Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1924, Blaðsíða 9
Formáli.
Avant-propos.
Frá ársbyrjun 1921 var innheimtu verslunarskýrslnanna gerbreytt.
Aður höfðu innflytjendur og útflytjendur gefið eina skýrslu eftir árslokin
um allan innflutning sinn og útflutning á árinu. En sú aðferð þótti ekki
gefast vel. Innheimtan gekk afarseint, þar sem fyrst var farið að inn-
heimta skýrslurnar þegar árið var liðið, og þar sem skýrslugerðin var
allmikið verk fyrir hvern skýrslugefanda, frestuðu margir henni í lengstu
lög eða hummuðu hana jafnvel alveg fram af sjer, en marga sást alveg
yfir. Heimturnar urðu því mjög slæmar. Sást það best á því, að þegar
innkomnar skýrslur um tollvörur voru bornar saman við það, sem toll-
reikningarnir töldu innflutt eða útflutt, þá vantaði æfinlega mikið á, að
skýrslurnar næðu þeirri upphæð sem tollreikningarnir sýndu. Stundum
vantaði í skýrslurnar um V4 eða meir af öllum tollvörum, en af ein-
stökum tollvörum oft miklu meira, svo sem sjá má t. d. í inngangi versl-
unarskýrslnanna 1913—16. Til þess að bæta úr þessu var frá ársbyrjun
1921 tekin upp sú regla, að innflytjendur og útflytjendur skyldu gefa
skýrslurnar jafnóðum um leið og vörurnar væru fluttar inn eða út. Var
sú aðferð síðar lögboðin með lögum nr. 12, 19. júní 1922 um verslunar-
skýrslur. Hver sending af sjerhverri vöru er skráð á sjerstakt eyðublað,
og eiga öll eyðublöðin að sendast hagstofunni eftir hvern ársfjórðung.
Með þessari aðferð átti að vinnast það tvent, að skýrslurnar yrðu áreið-
anlegri og nákvæmari, og að þær gætu komið fyr. Að vísu útheimtir
þessi aðferð miklu meiri vinnu af hagstofunni heldur en sú eldri, en hins-
vegar átti hagstofan með þessu lagi að geta byrjað miklu fyr á skýrsl-
unum og unnið úr þeim svo að segja jafnóðum. Fyrra takmarkið, að
gera skýrslurnar áreiðanlegri og nákvæmari, hefur náðst með breyting-
unni. Nú má bera skýrslurnar saman við farmskrár (manifest) skipanna
og sjá hvort skýrslur koma um alt og heimta það sem á vantar. En
síðara takmarkið, að flýta fyrir útkomu skýrslnanna, hefur eigi náðst enn
sem komið er. Innheimtunni er sumstaðar allmikið ábótavant ennþá,