Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Blaðsíða 21
Verslunarskýrslur 1925
19
5. Viðskifti við einstök lönd.
L’échange avec les pays étrangers.
5. yfirlit (bls. 20*) sýnir hvernig verðupphæð innfluttu og út-
fluttu varanna hefur skifst 4 síðustu árin eftir löndunum, þar sem vör-
urnar hafa verið keyptar eða seldar. Síðari hluti töflunnar sýnir, hvern
þátt löndin hafa tekið hlutfallslega í versluninni við Island samkvæmt
íslensku verslunarskýrslunum.
Langmestur hluti innfluttu vörunnar kemur frá Danmörku og Bret-
landi, eða meir en 2h hlutar alls innflutningsins. Venjulega hefur Dan-
mörk verið heldur hærri en Bretland, en árin 1924 og 1925 er Bretland
þó heldur hærra. Næst þessum löndum gengur Noregur með 13 °/o af
öllum innflutningnum 1925. Því næst kemur Þýskaland og Spánn með
4—6 °/o og þá Svíþjóð, Holland og Bandaríkin með 2—3 °/o.
Af verðmagni útflutningsins hefur árið 1925 um 2/5 komið á Spán
og er hann Ianghæstur af útflutningslöndunum, enda útflutningur aukist
þangað afarmikið. Fyrir stríðið var útflutningur aftur á móti langmestur
til Danmerkur (um 2/s af öllum útflutningnum), en á stríðsárunum síðari
tók að mestu fyrir allan útflutning þangað og síðan hefur hann ekki
náð sjer aftur í hið fyrra horf, og árið 1925 fór aðeins 10 °/o af útflutn-
ingnum til Danmerkur, og komust þá bæði Bretland og Noregur fram
úr Danmörku, Bretland tók við 13 °/o af útflutningnum, en Noregur við
12 °/o. Skamt á eftir koma svo Ítalía með 10 °/o og Svíþjóð með 8 °/o.
A 5. yfirliti sjest, að miklu meira er flutt út frá íslandi til Spánar,
Italíu og Svíþjóðar heldur en innflutt er frá þessum löndum, en aftur á
móti er miklu meira innflutt frá Danmörku og Bretlandi heldur en út-
flutt er þangað. Útflutningur til Noregs og innflutningur þaðan, nema
aftur á móti svipaðri upphæð síðustu árin.
í töflu IV A og B (bls. 38—78) eru taldar upp allar helstu inn-
fluttar og útfluttar vörutegundir og sýnt hvernig inn- eða útflutningsmagn
hverrar vöru skiftist eftir löndum. í III. töflu (bls. 34—37) er verðmæti
innflutningsins frá hverju landi og útflutningsins til þess skift eftir vöru-
flokkum. Og loks eru í töflu V (bls. 79—92) taldar upp með magni og
verði helstu vörutegundirnar í innflutningnum frá hverju landi og í út-
flutningnum til þess.