Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.2013, Qupperneq 22
S
tórsöngkonan Céline Dion
hefur nú sent frá sér nýja smá-
skífu af væntanlegri hljóm-
plötu í fullri lengd. Lagið af
samnefndri plötu ber heitið
Loved Me Back to Life og er platan
væntanleg í verslanir í byrjun nóvem-
ber. Þá er hægt að taka forskot á sæluna
og panta plötuna fyrirfram í fullri lengd
á iTunes nú þegar. Lítið hefur heyrst frá
Céline Dion síðustu árin en það eru
sex ár síðan hún gaf út plötuna Taking
Chances þar sem hún söng á ensku en
hún sendi frá sér hljómplötuna Sans
Attendre í fyrra þar sem hún söng al-
farið á frönsku.
Keppti í Eurovision
Céline Dion hefur átt bæði skrautlegan
og óvenjulegan feril en hún er fædd í
Kanada árið 1968 og fagnaði 45 ára af-
mæli sínu þann 30. mars á þessu ári.
Margir muna eflaust eftir því þegar Cé-
line steig sín fyrstu spor inn í frægðina
þegar að hún keppti fyrir hönd Sviss í
Eurovision-keppninni árið 1988 þar
sem hún fór með sigur af hólmi með
lagið Ne partez pas sans moi.
Eiginmaðurinn 26 árum eldri
Hún kynntist fljótlega tilvonandi
eigin manni sínum, Frakkanum René
Angélil, sem veðsetti hús sitt á sínum
tíma til að fjármagna fyrstu hljómplötu
söngkonunnar árið 1990 en þau giftu
sig fjórum árum síðar. Sögur herma að
móðir Céline hafi ekki verið ýkja hrifin í
upphafi af ástarsambandi dóttur sinn-
ar en René er 26 árum eldri en Céline
og var hann því 45 ára þegar þau fóru
að rugla saman reytum, Céline þá að-
eins 19 ára.
Vinsældirnar létu þó ekki á sér
standa og fjárfesting René varð til góðs.
Céline vakti brátt athygli vestanhafs og
gerði síðar plötusamning við hljóm-
plöturisann Epic Records í Bandaríkj-
unum og varð ein söluhæsta söng-
kona heims með lögum á borð við My
heart will go on sem kennt er við kvik-
myndina Titanic.
Fórnaði framanum um skeið
Á hápunkti velgengninnar, árið 1999,
tók Céline hins vegar ákvörðun um
að draga sig í hlé til að sinna einkalíf-
inu þar sem René hafði greinst með
krabbamein í hálsi sem hann lækn-
aðist síðar af. Parið ákvað að ganga í
hjónaband í annað sinn árið 2000 í
spilaborginni Las Vegas og ákvað Cé-
line í kjölfarið að gangast undir vel
heppnaða frjósemisaðgerð og fæddist
þeim sonur ári síðar. Céline eignaðist
síðar tvíbura árið 2010 og eiga hjónin
nú þrjá syni.
Glæsileg sýning í Las Vegas
Céline Dion var lengi búsett í Las Vegas
þar sem hún hélt stórfenglega stjörnu-
tónleika fyrir sitjandi áhorfendur á ár-
unum 2003–2007 sem hlutu lof víða.
Söngkonan leggur nú drögin að nýrri
sýningaröð á Caesars Palace í spila-
borginni Las Vegas og er miðasala
þegar hafin. Ljóst er að söngdívan hef-
ur löngu stimplað sig inn í Hall of Fame
sem lifandi goðsögn í tónlistarheimin-
um og hlaut til að mynda Chopard Di-
amond Award á World Music Awards
árið 2004 eftir að hafa selt 175 milljón-
ir hljómplatna um heim allan og var á
þeim tíma söluhæsta söngkona heims
en samkvæmt Sony Music Enter-
tainment hefur söngkonan selt yfir 200
milljónir platna í dag. n
22 Fólk 21. október 2013 Mánudagur
Nýja platan heitir Britney Jean
N
ý plata með söngkonunni
Britney Spears er væntan-
leg í byrjun desember og
hefur hún hlotið heitið Brit-
ney Jean. Nafnið er að hluta til
til heiðurs poppgoðinu Michael
Jackson sem lést árið 2009. Nafnið
er dregið af hinum fræga smelli
Jackson, Billie Jean, sem er að finna
á plötunni Thriller sem er ein sölu-
hæsta plata allra tíma.
Britney kom fram ásamt Michael
Jackson á 30 ára starfsafmæli hans
sem haldið var í New York árið
2001. Þar tóku þau saman dúettinn
The way you make me feel. Að öðru
leyti þekktust þau lítið að sögn Brit-
ney.
Söngkonan, sem nú er orðin 31
árs tveggja barna móðir, segir í við-
tali við breska útvarpsrás á dögun-
um að væntanleg plata hennar sé
með persónulegum blæ. „Öll fjöl-
skylda mín hefur alltaf kallað mig
Britney Jean,“ fullyrðir hún og bætir
því við að um sé að ræða gælunafn í
góðu gamni sagt.
Fyrsta smáskífan, Work Bitch,
kom út í september og hefur mynd-
bandið fengið mikla athygli, yfir 30
miljónir í áhorfi á Youtube, en þar
fer Britney mikinn og slær með-
al annars krjúpandi stúlku með
píski og hvetur hana þannig til að
koma sér að verki. Lagið er poppað
og nýtur vinsælda í líkamsræktar-
stöðvum nú þegar.
Tvö ár eru liðin frá síðustu plötu
Britney sem bar heitið Femme
Fatale og innihélt smelli eins og I
wanna go og Hold it against me. n
svala@dv.is
Céline Dion sendir
frá sér nýja plötu
n Söluhæsta söngkona heims hefur látið lítið fyrir sér fara síðustu ár
n Britney Spears segir nafnið á væntanlegri plötu sinni vera gamalt gælunafn
topp 5
Franskar
leikkonur
1 Audrey Tautou Sló í gegn í frönsku kvikmyndinni Amelie þar
sem hún lék forvitna hjálparhellu sem
vildi ekki láta afreka sinna getið. Hún lék
í tveimur kvikmyndum sem frumsýndar
voru á þessar ári, Chinese Puzzle og Mood
Indigo.
2 Brigitte Bardot Blondína með bústnar varir og lifandi
goðsögn í dag. Ófáar leikkonur hafa sótt
fyrirmynd í Brigitte hvað
kynþokka og útgeislun
varðar. Hún þótti
djörf á sínum tíma
og kom nakin fram
í kvikmyndinni God
Created Woman árið
1956.
3 Marion Cotillard Vann óskarinn fyrir túlkun sína á franska
söngfuglinum Edith
Piaf í kvikmyndinni
La Vie en Rose sem
frumsýnd var 2007.
Kvikmyndin byggir á
átakanlegri ævi Piaf.
4 Eva Green vann Bafta-verðlaunin árið 2006
sem nýstirni á uppleið fyrir
leik sinn í James Bond-
myndinni Casino
Royale. Það vita það
kannski ekki allir
að hún á sænskan
föður sem starfar sem
tannlæknir.
5 Emmanuelle Béart Ein vin-sælasta leikkona
Frakka en hún hefur
leikið í yfir 60 frönsk-
um myndum. Hún
átti þó velgengni
að fagna um skeið í
Hollywood þegar hún
lék í Mission Impossible
árið 1996 á móti Tom Cruise.
Britney Spears ásamt Michael Jackson Tóku saman lagið The way you make me feel
á 30 ára starfsafmæli Michael sem haldið var í New York árið 2001.
Sniðgengur
Vanity Fair
Leikkonan Gwyneth Paltrow á ekki
sjö dagana sæla um þessar mundir
en sögusagnir eru farnar á kreik um
að hún hafi átt í ástarsambandi við
auðmanninn Jeff Soffer, eiginmann
fyrirsætunnar Elle MacPherson. Sam-
kvæmt New York Post hefur Gwyneth
neitað ásökunum frá upphafi enda
harðgift söngvaranum Chris Martin úr
hljómsveitinni Coldplay og eiga þau
saman tvö börn. Gwyneth hefur í kjöl-
farið sent út áskorun til vina sinna um
að sniðganga tímaritið Vanity Fair þar
sem sögusagnirnar komu fyrst fram.
Svala Magnea Georgsdóttir
blaðamaður skrifar svala@dv.is
Céline Dion Lagið af samnefndri plötu
ber heitið Loved Me Back to Life og er
platan væntanleg í verslanir í byrjun
nóvember.
Céline tók þátt í Eurovision Svona leit
Céline Dion út árið 1988 þegar hún keppti í
Eurovision fyrir hönd Sviss og fór með sigur
af hólmi í keppninni.