Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Blaðsíða 17
Verslunarskýrslur 1925
15
1921 1922 1923 1924 1925
Sljettur vír 32 58 71 106 114
Rafmagnsvjelar og áhöld . .. . 76 74 93 57 105
Bifreiðahlufar 15 ’ 8 12 28 55
Mótorhlutar 15 28 70 75 88
Af bifreiðum í heilu lagi voru fluttar inn 7 árið 1921, 9 árið 1922,
27 árið 1923, 44 árið 1924 og 110 árið 1925.
4. Útfluttar vörutegundir.
Exportation des marchandises.
í töflu II D (bls. 29—33) er skýrt frá útflutningi á hverri einstakri
vörutegund frá landinu í heild sinni. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
skyldleika þeirra, á sama hátt sem innfluttu vörurnar, og er yfirlit yfir
þá flokkaskiftingu í töflu I (bls. 1).
3. yfirlit (bls. 16*) synir, hve mikilli verðupphæð útflutta varan
hefur numið árlega síðan um aldamót. Eru vörurnar þar flokkaðar eftir
því, frá hvaða atvinnuvegi þær stafa. Ennfremur er sýnt með hlutfalls-
tölum, hve mikill hluti verðmagnsins stafar árlega frá hverjum atvinnu-
vegi. Hefur hlutdeild sjávarafurða vaxið, en landbúnaðarafurða minkað.
Fram að 1920 námu landbúnaðarvörurnar að meðaltali rúml. J/5 af út-
flutningsverðmagninu, en eftir 1920 hafa þær ekki numið nema 13 °/o
að meðaltali, en fiskiafurðirnar aftur á móti 85 °/o.
Eiskiafurðirnar eru þannig yfirgnæfandi í útflutningnum. Hafa þær að
verðmagni verið 70 milj. kr. árið 1925. 4. yfirlit (bls. 17*) sýnir, hve mikill
fiskútflutningurinn, að undanskilinni síld, hefur verið árlega síðan um
aldamót. Hefur hann alls hjerumbil ferfaldast á þessu tímabili. Þó hefur
útflutningur á fullverkuðum saltfiski ekki vaxið nærri eins mikið, en
aukningin verið þeim mun meiri á Labradorfiski, óverkuðum saltfiski
og ísfiski.
Síldarútflutningurinn hefur verið þessi á tveim fyrstu áratugum
aldarinnar:
1901- 05 ..... 5 504 þús. kg. 1916—20 ...... 14 472 þús. kg.
1906—10 ...... 16 720 — — 1921—25 ...... 17 055 — —
1911 — 15 .... 19896 — —