žižek skóla franska
sálgreinisins Jacques Lacan.
Undir yfirborði menningarinnar
Í Handbók hugmyndafræðiperrans
eru kvikmyndir ekki eini fókusinn
heldur notar Žižek einnig dæmi úr
poppkúltúr, neyslukúltúr og úr frétt-
um síðustu áratuga til að gefa sínar
einstöku útskýringar á hugmynda-
fræði. Því hefur verið haldið fram
að við búum á svokölluðum póst-
ideólógískum tíma þar sem hug-
myndafræðilegar heimssýnir séu
ekki lengur til. Žižek er hins vegar
á þeirri skoðun að hugmyndafræði
samtímans sé dulin eða ómeðvituð
og að skyggnast beri undir yfirborð
menningarinnar til að geta krufið
hugmyndafræðina og gagnrýnt.
„Drifkraftur hugmyndafræðinnar
sýnir mér ekki það sem ég er í
rauninni að meðtaka. Það er ekki
raunveruleiki okkar sem hrepp-
ir okkur í þrældóm. Þegar við erum
innan marka hugmyndafræðinnar
er harmleikur okkar sá að þegar við
höldum að við höfum náð að flýja
hana inn í drauma okkar – þá erum
við fyrst stödd innan marka hug-
myndafræðinnar,“ segir Žižek í byrj-
un myndarinnar.
Hlýddu!
Fyrsta dæmið sem Žižek tekur er úr
hinni sígildu költmynd They Live eft-
ir meistara John Carpenter. Myndin
fjallar um fátæka verkamanninn
John Nada í Los Angeles sem finn-
ur einn góðan veðurdag kassa af sól-
gleraugum. Gleraugun reynast virka
sem „gagnrýni á hugmyndafræði“
með orðum Žižek en með þeim get-
ur Nada séð raunveruleikann í réttu
ljósi. Þannig stendur á auglýsinga-
skiltum stórborgarinnar í rauninni
„HLÝDDU“ og á peningaseðlun-
um stendur „ÞETTA ER GUÐ ÞINN“.
Žižek telur þetta vera myndlíkingu
um gagnrýni á hugmyndafræði.
„Samkvæmt heilbrigðri skynsemi
okkar er hugmyndafræði eitthvað
sem gerir hina skýru sýn okkar
óskýra. Hugmyndafræði ætti að vera
gleraugu sem rugla sjón okkar, á
meðan gagnrýni á hugmyndafræði
ætti að vera hið gagnstæða – þú tekur
gleraugun af þér svo að þú getir loks-
ins séð hvernig hlutirnir eru í raun
og veru,“ segir Žižek um þessa van-
metnu kvikmynd. „Hugmyndafræði
er ekki eitthvað sem er einfaldlega
troðið upp á okkur – hugmyndafræði
er eins konar ósjálfrátt samband okk-
ar við samfélagið, hvernig við drög-
um merkingu af hlutum og svo fram-
vegis.“
Kaþólskan og Kinder-eggið
Næsta dæmið sem Žižek tekur fyrir
í myndinni er lagið Climb Every
Mountain í söngleiknum The Sound
of Music. Lagið, sem sungið er af
nunnunni móður Abbess, er hvatn-
ing til nunnunnar Mariu um að yfir-
gefa systraregluna og að fylgja hjart-
anu sínu. Žižek telur lagið vera
fullkomna skýringu á tvíbendingu
hinnar kaþólsku hugmyndafræði.
„Ef þú lest verk eftir gáfaða kaþólska
áróðursmenn, ef þú virkilega reynir
að finna út hvaða „díl“ þeir vilja bjóða
þér, þá er„díllinn“ ekki til þess gerð-
ur að banna í þessu tilfelli kynferðis-
legar nautnir, heldur er það miklu
kaldhæðnari samningur, ef svo má
segja, á milli kirkjunnar sem stofnun-
ar og hins trúaða. Það er þetta dulda,
siðspillta leyfi sem þú færð – „Þú ert
verndaður af guði, þú getur gert hvað
sem þú vilt, njóttu þess“.“
Undirritaður tekur þessi ofan-
greindu dæmi til að gefa smá hug-
mynd um hvernig Žižek starfar –
hann fer fram og til baka í orðræðu
sinni, dregur líkingar á milli hinna
ólíklegustu hluta og blandar jafnvel
saman hinu háleita og hinu lágkúru-
lega. Sem dæmi um hið síðarnefnda
eru tveir útúrdúrar í myndinni.
Annars vegar er það sálgreiningar-
leg túlkun á eðli Kinder-eggja, og
hins vegar er það samlíking á milli
Coca-Cola og virkni kapítalisma.
„Það er að verða volgt,“ segir Žižek
eftir að við sjáum hann taka sopa af
kókflösku í Mojave-eyðimörkinni.
„Það er ekki lengur hið raunveru-
lega Coke og þar liggur vandamálið.
Þessi breyting frá hinu háleita niður
í hið sauruga. Þegar það er kalt og
borið rétt fram hefur það ákveðið
aðdráttar afl. Á svipstundu getur
þetta breyst í skít. Þetta er hin grund-
vallardíalektík nytjavaranna.“
Á öðrum stað í myndinni fáum við
að heyra meira um þráhyggju Žižeks
með rusl en þá er skyggnst inn í flug-
vélakirkjugarð í eyðimörkinni. „Það
sem við sjáum hér er hin hliðin af
kapítalískri dýnamík,“ segir hann.
Hinn lærði niðurrifsmaður
Það verður ekki tekið frá Žižek að
sem samfélagsrýnir er hann ótrúlega
beittur, sniðugur og geðþekkur. Hann
er með skemmtilega rödd, talar næst-
um því fullkomna ensku með hnaus-
þykkum hreim og heldur manni al-
veg við efnið þó að orðræða hans geti
óneitanlega orðið örlítið ruglandi af
og til. Žižek er nefnilega með sérstaka
hæfileika til að túlka heiminn og hug-
myndafræði okkar með gleraugum
hins lærða niðurrifsmanns.
Handbók hugmyndafræðiperr-
ans er skylduáhorf fyrir alla sem hafa
gaman af heimspeki, kvikmyndum
og samfélagsrýni. Žižek er hér í
essinu sínu – ávallt mótsagnakennd-
ur, ávallt skemmtilegur. n
Kvikmyndir
Þórður Ingi Jónsson
thordur@dv.is
The Perverts
Guide to Idealogy
IMDb 6,6 RottenTomatoes 91%
Leikstjóri: Sophie Fiennes.
Handrit: Slavoj Žižek.
136 mínútur
Í flugvél í eyðimörk Leikstjóri myndarinnar, Sophie Fiennes, og Žižek spóka sig í yfirgef-
inni flugvél í Mojave-eyðimörk.
Kvikmyndir
Þórður Ingi Jónsson
thordur@dv.is
Blue is the
warmest color
IMDb 7,3 RottenTomatoes 95%
Leikstjóri: Abdellatif Kechiche
Aðalleikkonur: Adèle Exarchopoulos og
Léa Seydoux.
179 mínútur
Niðurrifsmaður Žižek er með sérstaka
hæfileika til að túlka heiminn og hugmynda-
fræði okkar með gleraugum hins lærða
niðurrifsmanns.
Tónlist fyrir geimfara
n Dj. flugvél og geimskip stofnar nýja plötuútgáfu
T
ónlistarkonan dj. flugvél og
geimskip hefur nú stofnað
plötuútgáfufyrirtækið Eld-
flaug Records. Útgáfan hefur
þá sérstöðu að hún gefur
aðeins út tónlist til heiðurs geim-
ferðum. Fyrsta útgáfan er nýja plata
dj. flugvélar og geimskips sem ber
nafnið Glamúr í geimnum.
„Þetta er geimraftónlist. Ég vona
að það fari fullt af fólki að búa til
geimtónlist og senda mér. Þá get-
um við gert Ísland að geimtónlistar-
landi, fólk á eftir að ferðast alls staðar
að og segja: „Nei sko, hér er allt út í
geimtónlist!““
Steinunn Harðardóttir, dj. flug-
vél og geimskip, segist meðal annars
vera undir áhrifum frá tónlistar-
manninum og upptökustjóranum
Joe Meek. „Hann var að taka upp alls
konar tónlist fyrir fólk og bætti alltaf
inn geimhljóðum. Hann náði að búa
til eins konar geim „hype“. Þá fór fólk
út um allan heim að gera geimtón-
list. Það væri algjör snilld ef það
myndi gerast aftur núna.“
Steinunn gaf líka út myndband á
dögunum við lagið Glamúr í geimn-
um og það ætti ekki að koma neinum
á óvart að myndbandið gerist einmitt
í geimnum. Þá steig Steinunn á svið á
útgáfutónleikum sínum á Kex Hostel
um helgina.
„Það kom einhver til mín á tón-
leikunum og sagði: „Ég ætla að fara
að gera geimtónlist, þetta er sjúk-
lega hvetjandi“, þannig að ég er mjög
spennt,“ segir Steinunn. n
Eldflaugin á loft Steinunn vill gera
Ísland að geimtónlistarlandi.