Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1928, Page 26
24
Verslunarskýrslur 1926
vegna þess hvað peningagildlð hefur breyst. En ef inn- og útflutnings-
tollarnir eru bornir saman við verðmagn inn- og útflutnings sama árið,
þá má bera þau hlutföll saman frá ári til árs. Sýna þau hve miklum
hluta af verðmagninu tollarnir nema á ári hverju og þess vegna hvort
tollgjöldin hafa raunverulega hækkað eða lækkað. I eftirfarandi yfirliti
er slíkur samanburður gerður fyrir árin síðan um aldamót og sýnt, hve
miklum hundraðshluta af verðmagni innflutnings og útflutnings inn- og
útflutningstollarnir nema á ári hverju.
Innflutn. Útflutn. Innflutn. Útflutn.
tollar tollar tollar tollar
1901 — 05 meðalt. 6.3 % 0.9 % 1922 5.8 % 1.6 0/°
1906-10 — 6.9 — 1.3 — 1923 5.7 — 1.5 —
1911-15 — 6.5 — 1.0 — 1924 7.4 — 1.1 —
1916-20 — 3.9 - (-fst.) 1.0 — ( + st.) 1925 10.o - 1.6 —
1921—25 — 7.2 - ( 1 st.) 1.4 - (+St.) 1926 10.7 — 1.7 —
Merkið (+ st.) táknar, að þar við bætist stimpilgjaldstollurinn
(1918—21). Á stríðsárunum fóru tollarnir í rauninni lækkandi, vegna
þess að þeir fylgdust ekki með verðhækkuninni. En síðan 1919 hafa
útflutningstollarnir verið yfirleitt hærri heldur en fyrir stríðið, og inn-
flutningstollarnir síðan 1924.
7. Tala fastra verslana.
Nombre des tnaisons de commerce.
Skýrsla um tölu fastra verslana í hverju lögsagnarumdæmi á land-
inu árið 1926 er í töflu VI (bls. 95).
Síðan um aldamót hefur tala fastra verslana verið þessi:
Kaup- Sveita- Kaup- Sveifa-
Heild- túna- verst- Sam- Heild- túna- versl- Sam-
salar versl. anir tats salar versl. anir tals
1901- 05 meðalt. — 273 27 300 1922 .... 47 723 37 807
1906- 10 — — 416 31 447 1923 .... 48 746 37 831
1911- 15 — 16 476 24 516 1924 .... 50 769 33 852
1916- -20 — 36 658 33 727 1925 .... 62 797 38 897
1921 - 25 50 752 37 839 1926 .... 62 803 32 897
Árið 1926 hefur verslanatalan í heild sinni ekkert hækkað, því að
sveitaverslunum hefur fækkað um það sem kauptúnaverslunum hefur
fjölgað. Annars hefur föstum verslunum sífelt farið fjölgandi. Einkum var
fjölgunin mikil á stríðsárunum. Heldverslunum og umboðsverslunum hefur
fjölgað tiltölulega meir en öðrum verslunum. Erlendar eru þær verslanir
taldar, er eigandinn er búsettur í Danmörku. Þessum verslunum hefur
farið fækkandi á síðari árum. í byrjun aldarinnar voru þær taldar 50, í
stríðsbyrjun (1914) 43, eftir stríðslok (1919) 36 og 28 árið 1926.